Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1995, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1995, Blaðsíða 2
Fréttir v LAUGARDAGUR 29. APRÍL 1995 Heimilislæknar telja formann LI hafa sinnt hagsmunum sérfræðinga á sinn kostnað: Aldrei meiri hætta á klofningi í röðum lækna - segir formaður heimilislækna - verð ekki í félagi sem ég skammast nun fyrir, segir Petur Pétursson „Ef einhvem tíma hefur veriö hætta á klofningi í röðum lækna þá hefur hún aldrei verið jafn mikil og núna. Ef klofningurinn verður vegna ákvörðunar heimilislækna þá verður sú ákvörðun auðvitað tekin í ljósi þess að hann bæti stöðuna hvað varðar hagsmunamál heimihs- lækna,“ segir Sigurbjöm Sveinsson, formaður Félags íslenskra heimilis- lækna (FíH). Mikillar óánægju gætir meðal fé- lagsmanna og einstakra forystu- manna FÍH með afskipti Sverris Bergmanns, formanns Læknafélags íslands (LÍ), af tilvísanadeilunni. Óánægjan snýst fyrst og fremst um bréf sem sérfræðingar sendu alþing- ismönnum þegar tilvísanadeilan stóð sem hæst og Sverrir skrifaði undir sem formaður LÍ. Telja heimilis- læknar ýmsar rangfærslur koma fram í bréfunum, m.a. um kostnaðar- útreikninga við heilsugæslu, að til hagsmunaárekstra geti komið þegar heimilislæknar beita tilvísanavald- inu, eins og formaður LÍ orðar það, o.íl. Telja margir heimilislæknar for- mann LÍ, sem er stéttarfélag lækna, hafa sinnt hagsmunum sérfræðinga á kostnað heimihslækna með þessu. Jafnframt hafi Sverrir tekið þátt í auglýsingaherferð gegn tilvísana- skyldunni þar sem vísað er th heilsu- gæslunnar á niðrandi hátt. Tahð er að þessar gerðir hans hafi ekki verið samkvæmt ákvörðun stjómár LÍ og því beri honum að segja af sér. Úrsögn könnuð Bróðurpartur heimihslækna á Ak- ureyri hefur óskað eftir þvi aö FÍH kanni með hhðsjón af ofansögðu hvaða gagn þeir hafi af aðhd að LÍ og hvaða áhrif úrsögn þeirra úr fé- laginu kann aö hafa. „Viö teljum að Sverrir hafi gert ht- ið úr starfi okkar og dylgjað um fag- lega hæfni okkar. Við htum svo á að andinn gagnvart okkur hjá forystu- mönnum sérgreinalækna, m.a. hjá formanni LÍ, uppfylh ekki þær kröf- ur sem við hljótum að gera th for- ystu stéttarfélags. Hvort við segjum okkur úr félaginu veltur á niður- stöðu þessarar könnunar. Ég get ein- ungis talað fyrir mig sjálfan. Eg mun ekki vera aðili að samtökum sem ég skammast mín fyrir,“ segir Pétur Pétursson, heimhislæknir á Akur- eyri. Víðtækari afleiðingar hugsanlegar Sigurbjörn segir að vitað sé um óánægju fleiri heimihslækna en á Akiu-eyri. Lögfræðhegt mat muni verða gert í nafni FÍH, sem er fagfé- lag, um hvort félagið geti sinnt stétt- arfélagshlutverkinu og hvað muni gerast um ýmis mál sem th þessa hafi verið á könnu LÍ. Aðspurður hvort þessi deila og hugsanleg úrsögn heilsugæslulækna úr LÍ geti haft víðtækari afleiðingar segir Sigurbjöm það hugsanlegt, „en ég ætla læknum það mikinn þroska aö þetta komi aldrei th með að lenda á sjúklingunum." -pp Stuttar fréttir Óðum styttist í að heimsmeistaramótið í handbolta hefjist. í gær afhenti Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri Laugardalshöllina til afnota fyrir keppnina. Hún sendi boltann til Ólafs B. Schram, formanns HSÍ, sem greip hann á lofti. Búið er að gera miklar breytingar á Höllinni sem alls hafa kostað um 230 milljónir. DV-mynd ÞÖK Iðnþing 1995: Iðnaðurinn vill í ESB fyrir árið 2000 - samkvæmt könnun Samtaka iðnaðarins Verðmætvbílar Fimm sérútbúnir sjónvarpsbh- ar era á leiö th landsins með einu af skipum Eimskipafélagsins vegna heimsmeistaramótsins í handbolta. Skv. RÚV er saman- lagt verðmæti bílanna um einn mihjarður króna. Humarvertíð frestaö Sjávarútvegskerfiö ákvað í gær að humarvertíö yrið frestað um viku vegna kennaraverkfahsins í vetur. Vertíðin hefst 21. maí í stað 14. maí. Lukkaisundlaug Á næstunni mun mihjónasti sundlaugargesturinn heimsækja Sundlaug Kópavogs. Sá heppni fær ferð fyrir tvo th Dyflinnar í sumar, frían aögang að sundlaug- inni th áramóta og