Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1995, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1995, Blaðsíða 33
LAUGARDAGUR 29. APRÍL 1995 41 Nýr þáttur í Sjónvarpinu: Uppruni og þróun mannsins Á mánudagskvöld hefur Sjónvarp- iö sýningar á nýjum breskum heim- ildarflokki sem heitir The Human Animal en í íslenskri þýöingu hefur hann fengið nafniö Mannskepnan. Þættirnir eru sex talsins og höfund- urinn er Desmond Morris, vel þekkt- ur fræðimaður sem hefur skrifað nokkrar bækur um atferh manna. Má þar t.d. nefna Nakta apann. Tjáning líkamans Ein skilgreining á því hvemig mannfólkið er öðruvísi en dýrin er hvemig við beitum hinu talað máli til að tjá okkur. í fyrsta þættinum, sem kalla mætti líkamstjáningu, er tekið á þessu. Þar er jafnframt komið inn á hvernig fólk beitir líkama sín- um til að eiga tjáskipti við aðra. Oft gerum við þetta ósjálfrátt en með þessum hætti getum við t.d. verið að koma á framfæri skilaboðum um það hvernig andlegri líðan okkar er hátt- að þá stundina. í þættinum er einnig velt upp þeirri spurningu hversu mikilvæg þessi staðreynd sé í sam- henginu við yfirráð manna á jörð- inni. Mannskepnan og kynlífið Fjölmörg önnur atriði eru tekin til Morris. skoðunar í þessum þáttum og má nefna kynlífið í því sambandi. Einnig er boriö saman hvernig apar höguðu sér fyrir einum sex milljónum ára og hvemig mannskepnan ber sig að í dag við íþróttaiðkun, stríðsátök og jafnvel þátttöku í viðskiptalífinu. Þessir þættir um uppruna og þróun mannsins eru á dagskrá á mánudags- kvöldum eins og áður sagði en þulur er Guðmundur Ingi Kristjánsson. Jón 0. Edwald þýddi. Sviðsljós Sylvester Stallone: Búinn að finna þá réttu Kvennamaðurinn mikli og vöðva- búntið Sylvester Stahone þykist loksins vera búinn að ná sér í þá einu réttu eftir ekki ófáar tilraunirnar. Sú rétta heitir Angie Everhart, 24 ára gömul rauðhærð stúlka sem þykir alveg gullfalleg. Nú er um það rætt að brúðkaupsbjöhurnar kunni að khngja alveg á næstunni. Búist er við að hún flytji inn til hans í höllina við Biscayne-flóa í Flórída sem þykir hreint út sagt stórkostleg. Angie þessi starfar sem módel og vakti fyrst athygli á sér í baöfataaug- lýsingu í tímaritinu Sports Ihus- trated. Þegar Stallone hitti hana fyrst féh hann alveg kylliflatur fyrir henni og var fljótur að biðja um stefnumót. Hún var meira en til í það. Það voru fleiri á eftir henni en Stallone því leikarinn Kevin Costner hafði ekki látið hana í friði um nokkurt skeið og hafði meðal annars boðist til að senda einkaflugvél sína eftir henni nokkrum sinnum svo þau gætu hist en hún hafði engan áhuga. Angie hefur látið hafa eftir sér að Stahone sé hreint út sagt frábær ná- Stallone segist sannfærður um aö hann sé búinn að finna þá einu réttu. Hann hafi hingað til ekki verið heppinn í ástarmálum. ungi og þau passi vel saman. Vöðva- búntiö segir aö hingaö til hafi hann ekki verið heppinn í kvennavah. Nú sé hann hins vegar sannfærður um að breyting verði á. Handhafar debetkorta athugið ✓ Breytingar d skilmálum vegna debetkorta Islandsbanka Þann 15. maí