Þjóðviljinn - 01.05.1965, Page 11
Laugardagur 1. maí 1965
ÞJðÐVILJINN
SlÐA
11
FÍA svarar Loftleiðum
Þótt allmikið hafi þegar verið
skrifað af hálfu deiluaðila í
kjaradeilu Loftleiða og FlA, sér
FÍA ástaeðu *til að svara grein-
argerð stjóiihar Loftleiða, sem
birtist í níjfekrum dagblöðum
29. apríl sl.,f
■ —t- . íilTf
Það að bírta tölur um laun
byrjenda hjá erlendum flugfé-
lögum gefur eitt út af fyrir sig
ekki rétta mynd af því, hver
launakjör yiðkomandi flug-
manna eru, heldur hitt hver
laun þeirra eru í samanburði við
aðrar stéttiif þjóðfélagsins og
hvað eftir er sem hreinar tekj-
ur, þegar skattayfirvöld hafa
seilzt eftir sínu. Slíkur saman-
burður er óhagstæðari fyrir ís-
lenzka atvinnuflugmenn en
hokkra starfsbræður þeirra, sem
feru frjálsir að því að semja
um kjaramál sín, en það munu
flugmenn vera, að því FIA veit,
Bema í einræðisríkinu Portúgal
og í löndunum austan járntjalds,
en nú bætist Island við.
Samkvæmt upplýsingum, sem
FlÁ hefur aflað, eru laun jap-
ansks flugstjóra 4 þús. sterlings-
pund, um það bil 9—12 föld
;laun skólamenntaðs verzlunar-
manns eða skrifstofumanns.
Samanburður á launum flug-
manna hjá SAS og launum sam-
kvæmt kröfum FlA er sem hér
segir:
Kröfur FlA (miðað við hæstu
Jaun): Flugstjóri 514,400 kr. á
áfi, aðstoðarflugmenn kr. 331.000.
Hjá SAS hins vegar: Flugstjóri
kr. 568,059, aðstoðarflugmenn
392,108, auk þess má geta þess
að SAS menn hafa unnið að því
að fá kauphækkun og fyrir ca.
tveimur vikum var gert ráð fyr-
ir því að, hún yrði 6%. Upplýs-
ingar Loftleiða um laun aðstoð-
arflugmanna hjá BOAC, BEA og
Japan Airlines eru hrein fölsun.
Tölur þær, sem upp eru gefn-
ar eru laun byrjenda (second
officers) á fyrsta ári. Laun fyrir
þann flugmannahóp hér eru
123.000 kr. (Samsvarandi hjá
SAS 181.988). Starf aðstoðarflug-
manns er allt annað. Hann er
næst æðsti maður um borð í
flugfari og laun slíks manns f
hæsta launaflokki, t.d. hjá BO-
AC. eru 430.000 kr.
Fullyrðing Loftleiða um tregðu
FlA til að semja fellur um sjálfa
sig, með því að upplýsa að Loft-
leiðir vildu leggja málið fyrir
gerðardóm, því að það sannar
einmitt fullyrðingu FlA um
samningatregðu Loftleiða, þar
sem um samninga er ekki lengur
að ræða, hafi kjaradeila verið
lögð fyrir gerðardóm.
Loftleiðir kannast með tregðu
við það, að vinnutími flugmanna
geti komizt upp í 22 klst., en
tala hins vegar um, að lengsta
flug á flugleiðum þeirra sé 7
klst., og sé flugtími lengri en
12 klst., sé flugmönnum séð
fyrir hvíldum. Með vinnutíma er
átt við vakttíma flugmanna, þ.e.
tímann frá því að þeir hefia
starf, undirbúa flugið, flugið
sjálft og þann tínia, sem líður
eftir lendingu. þar til flugmenn
hafa skilað af sér öllum gögn-
um og eru lausir við starfsskyld-
ur.
Húnveiningafélðgið í Reykjavík
efnir til bazars og kaffisölu í Félagsheimilinu, Lauf-
ásvegi 25, sunnudaginn 2. maí kl. 2.
