Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1995, Qupperneq 17

Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1995, Qupperneq 17
16 ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 1995 ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 1995 íþróttir Bragi Bergmann knattspyrnu- dómari dæmdi leik danska liðsins Næstved og velska liösins Ton Pentre í Inter-Toto keppninni á laugardag. Línuverðir voru þeir Pétur Sigurðsson og Jón Sigur- jónsson. Þeir komust að sögn danskra blaða vel frá leiknum. Næstved sigraði í leiknum, 2-0. ívarogEgill sigruðu Opna GKG golfmótið fór fram á sunnudag. í keppni án forgjafar sigraði ívar Hauksson á 72 högg- um, annar varð Óskar Ingason á 74 og þriðji varð Ottó Sigurðsson, einnig á 74 höggum. Meö forgjöf sigraði Egill Jónsson á 64 högg- um, i ööru sæti varð Örn Sæ- mundsson á 65 og þriðji Sigurður K. Egilsson, einnig á 65 höggum. Stef án og Einar bestiríGrafarhoKi Opna Egils-mótið í golfi fór frara hjá GR í Grafarholti á laug- ardag og voru leiknar 18 holur meö og án forgjafar. í keppni án forgjafar sigraði Einar Long Þór- isson, GR, á 74 höggum. I öðru sæti hafnaði Stefán Sæmunds- son, GOB, á 78 höggum og þriðji varð Haukur Örn Bjamason, GR, á 82 höggum. í keppni með forgjöf sigaði Stefán Sæmundsson, GOB, á 68 höggum, í öðru sæti varð Hólmfríður G, Krístinsdóttir, GR, á 69 og þriöji varð Ragnar Grnm- arsson, GR, á 70 höggum. Norntan þénar mestgolfara Ástralinn Greg Norman er efst- ur á heimslista yfir þá golfara sem hafa þénað mest á árinu. Norman hefur unnið rúmlega 1,1 milljón dollara þaö sem af er ár- inu. í ööru sæti er Corey Pavin frá Bandaríkjunmn með rétt rúmlega eina milljón dollara og þríðji er landi hans, Lee Janzen, með 920 þúsund dollara. Af öðr- um þekktum má nefna að Payne Ste warr er i 10. sæti og Nick Faldo í 11. sæti. * Rosenborgí efstasætiíNoregi Rosenborg er i efsta sæti í norsku 1. deildinni í knattspyrnu eftir leiki helgarinnar. Úrslitin urðu þessi: Bödo - Rosenborg....1-2 Hödd - Stábek.......1-1 Molde - Kongvinger..3-1 Start-Brann..,-.....1-0 Strindheim -Ham-Kam..2-4 VIF-Viking..........1-1 Rosenborg er með 36 stig, Molde 32, Viking 26, Liiieström 26, Start 22. CeHicíviðræðum viðAndreasThom Forráöamenn Glasgow Celtic í Skotlandi eiga í viðræðum við þýska landslíðsmanninn Andre- as Thom um að hann gangi til liös við félagið fyrir næstu leiktiö sem hefst í næsta mánuði. Tiiom lék með Bayer Léverkusen og vill þýska hðið fá fjórar milljónir marka fyrir hann. DregíðíToto í gær var dregið til 16-liða úr- slita í Inter-Toto keppninni. Eftir- talin Uö drógust saman: Köln - Innsbruck, Bordeaux - Frankf- urt, Leverkusen - Odense, Bursa- spor - OFI Croto, Aarau - Karlsruhe, Heerenveen-Const- anta, Piatra Neamt - Metz, Strasbourg - Vorwaerts. Eiður Smári Guðjohnsen: • Eiður Smári Guðjohnsen. Eyþór Eðvarðsson, DV, Hollandi: Eiður Smári Guðjohnsen, sem á síðasta keppnistímabih lék með unglinga- og varaliði PSV Eindho- ven, er nú byrjaður að leika með aðalhði félgsins. Eiður er annar tveggja sem fluttur var upp í aðallið- ið. Eiður hefur komið inn á í síðari hálíleik í öUum þremur æfingaleikj- um sem PSV hefur spUað fyrir kom- andi tímabil sem hefst fóstudaginn 