Þjóðviljinn - 01.05.1965, Síða 1
r
Þjóðviljinn er 28 síður í dag
tvö blö - 16 síðna blað og
12 síðna aukablað
Laugardagur 1. maí 1965 — 30. árgangur — 97. tölublað.
Einhuga kröfur - einhuga
sökn - einhuga um
Guðmundur
Guðmundsson
Brynja Benediktsdóttir og- Erlingur Gíslason leikstjórar leik-
þáttanna sem sýndir eru á menningarvikunni. (Ljósm. A.K.).
MENNINGARVIKAN
SETT f DAG KL. 4 SÍÐD.
★ Menningarvika Samtaka hernámsandstæðinga verður sett
í dag klukkan fjögur í sýningarsalnum á 2. hæð í Lind-
arbæ. Þóroddur Guðmundsson, rithöfundur flytur ávarp.
I sýningarsalnum sýna 35 listamenin verk sín,.
★ Skrifstofa menningarvikunnar er í Lindarbæ á 2. hæð.
Verður hún opnuð klukkan tvö í dag og er opin fram-
vegis alla daga vikurmar á sama tíma og myndlistar-
sýningin þ. e. 14.00—23.00.
★ Dagskráin á morgun, sunnudaginn 2. maí hefst klukkan
15.30 á Litla sviðinu í Lindarbæ, og er á þessa leið:
★ EINLEIKUR á píanó: Atli Heimir Sveinsson leikur verk
eftir íslenzka fcöfunda.
★ LIMRUR eftir Þorstein Valdimarsson. Þórarinn Guðna-
son les.
★ DANSFLOKKUR undir stjórn Þórhildar Þorleifsdóttur
sýnir dansa er hún hefur gert við lög eftir Béla Bartok.
★ SKÁLD lesa úr verkum sínum: Þórbergur Þórðarson og
Jón úr Vör.
★ DAGSKRÁ mánudaginn 3. maí á Litla sviðinu I Lind-
arbæ:
★ JÓÐLÍF, leikþáttur eftir Odd Björnsson. Þorsteinm ö.
Stephensen og Baldvin Halldórsson, flytja. Leikstjóri:
Erlingur Gíslason.
★ SKÁLD lesa úr verkum sínum: Guðbergur Bergsson,
Ingimar Erlendur Sigurðssoni, Guðmundur Böðvarsson,
Halldóra B. Björnsson og Jóhannes úr Kötlum.
★ ÆTLAR BLESSUÐ MANNESKJAN AÐ GEFA UPP
ANDANN? — burlesca da camera eftir Thor Vilhjálms-
Leikstjóri Brynja Benediktsdóttir. Leikendur Þorsteinn
ö. Stephensen, Erlingur Gíslason, Bríet Héðinsdóttir,
Jóhanna Norðfjörð, Leifur Ingvarsson og Pétur Einars-
son.
Reykvísk aíbýða fylkir í dag iiði um hagsmuna-
kröfur og hugsjónir verkalýðshreyfingarinnar
Stofnað er til hátíðahalda alþýðunnar í Reykjavík þennan 1. maí með
þeim hætti, að samkomulag hefur orðið innan verkalýðshreyfingarinnar
um hátíðahöldin og ávarp dagsins og er það gleðiefni.
Með því er stuðlað að einingu alþýðunnar um hagsmunamálin fyrst og
fremst. Framundan eru á næstu vikum mikil átök um kjaramál fólksins
í verkalýðsfélögunum, um hag allrar alþýðu. Það er þáttur þeirrar baráttu
að fylkja liði í kröfugöngu og á útifund samfylktrar verkalýðshreyfingar
Reykjavíkur. — Verið því öll með í dag!
Safnazt verður saman í kröfugönguna kl. 1.30 við Iðnó og lagt af stað^
í gönguna um tvöleytið, en strax að henni lokinni hefst útifundur á Lækj-
artorgi og flylja þar ræður GUÐMUNDUR J. GUÐMUNDSSON varafor-
maður Verkamannafélagsins Dagsbrúnar og EGGERT G. ÞORSTEINSSON
alþingismaður.
Þjóðviljinn hefur beðið Eð-
varð Sigurðsson, formann Verka-
mannafélagsin5 Dagsbrúnar, um
að segja nokkur orð varðandi
hátíðahöldin, og svaraði hann á
þessa leið:
— Mikilsvert er þennan fyrsta
maí að tekizt hefur að ná ein-
ingu um kröfur verkafólks al-
mennt á hendur þjóðfélaginu og
sérstaklega um kröfumar sem
liggur nú fyrir að s'emja um.
Svo giftusamlega hefur til tek-
izt að samkomulag hefur orðið
með hinum stríðandi öflum í
verkalýðshreyfingunni um þessi
höfuðmál fyrst og fremst.
Dámur kveðinn
upp í fjársvika-
f gær var kveðinn upp í saka-
dómi Reykjavíkur dómur í fjár-
svika- og gjaldeyrissvikamáli er
höfðað var á hendur þeim Har-
aldi Faaberg skipamiðlara, Ósk-
ari Gíslasyni skrifstofustjóra,
Helga Bergssyni fyrrv. fram-
kvæmdastjóra og fleirum í sept-
ember 1964. Er fréttatilkynning
frá sakadómi um dóminn birt á
4. síðu blaðsins.
Menn sakna sjálfsagt ýmissa
atriða í ávarpi daggins að þessu
sinni og á kröfuspjöldum hans,
atriðum sem þeir hefðu óskað
eftir að eining gseti líka orðið
um þennan 1. maí. En samkomu-
lag um hátíðahöld dagsins og
Framhald á 11. síðu.
Fimmtudaginn 6. maí flytur
Brynjólfur Bjamasonn erin<E
í Tjamargöta 20 uppia Sósíal-
istaflokkurinn og samfylking-
in. — Æ.F.-félagar eru hvatt-
ir til að fjölmenna.
Fræðslunefnd Æ.F.
Þingsályktunartillaga Alþýðubandalagsins:
Varnarsamningi ðslands og
Bandaríkjanna sé sagt upp
Allir þingmenn Alþýðubandalagsins flyjtja á Alþingi tillögu til
þingsályktunar um uppsögn varnarsamnings milli íslands og Banda-
ríkjanna. 1—
Tillagan er svohljóðandi: — Alþingi ályktar að Fela ríkisstjórn-
inni að æskja nú þegar endurskoðunar á varnarsamningi milli
íslands og Bandaríkjanna frá 5. maí 1951, samkvæmt heimild
í 7. gr. samningsins, svo og að leggja fyrir Alþingi frumvarp til
uppsagnar samningsins, þegar er endurskoðunarfrestur sá, sem í
samningnum er ákveðinn, heimilar uppsögn hans.
Tillögunni fylgir ítarleg greinargerð og verður hún birt hér í
blaðinu síðar.
Kennaraefnin
kveðja kennara
1 gær fóru fjórðubekking-
ar í Kennaraskólanum, en
þeir útskrifast sem kenn-
arar í vor, um borgina og
kvöddu kennara sína. —
Myndin er tekin af kenn-
araefnunum ásamt nokkr-
um kennurum þeirra fyrir
utan gamla Kennaraskól-
ann. Fyrir miðju með blóm-
vönd í hendi er fyrrver-
andi skólastjóri, Freysteinn
Gunnarsson. — (Ljósm.
Þjóðv. A.K.).