Þjóðviljinn - 30.05.1972, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 30. mai 1972 —ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9
Ákveðið verð á fiski fisk
beinum og slógi i mjöl
Yfirnefnd Verðlagsráðs sjávar-
útvegsins hefur ákveðið eftirfar-
andi lágmarksverð á fiskbeinum,
fiskslógi og heilum fiski til mjöl-
vinnslu frá 1. júni til 31. desember
1972. Fulltrúum i Verðlagsráðinu
er heimilt að segja lágmarks-
verðinu upp fyrir þann 16. sept-
ember 1972 og skal þá nýtt lág-
marksverð taka gildi frá og með
1. október.
a. Þegar selt er t'rá
fiskvinnslustöðv-
um til fiskimjöls-
verksmiðja: Fisk-
bein og heill fisk-
ur, annar en sild,
loðna, karfi og
steinbitur, hvert
kg kr. 1.23
Karfabein og heill
karfi, hvert kg kr. 1.47
Steinbitsbein og
heill steinbitur,
hvert kg kr. 0.80
Fiskslóg, hvert kg. kr. 0.55
b. begar heill fiskur
er seldur beint frá
fiskiskipum til fiski-
mjölsverksmiðja:
Fiskur, annar en
sild, loðna, karfi
o g steinbitur,
hvert kg kr. 1.15
Karfi, hvert kg
Steinbitur, hvert
kg
Framhald á bls. 19
Húsió tekur
stakkaskiptum
Hvort sem mála þarf úti eða inni.
A3 mála hús sitt með Hörpusilki er auðveld og
ódýr aðferð til þess að fegra umhverfið
og vernda eignir sínar gegn harðleikinni veðráttu.
Með réttri undirvinnu stenzt Hörpu málning
hin tíðu veðrabrigði.
Fagleg vinnubrögð og góð málning tryggja
langa endingu.
Látið Hörpu gefa tóninn.
HARPA
EINHOLTI 8
Axel Björnsson nýbakaður doktor:
Skrifaði doktors-
ritgerð um segul-
svið jarðarinnar
*
,,Er utanbæjarnemendur i
Menntaskólanum Á. Isafirði fengu
um siðir i hendur langþráðan
dvalar- og ferðastyrk frá mennta-
málaráðuneytinu, kom það þeim
öllum i opna skjöldu að dvalar-
styrkur hafði verið helmingaður.
1 reglugerð um úthlutun styrkja
til jöfnunar námsaðstöðu i dreif-
býlinu, 5. gr. stendur: „Dvalar-
styrkir eru veittir þeim, er verða
að dvelja utan heimila sinna, án
þess að eiga kost á skólaheima-
vist. Fyrir skólaárið 1971—1972 er
hámark dvalarstyrks 1.350 kr. á
mánuði”. Dvalarstyrkur á þvi
samkvæmt lögum að vera 10.800
kr á hvern nemanda, en hefur
verið lækkaður niður i 5.400 kr.
Þetta mun koma mjög illa niður á
nemendum, þar sem gert hafði
verið ráð fyrir að þessi styrkur
nægði til greiðslu á leigu her-
bergja, er nemendur höfðu fengið
út i bæ fyrir tilstuðlan skólans.
betta var gert vegna þess að i
upphafi skólaárs var ekki fyrir
hendi nægjanlegt heimavistar
húsnæði fyrir alla þá 42 utan-
bæjarnemendur, sem stunda
myndu nám við skólann. 16 nem-
endur voru skráðir á heimavist,
og i lok skólaárs höfðu 6 verið
skráðir af vist. 10 voru hjá ætt-
ingjum, 14 fengu herbergi fyrir
milligöngu skólans og 2 munu
hafa útvegað herbergi sjálfir.
Þessari framkomu fylgir engin
skýring af hálfu þeirra manna er i
úthlutunarnefnd eiga sæti, önnur
en sú, að þetta hafi verið gert við
utanbæjarnemendur i M.A., er
Húsgagnabólstrar
kjósa sér stjóm
A aðalfundi Sveinafélags hús-
gagnabólstrara, sem haldinn var
24. mai i vor, var stjórn félagsins
frá fyrra kjörtimabili endurkjör-
in.
Stjórnina skipa:
Jóhann Eliasson, formaður;
Ingimundur Pétursson, varafor-
maður; Halldór Ólafsson, gjald-
keri; Daði Ólafsson, ritari. Vara-
menn i stjórn eru þeir Gisli Sig-
urðsson og Haukur Óskarsson.
Nú eru 428 menn i Verkstjórafé-
laginu. Á siðasta ári gengu 45 ný^
ir menn i félagið. Formaður fé-
lagsins frá siðasta aðalfundi er
Haukur Guðjónsson,
4. mai s.l. lauk Axel Björnsson
doktorsprófi i eðlisfræði frá há-
skólanum i Göttingen i Vestur-
býzkalandi. Fjallaði ritgerð hans
um segulsvið jarðar, nánar til-
tekið um breytingar og regluleg-
ar sveiflur i styrkleika sviðsins.
