Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1995, Blaðsíða 31
LAUGARDAGUR 29. APRÍL 1995
39
„Menn örvænta sem betur fer mun oftar en þeir svipta sig lifi. Þá gildir oft hið fornkveðna: þegar neyðin
er stærst er hjálpin næst.“
Sjálfsmorð
Kona nokkur hringdi eitt sinn til
Nökkva læjcnis út af manninum
sínum. „Hann er farinn aö drekka
of mikið, orðinn þunglyndur og líð-
ur illa. Stundum talar hann um að
fyrirfara sér. Hvað á að gera? Á ég
að taka þessar hótanir alvarlega?
Er það satt að þeir sem tala um
sjálfsmorð geri ekkert í því?“
Spurningar sem þessar eru hluti
af hvunndegi hvers geðlæknis og
margra heilsugæslulækna.
Endanleg uppgjöf
Sumir segja að það að velja sjálfs-
víg í stað lífs sé eini sigurinn sem
maðurinn getur unnið á örlögum
sínum. Sjálfsmorð er endanleg
uppgjöf manneskjunnar, róttæk-
asta höfnun lifsins. Eftir það verð-
ur ekki aftur snúið og engu
breytt.
Eftir sitja aðstandendur og ást-
vinir fullir af sekt og efa og spyrja
um alla framtíð hvort sjá heföi
mátt þetta fyrir eða koma í veg fyr-
ir verknaðinn. Þó að trúarbrögð og
samfélag leggi ofurkapp á að
hindra menn í að velja þessa leið
er hún engu að síður gild sem ör-
þrifaráð og möguleiki. Þýski heim-
spekingurinn Nietzsche segir. ein-
hvers staðar: „Möguleikinn að
fremja sjálfsmorð hefur bjargað
mörgu mannslífinu." Sjálfsmorðið
er í hugum margra eins konar
brunastigi út úr lífinu - mönnum
er rórra að vita af honum en nota
hann ekki.
Stöku sinnum eru sjálfsmorð
framin að vandlega yfirveguðu ráði
vegna aðstæðna sem viðkomandi
telur vonlausar. Þetta á við um
krabbameinssjúklinga sem sjá eng-
an tilgang meö áframhaldandi lífi
eða einstaklinga sem fyrirfara sér
af stjórnmála- eða trúarástæðum.
Slík sjálfsmorð eru ákaflega sjald-
séð. Álgengast er að sjálfsmorð sé
ruglingslegur verknaður í stundar-
örvilnan augnabliksins þar sem
skipulag og fyrirætlanir eru á stöð-
ugu reiki. Sjálfsmorðinginn hugsar
stundum um dauðann sem endan-
legt frelsi frá einhveijum vandræð-
um eða tímabundna útgönguleið
frá erfiðleikum tilverunnar. Það er
tilviljunum háð hvort lausnin á að
vera endanleg eða ekki.
Hverjir fremja
sjálfsmorð?
Algengast er að eldra fólk fremji
sjálfsmorð en meðal yngra fólks
eru tilraunir mun algengari. Frá-
skildir og þeir sem misst hafa maka
sína (ekkjur/ekklar) hafa hærri
tíðni sjálfsmorða svo og atvinnu-
lausir og alkóhólistar. Þegar per-
sónuleiki og geðhöfn er skoðuð
kemur í ljós að margir þeirra sem
fremja sjálfsmorð hafa átt við and-
leg vandamál að stríða. Algengast
er þunglyndi og kvíði auk andlegr-
ar óheilsu sem stafað getur af al-
varlegum áfóllum. Tíundi hver
sjúklingur með geðklofa (scizofre-
níu) fyrirfer sér. Alkóhólismi og
önnur misnotkun vímuefna er
mjög algengt meðal þeirra sem fyr-
irfara sér. Samkvæmt sænskum
rannsókun stríðir um helmingur
þeirra karlmanna sem fremja
sjálfsmorð við áfengisvanda.