18. ágúst. Eiður náði að skora eitt mark síðasta laugardag þegar PSV vann stórsigur á Baarna, 10-1, og lék þá prýðUega. Góðgerðarskjöldurinn: Kanchelkis og Ferguson ekki með Bikarmeistarar Everton munu leika án tveggja sterkra leikmanna þegar Uðið mætir Englandsmeistur- um Blackburn Rovers í hinum árlega leik um góðgerðarskjöldinn 13. ágú.st á Wembley-leikvanginum í London. Þeir Duncan Ferguson og Andrei Kanchelkis verða báðir fjarri góðu gamni en þeir eru uppteknir með landsliðum sínum. Ferguson með Skotum í leik gegn Grikkjum og Kanchelkis með Rúss- um í leik gegn Finnum en báðir leik- irnir eru í undankeppni Evrópumóts landsliða. Evrópukeppnin í knattspymu: ísland gegn Sviss beint til Tyrklands -1200 Svisslendingar hafa pantað miða Tyrkir hafa ekki síður en Sviss- til Tyrklands frá Laugardalsveilin- Iendingar áhuga á leik íslands og um.Tyrkirhorfatilþessaieiksmeð Sviss í Evrópukeppninní í knatt- eftirvæntingu og er von þeírra að spyrnu sem háöur verður í Reykja- ísland vinni leikinn því þá eru þeir vík 16. ágúst. Leikurinn hefur svo gott sem komnir áfram í úrsli- mikla þýðingu fyrir báöar þjóðirn- takeppnina sem verður á Englandi ar upp á framhaldið í riðlinum. næsta sumar. Vitað er um áhuga svissneskra ÞessmágetaaðAnkaraTVsýndi knattspyrnuáhugamanna en þeir einnig beint frá leik íslands gegn hafa þegar staöfest pöntun á um Ungverjum en vegna þess að þeir 1200 aögöngumiöum. hafa aðgang að gervihnattadiski Nú hefúr tyrkneska sjónvarps- gefstþeimtækifæritilaðfáleikinn stööin Ankara Televison ákveöið heim i stofú því útsendingar ATV að sýna leik íslands og Sviss beint sjást vel hér á landi. Við spilum þá upp úr skðnum! • Menn beita stundum hinum ýmsu brögðum til að klekkja á andstæðingnum. Arnar Arnarson, Víkingur, reynir að losa sig frá KA-leikmanni í Stjörnugrófinni í gærkvöldi. DV-mynd ÞÖK Þrumufleygur Marteins - bjargaði Víkingum í jafnteflisleik gegn KA Þórður Gíslason skrifer: 1-0 Marteinn Guðgeirsson (38. vsp.) 1-1 Stefán Þórðarson (53.) 1- 2 Bjarni Jónsson (79.) 2- 2 Marteinn Guðgeirsson (82.) „Ég er svekktur að við skyldum ekki ná að vinna þennan leik. Við áttum fyrri hálfleikinn en þeir hinn síðari svo þetta verða aö teljast nokkuð sanngjörn úr- sht. En aðalmálið var að tapa ekki.“ sagði Marteinn Guðgeirsson, fyrirliði Víkinga, eftir jafntefh við KA, 2-2, í 2. deildinni í gærkvöldi. Víkingar byrjuðu leikinn af fullum krafti, voru mun meira með boltann í fyrri hálfleik. Þeir spiluðu mjög vel á köflum með þá Sigurð Ómarsson og Arnar Arnarson í farabroddi. KA-menn áttu nokkrar hættulegar skyndisóknir. Fyrsta markið kom úr vítaspyrnu eftir að varnarmaður KA hafði hrint Einari Ö. Birgissyni sem sneri baki í markið. í síðari hálfleik tók Dean Martin, kant- maður KA-manna, til sinna ráða og geystist hvað eftir annað upp hægri kantinn. KA-menn gerðu tvö glæsUeg mörk eftir slíkar rispur. Martin óð með boltann upp að endahnu og setti hann fyrst á hausinn á Stefáni Þórðarsyni og síðan Bjarna Jónssyni sem báðir þökk- uðu fyrir sig með marki. En eftir mörkin slökuöu KA-menn á og Víkingar sóttu án afláts síðustu mín- úturnar. Það var svo átta mínútum fyrir leikslok að Marteinn Guðgeirsson jafn- aði leikinn með