Þjóðviljinn - 07.06.1964, Qupperneq 7
Sunnudagur 7. júní 1964
HðÐTtUnffl
SÍBA
Sjómenn hljóta að treysta sjálfum
sér bezt og efla sín eigin samtök
Sjómenn tala oft í hálfkær-
ingi um ræðuhöldin á sjó-
mannadaginn og það ekki að
ástæðulausu. Flestir þeirra
vildu skipta á faguryrðum þessa
eina dags og stuðningi við
málstað sjómanna og hags-
munamál aðra daga ársins.
Svo gæti virzt sem það væri
beinlínis óvarlegt fyrir sjó-
menn að færa óvenjmikinn
afla að landi, hvað þá ef þeir
taka upp á því að setja heims-
met í aflabrögðum dag eftir
dag, eins og sagt var á þorsk-
nótaveiðunum í vetur! Að
sjálfsögðu þýða slík aflabrögð
að útgerðarmaður fær stóran
hlut og gildan sjóð. En það
virðist ekki nóg, því seint fyll-
ist sáiin og svo framvegis.
Þegar mest aflast og útgerðar-
mennirnir græða mest, fer dá-
lítil klíka þeirra á stúfana,
hún kallar sig fínu nafni,
stjórn Landsambands íslenzkra
útvegsmanna, og fer að reyna
að svína á sjómönnum og hafa
af þeim samn'ngsbundinn hlut
þeirra.
★
Þetta gerðist hér um árið
þegar sildaraflinn varð meiri
en nokkru sinni. Þá kom
Sverrir Júlíusson og kumpánar
og heimtuðu að aflahlutur síld-
veiðisjómanna yrði stórskertur.
Og þegar sú herferð var að
renna út f sandinn með smán
var gripið til leynivopnsins.
ríkisstjórnarinnar, og Emil
Jónsson formaður Alþýðu-
flokksins, látinn gefa út
bráðabirgðalög um gerðardóm,
en á grundvelli þeirra laga var
hlutur síldveiðisjómanna skor-
iitn íiiður og miljónatugum af
samningsbundnú kaupi sjó-
manna stungið í vasa útgerð-
armanna-.
Sama varð upp á teningnum
í vor Sjómenn færðu á land
óhemju þorskafla veiddan í
hringnætur. Og Sverrir Júlf-
usson og LltJ hans fór á stúf-
ana. Nú varð að klekkja á
sjómönnum! Því var lítt haldið
á lofti hvað sjómennimir urðu
að leggja að sér sólarhring-
ana sem rosaaflinn fékkst f
nótina. Nú skyldi svindlað á
sjómönnum með uppgjörið —
enn skyldi tugum þúsunda
rænt af aflahlut hvers sjó-
manns og stungið í vasa út-
gerðamannsins.
Þetta tilræði hefur ekki
tekizt enn, nema að litlu leyti.
Heiðarlegir útgerðarmenn, ekki
cinungis í Vestmanneyjum
heldur Iíka í öðrum útgerð-
arbæjum Suðvesturlandsins.
hafa þegar gert upp fyrir
þorsknótaveiðarnar samkvæmt
eina hringnótasamningnum
sem í gildi er, og meðal þeirra
eru nokkrir mestu aflabát-
amir. Og sjómenn ættu hvergi
að viðurkenna uppgjör sam-
kvæmt fyrirskipun LlÚ sem
fullnáðaruppgjör fyrir þorsk-
veiðamar í nót, heldur leita
tafarlaust réttar síns, og er
það í fyllsta samræmi við yf-
irlýsingu allra sjómannasam-
KRISTINN REYR:
Sjómannadagur
Stiginn er gamall garpur
úr greipum ægis á land
og hetja ung, sem hnýtir
við höfin tryggðaband.
Stórborg íslenzk og útver,
innfjarðar byggðarlag
hefja samstillta hátíð
og hylla sjómenn í dag.