fleiri gjafir. Blindiráráðstefnu Samstarfsnefnd norrænu Blindrafélaganna stendur fyrir ráöstefnu í Reykjavik um helg- ina. Fiahað verður um aðgang blindra og sjónskerta að menn- ingu og upplýsingm. Aht að 50 manns sifja ráðstefnuna. Betriafkoma Afkoma Samskipa batnaði verulega á síðasta árí. Rekstrar- hagnaðurinn varð 82 mihjónir miðað við 485 mihjóna króna tap á árinu 1993. Bylgjan skýrðí frá þessu. Intemetið óvirkt Vegna bhunar á kaph í Kaup- mannahöfn í gærdag varð tveggja tíma sambandsleysi á gagna- flutningsleiðum frá íslandi, sem meðal annars Intemetið notar. -kaa Samtök iðnaðarins stóðu fyrir Iðn- þingi 1995 í húsakynnum sínum við Hahveigarstíg í gær. Þar geröist það helst að niðurstöður skoðanakönn- unar vora birtar á viðhorfi félags- manna samtakanna til aðhdar að Evrópusambandinu, ESB. Yfirgnæf- andi hluti félagsmanna, eða 80%, er fylgjandi þvi að ísland sæki um aðhd að ESB fyrir aldamót, samkvæmt könnuninni. Fyrst verði hins vegar að setja skýr samningsmarkmið. Haraldur Sumarliðason, formaður Samtaka iðnaðarins, sagði 1 ræðu sinni að niðurstöður könnunarinnar væra athyghsverðar, ekki síst í ljósi þeirrar afstöðu eða afstöðuleysis sem íslensk stjómvöld hafa sýnt í um- ræðunum um þetta mikilvæga mál. Finnur Ingólfsson, nýr iðnaðarráð- herra, hélt ræðu á Iðnþinginu. Hon- um varð tíðrætt um vaxtamálin og sagði m.a.: „Eg er ósáttur við þessa fyrirhug- uðu vaxtahækkun bankanna. Hvað útlánin varðar eiga þeir nú í harðri samkeppni við verðbréfamarkaðinn og hafa reyndar verið að missa þang- að viðskiptayini. Vaxtahækkun mun varla bæta samkeppnisstöðu bank- anna að þessu leyti. Vaxtahækkun mun einnig leiða th verri afkomu fyrirtækja og gera þeim og skuldug- um heimilum landsins erfiðara fyrir að standa við skuldbindingar sínar. Ekki mun það draga úr afskriftaþörf bankanna. Ég viðurkenni fúslega aö hinn gullni meðalvegur vaxtamál- anna er vandrataður en ég tel aö í þessum efnum verði bankamir að gæta þess að slátra ekki mjólkur- kúnni." Þú getur svaraö þessari spurningu meö því aö hringja í síma 99-16-00. 39,90 kr. mínútan. r ö d FÓLKSIN 99-16-00 Á að leyfa sölu áfengs bjórs á HM í Laugardalshöll? Allir í stafræna kerfinu með tónvalssíma geta nýtt sér þessa þjónustu. Þettaermis- skilningur - segir Sverrir Bergmann „Ég tel þetta byggt á misskilningi og harma hve ummæhn eru ströng. Ég var síðast á fundi með Sigurbimi í gær og vænti ekki yfirlýsingar sem þessarar frá heimihslæknum. Mér sýnist hún fremur óþörf. Ég ætla að það sé ekki stór hópur lækna sem er andstæöur stefnu Læknafélagsins í málinu. Ég vænti þess enn fremur að menn gefi sér tíma th að hugsa máhn vel og rækilega svo þeir sjái þau í réttu ljósi og samhengi og þá mína stöðu um leið. Þannig vona ég að ég geti verið þáttur í því að leiða lækna saman að nýju sem ég er byrj- aður á,“ sagði Sverrir Bergmann, formaöur Læknafélags íslands, við DV í gær. -pp Félagsmálastofnun: Félagsmálaráð hefur samþykkt verklagsreglur fyrir starfsmenn Félagsmálastoftiunar við úthlut- un ijárhagsaðstoðar tíl skjólstæð- inga stofhunarinnar. Guðrún Zo- ðga, fuhtrúi Sjálfstæðisflokksins í félagsmálaráði, telur að verk- lagsreglumar rýmki svokallaðar heimhdargreiðslur í stað þess að draga úr þeim, eins og nýjar út- hlutunarreglur hafi átt að stuðla að. „Heimhdargreiðslumar erú all- ar th hækkunar á fjárhagsaðstoð. Þannlg er til dæmis gert ráð fyrir því að áfahandi skattar verði borgaðir th viðbótar, kostnaður viö heimhishjálp verði greiddur, veittur styrkur vegna barna á aldrinum 16 th 18 ára og svo er nýjung að greiða barnsmeðlög,“ segir Guðrún Zoéga. „Þetta eru bara verklagsreglur innan stofnunarinnar th að starfsraenn viti hvernig þeir eigi að meðhöndla máL í þeim era tvö nýmæh út frá úrskurði félags- málaráðuneytisins og við getum ekki annað en hhtt honum. Þess- ar reglur rýmka ekki nokkurn skapaðan hlut,“ segir Guðrún Ögmundsdóttir, formaður félags- málaráðs. -GHS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.