Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1995, Page 48
56
LAUGARDAGUR 29. APRÍL 1995
Afmæli
Steingrímur StTh. Sigurðsson
Steingrímur Stefán Thomas Sig-
urðsson, listmálari og rithöfundur,
Stífluseh 1 (að Hæðardragi) í
Reykjavík, er sjötugur í dag.
Starfsferill
Steingrímur fæddist á Akureyri.
Hann var í námi í University College
í Notthingham á Englandi 1946-47,
í ensku og enskum bókmenntum í
Leeds University 1947-48, lauk cand.
phil.-prófi frá HI1949 og stundaði
nám í St. Peter’s Hall í Oxford 1956
ogíEdinborgl959.
Steingrímur kenndi við MA
1944-46 og 1954-60, kenndi við Gagn-
fræðaskólann við Lindargötu
1949-50, var blaðamaður á Tíman-
um 1948, gaf út og ritstýrði tímarit-
inu Líf og list 1950-52, stundaði
blaðamennsku og ritstörf 1961-66 en
hefur haft myndlist að aðalstarfi frá
1%6. Hann hefur haldið mikinn
fjölda málverkasýninga heima og
erlendis.
Rit Steingríms: Skammdegi á
Keflavíkurvelli, 1954; Fórur, ritsafn,
1954; Sjö sögur, smásagnasafn, 1958;
Spegill samtíöar, 1967; Ellefu líf,
saga um lífshlaup Brynhildar Ge-
orgíuBjörnsson-Borger, 1983.
Hann þýddi Dagur í lífi Ivans Den-
isovitchs eftir A. Solzhenitsyn, útg.
1983. Hann hefur þýtt íjölda greina
í blöð og tímarit, flutt efni í.útvarp,
var ritsfjóri Heimilispóstsins 1961
og formaður Stúdentafélagsins á
Akureyri 1954-55.
Fjölskylda
Steingrímur kvæntist 1956 Guð-
rúnu Bjamadóttur, f. 10.5.1917,
meinatækni. Þau skildu.
Steingrímur kvæntist 1961 Margr-
éti Ásgeirsdóttur, f. 21.8.1928, loft-
skeytamanni. Þau skildu.
Böm Steingríms og Margrétar eru
Steingrímur Lárents Thomas, f.
21.7.1962, lögreglumaður í Reykja-
vík; Jón Thomas, f. 28.3.1964, deild-
arstjóri í Reykjavík; Haildóra María
Margrét, f. 30.5.1966, snyrtifræðing-
ur og kaupkona í Reykjavík.
Systkini Steingríms: Ólafur, f. 4.8.
1915, fyrrv. yfirlæknir á Akureyri;
Þórann Tunnard, f. 30.6.1917, hús-
móðir og ekkja í Bretlandi; Arnljót-
ur, f. 18.12.1918, d. 22.3.1919; Örlyg-
ur, f. 13.2.1920, listmálari í Reykja-
vík; Guðmundur Ingvi, f. 16.6.1922,
hrl. í Reykjavík.
Foreldrar Steingríms voru Sigurð-
ur Guðmundsson, f. 1878, d. 1949,
skólameistari MA, og k.h., Halldóra
Ólafsdóttir, f. 1892, húsfreyja.
Ætt
Sigurður var sonur Guðmundar,
b. í Mjóadal, Erlendssonar, dbrm. í
Tungunesi, Pálmasonar, bróður
Jóns, afa Jóns á Akri, Jóns Leifs,
Jóns Kaldal og Jóns Jónssonar,
alþm. í Stóradal. Móðir Guðmundar
var Elísabet Þorleifsdóttir, ríka í
Stóradal, Þorkelssonar og Ingibjarg-
ar Guðmundsdóttur, b. í Stóradal
Jónsdóttur, ættföður Skeggsstaða-
ættarinnar, Jónssonar.