Sjálfsmoróstilraunir
Sjálfsmorðstilraunir eru mun al-
gengari en sjálfsmorð. Þær ein-
kennast af miklum efasemdum um
tilgang og fyrirætlanir. Talið er að
einungis þriðjungur ætli í raun að
enda líf sitt en hina langar til að
sofna um stund, hvílast, hræða eða
hefna sín á umhverfmu. Oft ræöur
tilviljun hvort sjálfsmorðið tekst
eða ekki; hversu margar töflur
teknar eru inn; hvernig umhverfiö
Álaeknavaktinni
bregst við o.s.frv. Sjálfsmorðstil-
raun er alltaf kall á hjálp og at-
hygh þeirra sem næst standa sem
taka verður í fullri alvöru. Af þeim
sem einhvern tímann hafa gert
slíka tilraun deyja 20% síðar á
ævinni fyrir eigin hendi. Það er
áberandi hversu margir þeirra sem
reyna aö fyrirfara sér eiga sér for-
eldri, systkini eða góðan vin sem
framdi sjálfsmorð eða hefur gert
ítrekaðar tilraunir til að yfirgefa
þetta jarðlíf. Einstaklingurinn
virðist læra að sjálfsmorðiö sé fær
flóttaleið út úr ákveðnum vand-
ræðum.
Sjálfsmorðsþróun
og aðgerðir
Sjálfsmorð og sjálfsmorðstilraun-
ir eru oft þættir í ákveðinni þróun
einstaklingsins. Hann verður
þunglyndur, finnur fyrir vonleysj
og tilgangsleysi eigin lífs og leiðir
hugann að mögulegum endalokum
þess. Oft kemst hann yfir vandamál
og sjálfsmorðspælingar en komi
svipuð vandamál upp síðar er hætt
við því að hugur leiti á svipaðar
slóðir. Þeir sem nota áfengi á slík-
um stundum eru í mun meiri hættu
sakir þess hömlu- og dómgreindar-
leysis sem fylgir allri drykkju.
Sjálfsmorðshótanir og sjálfs-
morðstilraunir eru merki um geð-
lægð, vonleysi og uppgjöf sem alltaf
þarf að taka af fullri al vöru.
Þegar reynt er að fyrirbyggja
sjálfsmorð verður að meðhöndla
þunglyndi og kvíða meö lyfjum,
viðtölum og einstakhngsmeðferð.
Á sama tíma þarf að ræða allar
ytri aðstæður sjúkhngins og átta
sig á því umhverfi sem lifað er í.
Mögulega þurfa hjón viðtalsmeð-
ferð til að ræða vandamál sín. En
besta fyrirbyggjandi aðgerðin er að
stemma stigu við alkóhólneyslu.
Áfengismeðferð og þátttaka í AA
er þannig góð fyrirbyggjandi að-
gerð. Ef tekst að koma í veg fyrir
að einhver svipti sig Ufi í stundar-
æði er mikið unnið og því ber að
gera viðeigandi ráðstafanir í hverju
tilviki.
Menn örvænta sem betur fer mun
oftar en þeir svipta sig lífi. Þá gfid-
ir oft hið fornkveðna: þegar neyðin
er stærstin er hjálpin næst. Þeir
sem dýpst hafa sokkið lýsa oft þeim
þáttaskUum sem urðu þegar þeir
snertu botninn. Þegar engar leiðir
lágu lengur niður stefndu allar
leiðir upp. Stundum þarf örvinglan
tíl aö eygja von. Sljömumar sjást
best í svartasta náttmyrkri. Lam-
andi örvænting getur síðar breyst
í styrk. SjálfsmorðstUraun er kaU
á hjálp, miklu skiptir að svara því
kalli og nýta sér þá örvinglan sem
fyrir hendi er til að ná nýjum áttum
ílífinu.
i.'i/hlfivliiuiÍNí
f
Opið
laug. og sun.
til kl. 3
Jv •' ' o
Kántríkvöld O
viðar Jónsson
og
Dan Cassidy
Pitsur, steikur og hamborgarar á lágmarksverði.
Hamraborg 11 - sími 42166
í þaki og veggjum er öryggisgler. Valkostur er gler, sem
ver gegn ofhitun á sólardögum og hefur tvöfalt
einangrunargildi tvöfalds glers. Burðarrammar úr áli eða
viði. Glerjað er með állistum undir og yfir glerið. Seljum
einnig glerið eftir máli. SÝNINGARHÚS Á STAÐNUM.
KIRKJULUNDI 13 - GARÐABÆ - SÍMI 91-65690Ö
Opið laugardag og sunnudag kl. 13-17.
■ ■