Þjóðviljinn - 01.05.1965, Side 4
4 SlÐA
ÞIÓÐVILIINN
Laugardagiur 1. maí Í965
Dtgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósialistaflokk-
urinn. —
Ritstjórar: Ivar H. Jónsson (áb), Magnús Kjartansson,
Sigurður Guðmundsson.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Ritstjóri Sunnudags: Jón Bjamason.
Auglýsingastjóri: Þorvaldur Jóhannesson.
Ritstjóm, afgreiðsia, auglýsingar, prentsmiðja, Skólavörðust, 19.
Sími 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kr. 90.00 á mánudi.
Fyrsti maí
rrn
J dag er liðskönnunardagur verklýðssamtakanna,
er launafólk skipar sér um kröfur sínar um rétt-
látara þjóðfélag. Aldrei hafa hinar nær'tæku
kröfur íslenzkra alþýðusamtaka um verulegar
kauphækkanir, styttingu vinnutímans og aukin fé-
lagsleg réttindi verið ómótmælanlegri en nú, þegar
að baki eru þrjú veltiár sem hafa aukið þjóðar-
tekjurnar um meira en fjórðung á sama tíma
og kaupmáttur tímakaupsins hefur hreinlega
verið skertur. Einu gildir hversu sárlega ein-
stakir atvinnurekendur kunna að kveinka sér
eða hvaða tölum hagfræðingar kunna að hampa
í áróðursskyni, undan þeirri staðrejmd verður
ekki skotizt að afkoma þjóðarbúsins er samfelld-
ur rökstuðningur fyrir því að nú beri að bæta
lífskjör verkafólks til mikilla muna. Allt annað
er herfilegt þjóðfélagslegt ranglæti, og þvílík ó-
stjóm verður ekki þoluð af öflugustu fjöldasam-
tökum á íslandi. Þess gerist því ekki þörf að
sannfæra fólk um kjarakröfur verkafólks á
þessum degi, röksemdirnar eru á hvers manns
vitorði; í dag þurfa einhuga alþýðusamtök að-
eins að heitstrengja að saekja rétt sinn undan-
bragðalaust.
j^n við minnumst þess einnig í dag að ísland er
ekkert einangrað ríki í veröldinni; íslenzk
alþýðusamtök eru ekkert útkjálkafélag heldur
snar þáttur hinnar alþjóðlegu verklýðshreyfingar;
sú framtíð sem íslenzkri alþýðu er búin verður
ekki aðeins ráðin hér á landi. Á þessum alþjóðlega
baráttudegi eru hugsjónir sjálfsákvörðunarréttar,
lýðræðis og friðar hin nærtækustu baráttumál,
þegar bandarískir heimsvaldasinnar senda heri
sína með helsprengjur, benzínhlaup og eiturgas
inn í eitt smáríkið af öðru, jafnt við Karíbahaf
sem í Suðaustur-Asíu, og skilja eftir sig dauða og
tortímingu. Á því er ekki aðeins mikil hætta held-
ur er það fullvíst, að árásarstvrjaldir Bandaríkj-
anna leiða nýja heimsstyrjöld yfir mannkynið, ef
ekki tekst að stöðva ofbeldisverk þeirra manna
sem vilja drottna yfir heimsbyggðinni. Sú nær-
tæka kjarabarátta íslenzkrar verklýðshreyfingar,
sem fávísir og skammsýnir menn telja einu verk-
efni hennar, myndi þá koma fyrir lítið.
því skulum við minnast þess sérstaklega í dag að
það er lífshættulegur smánarblettur á íslenzka
lýðveldinu að alþjóðlegir ofbeldismenn skuli einn-
ig hafa bækistöðvar hér á landi og telja okkur
bandamenn sína. Það er skylda íslenzkrar alþýðu
við sjálfa sig, við hugsjónir frelsis, friðar og sjálfs-
ákvörðunarréttar, að hrinda hernáminu og losa ís-
land úr bandalagi við það ríki sem hefur friðar-
vonir mannkynsins að leiksoppi. Hugsjónir verk-
lýðshreyfingarinnar hafa alltaf náð langt út fyr-
ir þau markmið sem reiknuð verða í krónum op
aurum, og kulni þær hugsjónir mun einnig h:
hversdagslegri kjarabarátta bíða hnekki. — m.