Móðir Sigurðar var Ingibjörg Sig-
urðardóttir, b. á Reykjum á Reykja-
braut, Sigurðssonar, b. á Brekku í
Þingi, Jónssonar, bróður Ólafs,
langafa Sigurðar Nordal og Ólafs,
föður Ólafs landlæknis. Ólafur var
einnig langafi Jónasar Kristjáns-
sonar læknis, afa nafha síns, rit-
stjóra DV. Móðir Ingibjargar var
Þorbjörg Ámadóttir.
Halldóra var dóttir Ólafs, prests í
Kálfholti, Finnssonar, b. á Meðal-
felli, bróður Páls, langafa Þorsteins
Thorarensens rithöfundar. Finnur
var sonur Einars, prests á Reyni-
völlum, Pálssonar, prests á Þing-
völlum, Þorlákssonar, bróður Jóns,
prests og skálds á Bægisá. Móðir
Finns var Ragnhildur Magnúsdótt-
ir, lögm. á Meðalfehi, Ólafssonar,
bróður Eggerts skálds. Móðir Ragn-
hildar var Ragnheiður Finnsdóttir,
biskups í Skálholti, Jónssonar. Móð-
ir Ólafs var Kristín Stefánsdóttir.
prests á Reynivöllum, Stefánssonar,
amtmanns á Hvítárvöllum, Ólafs-
sonar, ættföður Stephensenættar-
innar, Stefánssonar. Móðir Stefáns
prests var Marta María Diðriksdótt-
ir Hölter. Móðir Kristínar var Guð-
Steingrímur Stefán Thomas Sig-
urðsson.
rún, systir Kristínar, langömmu
EUnar, móður Þorvaldar Skúlason-
ar Ustmálara. Guðrún var dóttir
Þorvalds, prófasts og skálds í Holti,
Böðvarssonar, og Kristínar Björns-
dóttur, prests í Bólstaðarhlíð, Jóns-
sonar, föður Elísabetar, ömmu Þór-
arins B. Þorlákssonarlistmálara.
Móðir Halldóra var Þórunn Ólafs-
dóttir, b. í Mýrarhúsum á Seltjarn-
arnesi, Guðmundssonar, og Karít-
asar Runólfsdóttur, systur Þórðar,
afa Kristjáns Albertssonar.
Til hamingju med afmælið 30. apríl
85 ára
Tryggvi Emil Guðmundsson,
Hrafnistu v/Kleppsveg, Reykjavík.
80ára
Friðgeir Ingimundarson,
Sæviðarsundi 20, Reykjavík.
Helga Þorsteinsdóttir,
Garöavegi 22, Hvammstanga.
Ingibjörg G. Gíslason,
Laufasvegi 64a, Reykjavík.
Valgeröur Jónasdóttir,
Einholti 6c, Akureyri,
75 ára
GuðbjÖrg Einarsdóttir,
Hellisgötu 33, Hafnarfirði.
Sigríður Sigurðardóttir,
Þorragötu 7, Reykjavík.
Kjartan Bjarnason,
Hraunbúðum, Vestmanneyjum.
Hallkell Þorkelsson,
Holtaseh 38, Reykjavík.
Guðný Karlsdóttir,
Brekastíg3, Vestmannaeyjum.
María Erla Friðsteinsdóttir,
Hæðarseli 15,
Reykjavík.
Biginmaður
hcnnarerStef-
ánTyrfings-
son.Þau takaá
mótigestumí
Fossinum,
Garðatorgi 1,
sunnudaginn30.4.,frákl. 19-22.
Jóbann H. Jónsson,
Stóra-Dal, Eyjafjarðarsveit.
70 ára
Ólafur Marel Ólafsson
útgerðarmaöur,
Brekkuvegi 7, Seyðisfirði.
Eiginkona hans er Elísabet Hlín
Axelsdóttir húsmóðir.
Þau era erlendis.
Magnús Daníelsson,
Smiðjugötu 12, ísafirði.
Bjargey Stefánsdóttir,
Ásgaröi 149, Reykjavík.
María Jóhannsdóttir,
Akurgerði 3b, Akureyri.
Árni Þorvaldsson,
Kelduhvammi 9, Hafnarfirði.
