Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1995, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1995, Blaðsíða 30
38 LAUGARDAGUR 29. APRÍL 1995 Vevojur 5KRÁIN 1993 5KOKKARAt»ANKAR HLAUfkAJKop^iR iot; Nýr Hlaupari kominn út Sem fyrr er Sigurður P. Sig- mundsson ritstjóri og ábyrgðar- maöur. í þessu fyrsta tölublaði er Götuhlaupaskrá FRÍ birt í heild sinni, litið á'úrval af helstu hlaupaskóm ög afar fróðleg grein er í blaðinu um mjólkursýrumæl- ingar. Rögnvaldur Ingþórsson og Gerd Fludgren leiða lesendur í allan . sannleik um þetta töfra- tæki. Verð Hlauparans í lausa- sölu er 520 krónur í næstu bóka- búð. Trimm Hvað er rétt met á Laugaveginum? Eins og sumii’ muna fóru nokkrir skokkarar saman um Laugaveginn milli Landmannalauga og Þórsmerk- ur haustið 1993 og þá setti Sveinn Emstsson það met sem enn stendur og er um 6 tímar og 30 mínútum bet- ur. Þetta er góður tími og verður seint bættur. Þeir sem fyrstir voru til þess að hlaupa Laugaveginn og taka tímann voru bræðurnir Þor- steinn og Guðmundur Hannessynir sem hlupu á 8:03 en þeirra met sló síðar fjallamaðurinn Benedikt Hálf- dánarson sem fór á 7:30. Trimmsíð- unni hefur verið bent á að sitthvað sé met og met. Hlauparar hafi farið lausbeislaðir með drykkjarbelti og hjálparbíla sem fylgdu þeim hluta leiðarinnar meðan fjallamenn hafi borið allt sitt púss á sjálfum sér og engrar aðstoðar notið. Því sé varla sanngjamt að bera þetta tvennt sam- an. Hér skal ekki lagður neinn dóm- ur á það hvort þetta sé rétt en hvatt til þess að „hlauparar" annars vegar og „fjallamenn" hins vegar haldi áfram að karpa góðlátlega um þetta -mál. Laugavegurinn svokallaði mun vera um 58 kílómetrar á lengd. Land- mannalaugar em í 600 metra hæð en Þórsmörk í um 100. Leiðin liggur hæst í rúmum 1.050 metmm yfir sjó í Hrafntinnuskeri. Á leiðinni þarf að vaða tvær ár og nokkra læki. skíðunum Margir setja skíðin inn í geymslu strax eftir páska en það er alltof snemmt. Nú þegar sólin er komin svo hátt á loft sem raun ber vitni em margir góðir dagar eftir enn. Snjórinn í Bláljöllunum er ekkert á leiðinni í burtu þótt það sé orðið autt í Reykjavik og víðast hvar úti á landi era meiri snjóalög en elstu menn muna. Á heiðum uppi éru viða sléttar hjarnbreiður og dásamlegt er aö líða um þær á gönguskíðum í sumarhita og hvergi verða menn hraðar brúnir en við slíkar að- stæður. Þeir sem dvelja í snjó og sól verða þó að muna að gæta sín á sterkum geislum sólarinnar sem margfaldast við endurkast og nota sterka sólarvörn. Mamma, má ég fá plástur? Þegar ég var lítill snáði hafði ég mikla trú á lækningamætti plástra og þótti, eins og fleiri sak- lausum bömum, nokkurt sport í þvi að fá að setja á mig plástur. Þessi tími er liöinn en þó ekki lið- inn. Ég get fengið mér nikótín- plástur ef ég vil hætta að reykja, sjóveikiplástur gegn sjóveiki og það nýjasta nýtt er megranar- plástur. Innflytjendur og sölu- menn megrunarplástranna hika ekki við að ljúga því upp i opiö geöið á okkur að plásturinn auki brennslu eða eitthvað álíka gáfu- legt. Til þess að plásturinn virki skal gæta hófs í mataræði og drekka mikið vatn sem út af fyrir sig er ágæt megrunaraðferð og þarf engan plástur til að hún virki. Vonandi sér fólk að hér eru blekkingar á ferð og hætta að láta féfletta sig. Skyldi annars vera til plástur sem lætur mann hlaupa hraðar? Hvert á að hlaupa? Mánudaginn 1. maí era tvö skemmtileg almenningshlaup, annaö á Akureyri en hitt í Reykjavík. Vorhlaup UFA hefst við íþróttahöllina á Akureyri kl. 14.00. Skipt er í flokka eftir aldri og kyni og lengst er hlaupið 6,8 km. 1. maí hlaup Fjölnis og OIís hefst við iþróttamiðstöðina, Dal- húsum í Grafarvogi, kl. 14.00 og skráð er á sama stað frá kl. 12.00 til 13.30. Annars má minna á, vegna þessa baráttudags verka- lýðsins, að kröfugöngur geta ver- ið ágætt trimm ef gengið er rösk- lega og haldið á þungu spjaldi. Auk þess er rétt að minna áhuga- sama