sérlega glæsUegu marki. Hann tók boltann viðstöðulaust á lofti rétt fyrir utan vítateig og hamraði hann í bláhornið. Víkingar minntust fyrrum þjálfara síns, Youri Sedov, með einnar mínútu þögn fyrir leikinn. Maður leiksins: Dean Martin, KA. Grobbelaar, Segers og Fashanu ákærðir - allir lýsa þeir yfir sakleysi sínu • John Fashanu er einn þeirra sem ákærðir hafa verið. Lögregluyfirvöld í Englandi hafa ákært knattspyrnumennina Bruce Grobbelaar, John Fashanu og Hans Se- gers fyrir spiUingu innan knattspym- unnar og að hafa haft áhrif á úrslit leikja. Lögreglurannsókn á þessu alvarlega máU hefur staðið yfir í sumar og eftir þá rannsókn var ákveðið að kæra þá þremenninga. Þá hefur eiginkona Fas- hanu, Mehssa Kassamapsi, og kaup- sýslumaður frá Malasíu, Heng Suan Lim, einnig verið ákærð fyrir sömu sak- ir. Daivd Hewitt, lögfræðingur Groobela- ar, sagði við fréttamenn í gær að mark- vörðurinn frægi, sem nú leikur með Southampton, neitaði að hafa komið nálægt glæpsamlegu athæfi sem þessu. Segers, markvörður Wimbledon, sagði við fréttamenn að hann væri saklaus ásamt félögum sínum og að lögregla hefði ekki neinar sannanir á þá. Segers sagðist vona að þetta hræðUega mál kæmi ekki of mikið niður á þeim og hann sagðist áfram ætla að gera sitt besta í marki Wimbeldon á næsta keppn- istímabiU. Fashanu, sem leikur með Aston ViUa, neitaði að tjá sig við fréttamenn í gær en lögfræðingur hans, Henry Brand- man, sagði að leikmaðurinn ætlaði að hreinsa nafn sitt af þessum ásökunum. Ákvörðun dómarans skal standa - Þjóðverjar og Portúgalir fengu ávítur frá FIFA Knattspymusambönd Þýskalands og Portúgals hafa fengið strangar ávítur frá alþjóða knattspyrnusambandinu (FIFA) fyrir að láta endurleika deildarleiki vegna um- dehdra dóma hjá dómurum í leikjunum. Þýska sambandið lét endurtaka leik Leipzig og Chémnitzer í fyrra vegna umdeildrar dómgæslu og það sama gerð- ist í Portúgal með leik Benfica og Sport- ing í deildarkeppninni. Brotið gegn meginreglu sem tengist dómgæslu „Þama var brotið gegn meginreglu sem tengist dómgæslu því að ákvörðun dóm- arans á alltaf að standa," sagði talsmað- ur FIFA í gær eftir fund nefndarinnar í Sviss. Bæði samböndin eiga yfir höfði sér sektir vegna þessara atvika. FIFA ætlar að fylgja því vel eftir að atburðir af þessu tagi endurtaki sig ekki. 17 ________________________________________________íþróttir Staðan könnuð þegar íslandsmótíð er hálfnað: „Knattspyrnan slakari en áður“ - segir Magnús Jónatansson, fyrrverandi þjálfari, 1 viðtali við DV „Frá mínum bæjardyrum séð er knattspyrnan á íslandsmótinu slakara en áður. Leikmenn sem undanfarin ár hafa verið að leika vel eru ekki að gera það nógu gott sem einstaklingar innan síns hðs. Hér er um að ræða nokkra leik- menn sem hafa yfir að ráða mun meiri getu og styrkleika en þeir hafa sýnt í sumar. Það er erfltt að segja hverju megi kenna um en menn þurfa vissulega margir hverjir að hugsa sinn gang. Knatt- spymulega séð tel ég að við eigum ekki möguleika á að ná lengra nema leikmenn geti æft og leikið fótbolta allt árið um kring. Við þurfum að fá yfirbyggðar skemmur sem hægt er að nota þegar aðrar aðstæður ganga ekki. íslensk knattspyrna er komin á endastöð að mínu mati og