Þjóðviljinn - 01.05.1965, Síða 3
HðDViunra
SIÐA
4200 fíotaliðar sendir til
Dóminikanska lýðveldisins
WASHINGTON — SAN DOM3NGO 30/4 — Baadaríkjastjóm sendi
4-200 sjólióa á land í San Domingo. >egar siðast fréttist var enn barizt í
höfuðborginni, einn bandarísknr hermaður var sagður hafa fallið og sex
særzt en útilokað var áð gera sér nokkra greih fyrir því, hverjum betur
veitti í vopnaviðskiptunum.
Enn var barizt í San Dom-
ingo- í nótt og er hvergi nærri
unht að henda reiður á því hvor
aðilinn hafi farið með sigur af
hóhni, enda var enn barizt í
höfuðborginni, er siðast fréttist.
Bandaríska stjómin hefur reynt
að leggja mikla áherzlu á það,
að uppreisnarhreyfingin sé nndir
sterkum áhrifum frá „kommún-
istum“.
Utanríkisráðherrafundur
Eastaráð Ameríkuríkja, OAS,
samþykkti á fundi sínum í nótt,
að kalla saman til fundar utan-
rikieráðherra meðlimaríkjanna
til þess að ræða það ástand, er
skapazt hefur við þessa upp-
reisn. Ætlunin er, að utanríkis-
ráðherramir komi saman til
fundar á laugardag. Það fylgir
fréttum, að Dean Rusk, utan-
rfkisráðh. Bandaríkjanna, hafi
írestað för sinni á fund SEATO
og NATO vegna þessara atburða.
að sögn norsku fréttastofunnar
NTB, að Kúba, beinlínis eða
óbeinlínis, eins og það er orð-
að, eigi sinn þátt i þessari upp-
reisn og bandarísk yfírvöld eru
nú sögð hafa af því þungar á-
hyggjur, að herlið Kúbumanna
kunni að grípa fram í rás við-
burðanna til stuðnings upp-
reisnarmönnum. í gær var hörð
skothríð gerð að bandaríska
sendiráðinu í San Domingo.
OAS
Á fundi OAS var felld til-
laga frá Dominikanska 'lýðveld-
inu þess efnis, að ráðið gengi
úr skugga um það, hvort komm-
únistar ættu einhvem þátt í
þessari uppreisn. Hinsvegar sam-
þykkti ráðið að hvetja deiiu-
aðila til þess að komast að frið-
samlegu samkornulagi. Bunker,
fulltrúi Bandaríkjanna, lagði á-
herzlu á það, að Bandaríkin
væru reiðubúin til þess að flytja
ábyrgð sina í Dominikanska
lýðveldinu yfir á OAS,
Taugabilun
í Washington óttast menn nú, fljótt og unnt væri, eins og
ÓTRÚLEGT EN SATT
ULLARKJÓLAEFNI
Tvíbreið — Verð frá kr. 99,00.
*
SfÐDEGISKJÓLAEFN’
Verð frá kr. 49,00.
*
IÓLAFÓÐUR
Verð frá kr. 39,00.
SKOZK ULLAREFNI
Verð frá »*r 13»J».
*
I4LLARKÁPUEFNI
Verð frá kr. 299,00.
Peysur — undirfatnaður, mjög
'^Síkvæmt verð.
MARKAÐURINN
Hafnarstræti 11.
það var orðað, enda myndu
Bandaríkin haga sér í samræmi
við samþykktir OAS. f umræð-
unum var ekki minngt á íhlutun
Bandaríkjanna í San Domingo.
Bandarísk blöð áhyggjufull
Bandaríska stórblaðið „Was-
hington Post“ lýsir í dag á-
hyggjum sínum vegna þess, að
bandari'Skt herlið hafi verið sent
til Dominikansfea lýðveldisins.
Blaðið bætir því við, að Wilson
Indland og Pakistan:
Enn er barizt á
landamærunum
forseti hafi sent bandarískt her-
* lið þangað árið 1916, það her
lið hafi verið í landinu í átta
ár og þegar það hafi loks horf-
ið á braut hafi það látið ein-
ræði-sherranum Trujillo eftir
völdin. Að vísu sé það ljóst, að
Bandaríkin óski ekki eftir því,
að Dóminikanska lýðveldið verði
ný Kúba, en hitt sé jafn ljóst,
að enginn kæri sig um það, að
lýðveldið verðí nýtt einræðisríki
undir stjórn „Trujilloista”, en af
þeim sé nóg. Blaðið telur, að
OAS eigi að taka við af banda-
rískum sjóliðum, og fordæminu
frá 1916 beri ekki að fylgja. —
Önnur blöð í New York, þeirra
á meðal stórblaðið „New York
Times“, eru jákvæðari í afstöðu
sinni til þessarar bandarísku í-
hlutunar.
