Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1995, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1995, Blaðsíða 17
16 FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1995 FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1995 25 Iþróttir KR-ÍA (1-1) 3-2 1-0 Mihajlo Bibercic (18.) skallaði í tómt Skagamarkið eftir sendingu Guð- mundar Benediktssonar, en Heimir Porca lagði boltann fyrir sig með hendi áður en hann gaf á Guðmund. 1-1 Arnar Gunnlaugsson (26.) með við- stöðulausu skoti á lofti eftir glæsilega fléttu þar sem Aiexander sendi fyrir og Sigurður Jónsson skallaði til Amars. 1- 2 Sigurður Jónsson (56.) af stuttu færi eftir að Ólafur Adolfsson hafði skallað, Kristján slegiö boltann í stöng og Bjarki Gunniaugsson komið honum fyrir markið á ný. 2- 2 Mihajlo Bibercic (72.) með skalla af markteig eftir fyrirgjöf Hilmars Bjömssonar og glæsisendingu Guð- mundar, sem gat hæglega skotið sjálfur. 3- 2 Mihgjlo Bibercic (87.) úr víta- spymu eftir að Pálmi Haraldsson hafði fellt Guðmund, eftir snögga og stórglæsi- iega sókn KR. Lið KR: Kristján Finnbogason >; - Brynjar Gunnarsson, Steinar Adolfsson >;., Þormóöur Egilsson, Sigurður Öm Jónsson >;. - Hilmar Björnsson V., Heim- ir Guðjónsson 'A, Heimir PorcaEinar Þór Daníelsson - Mihajlo Bibercic >V.;, Guðmundur Benediktsson >v.;. Lið ÍA: Þórður Þórðarson - Pálmi Haraldsson, Zoran Miljkovic >;., Ólafur Adolfsson Sigursteinn Gíslason >;. - Ólafur Þórðarson >;., Alexander Högnason >V.;., Sigurður Jónsson, Har- aldur Ingólfsson (Bjarki Pétursson 69.) - Amar Gunnlaugsson >;., Bjarki Gunn- laugsson. KR: 16 markskot, 5 horn. ÍA: 15 markskot, 4 hom. Gul spjöld: Brynjar (KR), Sigurður Öm (KR), Guðjón (KR), Guðmundur (KR), Sigurður (ÍA), Þórður (ÍA), Pálmi (ÍA). Rautt spjaid: Enginn. Dómari: Eyjólfur Ólafsoon - fullmis- tækur í erfiðum leik, samræmi í spjöld- um og brotum ekki nægilegt. Áhorfendur: 2.070 greiddu aðgang. Skilyrði: Rigning fyrst, síðan sól á köflum, völlurinn háll en þokkalegur. Maður leiksins: Guðmundur Bene- diktsson (KR). Geysilega ógnandi og lagði upp öll mörk KR, auk þess sem hann átti tvö skot í stangir Skaga- marksins. Fram-Grindavík (0-1) 0-2 0-1 Milan Jankovic (35.) - eftir horn- spymu Zorans Ljubicic fékk Jankovic boltann frá Þorsteini Jónssyni og þrum- aði honum upp i markhomið. 0-2 Zoran fjubicic (85.) fékk laglega stungusendingu frá Tómasi Inga Tómas- syni og skoraði af útsjónarsemi fram hjá Birki. Liö Fram: Birkir Kristinsson >;. - Kristján Jónsson, Ágúst Ólafsson, Valur F. Gíslason, Pétur Marteinsson (Gauti Laxdal 54.) - Þórhallur Víkingsson (Josip Dulic 46.), Kristinn Hafliðason (Hólmsteinn Jónasson 81.), Steinar Guð- geirsson, Atli Helgason - Ríkharður Daðason, Þorbjöm A. Sveinsson. Lið Grindavíkur: Albert Sævarsson - Milan Jankovic >;., Þorsteinn Guðjóns- son >;., Gunnar M. Gunnarsson (Tómas I. Tómasson 70.), Guðjón Ásmundsson - Þorsteinn Jónsson >;., Zoran Ljubicic >;., Ólafur Ingólfsson >;<Lúkas Kostic 83.), Sveinn Guðjónsson, Ólafur Ö. Bjamason - Grétar Einarsson (Vignir Helgason 83.). Fram: 13 markskot, 4 