Þjóðviljinn - 01.05.1965, Side 6
SÍÐA
HÓÐVILTINN
iívip Vf,<« í «%,pfnS9rS*S,-í
Langardagur 1. maí 19W
ÆSKAN
★
OTG.: ÆSKULYÐSFYLKINGIN - RITSTJÖRAR: HRAFN MAGNÚSSON,
ARNMONDUR BACHMANN OG SVAVAR GESTSSON
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
l■»»■■■■■■■■■■■■■■■■»»■■■■■■■■■l
A VARP Æskulýðsfylkingarín nar—sambands ungra
sósíaHsta til íslenzkrar alþýð uæsku 1. mai 1965
í vor verður þess freistað að ná víðtæku sam-
komulagi um kaup og kjör launastéttanna. Það
veltur því á miklu, að mnsamdar hagsbætur verði
varanlegar og raunhæfar, þannig að tryggt sé, að
samningamir verði ekki hafðir að ómerku papp-
írsgagni á samningstímabilinu.
Verkalýðshreyfingin hefur nú reynslu af víð-
tæku samkomulagi, þ.e. hinu margnefnda júní-
samkomulagi 1964. Meginforsenda þess var stöðv-
un verðbólgunnar og verklýðssamtökin féllu frá
sanngjörnum kröfum sínum um sinn. Senn er
þetta samningstímabil á enda runnið og hefur
komið berlega í ljós, aö innan ramma núverandi
stjómarstefnu stenzt slíkt samkomulag ekki. Rétt
eftir að júnísamkomulagið var gert dundi yfir
stóraukin skattpíning á láglaunafólk, söluskattur
var hækkaður og verklegar framkvæmdir skornar
niður. Ríkisstjórnin hafði rofið júnísamkomulag-
ið.
Við samningsgerð í vor verður að girða fyrir
slík samningsrof. í samningunum verður að
tryggja raunverulega tilfærslu fjármima í þjóð-
félaginu, þannig að hagsbætur til launastéttanna
verði teknar af öðmm þáttum í þjóðarbúskapn-
um, með því móti að skerða gróða fjárplógs-
manna og taka upp skynsamlega stjórn á þjóðar-
búskapnum.
Verklýðssamtökin hafa þegar sett fram ákveðn-
ar kröfur um styttri vinnuviku, hærra kaup og
, íélagslegar umbætur. Þessar kröfur eru studdar
ómótmælanlegum rökum þó það eitt skuli nefnt
hér, að þjóðartekjumar hafa vaxið um a.m.k. 25
af hundraði sl. þrjú ár, en á valdatímabili nú-
verandi ríkisstjórnar hefur kaupmáttur tíma-
kaups Dagsbrúnarverkamanns rýmað um 12%.
Þetta mikla misræmi hefur verkafólk reynt að
bæta sér upp með óhóflega löngum vinnutíma,
þannig að ýmsir starfshópar afla helmings tekna
sinna í yfirvinnutíma. Við svo búið má ekki leng-
ur standa.
Tilfærsla auðæfanna í þjóðfélaginu og stöðvun
verðbólgunnar er gmndvöllur raunhæfra kjara-
bóta. Slíkt krefst nýrrar stjómarstefnu, því ríkis-
stjórn, sem hefur það að höfuðmarkmiði að hygla
gróðastéttunum getur aldrei tryggt launþegun-
um mannsæmandi kjör.
íslenzk alþýðuæska!
í dag er 1. maí, hátíðis- og baráttudagur þinn.
Láttu þátttöku þína setja svip á þennan dag og
hafðu það hugfast, að eigi þróun efnahagsmál-
anna að vera þér í hag og árangur samnings-
gerðar varanlegur, verður að koma til ný stjóm-
arstefna, sem tekur fullt tillit til hagsmuna
þinna.
Neiti stjómarvöldin hinsvegar að standa að
raunhæfum og varanlegum samningum hljóta
launþegasamtökin að láta sverfa til stáls og grípa
til þess ráðs að beita samtakamætti sínum og
verkfallsvopni.
Æskulýðsfylkingin — Samband ungra sósíalista
— skorar á þig að ganga ótrauð og sigurviss til
baráttunnar fyrir rétti þínum og heitir þér jafn-
fram stuðningi heils hugar.
K All PFÉLAGSST JÓR ASTARF
Kaupfélagsstjórastarfið hjá Kaupfélagi Grundfirð-
inga, Grafamesi er laust til umsóknar frá og með
15. maí n.k.
