Þjóðviljinn - 15.11.1972, Blaðsíða 1
Ung hjón í
brúnum Eyja
fjarðardals
— i mælingastöð vegna væntanlegrar raflinu
frá Sifíölduvirkjun til Norðurlands. Mikil vinna
lögð i að undirbúa
alla framkvæmd linulagningarinnar vel
Nú er unniö af kappi að
undirbúningi lagningar
raflínu norður frá
Suðurlandi, sagði Magnús
Kjartansson á alþingi i gær,
er rætt var um orkumál
Norðurlands.
Kappkostað verður að vanda
sem bezt til hönnunar þessarar
linu þvert yfir hálendi íslands.
Margar leiðir verða kannaðar og
hefur verið unnið að þvi siðan i
fyrra. Vegna mikilvægis þessarar
linu verður undirbúningur hennar
á ýmsan hátt vandaðri en tiðkazt
hefur um aðrar háspennulinur
hér á landi til þessa og eru
linurnar á Suðvesturlandi þá ekki
undanskildar. Þannig verður i
hönnun stuðzt við beinar
mælingar á aðstæðum á sjálfu
linustæðinu. á isingu og
veðurfari. Tekið hefur verið upp
samband við norska aðila, sem
hafa langa reynslu af lagningu
lina um hálendi, þar á meðal til
Vesturstrandarinnar i Noregi. Nú
á næstunni munu ung hjón taka
sér bólfestu i mælingarstöð, sem
kölluð er Nýbær á brún Eyja-
fjarðardals, i nálega niu hundruð
metra hæð. Auk þess eru
áformaður ýmsar athuganir á
öðrum stöðum á hálendinu. Það
verður þvi ekki á neinn hátt
flaustrað að þessari linu-
lagningu; þvert á móti veröur
hún rækilegar undirbúin en
flestar eða allar linur hér á landi.
Mcdefni framhaldsskólanemenda
rœdd á cdþingi í gœr
Finna þarf lausn á vanda
nemenda utan af landi
sagði Jónas Arnason við umrœðurnar
Það er dýrkeypt fræðsla i þjóð-
féiagsfræði sem margir nemend-
ur framhaldsskólanna fá þegar
þeir standa i þvi að útvega sér
húsnæði i upphafi skólaársins,
sagöi Jónas Árnason þegar hann
gerði húsnæðismál og aðra að-
stöðu framhaldsskóianemenda að
umræðuefni á fundi sameinaðs
þings i gær. Á dagskránni var
þingsályktunartillaga Ragnars
Árnalds um eftirlit með leigu og
sölu ibúðarhúsnæðis, og kvaddi
Jónas sér hljóðs þegar Ragnar
hafði mælt fyrir tillögu sinni. —
Framhaldsskólanemendur höfðu
fjölmennt á þingpallana, og gat
Jónas þess að margir úr þeirra
hópi hefðu hvatt sig til að gera
grein fyrir þvi ástandi sem nem-
endur byggjú við i húsnæðismál-
unum. Þegar Jónas hafði lokið
máli sinu þökkuöu nemcndur
honum með kröftugu lófa-
taki.
Þessi áhugi nemenda fyrir
eigin vandamálum virtist fara
mjög i taugarnar á þingmönnum
Sjálfstæðisflokksins og komst
Þorvaldur Garðar þannig aö orði,
að hér hefði verið „efnt til leik-
sýningar”. Lárus Jónsson vildi
sýna nemendum fram á, að Sjálf-
stæðismenn hefðu meiri áhuga á
athöfnum en orðum i þessu sam-
bandi, og skýröi frá þvi að hann
hefði ásamt öðrum þingmanni
flokksins þegar lagt fram til
prentunar tillögu þar sem skorað
væri á rikisstjórnina ,,að koma
upp heimavistum fyrir þetta
fólk”. Siðar við umræðurnar upp-
lýsti Jónas þingmenn og pallgesti
um það, að Lárus hefði lagt til-
lögu sina fram „eftir að leiksýn-
ingin hófst” eða með öðrum orö-
um i þann mund sem honum var
ljóst i hvaða skyni nemendur fjöl-
menntu á áheyrendapallana.
