Þjóðviljinn - 01.05.1965, Page 16
Lesa upp á kvöldvökunni
í Tjarnargötu 20 í kvöld
Bergljót Stefánsdóttir
★ Eins og undanfarin ár verður 1. maí-kaffi á boðstólum í
Tjarnargötu 20 í dag á vegum Carolínu-sjóAs Kvenfélags
sósíalista. Kaffisalan hefst strax að loknum útihátíðahöld-
um verkalýðssamtakanna og verður síðan kaffi á könnunni
fram eftir deginum — og ekki þarf að taka fram að borð
verða þar hlaðin af ótal kökutegundum og öðru gómsætu
kaffibrauði.
■k Klukkan 9 um kvöldið hefst svo kvöldvaka í salnum,
Tjamargötu 20. Þar verður bögglauppboð og flutt sam-
felld dagskrá sem ber heitið „20 ára hernám“. Lesarar
verða Bergljót Stefánsdóttir, Guðrún Guðvarðardóttir, Jón
Júlíusson og Margrét Jónsdóttir. Ætti ekki að þurfa að
hvetja fólk til að saekja kvöldvoku þessa.
Margrét Jónsdóttir
JÖTUNN
sjósmuR
t FYRRADAG
í fyrradag hleypti Stálvík h.f.
af stokkunum dráttarbátnum
Jötni sem skipasmíðastöðin hef-
ur smíðað fyrir Reykjavíkur-
höfn. Teikningar hefur annazt
Agnar Norland skipaverkfræð-
ingur. Báturinn er 15.3 m að
lengd en 4.12 m að breidd. Að-
alvél bátsins er 290 hestafla af
gerðinni Deutz en ljósavél af
Listergerð. Stálsmíði og vélanið-
ursetningu framkvæmdi Stálvík
en innréttingar gerði Nökkvi
h.f. Raflagnir annaðist Raf-
tækjavinnustofa Hauks og Ólafs.
Báturinn verður afhentur
Reykjavíkurhöfn einhvern næstu
daga að aflokinni reynsluferð.
(Ljósm. Þjóðv. A. K.). <s>
Sam^ykkt f rumvarpsins tor-
veldar samningana nú í vor
—- sagði Eðvarð Sigurðsson í gærkvöld — ríkisstjórnin hættir
l- við að þvinga frumvarpið til staðfestingar í dag, 1. maí
í gærkvöld hófst önnur um-
ræða í neðri deild um gerðar-
dóm gegn flugmönnum og bann
við vinnustöðvun þeirra. Sigurð-
ur Bjarnason mælti fyrir áliti
meirihlutans, sem lagði til að
frumvarpið yrði samþykkt. Sig-
urvin Einarsson mælti fyrir á-
liti minni hlutans, sem lagði til
að þingið felldi frumvarpið, en
auk þeirra tóku til máls Einar
Olgeirsson og Eðvarð Sigurðs-
son. Báðir gagnrýndu þeir
frumvarpið, og sagði Eðvarð, að
með því væri ráðizt á helgasta
rétt verkalýðshreyfi'-garinnar,
samningsréttinn og verkfalls-
réttinn. Ennfremur sagði hann,
að slík lögþvingun eitraði and-
rúmsloftið fyrir þá samninga,
sem nú eru í vændum og myndi
án efa torvelda þá á ýmsa lund,
ef samþykkt yrði. Skoraði hann
á ríkisstjórnina að draga frum-
varpið til baka þegar í stað.
★ Eðvarð benti á,
ekki í fyrsta sinn,
þetta væri
sem núver-
HWíisi t
> v m •> , •/ •• n V.M.W
•í-.:x>-v: ’
andi ríkisstjórn réðist að launa-
fólki með slíkum ofbeldisað-
gerðum.
★ Það kom fram í ræðu Sigur-
vins Einarssonar, að bæði flug-
menn og forystumenn Loftleiða
hefðu tekið vel í þá málaleitan
að hefja samningaviðræður í
gærdag, ef frumvarpið yrði
dregið til baka, um sinn a.m.k.,
en stjórnarliðið hefði ekki vilj-
að fallast á það úrræði. Sagði
Eðvarð að af þessu væri sýnt
að ríkisstjórnin væri . aðeins
verkfæri í höndum Vinnuveit-
endasambands íslands, sem væri
kunnugt að allt öðru en ást á
frjálsum samningum í kjara-
deilum.