hom. Grindavík: 12 markskot, 5 hom. Gul spjöld: Valur (Fram). Rautt spjald: Enginn. Ilómari: Ólafur Ragnarsson, dæmdi vel. Áhorfendur: 642. Skilyrði: Hægur vindur, rigningarúði, völlurinn blautur. Maður leiksins: Þorsteinn Jónsson (Grindavík). Geysilega duglegúr á miðj- unni og átti margar glæsisendingar í leiknum. Staðan Staðan í Sjóvár-Almennra deildinni að loknum 14 umferö- um: Akranes ....14 12 1 KR ....14 9 1 ÍBV ....14 8 1 Leiftur 14 6 3 Grindavík. ....14 6 2 Keflavík.... .... 14 5 5 Breiðabhk ....14 4 3 Valur ,...14 4 2 1 35-12 37 4 22-14 28 5 31-19 25 5 26-24 21 6 18-17 20 4 19-21 20 7 17-18 15 8 18-27 14 Fram.........14 3 2 9 14-31 11 FH...........14 2 2 10 19-36 8 Markahæstir: Mihajlo Bibercic, KR.........9 Tryggvi Guðmundsson, ÍBV.....9 Rastislav Lazorik, Breiöabl..8 Ólafur Þórðarson, ÍA.........8 Arnar Gunnlaugsson, í A......7 Haraldur Ingólfsson, ÍA......6 Hörður Magnússon, FH.........6 Þorbjöm A. Sveinsson, Fram...6 Bið á að Skagamenn guUtryggi sér íslandsmeistaratitilinn í knattspymu: - þegar KR stöðvaði sigurgöngu ÍA og vann, 3-2 - með þrennu frá Bibercic Víðir Sigurösson skriíar: Fyrirsögnin hér að ofan stendur fyllilega undir sér. Það var búist við hörkuleik hjá KR og ÍA á KR-vellin- um í gærkvöldi og sú varð svo sann- arlega raunin. Leikurinn bauð nán- ast upp á allt sem hægt er aö biðja um, góða knattspyrnu, baráttu, hörku upp aö skynsamlegu marki, og stundum aðeins fram yflr það, íjölda marktækifæra, flmm mörk, bæði lið með forystu, og sigurmark úr vítaspyrnu á síðustu stundu. Eflaust besti leikur sumarsins hér á landi ogjafnvel lengra aftur í tímann. Og KR-ingar geta ekki hætt að fagna þessa dagana, eftir Evrópuæv- intýriö og bikargleðina höfðu þeir karakter til þess að taka á móti meistaraefnum Skagamanna og sigra þá fyrstir allra í 1. deildinni í sumar, 3-2. Skagamenn gátu tryggt sér íslands- meistaratitilinn í gærkvöldi, með sigri, og jafntefli heföi þýtt að mögu- leikar KR hefðu aðeins verið stærð- fræðilegir. Þeir hafa samt 9 stiga for- ystu og eiga titilinn vísan, en nú geta þeir í fyrsta lagi fagnað honum á mánudagskvöld, ef þeir vinna Grindavík á sunnudag og KR vinnur ekki Val kvöldið eftir. Það verður að segja báðum liðum til hróss að í gærkvöldi var ekki leik- ið upp á jafntefli eða reynt aö halda fengnum hlut. Skagamenn komust í 1-2 í seinni hálfleiknum og sóttu eft- ir það grimmt - sigurinn virtist þeirra og fleiri mörk liggja í loftinu. En KR jafnaði 18 mínútum fyrir leikslok og eftir þaö var spennan rafmögnuð til enda. Færin voru á báða bóga, fleiri við KR-markið, en Skagamenn voru of sóknbráðir undir lokin, KR-ingar brunuðu upp gegn fáliðaðri vörn þeirra og tryggðu sér sigurinn - Mihajlo Bibercic full- komnaði þrennu sína gegn gömlu félögunum og skoraði annað sigur- mark KR á fimm dögum. Kappið hjá þeim var skynseminni yfirsterkara „Það voru miklar væntingár til leiks- ins og ég held að hann hafi staðið undir þeim. Dúndur fótbolti og hratt sótt. Eftir svona sigur verður maður svekktur yfir töpuðum stigum í sum- ar, fimm til FH-inga og þrjú gefin til Grindavíkur. En