Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1995, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1995, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ1995 Meiming _____________________________________________________ Óskar Guðnason gítarleikari fór með konu sinni til Ástralíu: DV Sjónmedbarna- bókfyrir jólin Kom til baka með vænan plötusamning - að frumkvæði Louie Sheldon sem m.a. hefur unnlð með Jackson Five Óskar Guðnason, 44 ára gítarleik- ari frá Höfn í Homafirði, er kominn með stóran plötusamning við plötu- fyrirtækið Festival í Ástralíu. Til stendur að gefa út geislaplötu með 9 blúsrokklögum sem Óskar hefur einnig samið texta við. Óskar er ný- lega kominn til landsins eftir að hafa verið í Ástralíu í tvö ár á meðan eig- inkona hans var að ljúka masters- námi í mannfræði við háskóla í Can- berra. Óskar kynntist tónhstar- manni, Louie Sheldon, sem bauð honum aö taka upp nokkur lög í hljóðveri hans í Sydney. Afrakstur- inn þótti svo góður að Sheldon bauð honum útgáfusamning. Sheldon er þekktur amerískur gít- arleikari frá Los Angeles en hefur verið búsettur í Sydney sl. 10 ár þar sem hann hefur rekið hljóðver ásamt því að vera með útgáfufyrirtæki. Sheldon dreifir plötum sínum í gegn- um stærsta plötufyrirtæki Ástrala, Festival. Hann hefur m.a. spilað með Herb Albert, félögunum Paul Simon og Art Garfunkel og hljómsveitinni Jackson Five þegar Michael var að- eins fimm ára. Einnig lék hann í lag- inu Heho! með Lionel Ritchie sem varð heimsfrægt á sínum tíma. „Sheldon leist það vel á lögin aö hann ákvað að gefa þau út. Platan veröur væntanlega gefhi út í Ástrahu og við- ar, jafnvel í Bandaríkjunum og Japan. Ég var mjög heppinn með hljóðfæra- leikara og fékk til Uðs við mig góðan trommara og söngvara frá Chicago sem hefur m.a. spilað með Stevie Wonder,1' sagði Óskar. Þess má geta að texti við eitt lagið er saminn af Óskari og Ing- ólfi Steinssyni. Nafn á plötuna er ekki komiö en að sögn Óskars hefur verið stungið upp á Big John Tony and the Blues Terminators. Óskar Guðnason, gítarleikari frá Höfn i Hornafirði, komst óvænt í feitt í Ástralíu meö gerð plötusamnings við stærsta fyrirtæki Ástrala á því sviði. DV-mynd GVA Samdi My Daydream í tónlistinni hér heima hefur Óskar helst unnið sér það til frægðar að hafa spilað með Pálma Gunnarssyni söngvara. Einnig hafa komið út lög eftir Óskar á safnplötum, m.a. lagið Gamall draumur sem Bubbi Mort- hens söng á safnplötunni Aldrei ég gleymi. Ensk útgáfa af laginu, My Daydream, kom út á safnplötu Axels Einarssonar fyrir tveimur árum í flutningi Rutar Reginalds. Óskar var ekki bara í tónhstinni á meðan konan hans, Pia Monrad Christiansen frá Danmörku, var að læra í Ástrahu. Hann dundaði einnig við myndhstina og hélt sýningu á veitingastað þar sem hann seldi nokkur málverk. Önnur plata á leið- inni hér heima Óskar er ekki bara að gefa út plötu í Ástralíu. Hann er í félagi við aöra að koma út geislaplötu í eitt þúsund eintökum hér á Islandi sem.Skífan mun dreifa. Platan nefnist Wishing Well, eöa Óskabrunnurinn, og var unnin úti í Ástralíu með íslendingn- um Geir Gunnarssyni sem þar býr. Tíu lög eru á þessari plötu í anda blúsrokksins. Óskar komst í kynni við Geir þegar hann sendi inn lág í Eurovision keppnina á síðasta ári. Óskar sagði að Geir væri í góðum málum úti í Ástralíu. Hann væri að vinna í hljóð- veri í eigu ríkasta mannsins í Can- berra þar sem aðstæður væru hinar fullkomnustu. Hljóðverið er í 5 mihj- óna dollara vihu sem byggð var á tilbúinni eyju undan strönd Can- berra. -bjb Hér eru samankomnir