nú þarf að bæta hraðann og tæknina. Það gerist ekki nema hægt sé að lengja leik- tímabilið, þar á ég við deildina og bikar,“ sagði Magnús Jónatansson, fyrrverandi þjálfari Fylkis og Breiðabhks, í viðtali við DV um íslandsmótið í knattspyrnu sem nú er hálfnað. Skaginn hefur hefðina og kann ekki að tapa „Þegar mótið er hálfnað þá kemur í ljós að það er frekar óhkt fyrri mótum. Mesta athyglin og spennan er í neðri hluta deildarinnar. Því miður er lítil spenna við toppinn og það eyðileggur að sjálfsögðu dálítið stemninguna. Það er ekkert spennandi að vera í 2. sæti á eftir Skaganum. En þetta er ekki Skag- anum að kenna heldur hinum Uð- unum. Skagahðið hefur haft mikla yfirburði og er að mínu mati eina liðið sem sýnir stöðugleika. Leik- menn Akurnesinga hafa heföina og kunna ekki aö tapa. Skaginn á mjög líklega eftir að tapa leik eða leikjum en það ógnar þeim ekkert hð því á sama tíma hafa hin hðin ekki þann stöðugleika sem þarf th að ná ár- angri. Leiftur með spútnikliðið Það er athyglisvert að á hveiju sumri kemur alltaf fram spútnik- lið. Það hð sem hefur komið mest á óvart að mínu mati er Leiftur. Ólafsfirðingum hefur gengið vel aö fá frekar sundurleitan hóp til að vinna vel saman. Það sýnir sig allt- af að lið með góða leikmenn, sem vhja spila fyrst og fremst fyrir liðið og síðan fyrir sig, nær langt. Það er mikil leikgleði í Leiftursmönn- um og það skiptir miklu máh líka. Svipaða sögu má segja af Grind- víkingum sem hafa farið langt á leikgleði og baráttu. Fram valdið mestum vonbrigðum í sumar Það hð sem hefur valdið mér mest- um vonbrigöum er Fram og slæmt gengi þess. Fram er í slæmum málum eins og reyndar Valur og FH en ef maður ber þessi lið saman þá kemur í ljós að FH hefur misst mikinn mannskap frá því á undan- fórnum árum og eins er Valur með nánast nýtt lið. Fram er hins vegar með mjög sterkt lið á pappírunum, landsliðsmenn, unghngalandsliðs- menn og aöra reynslumikla leik- menn sem unniö hafa titla. Það er eitthvað mikið að hjá Framliðinu eins og síðustu tveir leikir hafa sýnt. Ef Framarar settu upp töflu með afrekum hvers leikmanns þá kæmi í ljós að mannskapurinn hef- ur samanlagt ótrúlega árangra að baki. KR-ingum virðist vanta leikgleði KR-ingar eru einnig með mjög sterkt lið og mun sterkara en ár- angurinn sýnir. KR er að vísu í 2. sæti en liðið á að geta betur en það hefur sýnt í leikjum í sumar. Það sem mestum vonbrigðum veldur með KR er hvað hðið á erfitt með að skora. Það virðist vanta leik- gleði hjá leikmönnum KR og það þarf aö bæta ef hðið á að ná aha leið eins og vænst er af vesturbæj- arveldinu. Eyjamenn gætu orðið geysisterkir Eyjamenn eru með lið sem gæti orðið geysisterkt eftir 2-3 ár ef rétt er haldið á málum þar og liðið styrkt skynsamlega. Þeir hafa mjög athyghsvert liö og það er mikiö púður í leikmönnum hðsins. Keflavík hefur leikið nokkuð vel þrátt fyrir mikið álag á fyrri hluta mótsins. Þaö er ahtaf erfitt að þurfa að sitja uppi með frestaða leiki og eins er það almennt slæmt fyrir mótið ef fresta þarf leikjum. Breiðablik á við sama vandamál- ið að stríða eins og oft áður, það er of mikið jó-jó gengi hjá liðinu. Það vantar stöðugleika í Kópavog- inn og meiri hefð ef Blikarnir ætla sér