Þjóðviljinn - 15.11.1972, Blaðsíða 3
MiAvikudagur 15. nóvember 1972 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 3
Fyrsta
skauta-
svell
vetrarins
Það var uppi fótur og fit hjá
börnum og unglingum i
Reykjavik i gærdag þegar
fyrsta skautasvellið á þessum
vetri blasti við á Tjörninni.
Þar ofan á kaupin bættist, að
mánaðarfri var i skólum
borgarinnar, þannig að nógur
timi var til að renna sér á
svellinu allan daginn.
Við litum niður á tjörn sið-
degis i gær og tókum nokkrar
myndir. Einn litill maður, á að
gizka 10 ára gamall, sagði
okkur aö hann væri búinn að
vera á skautum frá þvi um
hádegi og ætlaði að vera fram
á kvöld. „Það er svo sjaldan
sem skautasvell eru hérna, að
það er bezt að nota það þegar
það kemur” sagði hann og
renndi sér i burtu.
Þarna voru ungir og gamlir
að renna sér á skautum, þótt
svellið væri ekki uppá það
bezta. Það festi á Tjörninni
klakahimnu um siðustu helgi
meðan rokið var og þvi er
svellið nokkuð gárótt á stórum
köflum. Þó eru sléttir fletir
innan um og þar var mest um
að vera i gær.
Veður var hið fegursta i
Reykjavik i gær, bæði logn og
sólskin, en nokkuð frost. Þetta
var þvi skautaveður eins og
bezt verður á kosið og hefur
sjálfsagt verið lif i tuskunum á
Tjörninni allt fram á kvöld.
—S.dór.
80 — 90% hjá
því opinbera
— Minni afii hefur borizt
hér á land en á sama tima og i
fyrra, en þó er atvinnuleysi
hér minna en var i fyrra, sagði
Gunnar Rafn Sigurbjörnsson
er við höfðum simasamband
við hann norður á Siglufjörð i
gær.
— Innan við 10 eru hér á at-
vinnuleysisskrá, og 3 fyrstu
vikurnar i október fengu 16
greiddar atvinnuleysisbætur
samtals 75 þúsund, en sömu 3
vikur i fyrra voru 34 á at-
vinnuleysistryggingaskrá og
fengu greiddar 112 þúsund.
Allt siðast liðið ár voru greidd-
ar 5 1/2 miljón króna i at-
vinnuleysisbætur, en sú upp-
hæð verður til muna lægri i ár.
Flestir Siglfirðingar vinna hjá
þvi opinbera, eða milli
80—90%.
—úþ
Hitaveita í
Hafnarfjörð?
Fulltrúar á ráðstefnunni, Sigmar Ingason og Aki Gránz, báðir úr
Njarðvikum.
Söfnuðu í
landhelgis
sjóð
Krakkarnir i 2. bekk A i
Réttarholtsskóla söfnuðu upp
á sitt eindæmi 22 þúsundum
króna sem þau afhentu lands-
söfnun fyrir landhelgissjóð i
gær.
Fjárins öfluðu krakkarnir
með þvi að halda skemmtun i
skólanum, og bjuggu þau sjálf
öll skemmtiatriðin til flutn
ings, og fluttu þau. Þau full-
yrtu, að þessi skemmtun hafi
verið sú bezta sem haldin hef-
ur verið i skólanum.
—Ljósm.AK,
Nú um helgina héldu tveir
Klúbbarnir ÖRUGGUR AKSTUR
aðalfundi slna, I Borgarnesi á
laugardag, á Akranesi á sunnu-
dag. Fundirnir fóru fram á hefð-
bundinn hátt, með verðlauna-
afhendingu Samvinnutrygginga
fyrir 5, 10 og 20 ára öruggan
akstur — samtals til 64ra bif-
reiðaeigenda
— Ennþá standa yfir
samningaviðræöur við
Reykjavíkurborg um
sölu hennará heitu vatni
hingað til Hafnarfjarð-
ar, sagði bæjarstjórinn
þar, erblaðið hafði sam-
band við hann í gær.
— Það er ekki komin nein
niðurstaða ennþá, og beðið er
eftir þvi að samningur Hita-
veitu Reykjavikur við Kópa-
vog verði samþykktur, en gert
er ráð fyrir að samið verði á
svipuðum grundvelli og samið
var við Kópavogskaupstað.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar
samþykkti nýverið 18 milj. kr.
breytingar á fjárhagsáætlun
yfirstandandi árs, en raun-
veruleg lækkun nemur 9,8
miljónum króna.
—úþ
BORG ARFULLTRU AR
ERU TIL VIÐTALS
Borgarmálaráð Alþýðubanda-
lagsins hefur ákveðiö fastan við-
talstima á miðvikudögum
klukkan 5-7.
Á þessum tima mun jafnan ein-
hver fulltrúi úr ráðinu vera til
viðtals að Grettisgötu 3, á skrif-
stofu Alþýðubandalagsins. Geta
menn komið á framfæri ábend-
ingum og kvörtunum varðandi þá
málaflokka, sem fjallað er um i
borgarstjórn.
Adda Bára Sigfúsdóttir,
borgarfulltrúi, verður til viðtals i
dag.
Iðnómálið
Svonefnt Iðnómál, sem
byggt er á ólöglegum leigu-
samningi stjórnar Alþýðu-
hússins h/f (Jón Axel Péturs-
son og co.), við stjórn Leikfé-
lags Reykjavikur, hefur verið
til meðferðar hjá Sakadómi
Reykjavikur um nokkurt
skeið.
Er blaðið hafði samband við
Jón Abraham Ólafsson, aðal-
fulltrúa hjá Sakadómi, sem
hefur með málið að gera,
sagði hann, að yfirheyrslum
væri að ljúka i málinu, og
bjóst hann við að þeim lyki i
gær, og málið yrði þá sent
ákæruvaldinu. —úþ
R IDA T FKNIMÁL
SVEITARFÉLAGA
Káðstefna um tæknimál
svcitarfélaga hófst á Hótel Esju i
gær, og sitja ráöstefnuna 140
sveitarstjórnarmenn, verkfræð-
ingar, tæknimenn og verkstjórar
sveitafélaganna, og cr þátttak-
cndafjöldinn allt að þvi helmingi
meiri en forsvarsmenn ráðstefn-
unnar höfðu gcrt ráð fyrir.
Fjölmörg erindi hafa verið flutt
og verða flutt á ráðstefnunni, en i
dag heimsækja ráðstefnugestir
Suðurnesin og skoða sig meðal
annars um i Njarðvikum og i
Keflavik.
7 uinferðir
7 vinningar
Bragi llalldórsson er nú
efstur á haustmóti Taflfélags
Itcykjavikur mcð 7 vinninga
eftir 7 umferðir.
Þrir keppendur eru með 6
vinninga, þeir Björn Þor-
stcinsson, Jón Kristinsson og
Björn Jóhannesson. Næstu
keppendur eru með 5 1/2 vinn-
ing, en þeir eru 8 talsins.
8. umferð var tefld i gær og
lefldu þeir þá saman Bragi
llalldórsson og Björn Þor-
steinsson, Jón Kristinsson og
Björn Jóhannesson, en skák-
unum úr umferöinni var ekki
lokið þcgar blaðið fór i prent-
un.
U mfcrðir haustmótsins
verða II i stað 9 sem áætlað
hafði verið.
Andrés Svanbjörnsson
verkfræðingur í ræðustól.
Við hlið hans er Unnar
Stefánsson starfsmaður
ráðstefnunnar.