Um nón er lársveigur lagður
á leiði hins óþekkta manns,
alþjóð saknar og syrgir
sérhvern af bræðrum hans,
er starfsglaður lagði í lófa
landsins svo marga gjöf,
en hvarf 1 vitstola hryðjur
og hrannaða djúpsins gröf.
•ir ■
í dag sé minningln máttur
til meira öryggis þeim,
sem börðust í hryðjum við bráðan
% brotsjó og náðu heim.
® Sfórborg íslenzk og útver,
innfjarðar byggðarlag
njóti yðar um ár fram,
þér íslands sjómenn í dag.
takanna, hinna einstöku sjó-
mannafélaga, Sjómannasam-
bands Islands og Farmanna- og
fiskimannasambandsins. sem
hafa tekið eindregna afstöðu
gegn hinni alræmdu fyrirskip-
un LlÚ, enda þótt samtökin
hefðu mátt láta málið enn
meira til sín taka og meira
til sín heyrast um það.
Sjómenn ættu að festa sér
í minni afstöðu blaðanna til
þessa hagsmunamáls þeirra og
annarra. Afstöðu blaðanna og
þar með stjórnmálaflokkanna
sem þau eru málgögn fyrir.
Sjómannasambandsstjórnin
lýsti því yfir að sjómenn væra
,.agndofa“ vegna fyrirskipunar
íhaldsþingsmannsins Sverris
Júlíussonar og LlÚ-klíkunnar.
Það er þó sjálfsagt ekki rétta
orðið; sjómenn eru oorðnir
ýmsu vanir úr þeirri áttinni
og það þarf nokkuð til svo
þeir verði „agndofa" þegar um
það er að ræða, að útgerðar-
menn reyna að næla í nokkuð
af réttmætum hlut sjómanns-
ins. Hitt er engu líkara
en sumir þeir menn sem hafa
troðið sér til forystu í sam-
tökum sjómanna. að vísu á
atkvæðum landsmanna mest-
an part, hafi orðið bæði „agn-
dofa“ og klumsa. Minnist
nokkur þess að hafa séð mál-
stað sjómanna í þessu máii
skýrðan og varinn í Morgun-
blaðinu og Vísi af stjómar-
manni í Sjómannafélagi
Reykjavíkur sem hlýtur að
eiga innangengt í þau blöð,
íhaldsþingmanninum Pétri
Sigurðssyni? Tíminn og Al-
þýðublaðið hafa heldur ekkl
lagt sig fram um slíka vöm.
En Morgunblaðið og Vísir hafa
í þessu máli eins og öllum
sem varða hagsmunamál vinn-
andi fólks tekið afstöðuna með <S>
gróðabrallsmönnum. Sverr-
ir Júlíusson og kumpánar eiga
alltaf inni á síðum Morgun-
blaðsins og Vísis með sinn
máistað, málstað nakinnar
gróðahyggju, málstað þeirra
sem fara eins langt og kom-
izt verður í því að raka til
sín gróða af vinnu annarra.
Sjómönnum hafa blöskrað
blekkingaskrif Morgunblaðs-
ins og Vísis um Hafnarfjarð-
ardóminn svonefnda. Sá dómur
er um einstakt mál frá í fyrra,
en ekki um skilning á samn-
ingi, enda væri það þá Fé-
lagsdómsmál. Sá dómur hef-
ur ekki almennt giidi, snertir
alls ekki aðaldeilumálið nú í
vor, sem fram er kallað vegna
hinnar alræmdu fyrirskipunar
LÍÚ. Hafnarf jarðardómurínn
byggír á rangri og villandi
skráningu á bátinn Ársæl Sig-
urðsson á vertíðiinni í fyrya. þar
sem sagt var að hann yrði á
netaveiðum og ekkert kaup til-
greint í kaupdálki skráningar-
innar, eins og á þó að sjálf-
sögðu að gera. Dómarinn leit
svo á að með þessari skárn-
ingu sem skipvcrji hefði ekki
mótmælt hefði stofnazt samn-
ingur milli lians og útgerða,-
mannsins sem gerði útgerðar-
manninum fært að gera upp á
netakjörum þó fiskað væri í
hringnót
Þessi dómur er enn ein á-
minning til sjómanna að gæta
vel að skráningunni og láta
hana ekki vera það flýtisverk
sem hún oft er. Lögskráningin
gæti virzt orðin aðferð óprútt-
inna útgerðarmanna til að
skerða með rangindum aflahlut
sjómanna, og hafa skráningar-
mál mjög komið til kasta dóm-
stóla undanfarin ár og svo
reynzt. að olt’ð getur á miklu
að sjómenn hafi fulla gát á
því að skráningin sé í alla
staði heiðarleg.