★' Einar Olgeirsson lagði fyrir
samgöngumálaráðherra sömu
spurningar og í fyrrakvöld, en
ráðherrann þagði sem fyrr. I
fyrirspurnum sínum til ráðherra
bað Einar m.a. um upplýsingar
um laun forstjóra Loftleiða.
Ennfremur lagði Einar þá
spurningu fyrir ráðherra, hversu
mikið fé Loftleiðir greiddu til
Vinnuveitendasambandsins í
samanburði við það kaup, sem
flugmennirnir færu fram á.
Væri ekki nær fyrir Loftleiðir
að leysa vinnudeilur á eigin
spýtur og segja sig úr Vinnu-
veitendasambandinu?
Þá benti Einar á, að sam-
kvæmt loftferðalögum, sem
Framhald á 11. síðu.
Valtýs og Jóhannesar
Með vori færist gjama
talsvert líf í myndlist í borg-
inni. Og r.ú ber það til stórra
tíðinda að þeir Valtýr Péturs-
son og Jóhannes Jóhannesson
opna málverkasýningu í Lista-
mannaskálanum í dag. Verður
þessi sýning opin til níunda
maí.
Þeir Valtýr og Jóhannes
eru svo sem engin unglömb
í túni Hstarinnar — hafa
sjálfsagt tekið þátt í einum
fimmtíu sýningum, einkasýn-
inngum og samsýningum. Og
bað út um allan heim —
ailar götur tii Moskóvíen.
1 vindum skeknu húsi ís-
tenzkra lista hafa beir fest
upp fimmtíu myndir, olíumál-
verk; sautján eftir Jóhannes
og þrjátíu og tvær eftir Val-
tý. Þetta eru nonfígúratívar
myndir að sjálfsögðu, en bera
tiltölulega lýrísk nöfn úr
náttúrunnar ríki: Nótt á Kili,
Kalt í veðri, Vorstef. Þeir
kalla þetta nokkra viðleitni
til að efla samband áhorf-
andans við myndimar — það
geti stundum hjálpað, stund-
um ekki.
Báðir sýndu þessir lista-
menn síðast í fyrra í húsa-
kynnum Húsgagnaverzlunar
Reykjavíkur, Jóhannes um
páskana, Valtýr um hvíta-
sunnu. Þeir benda og á það.
að tveggja manna sýning hef-
ur ekki verið haldin 1 Lista-
mannaskálanum síðan 1943.
Þótt slíkt samspil hljóti að
auka á ánægjulega spennu i
tilverunni — bæði með áhorf-
endum og málurunum sjálf-
um. Og Jóhannes sagði það
væri mjög ánægjulegt að sýna
með Valtý. Valtýr sagði hins-
vegar að hann fyndi til
hræðslu fyrir þessa sýningu:
hann væri með svo góðan
mann sér við hlið.
Valtýs var freistað til að
formæla hressilega hábölvuðu
húsnæðisleysi isl. mynd-
listar, sem nú er munaðar-
lausust allra listgreina. Os
það væri yfirleitt ekkert gam-
anmál að vera listamaður á
íslandi. Enda virtust fáir geta
orðið til að taka við af eldri
kynslóðinni — sér þætti tor-
velt að koma auga á lista-
menn innan við þrítugt er
ekki köfnuðu undir nafni.
Af framtíðaráformum er það
hinsvegar helzt að frétta, að
Jóhannes sendir mjög bráð-
lega nokkrar myndir á sýn-
ingu í Bandaríkjunum. Þar
til sendur kvenmaður hefur
þegar valið myndirnar, en að
öðru leyti er f átt vitað um til-
högun sýningarinnar og svo
það, hve íslenzk þátttaka
verður víðtæk.
Laugardagur L maí 1965 — 30. árgangur — 97. tölublað.
Nýja þyrlan Eir
tekin í notkun
■ Hin nýja þyrla Landhelgisgæzlunnar og Slysavama-
félags íslands, TF-EIR, hefur nú verið tekin í notkun,
en undanfarna daga hafa starfsmenn gæzlunnar unnið að
því að setja vélina saman, ganga frá tækjum og reyna.
f gærmoirgun var nokkrum
gestum, þ.á.m. Jóhanni Hafstein
dómsmálaráðherra, boðið að
skoða þyrluna. Við það tækifæri
fluttu þeir stutt ávörp Pétur
Sigurðsson forstjóri Landhelgis-
gæzlunnar, ráðherrann, Gunnar
Friðriksson forseti SVFX og Lúð-
hvatamaður þess að til sjóðsins
var stofnað með almennri fjár-
söfnun og merkjasölu um land
allt tvo kosningadaga árið 1959,
en kjörorð fj ársöfnunarinnar var
„Friðun miða, framtíg lands“.
