Þjóðviljinn - 30.05.1972, Page 14
14.SIÐA — ÞJÓÐVILJINN— Þriöjudagur 30. mal 1972
KR
komá
óvart
gegn
Val
Ungu Ijónin úr KR komu
sannarlega á óvart i sínum
fyrsta leik í islandsmótinu.
Sigur þeirra yfir Vals-
mönnum 2:1 var engin til-
viljun og það var ódrepandi
baráttuvilji/ sem færði KR-
ingum þennan sigur. Hitt er
annað mál að jafntefli
hefði verið sanngjörnustu
úrslit þessa leiks og
dómaramistök komu i veg
fyrir að Valur næði jafn-
tefli. Það er alltaf leiðin-
legt þegar þau verða til
þess að lið tapar á þeim
stigi.
Þessi dómaramistök áttu sér
stað á siðustu minútu leiksins.
Hermann Gunnarsson komsteinn
inn fyrir KK-vörnina og ætlaði að
leika á Magnús Guðmundsson
markvörð KR, sem kominn var
útfyrir vitateig. Magnús henti sér
þar fyrír fætur Hermanns og
greip um þá, en Hermann náði
að iosa sig og senda boltann i net-
ið. Hannes Þ. Sigurðsson, sem
var illa staðsettur til að sjá þetta
brot, kom aðvifandi og dæmdi
brot á Hermann rétt utan vita-
teigs, en fyrir hvað? Það vissi
enginn nema Hannes.
Fyrri hálfleikiir var i daufara
lagi og ekkert markvert gerðist
fyrr en á 43. minútu að Alexander
Sigurður Uagsson gripur hér boltann, eftir skot frá Atla Héöinssyni
hinum skemmtilcga sóknarmanni KR. Atli skoraði sigurmark KR.
Jóhannesson skoraöi eina mark
Vals, eftir misheppnað úthlaup
hjá Magnúsi Guðmundssyni
markverðí. Annað úr fyrri hálf-
leik getur ekki talizt markvert.
Siðari hálfleikurinn var aftur á
móti fjörugri. Það voru ekki liðn-
ar nema 2 minútur af honum
þegar Björn Pétursson, hinn
skemmtilegi leikmaður, skoraði
fyrir KR og jafnaði þar með 1:1.
Og minútu siðar bjargaði bak-
vörður KR, Baldvin Eliasson á
linu, skoti frá Ingvari Elissyni. Á
64. minútu átti Ingi Björn skot i
stöng og þaðan hrökk boltinn til
Bergsveins Alfonssonar, sem
skaut i Magnús markvörð og af
honum hrökk boltinn i horn. A 70.
minútu átti Gunnar Gunnarsson
leikmaður KR skot i stöng og Sig-
urður Dagsson náði að gripa bolt-
ann i frákastinu.
En svo á 83. minútu skoraði Atli
Héðinsson sigurmark KR. Hann
átti i höggi við þá Helga
Björgvinsson og Sigurð Dagsson,
en snéri á þá báða og skoraði
glæsilega 2:1.
Þrátt fyrir nokkra pressu þær
min. sem eftir voru af leikn
um tókst Valsmönnum ekki að
jafna, ef frá er talið atvikið, sem
sagt er frá i upphafi. Ingi Björn
átti þó tækifæri til þess á siðustu
sekúndunum, þegar hann skaut
yfirafum það bil meters færi fyr-
ir opnu markinu.
Berjist KR-ingar svona vel i
hverjum leik, ættu þeir ekki að
lenda i neinum erfiðleikum i sum-
ar. Ungu mennirnir i liðinu eru
sivaxandi, en beztir þeirra eru
þeir Björn og Haukur Ottesen,
Gunnar Gunnarsson og Atli
Héðinsson. Þá átti Baldvin
Eliasson mjög góðan leik, sem og
Þórður Jónsson.
Hjá Val áttu Róbert Eyjólfsson,
Hermann Gunnarsson og Sigurð-
ur Dagsson beztan leik.
Dómari var Hannes Þ.
Sigurðsson og dæmdi yfirleitt vel,
nema þarna undir lokin er honum
brást bogalistin.
— S.dór.
Juventus varð
Ítalíumeistari
Juventus varð Italiumeistari i
knattspyrnu i 14. sinn á sunnu-
daginn með þvi að vinna Vicenza
2:0 i siðasta leik sinum. Það voru
Þjóðverjinn Helmut Haller og
Luciano Spinosi, sem skoruðu
mörkin.
Þetta er i 7. sinn eftir siðari
heimsstyrjöldina. sem Juventus
verður italskur meistari i knatt-
spyrnu.