Allt er þetta hvatning til
sjómanna um nauðsyn þess að
efla samtök sín, treysta Sjó-
mannafélag Reykjavíkur og
breyta þar hinum fáránlegu
og úreltu ákvæðum um fé-
lagsréttindi, svo tryggt sé að
starfandi sjómenn geti ráðið
félagi sínu. og beitt þvú til
sóknar og vamar hagsmunum
sínum. Það er ófremdarástand
að í Sjómannafélagi Reykja-
víkur skuli vera um helmingur
eða jafnvel meirihluti menn
með öll félagsréttindi sem að
raun réttri ættu ekki að vera
í félaginu, né hafa aðstöðu til
að ráða þar stjórn og sam-
þykktum.
Sjómenn mega ekki láta það
undlr höfuð leggjast að treysta
samtök sín. Það er ískyggilegt
að einmitt þessi síðustu ár,
frá því íhaldið keypti sig til
valda í Sjómannafélaginu með
pólitíska brallinu við Alþýðu-
flokkinn. hefur afturhaldinu f
LlÚ og FlB veri'ð alveg sér-
staklega uppsigað við sjómenn,
og ráðizt hvað eftir annað á
sjómannakjörin og réttinda-
mál eins og vökulögin, og kraf-
izt þess að þau yrðu skert, á
sama tíma og allar aðrir stétt-
ir þjóðfélagsins fá kaup sitt
hækkað. Það yrði sjómönnum
áreiðanlega hollt að losa sig
við áhrif íhaldsins á stjóm sjó-
mannasamtakanna. Fögur orð
á sjómannadaginn eru ekki
nóg. Sjómenn og vandamenn
þeirra hljóta að dæma blöð
og flokka og sína eigin trún-
aðarmenn eftir því hvemig
snúizt er við brýnum hags-
munum. en ekki eftir fagur-
gala sem stendur einn dag á
ári.
Þegar sjómenn setja dag eftir dag hcimsmet í aflabrögðum sitja
„fínir“ menn í landi og „fyrirskipa“ að reynt skuli að rýra
samningsbundinn hlut sjómanna. Myndin: Háfað úr þorsknót.
K.R.R. ÞRÓTTUR K.S.Í.
Annað kvöld kl. 20.30 leika á Laugardalsvelli
Middlesex Wanderers— Tilraunalandslið
Dómari: Hannes Sigurðsson.
Síðasta tækifærið að sjá brezku snillingana.
Aðgöngumiðasala við Útvegsbankann og
í Laugardal eftir kl. 19.00.
Verð aðgöngumiða: Böm kr. 15,00.
Stæði kr. 50,00. Stúka kr. 75,00.
Tryggið ykkur miða í tíma
FORÐIZT ÞRENGSLI — SJÁIÐ ALLAN LEIKINN
KNATTSPYRNUFÉL AGIÐ ÞRÓTTUR.
Öskum öllum sjómönnum og fjölskyldum þeirra allra
heilla á Sjómannadaginn.
STÁLSKIPASMIÐJAN H.F.
K0PAV06I.