Dómur í fjársvika- og gjaldeyris-
svikamáli kveðinn upp í sakadómi
Föstudaginn 30. apríl var í
sakadómi Reykjavíkur kveðinn
upp af Þórði Björnssyni yfir-
sakadómara dómur í máli, sem
höfðað var af saksóknara rík-
isins með ákæru dags. 29. sept-
ember 1964, á hendur Harald
Faaberg, skipamiðlara, Laufás-
vegi 66, Óskari Gíslasyni,
skrifstofustjóra, Hávallagötu
45, Helga Bergssyni, fyrrver-
andi framkvæmdastjóra,
Granaskjóli 26, Sigríði Faa-
berg, húsfreyju, Laufásvegi 66
og Guðrúnu Einarsdóttur, hús-
freyju, Fálkagötu 19, öllum
hér í borg.
Harald Faaberg og Óskar
Gíslason voru ákærðir fyrir
fjársvik, brot varðandi gjald-
varðandi gjaldeyrisskil og bók-
eyrisskil og bókhaldsbrot,
Helgi Bergsson fyrir fjársvik,
Sigríður Faaberg fyrir brot
varðandi gjaldeyrisskil og bók-
haldsbrot og Guðrún Einars-
dóttir fyrir bókhaldsbrot.
Sakadómari taldi sannað að
þeir Harald Faaberg og Óskar
Gíslason hefðu í meira en 40
skipti á árunum 1955—1960
látið Harald Faaberg h.f. inn-
heimta á sviksamlegan hátt
hjá farmeigendum, bæði hluta-
félögum og opinberum stofn-
unum, hærri farmgjöld en
samið var um við umboðs-
menn skipaeigenda — oftast á
eigið eindæmi en í viðskiptum
við Verzlunarsambandið h.f.
þó að nokkru í samráði við
fyrirsvarsmann þess, Helga
Bergsson. Hefðu þeir með
þessum hætti svikið út sam-
tals jafnvirði £ 12.768-14-2 og
af þessari fjárhæð hefði Helgi
Bergsson fengið jafnvirði £<'
1.148-9-7. Atferli hjnna tveggja
fyrrnefndu var talið varða við
248. gr. almennra hegningar-
laga nr. 19, 1940 en atferli
Helga við 249. gr. sömu laga.
Ólöglegur fjárvinningur Har-
ald Faaberg var talinn vera
í íslenzkum krónum kr._ 539.-
921.54, fjárvinningur Óskars
Gíslasonar kr. 179.973,84 og
fjárvinningur Helga Bergsson-
ar kr. 94.214,34. Þessar upp-
hæðir voru allar gerðar upp-
tækar til ríkissjóðs.
Ennfremur taldi dómurinn
sannað að þeir Harald Faaberg
og Óskar Gíslason hefðu van-
rækt að gera gjaldeyrisyfir-
völdum fullnægjandi grein
fyrir gjaldeyristekjum Harald
Faaberg h.f., að fjárhæð £
111.779-18-10, sem færðar voru
á árunum 1955—1960 á banka-
reikning félagsins í London og
ráðstafað samtals £89.676-7-6
af þeim tekjum án leyfis
gj aldeyrisyf irvalda.
Einnig var talið sannað að
þeir hefðu gefið gjaldeyrisyfir-
völdum rangar skýrslur um
afgreiðslugjöld skipa á vegum
Harald Faaberg h.f., og með
því brotið gegn 147. gr. hegn-
ingarlaganna.
Loks voru þeir sakfelldir
fyrir stórfelld bókhaldsbrot
bæði vanrækslu á færslum og
rangar færslur í bókhaldi
Harald Faaberg h.f. og Eim-
skipafélag Reykjavíkur h.f.
Var þetta talið varða ýmist
158. gr. eða 262. gr. hegning-
arlaganna auk lagaákvæða um
bókhald.
Sigríður Faaberg hefur verið
meðstjórnandi í Harald Faa-
berg h.f. frá stofnun félagsins.
Taldi dómarinn að henni hafi
borið að afla sér vitneskju um
rekstur félagsins og hafa eft-
irlit' með honum í meginefn-
um en sýnt væri að skort hefði
á eftirlit af hennar hendi. Yrði
hún því að bera refsiábyrgð á
gjaldeyrisvanskilum og bók-
haldsbrotum hjá félaginu.