það er mjög gaman að hafa unnið Skagann, hvernig sem allt fer, við erum komnir áfram í Evrópukeppninni, orðnir bikar- meistarar og við ætlum að tryggja okkur annað sætið. Það er hægt að láta sig dreyma en ég er raunsær og trúi því ekki að Skagamenn tapi þessu niður. Þeir fengu kjaftshögg í kvöld sem á að duga þeim til að rífa sig upp, en hitt er annað mál að þeir eiga eftir að vinna leikina," sagði Guðjón Þórðarson, þjálfari KR, við DV eftir leikinn. „Máliö er það að þegar við höldum boltanum niðri og spilum upp kant- ana nýtast ekki styrkleikar þeirra varnar. Þannig á að spila á móti Skagamönnum, og þeir voru of djarf- ir, kappið hjá þeim var skynseminni yfirsterkara. Guðmundur var mjög heitur í þessum leik, hann lagði upp mörkin og fiskaði vítið,“ sagði Guö- jón. Gaman að skora þrjú á móti besta liðinu „Jú, það er gaman að skora þrjú mörk á móti besta liðinu. Ég var hræddur fyrir þennan leik, eftir bik- arúrslitin á sunnudag var erfitt að fara beint í leik á móti Akranesi. Við höfum spilað síðustu leiki mjög vel og erum alltaf að bæta við okkur. Það var erfitt að koma inn í KR-hðið, en þetta er allt að koma. Ef KR spilar vel er ég ekki smeykur, þá halda mörkin áfram að koma. Guðmunaur var hka ótrúlega góður og hjálpaði mér mikið. Ég var ekkert stressaður í vítinu, ég var 100 prósent viss um að skora," sagði Mihajlo Bibercic. Verðum lika að kunna aðtapa „Þetta var eflaust skemmtilegur leik- ur fyrir áhorfendur og við verðum að sætta okkur við þetta og kunna að tapa, þó það hafi verið sárt. Við ætluðum að taka titilinn hérna á KR-vellinum en verðum bara að klára þetta heima - það er alltaf best að fagna þar. Ég er ekki sáttur við dómgæsluna, það var margt umdeilt og til dæmis greinileg hendi á Porca þegar þeir skoruðu fyrsta markið. En dómarinn hefur víst alltaf rétt iyrir sér,“ sagði Sigursteinn Gísla- son, Skagamaður, við DV. Grindavík í góðum málum - en Framarar nálgast 2. deildina Stef an Toth sendur heim Guðmundur Hilmaisson skrifer: Grindvíkingar eru í góðum málum á sínu fyrsta ári í 1. deildinni í knatt- spyrnu eftir sanngjarnan sigur á Fram, 0-2, í síðasta leik 14. umferðar sem lauk á Laugardalsvellinum í gær. Grindvíkingar sigla þar með lygnan sjó í deildinni en Framarar eru í fallsæti og þurfa að taka sig rækilega á ef þeir eiga að forðast fall í 2. deild. Það var jafnræði með liðunum lengst af úti í vellinum en sóknir Grindvíkinga voru allan tímann mun hættulegri en Framara og það má kannski segja að Birkir Kristins- son, markvörður Fram, hafi bjargað liði sínu frá stærra tapi með góðri markvörslu. Grindvíkingar voru sterkari í fyrri hálfleik og forysta þeirra var fyllilega sanngjörn,- Framarar náöu sínum besta leikkafla í upphafi síðari hálf- leiks en tókst samt ekki að skapa sér nein opin marktækifæri. Grindvík- ingar léku af skynsemi. Þeir héldu sig frekar aftarlega og voru mjög skæðir í skyndiupphlaupum sínum og úr einu slíku gerðu þeir út um leikinn 7 mínútum fyrir leikslok. „Þetta var bara spurningin um að vera með í efri hlutanum eða vera í „Ég tel að Skagamenn eigi mikla möguleika