Smyrlahrauni 48, Hafnarfxrði.
Sólveig Sigurjóna Gísladóttir,
Uröarvegi 19, ísafirði.
Benedikt Leósson,
Löghergsgötu 5, Akureyri.
Guðný Jónasdóttir,
Rjúpufellil5, Reykjavík.
Elín Nóadóttir,
Hjarðarhaga28, Reykjavík.
óskar Smith Grímsson,
Háaleítisbraut 117, Reykjavik.
40ára
Sigríður Stefánsdóttir,
Líndarflöt 46, Garðabæ.
Jóhanna B. Kristjánsdóttir,
Álfaskeiði 127, Hafharfirði.
HuldaKarlsdóttir,
Höfðastíg 17, Bolungarvík.
Jósefína H. Guðjónsdóttir
Jósefína Helga Guðjónsdóttir, Aust-
urströnd 8, Seltjarnarnesi, er áttræð
ídag.
Starfsferill
Helga fæddist á Patreksfirði og
ólst þar upp. Hún fluttist til Reykja-
víkur 1946 og hefur átt þar heima
síðan.
Fjölskylda
Eiginmaður Helgu var Jón Eggert
Bachmann Lárusson, f. 12.7.1912,
d. 20.6.1981, loftskeytamaður. Hann
var sonur Lárusar Lárussonar,
gjaldkera í Reykjavík, og Málfríðar
Helgu Bachmann húsmóður.
Börn Helgu og Jóns Eggerts era
Málfríður Helga Bachmann, f. 27.12.
1939, fulltrúi hjá Pósti og síma, á tvo
syni, Jón Helga Bragason, f. 11.12.
1967, og Frey Bragason, f. 20.11.1969;
Ólafur Ingi Jónsson, f. 29.10.1945,
d. 25.12.1989, prentsmiöjustjóri DV,
var kvæntur Sigríði Sigurjónsdótt-
ur og eru böm þeirra Anna Sigur-
borg, f. 6.1.1968, Ingi Rafn, f. 8.5.
1971, og Siguijón, f. 9.10.1982.
Systkini Helgu eru öll látin en þau
voru Kristjana Guðjónsdóttir, f.
11.10.1901; Jórunn Guðjónsdóttir, f.
2.10.1905; Jóhannes Guðjónsson, f.
28.7.1912.
Foreldrar Helgu voru Guðjón Ingi
Jósepsson, sjómaður á Patreksfirði,
og Þórdís Jónsdóttir frá Hænuvík,
húsmóðir.
Ætt
Guðjón Ingi var sonur Jóseps frá
Múlanesi, Bjarnasonar, Sigmunds-
sonar. Móðir Guðjóns var Helga
Jónsdóttir, b. í Hvammi á Barða-
strönd, Bjarnasonar.
Þórdís var dóttir Jóns, b. í Hænu-
vík, Sigurðssonar. Móöir Þórdísar
Jósefína Helga Guðjónsdóttir.
var Helga Ólafsdóttir, b. á Láganúpi
á Rauðasandi, Ásbjörnssonar. Móð-
ir Helgu var Helga Einarsdóttir, b.
í Kollsvík, ættföður Kollsvíkurætt-
arinnar, Jónssonar.
Helga tekur á móti gestum í sjálf-
stæðissalnum á Austurströnd 3 í
dag, laugardaginn 29.4., kl. 15-18.
Þóra Ágústsdóttir
Smáauglýsingadeild
///////////////////////////////
Opið
í dag til kl. 14
Lokað
á morgun, sunnud. 30. apríl
Opið
mánudaginn 1. maí frá kl. 16-22
D V kemur næst út eldsnemma að morgni
þriðjudaginn 2. maí
smáauglýsingadeild
Þverholti 11, sími 563 2700
Þóra Ágústsdóttir skrifstofustjóri,
Ugluhólum 8, Reykjavík, verður
sextugámorgun.