Þessar sveiflur stafa frá straum-
um i efstu lögum gufuhvolfsins og
voru tengsl þeirra við norðurljós
og svipuð fyrirbrigði einnig rann-
sökuð frá segulmælingastöð
Raunvisindastofnun Háskólans,
sem staðsett er i Leirvogi. Rit-
gerðin nefnist á þýzku „Unter-
suchungen von pi 2 Pulsationen
auf einem Profil von Siid-Europa
bis in die Polarlichtzone”.
Axel er fæddur 1942 i Reykjavik
sonur hjónanna Auðar Axels-
dóttur og Björns Kristjánssonar.
Hann tók stúdentspróf 1962 og hóf
siðan nám i eðlisfræði við háskól-
ann i Göttingen. Þaðan lauk hann
Diplomprófi 1968 og hefur siðan
starfað við jarðeðlisfræðistofnun
háskólans þar og meðal annars
birt greinar um jarðeðlisfræðileg
efni. Axel er kvæntur Astu Vig-
bergsdóttur og eiga þau tvo syni.
bau eru nú að búa sig til starfa á
Islandi.
Örn Erlendsson var kjörinn
formaður Islenzk-þýzka
menningarfélagsins
A aðalfundi Islenzk-þýzka
menningarfélagsins, sem var
haldinn fyrir skömmu, var Orn
Erlendsson, hagfræðingur, kjör-
inn formaður félagsins, er Sig-
urður Baldursson hrl. baðst und-
an endurkjöri.
Föstudaginn 19. mai 1972 var
haldinn aðalfundur i islenzk-
þýzka menningarfélaginu i Lind-
arbæ.
Formaður félagsins, Sigurður
Baldursson, gerði i upphafi fund-
arins grein fyrir liflegu starfi fé-
lagsins á árinu. 1 ræðu Sigurðar
kom fram, að vaxandi samskipti
og samstarf væri á sviði menn-
ingar- og menntamála milli Is-
lands og Þýzka alþýðulýðveldis-
ins, þó að sú staðreynd, að Island
hafi ekki enn viðurkennt og tekið
upp stjórnmálasamband við þetta
land, hafi hindrað verulega öll
samskipti milli landanna. Þá kom
einnig fram i skýrslu formanns,
að félagið hafi mjög beitt sér fyrir
auknum, eðlilegum samskiptum
milli landanna og hafi á sinum
tima átt frumkvæði að þvi, að hér
yrði stofnuð sérstök viðurkenn-
ingarnefnd, en svipaðar nefndir
höfðu þegar verið stofnaðar á hin-
um Norðurlöndunum.
Eins og á undan förnum árum
var eitt af verkefnum félagsins á
siðasta starfsári að skipuleggja
þátttöku tslands á Eystrasalts-
vikunni,en auk margra ráðstefna
og sýninga, sem þar fara árlega
fram, hefur fslenzk-Þýzka menn
ingarfélagið forgang um að senda
hóp ferðamanna til dvalar við
strendur Eystrasaltsins á meðan
á hátiðarhöldunum stendur, en
einnig hóp unglinga á aldrinum
12—14 ára, til þriggja vikna dval
ar um svipað leyti i alþjóðlegum
æskulýðsbúðum i bænum Prerow
við Eystrasaltið. í ræðu sinni
drap Sigurður á ýmsa aðra þætti i
starfi félagsins á s.l. starfsári.
Sigurður Baldursson baðst ein-
dregið undan endurkjöri for-
manns vegna anna, en skipar sæti
varaformanns i hinni nýkjörnu
stjórn. t stað Sigurðar var dr. örn
Erlendsson kosinn formaður
félagsins.
Hin nýia stiórn er skipuð eftir-
farandi mönnum:
Dr. Orn Erlendsson, hagfræð-
ingur, formaður; Sigurþur
Baldursson, hæstaréttarlög-
maður, varaformaður; Guðrún
Hallgrimsdóttir, matvælaverk-
fræðingur; Halldór E. Stefáns-
son, verzlunarmaður: Steinunn
Stefánsdóttir, listfræðingur.
Varamenn:
Jón Thor Haraldsson,
Ólafur Jensson.
Ut anbæj arnemendur
beittir órétti?
BREF
TTL
BLAÐSINS
Kristján Jóhannsson sendir
bjóðviljanum meðfylgjandi bréf
fyrir hönd stjórnar skólafélags
menntaskólans á tsafirði. Yfir-
skrif bréfsins er: „Athugasemd
vegna úthlutunar styrkja til jöfn-
unar námsaðstöðu i dreifbýlinu".
ekki hafi verið á vist, en heima-
vist þar er sögð illa nýtt. Þetta
eru engin rök, þar eð M.t. er eini
menntaskólinn, sem sl. haust
gekkst fyrir útvegun herbergja
fyrir utanbæjarnemendur úti i
bæ.
Af framansögðu sér hver heil-
vita maður, að utanbæjarnem-
endur i M.l. eru beittir megnasta
órétti. Þess er þvi krafizt, að hlut-
aðeigandi aðilar leiðrétti þetta
hið allra fyrsta.
f.h. stjórnarSkólafélagsM.I.
Kristján Jóhannsson
gjaldkeri”.