gegn Raith miðað við það sem ég sá til Skotanna hér í Færeyj- um,“ sagði Páll Guðlaugsson, fyrrum landsliðsþjálfari Færeyja í knatt- spyrnu, í spjalli við DV. Páll sá Raith gera jafntefh, 2-2, við GÍ í seinni leik liðanna í forkeppni UEFA-bikarsins. „Leikurinn var kannski ekki nógu botnbaráttunni. Það var frábært að sigra þá þar sem þeir höfðu tekið af okkur 2 ódýr stig í deildinni og slógu okkur út úr bikarnum. Við komum mjög ákveðnir í þennan leik og klár- uðum hann þannig lagað í fyrri hálf- leik. í þeim síðari spiluðum við af öryggi. Við hugsum ekki um neitt ákveðið sæti heldur ætlum við að hirða þau stig sem við getum hér eftir og svo munum við sjá í lokin hver staðan verður,“ sagði Þorsteinn Jónsson, leikmaðurinn öflugi í liði Grindvíkinga, við DV eftir leikinn. Með ósigrinum versnaði staða Framará í botnbaráttunni og eins og liðið lék þennan leik verður að telja þá líklega fallkandítata með FH- ingum. Framarar áttu á brattann að sækja gegn baráttuglöðum Grindvík- ingum og furðulegt var oft að sjá hve lítið Framarar lögðu kapp á sóknina. Eftir þennan mikilvæga sigur eru Grindvíkingar komnir í baráttuna um Evrópusætið og þeim til mikillar gleði eru þeir komnir upp fyrir Kefl- víkinga á stigatöflunni. Heildarsvip- urinn var góður á liöinu, vörnin mjög sterk, miðjumennirnir geyshega duglegir og útsjónarsamir og margar vel útfærðar sóknir htu dagsins ljós hjá liðinu. marktækur þar sem Raith var með 4-0 forskot úr fyrri leiknum, en samt fannst mér greinilegt að liðið er reynslulítið og þaö var mikið óöryggi í skosku vöminni þegar GÍ setti á hana pressu," sagði Páll og bætti því við að hættulegasti leikmaður Raith hefði veriö blökkumaðurinn Tony Rougier sem lék í framlínu liðsins. Viðarsmótið íhandbolta íþróttafélag Hafnarfjarðar gengst nú um helgina fyrir hinu árlega Viðarsmóti i handknatt- leik sem er haldið í minningu Viðars Sigurðssonar handknatt- leiksmanns sem lék meðal ann- ars með Haukum, FH og ÍH. Viöar lést um aldur fram í um- ferðarslysi við Sandskeið fyrir nokkrum árum. Þátttökuliöin á mótinu er FH. Grótta, IBV og ÍH og verður keppt í íþróttahúsinu við Strandgötu. Mótið hefst klukkan 18.30 i kvöld með leik Gróttu og ÍBV og strax á eftir leika ÍH og FH. A laugardaginn leika ÍBV og ÍH klukkan 13 og strax á eftir, eða um klukkan 14.30 leika FH og Grótta. Klukkan 16.30 leika ÍH og Grótta og mótinu lýkur síðan með leik FH og ÍBV sem hefst klukkan 18. Hópferðá leikÍAog Raith Daniel Ólafeson, DV, Alaanesi: Forráðamenn Samvinnuferða- Landsýnar hafa skipulagt tveggja daga ferö á leik Raith Rovers og ÍA í Evrópukeppninni i knatt- spyrnu sem fram fer í Skotlandi 12. september. Haldiö veröur út að morgni mánudagsíns 11. sept- ember og komið heim daginn eft- ir leik. Þetta er bæði verslunar- og fótboltaferð til Edinborgar, Ahar nánari upplýsíngar gefur Willum Þór Þórsson hjá íþrótta- deild Samvinnuferöa- Landsýnar og umboðsmaður þeirra á Akra- nesi, Kristján Sveinsson. Unglingamót ígolfihjáKeili Opið unglingamót f gohi, Pinseeker-mótiö, verður haldið á sunnudaginn á Keihsvellinum í Hafnarfiröi. Keppt