Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1995, Blaðsíða 56

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1995, Blaðsíða 56
FRÉTTASKOTIÐ BLADAAFGREIÐSLA OG ÁSKRiFT ER OPIN; 562•2525 Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 562 2525. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið- ast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Laugardaga: 6-14 Sunnudaga: lokað Mánudaga: 6-20 Þriðjudaga - föstudaga: 9-20 BEINN SÍMI BLAÐA- j.-| RITSTJÓRN - AUGLÝSINGAR - ÁSKRIFT - DREIFING: 563 27001 AFGREIÐSLU: 563 2777 KL 6-8 LAUGARDAGS- OG MANUDAGSMDRGNA Frjálst,óháð dagblað LAUGARDAGUR 29. APRÍL 1995. Deyfð á fast- eignamarkaði - beðið eftir ríkisstjóminni Vegna yfirlýsinga nýrrar ríkis- stjórnar um aö húsnæðislán verði lengd og að kaupendur fyrstu íbúðar fái sérstaka aðstoð er fasteignamark- aðurinn daufur um þessar mundir, að sögn Jóns Guðmundssonar, for- manns Félags fasteignasala. Þar sem engar tímasetningar séu komnar á þessar aðgerðir segir Jón að kaup- endur haldi að sér höndum og bíði átekta. Jón segir það slæmt að gefa fyrirheit og tímasetja þau ekki. „Okkur skilst að ekkert verði gert fyrr en í haust. Hins vegar er það mín skoðun að ríkisstjórnin geti vel nýtt sér heimild í lögum að hækka lánahlutfallið til þeirra sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð úr 65 í 75 pró- sent. Það myndi strax létta miklu á markaðnum. Að fara með hlutfallið í 75 prósent getur munað 500 þúsund krónum fyrir ungt fólk sem er að kaupa Utla íbúð. Það munar um minna,“ segir Jón. Sölumiðstöðin til Akureyrar Gylfi Kristjáns3on. DV, Akureyit „Það eru ekki nema góðar fréttir af vinnu okkur vegna flutninganna til Akureyrar, þetta er allt á þeirrí áætlun sem sett var upp,“ segir Jón Ingvarsson, stjórnarformaður Sölumiðstöðvar hraðfrystihús- anna, um fyrirhugaðan flutning á hluta starfsemi félagsins til Akur- eyrar eins og samið var um í vetur þegar SH fékk áframhaldandi við- skipti við Útgerðarfélag Akur- eyringa. Hluti höfuðstöðva fyrirtækisins verður fluttur til Akureyrar og er þar um „þverskurð“ af starfsemi fyrirtækislns að ræða. Á skrifstof- um SH á Akureyri verða starfandi rétt ura 30 manns og sagöi Jón aö um helmingur þess fóiks kæmi frá höfuðstöðvunum í Reykjavík. Þessi starfsemi verður í Lindu- húshiu svokallaða viö Hvannavelli og þar verður einnig framleiðsla Umbúðamiöstöðvarinnar sem er dótturfyrirtæki SH og flyst nú norður. I umbúðaframleiðslunni munu verða um 40 störf að ræða og sagði Jón i samtali við DV að þau störf yrðu að langmestu leyti mönnuð heimamönnum. Þessi starfsemi öll á að vera komin í gang síöla sumars. Þórður Sveinsson, forstöðumað- ur flutningasviðs Eimskips, segir að unnið sé samkvæmt áætlun um aukin umsvif félagsins á Akureyri sem voru hluti af samningum SII við Akureyrarbæ. Auka á mjög tiðni komu skipa félagsins til Akur- eyrar oghefjabeinan útflutningfrá Akureyri. Þá hafa Eimskipsmenn uppi hugmyndir um byggingu fry- stígeymslu á Akureyri en Þórður varðist allra frétta af framgangi þess máls. Akureyri: Banaslys Rúmlega tvítugur Reykvíkingur lét lífið í vélsleðaslysi fyrir ofan Akur- eyrarbæ í gærdag. Maðurinn var einn á ferð á vélsleða og ók á girðing- arvír með þeim afleiðingum að hann beiðbana. -pp DV kemur næst út eldsnemma að morgni þriðjudagsins 2. maí. Smáauglýsingadeild DV er opin í dag til kl. 14, lokað verður á morgun, sunnudaginn 30. apríl. Opið verður mánudaginn 1. mai frá kl. 16-22. Síminn er 5632700. & Áv; bnother tölvu límmiða prentari 1.7 1 Nýbýlavegi 28 - sími 554-4443 - K i« V\\ . #. LOKI Segið svo að fólk treysti ekki á loforð stjórnmálamanna í kosningum! Þrjú kanadisk herskip komu til Reykjavíkur í gærmorgun á leið sinni til annarra Evrópulanda i tilefni þess að hálf öld er liðin frá lokum síðari heimsstyrjaldar. Almenningi gefst kostur á að skoða skipin í Sundahöfn milli klukkan 13 og 17 í dag. Sjóliðar voru i gær önnum kafnir við að gera hreint um borð. DV-mynd JU Mannabeinin send utan til rannsóknar ID-nefnd, sem ætlað er að bera kennsl á líkamsleifar, hefur ákveðið að senda mannabeinin sem fundust í fjörunni í Straumsvík fyrr í vikunni utan til aldursgreiningar. Beinin munu verða send á næstu vikum utan og er líklegast að þau verði rannsökuð í Svíþjóð eða Bandaríkj- unum. Talið er að það taki nokkrar vikur að fá niðurstöðu í aldursgrein- ingarrannsókn af því tagi sem líklega þarf að framkvæma. -pp íslenska útvarpsfélagið: Meirihlutinn keypti Meirihlutinn í íslenska útvarpsfé- laginu, sem rekur Stöð 2 og Bylgj- una, hefur keypt nær öll hlutabréf minnihlutans í félaginu. Frá þessu var gengið í gær fyrir milligöngu Oppenheimer fjármögnunarfyrir- tækisins í New York. Veörið á sunnudag og mánudag: Mánudagur <--- Sunnudagur Hlýjast sunnanlands A sunnudag verður austanstrekkingur og rigning við suðurströndina en annars austangola eða kaldi og skýjað með köflum. Hiti verður 3-8 stig, hlýjast um landið sunnanvert. Á mánudag verður nokkuö hvöss austanátt og rigning sunnan til á landinu en hægari og skýjað norðan til. Hiti verður 5-10 stig.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.