Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1995, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1995, Blaðsíða 13
ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 1995 13 Fréttir Lilja Torfadóttir hafði heldur betur heppnina með sér i spurningakeppni um Holland á dögunum. Hún drakk kampavín úr glasi með ekta demanti í botninum. DV-mynd GHS Demantshringur í kampavínsglasi Lilja Torfadóttir, starfsmaður Samvinnuferða-Landsýnar, datt heldur betur í lukkupottinn nýlega þegar hún hafði heppnina með sér og vann demantshring í spuminga- keppni um Holland. í vetur voru sendir spumingaiistar um Holland á íslenskar ferðaskrifstofur. Konurnar fjórar, sem fengu flest stig í keppn- inni, fengu eitt kampavínsglas að drekka úr hver. í hveiju glasi var eðalsteinn, sirkonstein eða demant- ur, og vissi enginn í hvaða glasi dem- anturinn var. Konunum var svo boð- ið í lúxusferö til Hollands til að kveða upp úr með það hver þeirra bar eðal- steininn. Á Schiphol-flugvelh í Amst- erdam kom svo í ljós að þaö var Lilja sem hafði haft heppnina með sér. Hún hafði drukkið kampavín með ekta demanti í botninum. Jóhanna Eggertsdóttir i sal félagsheimiiisins t Víðihlíð þar sem geysilegt úrval ullarvara er til sölu. DV-mynd gk Félagsheiinilið 1 Víðihlíð: Fullt af ullarvörum Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Þegar ekið er eftir þjóðvegi 1 um Víðidal í V-Húnavatnssýslu er í veg- kantinum skammt frá félagsheimil- inu Víðihlíð skilti þar sem á stendur að í félagsheimilinu sé til sölu ullar- vara. Þegar inn er komið blasir við geysilegt magn af alls kyns ullarvör- um og eru peysur, slár, vesti og jakk- ar mjög áberandi. Má segja að salur félagsheimilisins sé undirlagður þessum varningi. „Hér var fyrirtækið Borg hf. stofn- að árið 1977 að frumkvæði Sigurðar Líndal bónda og hreppstjóra að Lækjarmóti, en hann vildi skjóta stoðum undir atvinnulífið hér í sveit- inni,“ segir Jóhanna Eggertsdóttir, framkvæmdastjóri Borgar. Eigendur fyrirtækisins eru m.a. sveitarsjóður, búnaðarfélag sveitarinnar og ýmsir einstaklingar. Framleiöslan á ullarvörunum hef- ur alla tíð farið fram í kjallarafélags- heimilisins, en þar starfa 8 manns þegar flest er. Jóhanna segir að í verslunina í félagsheimilinu komi aöallega útlendingar, en því miður þyki mörgum íslendingum enn hall- ærislegt og gamaldags að kaupa ull- arvörur. 9 0 4 * 1 7 0 0 i kr. 39.90 min. i i _ .Don't;lose contact with the world. Call 904-1700 and hear the latest in world;news in English or Danish. NEWSl/wf 9 0 4 * 1 7 0 0 Lífæðar Vestmanna- eyja í hættu Jón Benediklsson, DV, Hvolsvelli: Þingmenn Suðurlandskjördæmis skoðuðu 13. júlí landbrot af völdum Markarfljóts en það hefur verið nokkuð mikið við eyðibýhn Tjamir og Brúnir í Austur-Landeyjum. Þar skammt fyrir neðan eru lífæðar Vestmannaeyja; - dæluhús fyrir neysluvatn og rafmagnslína sem Uggur niður á sandinn. Ríkið keypti á árum áður eyðibýl- in Tjamir og Brúnir í þeim tilgangi að Markarfljót eyddi þeim. I dag er viðhorf allt annað og gróður- mold dýrmæt þegar landið er að fjúka burt. Landbrot er einnig alvarlegt á móts við Merkurbæi og jafnvel hætta á að vegurinn inn í Þórsmörk sé í hættu. Þá hefur töluvert af grónu landi eyðst við Þórólfsfell innst í Fljótshlíð. Lögregla lagði hald á hnífa og barefli Lagt var hald á talsvert magn af hnífum og eitthvað af bareflum sem fundust í fórum manns sem hafði gert sig heimakominn hjá vinkonu sinni í húsi í Reykjavík um helgina. Maðurinn var handtekinn og fékkst síðan heimild til húsleitar. Þar fundust hnífar og barefli en spumir höfðu borist um að skotvopn væri einnig að finna í fóram mannsins. Svo reyndist þó ekki vera en hald var lagt á hitt góssið. TaUð er að maðurinn hafi átt vopnin sjálfur og ætlað að eiga þau í eigin þágu. -Ótt LJÓSMYNDASAMKEPPNI Me& því að smella af ó Kodakfilmu í sumar geturðu unnið til í Ijósmyndasamkeppni DV og Kodak. FLUGLEIDIR Hvort sem þú ert á ferSalagí innanlands eSa erlendis skaltu setja Kodakfilmu í myndavélina og gera þannig góSar minningar aS varanlegri eign. Veldu síSan bestu sumarmyndina þína og sendu til DV, Þverholti 11 í Reykjavík, fyrir 26. ágúst í haust. - fyrir bestu innsendu sumarntyndinn á Kodokfilmu: Flugmiðar fyrir tvo með Flugleiðum til Florida, oá verimæti 120.000 kr. I'JESQBiIS tonon fbS 500, meí 35-80 mm linsu, ai verímæti 45.900 kr. Mjög fullkomin og jafnframt léttasta SLR myndavélin á markainum. Canan EOS 5000, með 38-76 mm linsu, aS verSmæti 39.900 kr. Nýjasta SLR myndavélin. Mjög einföld i notkun. UJSBnS I ^anon *>rima l°om Shot myndavél, aS verSmæti 18.990 kr. Ný Zoom vél - hljáSlát ag nett. Canon Prima AF-7, aS verSmæti 8.990 kr. Sjálfvirkur fókus, filmufærsla og floss. mynoar- 3. verðlaun UCDril A IIU v Flugmiðar til Florida fyrir tvo. Canon EOS 500 myndavél. Canon EOS 5000 myndavél. Canon Prima Zoom Shot myndavél Canon Prima AF-7 myndavél. Canon Prima Junior DX myndavél. 6. verðlaun Canon Prima Junior DX, að verðmæti 5.990 kr. Sjálfvirk filmufærsla ag flass. Gott verð Kodak gæði Þinn hagur Iryggðu þér litríkar og skarpar minningar með Kodak Express gæðaframköllun á Kodak Royal-pappírinn. Hann er þykkari en venjulegur Ijósmyndapappír og litir framkallast frábærlega vel. TÆ Kodak W- EXPRESS GÆÐAFRAMKÖLLUN Skilafrestur er til 26. ágúst 1995. Myndum berað skila til DV. Þverholti 11. Höfuðborgarsvæðið Verslanir Hans Petersen hf: Austurveri, Bankastræti, Glæsibæ, Graforvogi, Hamraborg (Kópavogi), Hólagarði, Kringlunni, Laugavegi 82, Laugavegi 178 og Lynghólsi. Myndval: Mjódd. Hafnarfjörður: Filmur og Framköllun. Keflavik: Hljómval. Akranes: Bókav. Andrésar Nielssonar. Isaf jöróur: Bókav. Jónasar Tómassonar. Sauðarkrokur: Bókav. Brynjars. Akureyri: Pedrómyndir. Egilsstaðir: Hraðmynd. Selfoss: Hans Petersen, Vöruhúsi K.Á. ÓLRÍK % ^yn dt«

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.