stóra hluti í náinni framtíð," sagði Magnús. • Magnús Jónatansson segir að bæta þurfi tæknina og hraðann. Frá framkvæmdastjóra KSI Guentchevtil Luton Búlgarinn Bontcho Guentchev er genginn í raðir 1. deildar liðs Luton frá Ipswich sem féll sem kunnugt er úr úrvalsdeildinni sl. vor. Silenzitil Forest í gær gekk Nottingham Forest endanlega frá kaupunum á sókn- arleikmanninum Andrea Shenzi frá ítalska liðinu Torino. Tottenhamsigraði Eftir hroðalega útreið Totten- ham gegu Köln í Toto-keppninni, þar sem Tottenham tapaði, 8-0, náði hðið að sigra sænsku meist- arana í IFK Gautaborg í vináttu- leik í Gautaborg í gær, 0-2. Mörk- in skoruöu Jason Dozzel og Ronnie Rosentlial. íslenska U-16 ára landshð kvenna í knattspyrnu tapaði fyrir því sænska í gær, 4-0, á opna Norðurlandamótinu sem fram fer í Noregi. Síðasti leikur íslendinga er gegn Dönum í dag sem þegar hafa tryggt sér Norðurlanda- meistaratitilinn. ísiand er í næst- neðsta sæti með 3 stig eftir sigur á Hohandi. Staðan Stjarnan ...10 8 1 1 24-6 25 Fylkir ...10 7 2 1 23-12 23 Þór, A ...10 5 1 4 18-17 16 Skahagr ...10 4 3 3 13-12 15 Þróttur, R... ...10 3 3 4 12-13 15 Víöir ...10 3 3 4 10-12 12 KA ...10 3 4 3 11-13 13 ÍR ...10 3 1 6 15-22 10 Víkingur ...10 3 1 6 12-20 10 HK ...10 1 1 8 14-25 4 Markahæstir: Guðmundur Steinsson, Stjömu... 8 HjörturHjartarson, Skallagr....7 Sirtdri Grétarsson, HK.........7 Guðjón Þorvarðarson, ÍR........6 Heiðar Sigurjónsson, Þrótti....5 Kristinn Tómasson, Fylki.......5 í kvöld Mizundeildin 20.00 Haukar - ÍA 20.00 Stjarnan - KR 18.30 Valur -ÍBA 2. deild kvenna 20.00 Dalvík-Tindastóh 20.00 Leiftur - KS 4. deild karla 20.00 Léttir-GG 20.00 Framheijar - Víkveiji 20.00 Víkingur Ó. - Ármann 20.00 Bruni-ÍH 20.00 Grótta - Ökkh Vegna þeirra frétta sem komið hafa fram í fjölmiðlum í kjölfar úrskurðar dómstóls KSÍ varðandi kæru Ung- mennafélagsins Stjörnunnar gegn Knattspyrnufélaginu Þrótti vegna leiks félaganna í 2. dehd, sem fram fór 2. júh síðasthðinn, vil ég undirrit- aður fyrir hönd skrifstofu KSÍ koma eftirfarandi á framfæri: Skrifstofu KSÍ berast daglega fyrir- spurnir um reglur og reglugerðir sem gilda um knattspyrnumót. Þess- um fyrirspumum leitast starfsmenn KSÍ við að svara eftir bestu getu í samræmi við ghdandi lög og reglu- gerðir. í sumum tilfehum þarf að túlka lög og reglur þar sem ákvæði eru ekki skýr og leiðbeina fyrirspyij- endum um hvar sé að finna í lögum og reglugerðum KSÍ ákvæði um þau atriði sem spurt er um. Slíkar túlkan- ir starfsmanna KSÍ jafngilda ekki reglum eða lögum og ábyrgðin liggur alltaf hjá aðildarfélögum eins og þeim er að jafnaði gert ljóst. Dómstóll KSÍ starfar sjálfstætt og er kosinn af ársþingi KSI. Aðildarfé- lög geta leitað til dómstóls í héraði ef þau telja á sér brotið. Úrskurði héraðdómstóls má síðan áfrýja th dómstóls KSÍ. Úrskurður dómstóls KSÍ er endanlegur nema í málum sem hafa almennt gildi fyrir íþrótta- hreyfmguna í heild. í slíkum tilfell- um er hægt að áfrýja til dómstóls ÍSÍ. Viðingarfyllst, Snorri Finnlaugsson, framkvæmda- stjóri KSf. Þolreiðarkeppni Islands verður haldln helgina 29. og 30. júlí. Skráning í síma 566 6179. LAXNES HESTA- LEIG4

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.