Jónas fagnaði þessum viðbrögð-
um Lárusar og bauð honum ræðu
sina sem greinargerð með tillög-
unni.
1 ræðu Jónasar komu fram
margvislegar upplýsingar um þá
aðstöðu sem nemendur fram-
haldsskólanna búa viö. Húsnæðis-
erfiðleikarnir bitna harðast á
nemendum utan Stór-Reykja-
vikursvæöisins, en Jónas taldi að
um tiundi hluti þeirra liðlega 12
þúsund framhaldsskólanemenda
sem eru við framhaldsnám á
þessu svæði ættu heimili utan
þess. Flestir þessara nemenda
væru við nám i Kennaraskól-
anum, sem er eini skólinn sinnar
tegundar i landinu. Um aðstöðu
þessa fjölmenna hóps vitnaði
Jónas m.a. til bréfs, sem þrjú
samtök framhaldsskólanemenda
hafa sent öllum þingmönnum, en
einnig kvaðst hann hafa heimsótt
þá 28 nemendur Kennaraskólans,
sem komizt hefðu yfir gistirými á
Hótel Nesi.
Jónas sagði að eins og bent væri
á i bréfi nemendasamtakanna
væri eina varanlega lausnin sú að
byggja heimavistir fyrir fram-
haldsskólana, en finna þyrfti
bráðabirgðaúrræði til að mæta
þessum vanda. _ Varo-
andi bráðabirgðalausn i hús-
næðismálunum minnti Jónas á þá
sérstöku fyrirgreiðslu sem Hótel
Esja fékk i Seðlabankanum á
þeim forsendum að nota mætti
hótelið jöfnum höndum sem nem-
endabústað.
Varðandi mötuneytismál nem-
endanna, sagði Jónas að meðan
sjálfsagt þætti að hafa t.d. mötu-
neyti við flesta bankana i mið-
bænum i Reykjavik, þar sem
starfsmenn þeirra gætu fengið
máltiöir á niðurgreiddu verði og
jafnvel fyrir 40 kr„ þá yrðu nem-
endur menntaskólanna tveggja
sem væru i nágrenni við þessa
banka að gera sér að góðu að
neyta „þjóðarréttarins” kóks og
prins*-pólós i nálægum sjoppum.
Olafur umTorfuna:
Engin
borgar-
prýði
Það er engin borgarprýði að
þessum húsum, sagði for-
sætisráðherra á alþingi i gær
er rætt var um Bernhöftstorf-
una i fyrirspurnartima. For-
sætisráðherra sagði að hann
væri sömu skoðunar og stað-
fest hefði veriö i f járveitingum
alþingis á undanförnum
tveimur áratugum. Engin
eftirsjá væri i húsunum þó þau
færu.
Ólafur Jóhannesson skoraði
á formenn annarra stjórn-
málaflokka að gera grein fyrir
afstöðu sinni til stjórnarráðs-
húss. Ólafur kvaðst reiðubú-
inn til þess að láta endurskoöa
teikningar af stjórnarráðshúsi
— sem lægju fyrir frá tið fyrri
stjórnar.
Magnús Torfi ólafsson,
menntamálaráðherra, kvaðst
ekki vilja taka afstöðu til ein-
stakra friðunarhugmynda;
hann vildi athuga þau mál i
heild sinni samkvæmt húsfrið-
unarkafla Þjóðminjalaganna.
LONDON 14/11 — Brezk heil-
brigðisyfirvöld skýrðu frá þvi
i dag, að 26 ára áströlsk kona
hefði verið lögð á sjúkrahús i
London með kóleru. Þetta er
annað kólerutilfellið i Bret-
landi siðustu daga.
Bæði tilfellin eru af fólki
sem kom til landsins fyrir 11
dögum frá Melbourne i
Ástraliu með flugvél ástralska
flugfélagsins Quanta gegnum
Bahrain.
Skólafólk fjölmennti á áheyrendapallana.