EINAR GUÐNA-
SON ER í SÉR-
FLOKKI
Á sunnudaginn var haldið hið
svokallaða Þotumót i golfi á golf-
vellinum á H valeyrarholti i
Hafnarfirði. Þetta er eitt fyrsta
stórmót ársins enda gefur það
stig til landsliðsins.
Einar Guðnason sannaði það
enn einu sinni að hann er orðinn
okkar fremsti golfleikari, þvi að
hann sigraði þarna með glæsi-
brag. Það var ekki við neina auk-
visa að keppa. Þarna voru
samankomnir flestir beztu golf-
leikarar landsins.
1 öðru sæti varð Björgvin Hólm,
sem hefur skotið sér upp á
stjörnuhimininn i golfi á stuttum
tima. Næstur kom svo skipstjór-
inn Sigurður Héðinsson, sem
kemur i land við og við til að sýna
mönnum hvernig á að leika golf.
1 fjórða sæti varð svo Þorbjörn
Kjærbo og i fimmta sæti öttar
Ingvason.
Guöjón Guömundsson, bezti bringusundmaður Noröurlanda á styttri
brautum, setti nýtt tslandsmet i 200m. bringusundi á sunnudaginn. ÓL-
lágmarkið hjá honum er stutt undan.
GUÐJÓN Á NÝjl
ÍSLANDSMETI
Guðjón Guðmundsson
sundmaður frá Akranesi
lætur ekki staðar numið
með afrek sin i sundinu. Á
sundmóti KR sl. sunnudag
var hann sá eini sem setti
nýtt islandsmet en það var
i 200 m. bringusundi. Hann
náði þó ekki ólympíulág-
markinu/ en það gerði eng-
inn af sundmönnum okkar
á þessu móti, enda var vart
við því að búast. Guðjón
hefur náð þvi á æfingum
svo varla verður langt þar
til að hann nær þvt við lög-
legar aðstæður og svo mun
vera um fleiri sundmenn
okkar.
Met Guðjóns Guðmundssonar i
200 m. bringusundi var 2:35, en
eldra metið, sem Leiknir átti, var
2:35,3min. ól-lágmarkið i þessari
grein er 2:34,5 min, svo það er
ekki langt i að Guðjón nái þvi.
Þess má geta að sundíólkið okkar
er allt sem stendur i þrekæfingum
og meðan þær standa yfir, er
varla von á umtalsverðum afrek-
um og þvi kom þetta Islandsmet
Guðjóni mjög á óvart. Leiknir
Jónsson varð 2. á timanum 2:44,3,
en nokkuð vantar á að Leiknir sé
kominn i sömu æfingu og Guðjón,
enda hefur hann átt við meiðsli að
striða.
I 400 m. skriðsundi sigraði Frið-
rik Guðmundsson á timanum
4:38,6 min. sem er ekkert sér-
stakur timi enda eins og áður seg-
ir varla von til afreka hjá mönn-
um strax. Sigurður Ölafsson varð
annar á 4:41,1 min. Bára Ólafs-
dóttir varð sigurvegari i 200 m.
fjórsundi á 2:55,6 og i 200 m. fjór-
sundi karla sigraði Guðmundur
Gislason á 2:23,4 min.
I 100 m. skriðsundi sigraði
Salome Þórisdóttir á 1:07,3 min.
og Finnur Garðarsson sigraði i
100 m. skriðsundi karla á 57,8 sek.
Sturlaugur Sturlaugsson 1A
sigraði i 50 m. skriðsundi pilta á
30,5 sek. og Jóhanna Jóhannsdótt-
ir 1A sigraði i 50 m. bringusundi
telpna á 42,6 sek.
Næsta verkeini sundfólksins
verður 13. júni nk. en þá verður
sundmót ÍR haldið. Forráðamenn
SSI hafa áhyggjur útaf sundkon-
um okkar vegna landsliðsins, en
þær eru langt frá þvi að vera
komnar i æfingu eða eru hættar
æfingum sumar hverjar af okkar
beztu sundkonum.
— S.dór.
DANIR UNNU
NORÐMENN
í SUNDI
Danir unnu Norðmenn i
landskeppni i sundi um siðustu
helgi með 144 stigum gegn 118.
Keppnin fór fram i Nadderudhall-
en i ósló, og stóð yfir laugardag
og sunnudag. Eftir fyrri dag
keppn'innar höfðu Norðmenn
forustu 69:51. Nánar verður sagt
frá keppninni á morgun i
Þjóðviljanum.