Kömið og gerið góð kaup.
Nefndin.
Aðalfundur
Flugfélags íslands h.f. verður haldinn föstudaginn
4. júní n.k. í fundarsal Hótel Sögu og hefst kl. 2.
■ }: eftir hádegi.
DAGSKRÁ:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnur mál.
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar verða afhentir
hluthöfum á aðalskrifstofu félagsins í Bændahöll-
inni 4. hæð, frá og með miðvikudeginum 2. júní.
Útför móður minnar,
KARÓLÍNU BÁRÐARDÓTTUR
sem andaðist 22 apríl, fer fram frá Fossvogskirkju
mánudaginn 3. mai kl. 3 e.h
Kjartan Steinbach.
Útföi
%
\
RAGNHEIÐAR MAGNÚSDÓTTUR
frá Vallanesi
Slíkur tími fyrir og eftir flug
getur orðið jafnlangur og jafn-
vel lengri en flugtíminn sjálfur.
Það heyrir til undantekninga, að
áætlaður flugtími hafi á síð-
ustu árum farið yfir 12 klst.
Þannig er óraunhæft og ómak-
legt, sem Loftleiðir gefa í skyn,
að flugmenn liggi í hvílum hluta
af vinnutíma sínum. Það er því
ekki úr vegi að biðja stjórn
Loftleiða að benda flugmönnum
og öðrum, sem vilja, á hvílurn-
ar í Rolls Royce-400; þær eru
ekki t»I.
Óheilindi stjórnar Loftleiða
sjást líka á upplýsingum um
laun amerískra flugstjóra félags-
ins. Þessir flugmenn fljúga jafnt
og íslenzkir, allt að 105 klst á
mánuði. Stjórn Löftleiða ætti að
upplýsa í bíöðum, hvað félagið
greiðir þessum mönnum fyrir
hverja flugstund um fram 70
Loftleiðir upplýstu samninga-
nefnd FlA um það að það væru
nær 800 kr. Þannig geta laun
þessara manna orðið yfir kr. 80
þúsund á mánuði fyrir að fljúga
DC 6 b, en yrðu eðlilega mun
hærri fyrir að fljúga Rolls
Royce-400,
Stjórn FlA.
Síðara bindi af
greinasafni Jón-
asar frá Hriflu
í gær kom í bókaverzlanir i
tilefni 80 ára afmælis Jónasar
Jónssonar frá Hriflu, fyrrver-
andi ráðherra, síðara bindið af
bókinni ,,Aldir og augnablik“ og
fjallar, eins og segir á kápusíðu,
Um „vökumenn og gjösofendur"
í íslenzku þjóðlífi, Þetta er nær
200 blaðsíðna bók og hefur að
geyma allmargar greinar, sem
birzt hafa eftir Jónas í blöðum
og tímaritum síðustu árln. Út-
gefandí er Afmælisútgáfan.
Gljáfaxi fer
tíl Ar/is II.
Árdegis í dág, kl. 7.30, er ráð-
gert að „Gljáfaxi“ Flugfélags
íslands, sem er búin skíðum,
fljúgi til íseyjarinnar Arlis II.
meg brezkan sjónvarpgleiðangur.
Ráðgerð er tveggja tíma við-
dvöl á íseyjunni. Áhöfn Gljáfaxa
verður þessi: Jóhannes Snorra-
sop flugstjóri, Karl Schiöt og
Baldur Bragason. Þess má geta
að Jóhannes er nýlega kominn
heim úr miklum skíðaflugs-
leiðangri í Grænlandi.