NEW DEHLI 30/4 — Hernað-
aryfirvöld í Indlandi skýrðu
svo frá í dag, að hersveitir
Pakistan sæki nú fram í
. Kutch-héraðinu, jafnframt því
sem viðræður fara fram, að
vísu ófotmlegar, um vopnahlé.
Talsmaður indversku stjórnar-
innar skýrði svo frá í nótt,
að þessar samningaviðræður
hefðu hafizt fyrir tilstilli hlut-
lausra aðila í deilunni, en vildi
ekkert um það segja, hverjir
þeir væru. í Karachi lét tals- 1S'
maður Pakistanstjórnar svo
um mælt, að Pakistan óski enn
eftir friðsamlegri lausn á deil-
unni.
stöðvunum í gær, en báðir að-
ilar saka hinn um að draga lið
að landamærunum.
Deilt um vsður-
kenuingu Israel
Bandaríkjamenn, Bretar og
Kanadamenn hvöttu í gær Ind-
landsstjórn og Pakistanstjórn
til þess að fella niður deilu-
mál sín í þessu umdeilda hér-
aði. Premur var rólegt á víg-
Landamæri Þýzkalands
skulu enn vera í gildi"
TUNIS 30/4' — Deilan um þá
tillögu Bourguiba, forgeta í Tún-
að arabaríkin viðurkenni
stjóm ísrael, heldur enn áfram
og Túnisstjórn hefur nú ákveðið
að loka sendiráði sínu í Kaíró.
Er svo látið í veðri vaka, að
það sé gert til þess að tryggja
öryggi starfgliðsins
Sendiherra Túnis í Egypta-
landi kom í gærkvöld heim frá
Kaíró og skýrði svo. frá, að hann
hefði orðið fyrir morðárásum
í óeirðum þeim er urðu í Kaíró
og beindust gegn sendiráði Tún-
is. Starfslið sendiráðsins er
væntanlegt heim til Túnis nú
um helgina.
PARÍS 30/4 — Andrei Gro-
miko, utanríkisráðherra Sov-
étríkjanna, átti í dag fund við
fréttamenn í París og lét við
það tækifæri svo um mælt, að
Frakkland og Sovétríkin séu
sammála um að viðhalda nú-
verandi landamærum Þýzka-
lands og hindra það að Vest-
ur-Þjóðverjar fái kjarnavopn
í hendur.
Ennfremur sagði Gromiko,
að franska stjórnin hefði mið-
að stefnu sína við þá stað-
reynd, að tvö þýzk ríki væru
í Evrópu. Sú staðreynd, að
einstök ríki hefðu ekki tekið
upp stjórnmálasamband við
Austur-Þýzkaland, breytti
engu um það, að um sjálf-
stætt ríki væri að ræða. Þá
ræddi Gromiko einnig um
Vietnammálið og gagnrýndi
harðlega sprengjuárásir Banda-
•w
Ætla að lækka
innflutningstoll
LONDON 30/4 — Frá því var
skýrt í Lundúnum í gærkvöld,
að enska stjómin muni enn
lækka innflutningstollinn á iðn-
aðarvörum þegar er verzlunar-
jöfnuður landsins geri slíkt
kleift. Verkamannaflokksstjórn-
in lagði sem kunnugt er 15%
toll á innfluttar iðnaðarvörur
skömmu eftir að hún tók við
völdum í haust sem leið. Fyrr
í vikunni var tollurinn lækkað-
ur niður í 10%. Ekki treystist
talsmaður stjómarinnar til Þess
að segja neitt ákveðið um það,
hvenær frefeari lækkunar væri
von.
ríkjamanna á Norður-Vietnam.
sem hann kvað algjört brot á
Genfarsamningunum frá 1954.
Um samband Sovétríkjanna
og Frakklands sagði utanríkis-
ráðherrann að Sovétstjórnin
teldi mjög ánægjulega þróun
hafa orðið í sambúð þessara
tveggja ríkja undanfarið. Sov-
étríkin myndu gera allt sem
í þeirra valdi stæði til þess að
sú þróun mættí áfram halda.
Kenya afþakkar
nú vopnasendingu
frá Sovétríkjunum
WASHINGTON 30/4 — Innan
skamms munu Bandaríkja-
menn senda 17 „strandgæzlu-
skip“ tíl Suður-Vietnam og
fylgir það þessari frétt, að
þessum skipum sé ætlað að
hamla gegn „undirróðursstarf-
semi kommúnista“ eins og
það er orðað í fréttaskeytum.