skokkara á Flugleiöahlaup- ið sem verður 4. maí nk. og hefst kl. 19.00 við Hótel Loftleiðir. Nú er rétti tíminn til þess að draga fram hjólhestinn og spretta úr spori um þurrar og auðar götur, að minnsta kosti sunnanlands. Hjólreiðar eru og umhverfisvænn ferðamáti sem hentar nútímamönnum vel. hoilur Hjólreiðaver- tí ðin að hefj ast sumarið er tími hjólhestsins Nú, þegar sumarið gengur í garð, muna margir eftir gamla hjólhestin- um sem staðið hefur yfirgefinn og einmana í geymslunni eða hírst í bíl- skúrnum vetrarlangt. Nú er rétti tíminn til þess aö smyrja hjólfákinn og spretta úr spori á auðum götum því hjólreiðar era holl og þægileg þjálfun. Þeir líkamshlutar sem njóta góðs af hjólreiðum eru fyrst og fremst hjartað, æðakerfið og fæturn- ir. Hjólreiðar reyna sérstaklega á stóra vöðvann á framanverðum lær- um en aðrir vöðvar og vöðvahópar í fótum og lærum fá einnig þjálfun. Hjólreiðar leiða til stinnari fóta og formfegurri og það sama á viö um læri og þjóhnappa. Hjólreiðar eru vægt átak á fótlimina og því eru meiðsli við hjólreiðamar sjálfar fremur sjaldgæf þó auðvitað geti allir dottið og meitt sig. Hjólreiðamaður sem hjólar 16 kíló- metra á hálfum klukkutíma brennir 400 hitaeiningum sem er talsvert mikil brennsla enda umtalsverður hraði. Lengri og hægari hjólatúrar hafa áhrif á þol manna fremur en snerpu og almennt mun hollara fyrir byrjendur að fara hægar og vera heldur lengur. Best er að hjóla í lág- um gír og stíga hjólið ótt og títt eða um 80-90 skipti á hverri mínútu og reyna að halda taktinum sem jöfn- ustum með því aö nota gírana og stíga þannig hjólið alltaf jafnhratt hvort sem hjólað er undan brekku, á jafnsléttu eða upp í móti. Breytið reglulega um stellingar á hjólinu með því að hagræða ykkur í hnakknum eöa standa upp á fótstig- unum og hjóla þannig um stund. Þetta dregur úr álagi á sitjandann en hann er sá líkamshluti sem eink- um verður fyrir álagi hjá óvönum hjólreiðamönnum. Látiðvita af ykkur Bílstjórar aka ekki viljandi á eða yfir hjólreiðamenn en þeir verða að vita af þeim. Verið sérstaklega á varðbergi við gatnamót og gætið að því að gangandi vegfarendur víkja ekki sjálfkrafa. Þegar hjólað er eftir göngustígum þar sem von er á skok- kurum er rétt að gefa hljóðmerki með bjöllunni áður en farið er fram úr þeim. Hjóliö ekki með vasadiskó. Það er stórhættulegt og enginn ætti að vera úti að hjóla eða skokka með slíkt apparat á hausnum. Það sem á Umsjón Páll Ásgeir Ásgeirsson að vera á höfði hjólreiðamanna er hjálmur. Hjálmur er ódýrt öryggis- tæki sem getur bjargað mannslífum. Á undanförnum árum hafa verið gerðar nokkrar endurbætur í Reykjavík til hagsbóta fyrir hjól- reiðamenn. Stígum fjölgar og eftir því sem hjólandi fólki fjölgar minnk- ar sofandaháttur ökumanna gagn- vart þeim einnig. Þó mörgum finnist ef til vill óþarfi að fata sig sérstaklega upp til þess að fara út að hjóla er rétt að muna að vindurinn kælir snarpt og hraðinn sem auðvelt er að ná á góðu reiðhjóli er slíkur að vind- kælingar gætir langt fram yfir loft- hita. Þess vegna er rétt að hugsa um klæðnaðinn og vera í hlýjum fatnaði og vindþéttum galla utan yfir. Ekki gleyma góðri húfu og hentugum vettlingum. Mikill hluti hitatapsins fer um höfuð og hendur sem dofna fljótt upp í miklum kulda. Þeim sem eiga ekkert hjól skal hér með bent á sérverslanir með reiðhjól og fylgi- hluti og fatnað og búnað fyrir hjól- reiðamenn. íslenski íj allahj ólaklúbburinn býð- ur svo þeim félagsskap sem vilja gera hjólreiðar að meira en tómstunda- gamni því hjólreiðar eru auðvitað lífsstíll þess sem hafnar einkabílnum og kýs að fara ferða sinna á hollan og mengunarlausan hátt. Hjá ís- lenska fiallahjólaklúbbnum fá menn og hagnýtar upplýsingar um búnað, hópferðir og hvaðeina sem byrjendur kann að varða um. Símanúmer klúbbsins er 562 0099 og hann á pósthólf nr. 5193 125 Reykjavík.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.