Félagsprent-
smiðjan 75 ára
Félagsprentsmiðjan er 75 ára
í dag. Það má raunar segja að
80 ár séu liðin frá stofnun prent-
smiðjunnar því það var árið
1885 sem Sigurður Guðmunds-
son keypti prentsmiðjuna hing-
að til lands, en nafnið Félags-
prentsmiðjan hlaut hún við eig-
endaskipti fimm árum síðar og
er afmælið við það miðað. Eig-
endur prentsmiðjunnar þá voru
þeir Halldór Þórðarson bókbind-
ari, Þorleifur Jónsson, ritstjóri
Þjóðólfs, síðar póstmeigtari, Torfi
Þorgrímsson prentari og Valdi-
mar Ásmundsson ritstjóri Fjall-
konunnar. — Núverandi eigend-
ur eru Bjami Konráðsson lækn-
ir, Bjöm Fr. Bjömsson tann-
læknir, Erlin.gur Brynjúlfsson
fulltrúi, Hannes Þórðarson lækn-
ir og Kristján Guðlaugsson hrl.
Nánar verður sagt frá Félags-
prentsmiðjunni í blaðinu síðar.
Eggert Laxdal
sýnir í Bogasal
í dag opnar Eggert.E. Laxdal
málverkasýningu í Bogasalnum
og verður hún opin til 14. mai.
Þar sýnir hann sextán myndir,
flegt olíumálverk. Á sýningunni
eru auk þess fjórar myndir eftir
Eggert M. Laxdal, föður lista-
mannsins.
Eggert Laxdal er fæddur 1925
og hefur lengj málað. Hann kom
allmikið við sögu Félags frí-
stundamálara. Árin 1950—54
var hann búsettur í Kaupmanna-
höfn og lærði þá í einkaskóla
Eriks Clemensen. Eftir heimkom-
una hefur hann haldið nokkrar
sýningar, síðast í kaffihúsinu
Tröfi og sýndi þá klippmyndir.
Verið er að prenta Ijóðabók
eftir Eggert sem nefnist „Pír-
eygðar stjörnur“ og hann er að
ganga frá skáldsögu um lista-
mann sem mun að líkindum
hljóta heitið „Á listarinnar
brautum“.
Einhuga kröfur — einhuga sókn
Framhald af 1. síðu.
ávarp gat því aðeins orðið, að
menn leggðu til hiiðar hað sem
þeir voru ekki sammála um í
því skyni að leggja sameigin-
lega þungann á það sem nú
skiptir öllu þessar næstu vikur:
Hin beinu kjaramál og samninga-
mál.
Þau höfuðmál eru fyrst og
fremst kaupgjaldsmálin, krafan
um kauphækkun; og vinnutím-
inn, stytting vinnuvikunnar í 44
stundir með óskertu kaupi; og
fjögra vikna orlof. Og þá einnig
félagsiegar ráðstafanir í skatta-
og húsnæðismálum.
Jafnhliða þessum meginmál-
ur er svo alþjóðlegt innihald
dagsins. Þar ber hæst krafan
um varanlegan frið, bann við
kjarnorkuvopnum og allsherjar-
afvopnun. Og þá baráttan gegn
kyuþáttamisréttinu, ekki sízt í
þeirri mynd þess sem fram kem-
ur i stjómarháttum Suður-Afr.
íku.
1. maí er einstakt tækifæri
fyrir alla alþýðu að lýsa yfir
stuðningi sínum við hagsmuna-
kröfur sem tekizt verður á um
næstu vikurnar og fylkja sér um
þær. Og einnig tii að fylkja liði
með stéttarsystkinum sínum í
öðrum iöndum, fyrir friði og
bjartari framtíð.
Það er brýn nauðsyn að fólk
fjölmenni í gönguna og á úti-
fundinn á Lækjartorgi, Það
verður áreiðanlega tekið eftir
þátttöku alþýðunnar í þessum
hátíðahöldum, og hún höfð tjl
marks um einbeitni hreyfingar-
innar og styrk.
★ Fyrirkomulag hátiða-
haldanna
fer frain frá Fossvogskirkiu, mánudaginn 3. maí kl. 10..30
árdegiáv — Blóm vinsamlega afbeðin. Þeim sem viidu
minnasíj!;, hinnar látnu, er beiit á líknarstofnanir .
höfninni verður útvarpað
Börnin.