— Ella er það í fréttum, að
bandarískar sprengjuflugvél-
ar hafi varpað í dag 13 lest-
um af sprengjum 120 km.
suður af Ilanoi.
Vilja rœða
Gíbraltar
LONDON 30/4 — Enska stjórn-
in hefur tjáð sig fúsa til þess
að eiga viðræður við spánsku
stjómina um spennu þá, er nú
ríkir á landamærum Gíbraltar og
Spánar. Hingvegar telur enska
stjómin, að ekki getj orðið af
neinum viðræðum, svo framar-
lega sem spánska stjómin reyni
að þvinga fram einhliða lawsn
á þessu máli. Það var Harold
Wilson, forsætisráðherra, sem
þessu lýsti yfir á fundi í enska
þinginu í gær.
NAIROBI 30/4 — Kenya afþakk-
aði í gær sovézka vopnasend-
ingu á þeim forsendum, að vo.pn.
in hefðu reynzt úrelt og gagns-
laug í nútímahemaði. Það var
Jomo Kenyatta, forseti, sem frá
þessu skýrði á fundi með frétta-
mönnum í gærkvöld. Honum
sagðist svo frá, að stjómarfull-
trúar hefðu skoðað vopnasend-
inguna í hafnarbænum Mom-
basa og hefði hún reynzt með
þeim eindæmum, að nauðsynlegt
hefði reynzt að endursenda hana
Sovétríkjunum.
Það var tólf þúsund lesta skip,
sem flutti vopnin frá Sovétríkj-
unum og voru þau fyrstu vopn,
sem Sovétríkin senda til Kenya.
Þesgi vopn vpru hugsuð sem
gjöf, og skyldu notast til þess
að koma her landsins í nútíma-
horf. Áður en skipið kom til
Mombasa, hafði það komið til
Dar-es-Salaam í Tanzaníu og
skilað þar vopnafaxmi.
TOKIO 29/4 — Útvarpið í Pjong-
jang, höfuöborg Norður-Kóreu,
skýrði frá því í dag að flugvél-
ar úr flugher landsins hefðu um
hádegisbilið í gær skotið niður
bandaríska njósnaflugvél af
gerðinni RB147.
Fimm manns láta iíf sitt
í jarðskjáiftum vestra
Lögreglustjórinn ;
var morðingi
WIESBADEN 30/4 — Lögreglu-
stjórinn í Wiesbaden í Vestwr-
Þýzkalandi, Oskar Christ, hefur
nú verið handtekinn, sakaður
um að vera samsekur um morð
á óbreyttum Sovétborgurum í
síðari heimsstyrjöldinni. Christ
hefur verið lögreglumaður frá
því 1931. Honum er gefið að
sök að hafa verið þátttakandi í
aftöku sjö SovétborgaTa, að því
er ákæruyfirvöld borgarinnar
segja.
SEATTLE 30/1 — Það er nú
kunnugt orðið, að fimm manns
hafa látið lifið í jarðskjálftum
þeim, er urðu í gær á norðvest-
urströnd Bandaríkjanna og Kan-
ada, en ekki er með fuUu vitað,
hve margir hafa meiðst. Jarð-
skjálftinn stóð í 45 sekúndur og
var mjög öflugur. Miklir sk'aðar
hafa orðið á mannvirkjum.
í Seattle létast tveir menn
er hús hrundu, en þrír aðrir íét-
ust af hjartaslagi af völdum
skjálftanna. Jarðskiálftans varð
vart í fjórum norðvesturríkium
Bandaríkjanna og kanadíska
fylkinu British Coluíhbia. Þetta
er öflugasti j'arðskjáifti sem orð-
ið hefur á þessum slóðum frá
1945.
Sprengjuþoiur
verði eyðilagðar
NEW YORK 29/4 — Fulltrúi
Breta í afvopnunamefnd SÞ, Cal-
font lávarður, lagði í gær til að
stórveldin kæmu sér saman um
að eyðileggja hluta af sprengju-
Elugvélaflotum sínum. Það ætti
að vera fyrsta skrefið, en síðan
kæmi röðin að fullkomnari burð-
artækjum fyrir kjamasprengjur,
þ.e. eldflaugum.
G0FFIN
ÓFUNDINN
Eins og frá hefur verið
skýrt í fréttum hvarf tvítug-
ur Breti, Goffin að nafni, hér
í Reykjavík sl. laugardag og
hefur ekkert til hans spurzt
síðan þrátt fyrir ítarlegar eft-
irgrennslan og leit. Myndin
hér að ofan er af Goffin og
eru þeir sem kynnu að hafa
orðið hans varir vinsamlega
beðnir að gera rannsóknarlög-
reglunni aðvart.