verður í flokk- um 15-18 ára og 14 ára og yngri. Veitt veröa glæsileg verölaun fyr- ir 1., 2. og 3. sætið. Ræst verður út frá klukkan 9-13 og er keppnis- gjald 800 krónur. Skrúning er í síma 565-3360. Stefan Toth, Slóvakinn sem leikiö hefur með FH-ingum í 1. deildinni í knattspyrnu í sumar, lék sinn síðasta leik með hðinu í tapleiknum gegn ÍBV í fyrrakvöld. Eftir leikinn ákváðu forráðamenn FH að senda Toth heim enda hefur hann, að þeirra mati, ekki staðið undir þeim væntingum sem til hans voru gerðar. Stefan Toth, sem hélt af landi brott í gær, lék 11 leiki með FH í 1. deild- Ath Eðvaldsson, þjálfari spútnik- hðs Eyjamanna í knattspymu, segir að það sé skömm hvað Hafnfirðingar séu linir við að styðja við bakið á leik- mönnum FH í þeirri hörðu fallbaráttu sem þeir em í. Þetta sagði Ath í sam- tah við DV eftir leik Eyjamanna og FH-inga í fyrrakvöld en þar voru miklu fleiri Éyjamenn á áhorfendap- öhunum en Hafnfirðingar. „Það er alveg ótrúlegt að horfá upp á þetta. Fólk í Hafnarfirði ætti hrein- lega að skammast sín fyrir að snúa bakinu við FH-ingunum um leiö og inni og skoraði 2 mörk, bæði í 2-3 tapleiknum gegn Val í fyrri umferð- inni. Toth kom th FH frá 1. deildar liðinu Lokomotíva Kosice í Slóvakíu en þar var hann fastamaður og var t.d. markahæsti leikmaður liðsins í 1. deildinni 1993-94 með 6 mörk. Áður sphaði hann með Tatran Presov í 1. deildinni í gömlu Tékkóslóvakíu. það fer að ganga iha en eins og allir vita þá hafa FH-ingar staðið sig meiri háttar vel undanfarin tvö ár. Ég hélt hreinlega að viö værum að spila á heimavelli í þessum leik gegn FH. Ég var líka vitni að þessu í Evrópu- leiknum á dögunum. Þar voru sára- fáir Hafnfirðingar sem létu sjá sig og þeir sem mættu voru ekki að hvetja strákana áfrarn," sagði Atli. Þess má geta að Atli býr í Hafnar- firði, rétt hjá Kaplakrika, og því má segja að hann hafi verið á heimavelli í fyrrakvöld! Naumur Valssigur Ingibjörg Hinriksdóttir skrifer: Valur lagði IBV, 1-2, 1 1. deild kvenna í knattspymu í Eyjum í gær. Ásgerður Ingibergsdóttir og Sirrý Haraldsdóttir gerðu mörk Vals en Stefanía Guðjónsdóttir minnkaði muninn fyrir IBV. Fyrir lokaumferðina er' Breiðablik með tveggja stiga forskot á Val og nægir jafntefh gegn Stjörnunni til að tryggja sér íslandsmeistaratitilinn. _L ÍA á mikla möguleika AtliEðvaldsson: Haf nf irðingar ættu að skammast sín íþróttir Kristján Finnbogason og Hilmar Björnsson höfðu svo sannarlega ástæðu til að brosa eftir sigurinn á Skagamönnum í gærkvöldi. Svo sannarlega viðburðaríkir dagar hjá þeim og öðrum KR-ingum, Evrópusigurinn, Evrópudrátturinn, bikarsigurinn og svo Skagamenn lagðir að velli. DV-mynd Brynjar Gauti Raith Rovers, mótherjar ÍA í UEFA-bik- arnum, féllu í gærkvöldi út úr skoska deildabikarnum í knattspymu, sem þeir unnu í fyrra, á afar umdeildan hátt. Mínútu fyrir lok framlengingar gegn Celtic, þegar staðan var 1-1, sparkaði Scott Thomson, markvörður Raith, boltanum út af vegna þess að leikmaður Celtic lá meidd- ur á vehinum. Leikmenn Celtic sýndu mjög óíþróttamannslega framkomu þvi þeir nýttu innkastið