Umsóknir ásamt upplýsingum um fyrri störf og
y kaupkröfum óskast sendar til st'jórnarformanns fé-
lagsins, Gunnars Njálssonar, Grafamesi eða til
starfsmannastjóra Sambands ísl. samvinnufélaga,
Jóns Amþórssonar, Réykjavík.
Starfinu fylgir leigufrítt húsnæði.
Umsóknarfrestur er til 1. maí n.k.
Stjóm Kaupfélags Grundfirðinga,
Grafamesi.
py.
sr
rb
>0
;.ör
Verkakvennafélagið
FRAMSÓKN
óskar til hamingju með daginn.
GLEÐILEGA HÁTlÐ!
Verkalýðsfélagið ESJA
óskar meðlimum sínum og landsfólki öllu
GLEÐILEGRAR HÁTÍÐAR 1. MAÍ
■■■■■■■■■■■■■i
æskilegt að væntanlegir þátt-
takendur safmst sem fyrst
■
Myndin er frá Suður-AIsír og sýnir hún sterklega þjóðlífshætti í suðurhluta Iandsins. A henni má ;•>
greina mæðgin, farartæki, búsáhöld, heimili og landslag.
; Látið skrá ykkur til þátt-
töku í Alsír-mótinu!
□ Undirbúningsnefndin fyrír 9. heimsmót æsk-
unnar í Alsír hefur látið Æskulýðssíðu Þjóðvilj-
ans í té eftirfarandi upplýsingar um gang ferða-
í lagsins á heimsmótið og um tilhögun þess.
— Flogíð verður með Rolis
Royce 400 frá Keflavík föstu-
daginn 23. júlí til Luxemburg
og farið þaðan með bíl til Par-
ísar samdægurs. 1 París verð-
ur svo dvalið í 4 daga og flog-
ið þaðan til Alsírborgar 27.
júlí.
— Mótið hefst 28. júlí og
stendur til 8. ágúst. Mótsþátt-
taka er bundin aldrinum 14—35
ára.
— Flogið verður hcim á Ieið
frá Alsír til Parísar þ. 11. ág.
og áfram frá Luxemburg til
Keflavíkur með Rolle Royce
400 föstudaginn 13. ágúst.
— Ferðin mun því taka 22
daga, og þátttökugjaldið verð-
ur 18 þúsund krónur og er
innifalið í því verði ferðir fram
og til baka ðll gisting, þátt-
tökugjaid í mótinu og fæði í
Alsír.
— Þar sem ekki hefur enn
fengizt leyfi fyrir hærri tölu
þátttakenda frá Islandi en 30
manns, er vissara að tryggja
sír far sem fyrst. Einnig er
.
r.
þér eigib valiö,
vex handsápuma'r
hafa þrennskonar ilm
EFNAVEKKSMIÐJAN
(sjöfn)
BÓKBINDARAFÉLAG
fSLANDS
óskar til hamingju með daginn,
GLEÐILEGA HÁTlÐ!
saman til þess að geta undir- búið sig og hópinn sem bezt
undir þátttöku í mótinu, en að því þurða þátttakendur að vinna FÉLAG - .J5» Jt
ekki siður en undirbúnings- nefndin, því að þetta er þeirra mót, þar sem þeir eru þátttak- endur en ekki aðcins áhorfend- GARÐYRKJUMANNA " "• f> * ■.r,te i>• T ~í->. Infíid
ur. — Þelr sem óska eftir að hvetur meðlimi sína til þátjtöku í t*. (íb,4
taka þátt í mótinu, geta sent umsókn sína til Ferðaskrifstof- hátíðahöldum dagsins.
unnar Landsýn, Pósthólf 465, Reykjavík, sími 22890. Þar er GLEÐILEGA HÁTÍÐ!
elnnig hægt að afla sér nánari upplýsinga um mótið. 796
Félag kjötiðnaðarmanna
i “ .tnns®
•as? ur’osl
-»r Ss (í!
rrf 'A'An
■ íiT
il.U Ssíiv
■ •■ -'S-nr. tu
jísnei
t-1
óskar öllum meðlimum sínum GLEÐI- /!
LEGRAR HÁTÍÐAR 1. MAÍ.
ifa
/R
ter ■
■ ú'
TrT
T6
j
Verkalýðsfélagið JÖKULL
Höfn í Hornafirði
Sendir öllum verkalýð landsins b^tu
heillaóskir 1. maí.
GLEÐILEGA HÁTlÐ!
:b
9'