næstkomandi munu skilmálar vegna debetkorta íslandsbanka breytast í samráði við Samkepþnisstofnun. Hér að neðan eru tilgreindar þær greinar sem taka efnislegum breytingum og er sérstaklega vakin athygli á grein 14.1. Nýjar reglur og skilmálar vegna debetkorta liggja frammi í öllum útibúum íslandsbanka. Skilmálar frá og með 15. maí A.ALMENNT UM DEbETKORT 6.4. Korthafi ber ábyrgð á öllum greiðslum/úttektum, sem verða vegna notkunar Debetkorts hans, sbr. þó 10.2. og 13.1. og 13.2. 6.6. Korthafi ábyrgist tjón gagnvart bankanum, sem verður vegna vanrækslu hans við vörslu eða notkun Debetkorts eða leyninúmers þess, sbr. 10.2. 7.3. Útgefendur Debetkorta eru ekki ábyrgir f'yrir tjóni, sem verður vegna lagaboða, aðgerða stjórnvalda, náttúruhamfara, striðs, verkfalls, verkbanns, skæruverkfalla eða annarra slikra aðstæðna, rafmagnstruflana eða rafimagnsleysis, né vegna trufiana I símkerfi eða öðrum boðleiðum eða samgöngum. 7.4. Útgefendur Debetkorta eru ekki ábyrgir fýrir tjóni né óhagræði, sem verður vegna þess að móttöku Debetkorts er hafnað sem greiðslu hjá söluaðila eða I sjálfsafgreiðslutæki, né öðrum skaða, sem leitt getur þar af sbr. þó 13.1.og 13.2. 9.1. Notkun Debetkorts erlendis er heimil þar sem merki MAESTRO/CIRRUS eðaVISA ELECTRON er uþþi. 10.2. Sjálfsábyrgð korthafa takmarkast við jafnvirði ECU 150 í isl. krónum, efkort hans er notað af óviðkomandi aðila, áður en hvarf þess er tilkynnt Þetta á ekki við ef um stórfellt gáleysi eða svik afhálfu korthafa hefur verið að ræða. Tilkynningaskyldu ber að fullnægja svo fljótt sem verða má eftir að hvarf korts uppgötvast. 11.2. Bankanum er heimilt að færa korthafa til gjalda á viðskiþtareikningi hans gjöld skv. gjaldskrá, sbr. grein I l.l. 13.1 .Telji korthafi að hann hafi orðið fyrir skaða vegna tæknilegrar bilunar I hraðbanka eða öðrum sjálfsafgreiðslutækjum, þá ber bankanum fýrir hönd viðkomandi sölu- eða þjónustuaðila að færa fram fullgild rök fýrir þvi að búnaðurinn hafi starfað rétt þá er umrædd viðskiþti fóru fram, en er ella ábyrgur fýrir tjóninu. 13.2. Abyrgð bankans takmarkast við beint fiárhagslegt tjón korthafa, en nær ekki til annars skaða eða óþæginda, sem leitt geta af bilun sjálfsafgreiðslubúnaðar. Bankinn ábyrgist ekki tjón þegar tæknibilun á að vera korthafa Ijós, svo sem þegar skilaboð þess efinis koma fram á tölvuskjá. 14.1. Bankinn áskilur sér rétt til að breyta notkunarreglum þessum og skilmálum, enda séu þær breytingar tilkynntar korthafa með minnst 15 daga fýrirvara. í tilkynningu um breytta skilmála skal vakin athygli á þvi i hverju breytingarnar felist og á rétti korthafa til að segja samningi uþþ. Noti korthafi kort sitt eftir að breyttir skilmálar hafa tekið gildi, telst hann samþykkur breytingunni. B. DEBETKORT SEM GREIÐSLUKORT S. Creiðslur með Debetkorti koma fram á reikningsyfirliti þess viðskiþtareiknings, sem kortið er tengt og korthafi fær sent frá bankanum með umsömdu millibili.A yfirlitinu kemur fram nafn seljanda, þar sem kortið var notað, ásamt dagsetningu og upþhæð. Ef um erlend viðskipti er að