langflestir þeirra 49 nemenda sem útskrifuðust frá Myndlista- og handíðaskóla íslands þetta árið. Alls luku 30 nemendur námi i myndlistadeild. Þar af voru 11 í málun, 6 í skúlptúr, 6 í grafik og 7 í fjöltækni. Úr listiðna- og hönnunardeild útskrifuðust 19 nemendur, þar af 6 úr leirlist, 5 úr textíl og 8 úr grafískri hönnun. Eins og sjá má eru þetta myndarlegir listamenn sem eiga eftir að láta að sér kveða i framtíðinni. Helga Lára með gallerí í London Listakonan Helga Lára Haralds- dóttir hefur, í samvinnu við John Farley, opnað gallerí í London sem nefnist Galerie Vermilhon. Þar verða til sýnis og sölu hstaverk úr flestum geirum myndlistarinnar. Núna stendur yfir sýning á verkum Helgu Láru en gaheríið stendur við Upper Tooting Road í London. Helga hefur verið búsett í London undanfarin 10 ár. Hún hefur einkum getið sér gott orð fyrir höggmynda- hst og m.a. voru tvö verka hennar sett upp í höfuðstöðvum SH í Grimsby. Hún hefur einnig unnið viðtöl fyrir Ríkissjónvarpið og -út- varpiö við þekktustu myndhöggvara Breta á áttunda áratugnum. -bj b Sjón, Sigur- jón B. Sigurðs- son, sem eink- um er þekktur fyrir ljóöagerð ogannanskáld- skap. ætlar að gefa út barna- bók fyrir næstu jóL þá fyrstu sem hann skrifar í þeim flokki. Bókin nefnist Sagan af húfunni fínu. í saratah við DV sagði Sjón að hann heíði lengi ahð með sér þann draum að skrifa bamabók. Fyrir þremur árum heföi hann eignast bam og liklega hefði það ýtt á hann að láta drauminn rætast. Englaralheims- insáhljóðbók Hljóðbókaklúbburinn hefur gefiö út söguna Englar alheims- ins eftir Einar Má Guðmundsson á fjórum hljóðsnældum. Það er höfundurinn sjálfur sem les sög- una. Flutningurinn tekur 6 klukkustundir á snældunum fjóram. Sagan hefur sem kunn- ugt er hlotið fádæma góðar við- tökur og fékk m.a. bókmennta- verðlaun Norðurlandaráðs fyrr á þessu ári. Hún fiallar um ævi og endalok manns sem lendir í hremmingum geðveikinnar. Englar alheimsins er fimmta skáldsaga Einars Más. Um hljóðritun og fiölfóldun sá Hljóðbókagerð Blindrafélagsins en kápu hannaði Þórhildur Elín. Hljóöbókin er aðeins seld félög- um í Hljóðabókaklúbbnum, Bókumsykur- sýki kominút Öt er komin bókin Líf með syk- ursýki eftir ívar Pétur Guðnason. Bókin inniheldur mikinn al- mennan fróðleik um sykursýki og hvernig er að lifa með henni. Höfundur er á fertugsaldri og hefur verið með sykursýki irá því á unghngsaldri. Hann hefur reynt margt í samskiptunum og notar lífsreynsluna til þess að varpa ljósi á ýmsar hliðar sykur- sýkinnar. ívar Pétur sá um útgáfu bókar- innar í nafhi eigin forlags sem heitir Silja. K-Prent sá um filmu- vinnu, Isafoldarprentsmiðja sá um prentun og Flatey annaðist bókband. Lyra í Borgartúni sér um sölu bókarinnar en hluti and- virðis rennur til sykursjúkra. Grafíkverkstæði íísafold Grafíkfélagið Áfram veginn hefur opnað sölugallerí og verk- stæði í Eldgömlu Isafold að Þing- holtsstræti 5, þar sem áður var ísafoldarprentsmiöja. í húsinu er vexið að byggja upp miðstöð list- sköpunar, hönnunar og hand- verks. Auk grafíkverkstæðisins era í húsinu Smíðagallerí, L)ós- myndastúdíó Binna, Antikmálun & gylling og Spaksmannsspjarir. Grafíkfélagið Áfram veginn samanstendur af myndhstarkon- unum Dagrúnu Magnúsdóttur, Grétu Ósk Sigurðardóttur, írisi Ingvarsdóttur, fréne Jensen, Kristínu Pálmadóttur, Sigríði Önnu E. Nikulásdóttur og Þórdisi Elínu Jóelsdóttur. Allar hafa þær lokið námi frá Myndhsta- og handíðaskóla íslands, haldið einkasýningar og tekið þátt í samsýningum. -bjb t/lyndlistarkonurnar sjö.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.