Nemur það fé. sem þá safnaðist
og vextir sem af því hafa feng-
Þyrlan lyftir sér. — (Ljósm. Þjóðv. A.K.).
vig Gugmundsson fyrrv. skóla-
stjóri. Ráðherra færði öllum
þeim þakkir sem unnið hafa að
því að þyrian kom hingað og
drap sérstaklega á þann góða
skerf sem þyrlusjóðurinn svo
nefndi hefur átt í málinu. Lúð-
vig Guðmundsson var einn aðal-
Togarí tekinn
í landhelgi
Togarinn Hafliði frá Siglufirði
var í fyrradag tekinn að ólög-
legum veiðum 1,2 sjómilur innan
við 8 mílna fiskveiðitakmörkin
af varðskipinu Óðni.
Þjóðviljinn hafði í gær sam-
band við bæjarfógetann á Siglu-
firði og sagðj hann að rannsókn
væri lokið í málinu, hefði skip-
stjóri viðurkennt brot sitt og
hefði verig leyft að halda úr
höfn gegn 600 þúsund króna
tryggingu.
Er staðarákvörðun var gerð af
varðskipinu reyndist Hafliði vera
1,2 mílur innan við 8 mílna
mörkin norð-norðvestur af Gríms-
ey. — Við rannsókn reyndist
skekkja í ratsjá skipsins, en ekki
nema 0,5 sjómílur.
Togarinn Hafliði var búinn að
veiða 90 tonn af góðum fiski
fyrir siglingu, þegar hann var
tekinn.
Dómur verður ekki kveðinn
upp í málinu fyrr en eftir helgi.
Kvikmyndir Ós-
valds Knudsens
Vegna fjölmargra áskorana
verða kvikmyndir Ósvalds Knud-
sens, Surtur fer sunnan, Sveit-
in milli sanda og Svipmyndir,
sýndar á ný í Gamla bíói kl.
5 og 7 í dag, laugardag og á
morgun, sunnudag.
Ættu þeir, sem misstu af
myndunum. er þær voru sýndar
fyrir páska, að nota þetta tæki-
faeri til að sjá þær.
izt síðan um 720 þús. kr. eða 1/5
hluta kaupverðs þyrlunnar.
Lúðvig Guðmundsson kvaðst
vona að nýja þyrlan, EIR, mætti
fylgja vel í fótspor fyrirrenn-
ara síns sem bgr þetta góða
nafn, gyðju lækninga- og mann-
úðarmála forfeðra vorra.
Björn Jónsson, þyrlustjóri
Landhelgisgæzlunnar, lyfti síðan
gestum, tveim í senn, í hinu
nýja farartæki sínu og flaug með
þá í sveig yfir næsta nágrenni
flugvallarins. Þótti öllum farar-
tækið hið bezta og ætti það
vafalaust eftir að koma ag góð-
um notum j framtíðinni.
26%
hœkkun ó
brœðslusíld
Morgunblaðið skýrir frá
því nýverið að síldarverk-
smiðja Einars ríka f Vest-
mannaeyjum hafi hækkað
verð það sem hún greiðir
fyrir bræðslusíld um 26%.
Bræðsluverð á sfld hafði ver-
ið ákveðið 81 eyrir á kíló,
og þótti sjómönnum og út-
vegsmönnum það svo lágt að
naumast svaraði kostnaði að
veiða síld upp á þau býti.
En nú hefur síldarverksmiðja
Einars Sigurðssonar hækkað
verðið upp í 102 aura og hin
síldarverksmiðjan í Vest-
mannaeyjum mun fylgja f
kjölfarið. Jafngildir þetta 26
prósent kauphækkun til sjó-
manna á þessum veiðum.
Þetta frumkvæði Einars
ríka er mjög ánægjulegt, ekki
sízt þar sem nýlokið er fundi
atvinnurekenda f fiskiðnaði,
þar sem menn báru sig mjög
illa og kváðust ekki geta tek-
ið á sig neinar kauphækkan-
ir. Einar Sigurðsson hefur
nú sannað f verki að sá bar-
lómur hefur verið mjög orð-
urn aukinn.