At
■
Flu^menn
Framhald af 16. síðu.
sett voru í fyrra, ætti ráðherr-
ann að setja reglugerð um
hvíldartíma flugmanna. Þetta
hefði honum enn ekki þóknazt
að gera eftir árstíma og væri
þá vart við því að búast að
gerðardómur leysti úr þessum
vanda.
•k' f gærdag var látið að því
liggja á Alþingi að afgreiða ætti
frumvarpið sem lög í gær, og
síðan að gefa þau út í dág á
hátíðisdegi verkalýðsins. Það
kom hins vegar fram í fram-
söguræðu Sigurðar Bjarnasonar,
að ríkisstjórnin hefði hætt við
þessa fyrirætlan og því var
frumvarpið samþykkt til 3. um-
ræðu kl. rúmlega 11 í gærkvöld
með 20 atkvæðum gegn 18.
—.------1--------------—
Merkjasala á
morgun
Á morgun, sunnudaginn 2.
maf, er merkjasöludagur til
ágóða fyrir sumarnámskeið
þau er góðtemplarar efna til
fyrir böm að Jaðri. Merkin
verða afgreidd í barnaskólum
bæjarins og í góðtemplara-
húsinu. Sölubörn fá góð sölu-
laun og bíómiða í verðlaun
svo sem venja er til.
Fyrirspumum um nám-
skeiðið að Jaðri í sumar verð-
ur svarað í slma 15732 klukk-
an 9-10 árdegis daglega.
Eins og fyrr segir verður safn-
azt saman við Xðnó kl. 1.30 og
lagt af stað i kröfugöngu um
tvöleytið. Gengið verður um
Vonarstræti, Suðurgðtu, Aðal-
stræti, Hafnarstræti, Hverfis-
götu, Frakkastíg, Skólavörðustíg,
Bankastræti, á Lækjartorg.
Útifundur hefst á Lækjar-
torgi strax að göngunni lokinni
og flytja þar ræður Guðmund-
ur J. Guðmundsson og Eggert
G. Þorsteinsson. Búið var að
ákveða Jón Sigurðsson, sem
ræðumann, en hann varð lasinn,
og kemur Eggert í hans stað.
Óskar Hallgrímsson, formaður
Fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna
í Reykjavík, stjómar fundinum.
TILSÖLU:
Fjögurra herb.
hæð í tvíbýlishúsi
við Sogaveg
allt sér. — Útborgun.
kr. 350 þús.
Einbýlishús í
Kópavogskaup-
stað
3 herbergja íbúð á hæð-
inni. Geymslur. —
hitaherbergi og þvotta-
hús í kjallara. — Stór
lóð með byggingarétti.
Útborgun
kr. 250 þús.
Sex herbergja ris-
ibúð við Hiallaveg
Sér inngangur — bíl-
skúr. — Útborgun
kr. 500 þús.
FASTEIGNASALAN
Hús & Eignir
BANKASTRÆTI 6 —
Símar 16637 og 18828.
Heimasímar 40863 og 22790
O. J. OLSEN
Flytur síðasta erindi
sitt fyrir almenning í
Aðventkirkjunni
sunnudaginn 2. maí
kl. 8.30.
ALLIR VELKOMNIR
Ný sending af
H0LLENZKUM
KÁPUM
(þar á meðal úrval af heilsársfrökkum)
tekin fram á mánudag.
BERNHARÐ LAXDAL.
Kjörgarði — Laugavegi 59.
Sími 14422.
Stærsta sending ársins af
H0LLENZKUM
DRÖKTUM
tekin fram á mánudag.
BERNHARÐLAXDAL.
Kjörgarði — Laugavegi 59.
Sími 14422.
Félag Þingeyinga
Aðalfundur Félags Þingeyinga 1 Reykjavík verður
í Breiðfirðingabúð miðvikudaginn 5. maí og hefst
kl. 20.30.
Ven'juleg aðalfundarstörf.
Sýnd verður kvikmyndin „Bú er landstólpi“.
Stjómin.