ræða kemur einnig fram uþphæð kauþlandsins. Efkorthafi hefiur athugasemdir við reikningsyfirlit sitt, ber honum að tilkynna það bankanum innan 20 daga firá móttöku þess. í vafatilvikum hvilir sönnunarbyrðin á kortaútgefanda. Skilmálar fram að 15. maí A.ALMENNT UM DEBETKORT 6.4. Korthafi ber ábyrgð á öllum greiðslum/úttektum, sem verða vegna notkunar Debetkorts hans, sbr. þó 10. gr. 2. mgr. 6.6. Korthafi ábyrgist tjón gagnvart bönkum og sparisjóðum, sem verður vegna vanrækslu hans við vörslu eða notkun Debetkorts eða leyninúmers þess. 7.3. Útgefendur Debetkorta eru ekki ábyrgir fýrir tjóni, sem verður vegna lagaboða, aðgerða stjórnvalda, náttúruhamfara, stríðs, verkfalls, verkbanns, skæruverkfialla eða annarra slikra aðstæðna, rafmagnstrufiana eða rafmagnsleysis, né vegna truflana i simkerfi eða öðrum boðleiðum eða samgöngum. Tjón, sem gæti orðið af öðrum ástæðum, bætist ekki af útgefianda hafi hann sýnt eðlilega aðgæslu. 7.4. Útgefendur Debetkorta eru ekki ábyrgir fýrir tjóni né óhagræði, sem verður vegna þess að móttöku Debetkorts er hafnað. * 9.1. Notkun Debetkorts erlendis er heimil þar sem merki Maestro/Cirrus eðaVISA Electron er uppi.Af erlendum viðskiptum og úttekt reiðufjár erlendis reiknast þjónustugjald, skv. gjaldskrá. 10.2. Sjálfsábyrgð korthafa takmarkast við jafnvirði ECU 150 I ísl. krónum, ef kort hans er notað af óviðkomandi aðila, áður en hvarf þess uþþgötvast og er tilkynnt skv. I. tölulið. 10.3. Sérstök athygli er vakin á að korthafi ber fulla ábyrgð á úttektum með glötuðu korti, sé tilkynningaskyldu ekki fullnægt strax og hvarf þess uþþgötvast 11.2. Við útgáfu korts greiðir korthafi sérstakt stofngjald auk venjulegs árgjalds. 11.3. Bankalsparisjóði er heimilt að færa korthafa til gjalda á viðskiþtareikningi hans mánaðarleg færslugjöld fýrir notkun kortsins, kostnað vegna reikningsyfirlita, kostnað vegna endurnýjunar korts, árgjöld á 12 mánaða fresti og gjald vegna útvegunar afrits af sölunótu, allt samkvæmt gjaldskrá hverju sinni. 14.1.8ankar/sþarisjóðir áskiljo sér rétt til að breyta notkunarreglum þessum og skilmálum, enda séu þær breytingar auglýstar. Ef Debetkortið er notað eftir að breytingar hafa verið auglýstar, skoðast það sem samþykki korthafia á þeim.Að öðrum kosti skal notkun kortsins hætt og það tilkynnt bankanumlsparisjóðnum. Ef engin slik tilkynning berst innan fjórtán daga frá auglýstri breytingu, skoðast hún samþykkt af korthafa. B. DEBETKORT SEM CREIÐSLUKORT 5. Creiðslur með Debetkorti koma firam á reikningsyfirliti þess viðaskiptareiknings, sem kortið er tengt og korthafi fær sent firá banka/sþarisjóði með umsömdu millibili. Á yfirlitinu kemur fram nafn seljanda, þar sem kortið var notað, ásamt dagsetningu og uþphæð. Ef um erlend viðskiþti er að ræða kemur einnig fram upphæð kauþlandsins. Efkorthafi hefur athugasemdir við reikningsyfirlit sitt, ber honum að tilkynna það bankalsþarisjóði sínum innan 20 daga frá móttöku þess.l vafatilvikum hvílir sönnunarbyrgðin á kortaútgefanda. ÍSLAN DSBAN Kl
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.