Á hinn bóginn taldi dómur-
inn ekki vera næg rök fyrir
því að leggja refniábyrgð á
Guðrúnu Einarsdóttur fyrir
bókhaldsbrot hjá Eimskipafé-
lagi Reykjavíkur h.f. en^ hún
kom í stjórn þess félags í maí
1959 og var hún sýknuð.
Dómurinn taldi að við á-
kvörðun refsinga^ þeirra Har-
ald Faaberg og Óskars Gísla-
sonar bæri að hafa í huga að
brot þeirra væru bæði um-
fangsmikil og margþætt og
einnig þaulhugsuð og framin
acr' staðaldri um langan tíma
en einnig yrði að taka tillit til
þess að málareksturinn hefði
án þess að þeim yrði um það
kennt — staðið yfir í meira en
fjögur ár með óhjákvæmileg-
un; óþægindum á margan hátt
fyrir þá. Þá væri á það að líta
að Harald Faaberg hefði verið
framkvæmdastjóri beggja fé-
laganna og aðaleigandi Harald
Faaberg h.f. og notið þrefalt
meiri fjárvinnings af fjár-
svikabrotunum en Óskar
Gíslason.
Dómsorð var þannig:
D ó m s o r S :
Ákærða Guðrún Einarsdóttir
á að vera sýkn af kröfum á-
kæruvaldsins í máli þessu.
Ákærði Harald Faaberg sæti
fangelsi í 2 ár.
Ákærði Óskar Gíslason sæti
fangelsi í 14 mánuði.
Ákærði Helgi Bergsson sæti
fangelsi í 7 mánuði en fulln-
ustu refsingarinnar skal
fresta og niður skal hún falla
að tveimur árum liðnum frá
uppkvaðningu dóms þessa,
verði almennt skilorð 57. gr.
almennra hegningarlega nr. 19,
12. febrúar 1940 sbr. 4. gr.
laga nr. 22, 3. maí 1955 haldið.
Ákærða Sigríður Faaberg
greiði kr. 50.000.00 sekt til rík-
issjóðs og komi varðhald í 3
mánuði í stað sektarinnar efx
hún verður ekki greidd innan
4 vikna frá birtingu dóms
þessa.
Ákærði Harald Faaberg
greiði til ríkissjóðs kr. 539.-
921.54.
Ákærði Óskar Gislason
greiði til ríkissjóág kr. 179.-
973.84. 7
Ákærði Helgi Bergsson
"reiði til ríkissjóðs kr. 94,-
214.34.
Málsvarnarlaun Ragnars
Jónssonar, hægtaréttarlög-
manns, verjanda ákærðu Guð-
rúnar Einarsdótturkr. 12.000,00
greiðist úr ríkissjóði.
Málsvarnarlaun Guðmundar
Ásmundssonar, hæstaréttarlög-
manns, verjanda ákærðu Har-
ald Faaberg, Óskars Gíslason-
ar og Sigríðar Faaberg ákveð-
ast kr. 65.000.00 og af þeim
greiði þau þrjú in solidum kr.
15.000.00 og ákærðu Harald
Faaberg og Óskar Gíslason in
soljdum kr. 50.000.00.
Ákærði Helgi Bergsson
greiði málsvarnarlaun verj-
anda síns, Egils Sigurgeirsson-
ar, hæstaréttarlögmanns,: kr.
20.000.00.
Allan annan kostnað sakar-
innar ,þar með talin saksókn-
arlaun til ríkissjóðs kr. 65.-
000.00, greiði ákærðu Harald
Faaberg og Óskar Gíslason in
solidum að 12/15 hlutum, á-
kærði Helgi Bergsson að 2/15
hlutum og ákærða Sigríður
Faaberg að 1/15 hluta.
Dóminum ber að fullnægja
með aðför að lögum.
(Frá sakadómi Reykjavíkur).
LONDON 29/4 — Wilson, forsæt-
isráðherra Breta, hélt ídagheim-
leiðis að loknum viðræðum sín-
um við Aldo Moro, forsætisráð-
herra Italíu.