Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1995, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1995, Blaðsíða 9
ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 1995 9 > ► > \ Fangelsuð fyrir að gefa dúf um Sextíu og átta ára gömul bresk kona var dæmd í 28 daga fangelsi í gær fyrir að hafa gefið dúfum brauð og hnetur að éta. Konan, Jean Knowlson, sem býr í bænum Croy- don í Suður-London, hafði marg- sinniö verið vöruð við þvi að hún gæti átt von á að verða fangelsuð ef hún hættí ekki þeirri iðju sinni að vera góð við'dúfur og gefa þeim að éta. Yfirvöld á staðnum segja að dúf- urnar séu hættulegar heilsu manna og þá sérstaklega skíturinn frá þeim. Lögmaður konunnar sagði að konan hefði sagt sér að hún hefði ekki getað staðist að gefa dúfunum eftir að hafa Jean Knowlson. Slmamynd Reuter að horft framan í „litlu sætu andlit- in“ þeirra. Sérfræðingur frá breska fugla- verndarfélaginu sagði að það væri óþarfi að gefa dúfunum að éta því þær væru fullfærar um að sjá sér fyrir mat sjálfar. Góðmennska kon- unnar hefði öfug áhrif, þ.e. að dúfun- um fjölgaði á viðkomandi stað og þá þyrftí að kalla til meindýraeyði. „Nú veit konan kannski að ef hún gefur dúfunum að eta eiga yfirvöld eftír að koma og snúa „litlu sætu háls- ana“ þeirra úr lið. Þá hefur hún kannski lært góða lexíu,“ sagði fugla- sérfræðingurinn. Reuter Þessir ítölsku herramenn tilheyra svokölluðu Heiðursmannasamfélagi sem nýlega var stofnað i sjávarþorpinu Salerno á Ítalíu. Heiðursmennirnir, sem segjast vera með siðgæði á háu stigi, leita eftir einstæðum konum sem þeir geta notið sólarinnar, hafsins og ítalskrar menningar með. Simamynd Reuter Sex farast í sjálfsmorðsárás Hamas samtakanna Líkamsleif ar dreif ðust um allt Sex manns fórust og 32 slösuðust í sjálfsmorðsárás sem gerð var á far- þegavagn í miðri Tel Aviv borg í ísra- el í gær. Heimildir innan Hamas, harðlínusamtaka Palestínumanna sem berjast gegn friðarviðræðum PLO við ísraelsstjóm, herma að Pa- lestínumaður frá Vesturbakkanum hafi staðið að sprengingunni fyrir hönd samtakanna. Yitsak Rabin, for- sætísráðherra ísraels, sagði að atvik- ið myndi ekki hafa áhrif á friðar- samningaviðræður við PLO. Viðræð- unum yrði frestað þar til jarðarfor fólksins sem lést hefði farið fram en þeim yrði haldið áfram á miðviku- dag. „Það varð gifurleg sprenging og höfuð og hendur hentust um allt. Fólk lá á gólfinu í vagninu og þetta var hreint úr sagt hryllilegt," sagði kona sem varð vitni að atvikinu. ísraelsmenn svöruðu sprengingunni með því að banna tveimur milljónum Palestínumanna frá Vesturbakkan- um og Gasa svæðinu að koma til ísra- els. Rabin sagði að bannið myndi þó ekki standa yfir í langan tíma. Yasser Arafat, leiðtogi frelsissamtaka PLO, hefur fordæmt atvikið sem hann kallar hryðjuverk. Lögreglan hefur borið kennsl á hkin sem fundust eft- ir sprenginguna en fjórar konur lét- ust og tveir menn. Lögreglan segir annan manninn vera þann sem að sprengingunni stóð. Reuter Útlönd Barinntilóbóta eftirglannaleg- an framúrakstur Gisli Kris^ánsson, DV, Ósló: Ungur norskur ökuþór hefur lofað að aka með gát það sem óf- arið er af lifsleiðinni eftir að vera barinn til óbóta vegna ruddalegs framúraksturs skammt austan Óslóar um helgina. Atvik voru þau að manninum leiddist að dóla á eftir fjórum bil- um sem ekiö var með ró áleiðis til Óslóar. Komst hann fram fyrir bílana með því að gefa hressilega í en var stöðvaður skömmu síðar af hinúm framúreknu, dreginn út úr bíl sínum og barinn svo aö stórlega sá á. Pinochettekinn áteppiö Augusto Pinochet, lýrr- um harðstjóri í Ciiile og nú yf- irmaður hers- ins, var tekinn á teppið hjá varnarmála- ráðherranum vegna mótmæla yfirmanna í hernum. Pinochet hefur fyrir- skipaö rannsókn á mótmælunum og að viðeigandi refsingum verði beitt. Reuter 29. leikvika 22. juli 1995 Nr. Lelkur: Rööln 1. Elfsborg - Ljungskile --2 2. Gunnilse - Hássleholm -X - 3. Hácken - Stenungsun -X - 4. Landskrona - Norrby - -2 5. Myresjö - Kalmar FF --2 6. Oddevold - Falkenberg 1 - - 7. Sheff. Wed,- Árhus 1 - - 8. Köln - Tottenham 1 - - 9. Tromsö - Ekeren --2 10. Helsingfors-Bordeaux -X - 11. Odense - Norrköping 1 -- 12. Metz - Linzer 1 - - 13. Charleroi - Wimbledon 1 -- Heildarvinningsupphæd: 57 milljónir 13 réttirf 12 réttir| 11 réttirj 10 réttiri 5.119.070 53.710 3.520 kr. kr. kr. kr. Jéheld égéangi heim' Ettir einn -ei aki neinn UUMFEROAR RAO Circus Arena á ferð um landið 26. júlí, Egilsstaðir, kl. 20. EFTIR ÞRJA DACA KOMA í VERSLANIR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.