Starfsferill
Þóra fæddist í Stykkishólmi og
ólst upp í Vík í Stykkishólmi. Hún
lauk landsprófi frá Gagnfræðaskól-
anum í Stykkishólmi 1951, stundaði
nám við Húsmæðraskóla Suöur-
lands að Laugarvatni veturinn
1953-54, nam þýsku við Eurocentr-
um í Þýskalandi 1990 og ensku í
Bandaríkjunum 1993.
Þóra vann á Pósti og síma 1951-53,
við Búnaðarbanka íslands í Stykkis-
hólmi 1969-84 og var þar skrifstofu-
stjóri 1982-84.
Sumarið 1984 flutti Þóra til
Reykjavíkur og hefur starfað síðan
þá í Búnaðarbanka íslands í Háa-
leiti en hún hefur verið þar skrif-
stofustjórifrál985.
Fjölskylda
Þóragiftist31.7.1954 Jóhannesi
Kristjánssyni, f. 21.8.1914, d. 22.11.
1983, fyrrv. kaupfélagsstjóra. Hann
var sonur Kristjáns A. Kristjáns-
sonar kaupmanns og Sigríðar H.
Jóhannesdóttur ljósmóður sem
bæði voru frá Suðureyri við Súg-
andafjörð.
Börn Þóru og Jóhannesar era Sig-
ríður H. Jóhannesdóttir, f. 28.11.
1954, gift Ágústi Þórarinssyni og á
hún tvö böm; H. Ágúst Jóhannes-
son, f. 21.2.1960, kvæntur Ragnheiði
Bachmann G. og eiga þau tvö böm;
Guðrún E. Jóhannesdóttir, f. 2.7.
1965, en sambýlismaður hennar er
Jóhannes Halldórsson og á hún tvö
Þóra Agústsdóttir.
börn.
Foreldrar Þóru: H. Ágúst Pálsson,
f. 26.8.1896, d. 14.7.1959, skipstjóri
í Vík í Stykkishólmi, og Magðalena
Níelsdóttir, f. 16.6.1897, d. 21.5.1975,
húsmóðir.
Þóra mun taka á móti gestum í sal
Tannlæknafélagsins að Síðumúla 35
í Reykjavík á morgun, sunnudaginn
30.4., kl. 15-18.
Grétar Már Jónsson
Grétar Már Jónsson skipstjóri, Hlíð-
argötu 22, Sandgerði, er fertugur í
dag.
Starfsferill
Grétar Már fæddist í Reykjavík en
ólst upp í Hafnarfirði til fimmtán
ára aldurs. Þá flutti hann í Sand-
gerði þar sem hann hefur átt heima
síðan. Grétar Már lauk fiskimanna-
prófi frá Stýrimannaskólanum í
Reykjavík 1975.
Grétar Már var fyrst skipstjóri
1978 á Bjamarvík GK 49. Síðan á
Sigurjóni GK 491980-84, á Barða RE,
vertíöina 1984, á Sæborgu RE 20
1985-92 en er nú skipstjóri á Bergi
Vigfúsi GK 53.
Grétar Már er einn af stofnendum
handknattleiksdeildar Reynis í
Sandgerði, sat í sveitarstjórn fyrir
Alþýðuflokkinn og óháða 1982-90,
hefur setið í hafnarstjórn frá 1982
og er nú formaður hennar.
Fjölskylda
Systkini Grétars Más eru Kári
Jónsson, f. 25.5.1959, verkamaður í
Sandgerði, kvæntur Sesselju Aðal-
steinsdóttur, meðferðarfulltrúa fyr-
ir þroskahefta; Steinunn, f. 5.6.1961,
starfsmaður við bamaheimili, hú-
settíHafnarfirði.
Foreldrar Grétars eru Jón Eð-
Grétar Már Jónsson.
valdsson, skipstjóri og útgerðar-
maður, og Guðbjörg Ástvaldsdóttir
húsmóðir.
Grétar tekur á móti gestum í sam-
komuhúsinu Sandgerði á morgun,
sunnudaginn 30.4., milli kl. 18.00 og
21.00.