til að skora sigurmarkið í leikn- um, 2-1, í staö þess að kasta boltanum á leikmenn Raith. „Það hefur verið gullin regla hjá mark- vörðum að sparka boltanum út af í svona tilfellum, en ég hugsa mig tvisvar um áður en ég geri það næst,“ sagði Thomson, æva- reiður eftir leikinn. Jimmy Nicholl, fram- kvæmdastjóri Raith, sagði aö lið sitt hefði tapað vegna óheiðarleika og erfltt væri að sætta sig við slíkt. Celtic, sem tapaði fyrir Raith eftir víta- spyrnukeppni í úrslitaleik keppninnar í fyrra, var miklu betri aðilinn allan timann, en Tony Rougier náði að jafna fyrir Raith með glæsimarki úr aukaspyrnu og ná þann- ig í framlengingu. Reykjanesmótí körfuknattleik Hiö árlega Reykjanesmót í körfubolta hefst á sunnudag. Fjögur lið keppa á mót- inu, Njarðvík, Grindavík, Haukar og Kefla- vík. Leikin verður tvöfóld umferð, heima og heiman. Þó að hér sé aðeins um haust- mót að ræða og hðin ekki komin á fuha ferð má búast við skemmtilegum leikjum. Á sunnudagskvöld mætast í fyrstu leikj- unmn Grindavík-Keflavík og Haukar- Njarðvík og báðir leikirnh heijast klukkan 20. Frábært hjá Geir Geir Sverrisson, íþróttamaður úr Ármanni, tók þátt í þremur frjáls- íþróttamótum í Þýskalandi í síðustu viku og stóð sig mjög vel. Geir fékk boð um að taka þátt í alþjóðlegu boðs- móti fyrir sterkustu frjálsíþrótta- menn heims úr röðum fatlaðra en mótið fór fram í Göttingen. Hann keppti í 400 m hlaupi og sigr- aði glæsilega á tímanum 50,98 sek. sem er besti tími hans á þessu ári í greininni. Þá keppti Geir í 4x100 m boðhlaupi með boðhlaupsveit Evr- ópu og átti glæsilegan endasprett sem tryggði sveitinni fyrsta sætið. Þá keppti Geir einnig í tveimur mótum ófatlaðra sem fram fóru í Aachen og Troisdorf. Geir varð ann- ar í bæði 100 m og 400 m hlaupi á mótunum. Badmintondeild KR Æfingar hefjast í september. Innritun og upplýsingar hjá Óskari Guðmundssyni í síma 511 5511 og 551 5881. Stjórnin Svíþjóð: Örebro í baráttuna á toppnum Eyjólfur Harðaison, DV, Sviþjóð: Örebro er komið í slaginn um efstu sæti úrvalsdeildarinnar eft- ir 1-0 sigur á Norrköping i lokin. Miroslav Kubiztal skoraði sigur- markið og voni íslendingamir þrír ahir með Örebro. „Við áttum ahan leikinn og nýttum ekki 4-5 dauðafæri, auk þess sem við áttum að fá víta- spyrnu,“ sagði Hlynur Stefáns- son við DV eftir leikinn. Örgryte gerði jafntefli við topp- lið Gautaborgar, 1-1, að viðstödd- um 11 þúsund áhorfendum og jafnaði Gautaborg úr umdeildri vítaspymu en leikmaður Gauta- borgar viðurkenndi eftir leikinn að hann hefði látið sig detta. Rún- ar Kristinsson lék á vinstri kant- inum hjá Örgryte og stóð mjög vel fyrir sínu. Úrslit í úrvalsdeildinni í gær- kvöldi: Örebro - Norrköping.....1-0 Örgryte - Gautaborg.....1-1 Hammarby - AIK..........1-2 Trelleborg - Helsingborg.0-1 Öster - Malmö...........2-2 Halmstad-Degerfors......5-1 Gautaborg er með 31 stig, Hels- ingborg 31, Malmö 30, Halmstad 30, Örgryte 27, Djurgárden 25, AIK 25, Órgryte 23, Norrköping 22, Öster 20, Treheborg 19, Hammarby 17, Fröhmda 15 og Degerfors 15 stig.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.