Þjóðviljinn - 15.11.1972, Page 6

Þjóðviljinn - 15.11.1972, Page 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miftvikudagur 15. nóvember 1972 UOOMUINN MÁLGAGN SÓSIALISMA, VERKALÝÐSHREYFINGAR OG ÞJÓÐFRELSIS Útgefandi: Útgáfuféiag Þjóðviljans Framkvæmdastjóri: Eifiur Bergmann Ritstjórar: Kjartan Óiafsson Svavar Gestsson (áb.) Auglýsingastjóri: Heimir Ingimarsson Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar: Skólav.st. 19. Simi 17500 (5 iinur). Askriftarverð kr. 225.00 á mánuði. Lausasöiuverð kr. 15.00. Prentun: Blaðaprent h.f. SA YÐAR, SEM SYNLDLAUS ER Formaður Alþýðuflokksins ritaði fyrir nokkrum dögum grein i Alþýðublaðið, sem hann nefndi: ,,Um visitölumálin, verkalýðssamtökin og rikisstjórnina”. Með svop þess, sem syndlaus er, setur hann yfir mynd sina i Alþýðublaðinu þessi orð: ,,Þá mun reyna á það á Alþingi, hvaða flokkar standa með málstað verka- lyðshreyfingarinnar og hverjir gera það ekki”. Auðvitað verður formaður Alþýðu- flokksins að vera i takt við áróður Morgunblaðsins og Sjálfstæðisflokksins um unnin og yfirvofandi voðaverk núver- andi rikisstjórnar gegn verkafólkinu i landinu. En Alþýðuflokkurinn, undir forustu dr. Gylfa, er ekki fyrst núna að komast i takt við Sjálfstæðisflokkinn. Þingmenn þess- ara flokka hafa býsna mikla æfingu i þvi að rétta sameiginlega upp hendurnar, og ekki frítt við, að slikar samræmdar að- gerðir hafi stundum komið ónotalega við visitöluna og kjör launafólks. í upphafi samstjórnar þessara tveggja flokka fyrir rúmum 12 árum var það þeirra fyrsta verk að afnema með öllu verðtryggingu launa og rifta með frekleg- asta hætti gildandi kjarasamningum. í 23. grein viðreisnarlaganna sagði: ,,Nú er þrátt fyrir ákvæði 1. málsgreinar þess- arar greinar ákveðið i samningi stéttarfé- laga eftir gildistöku þessara laga, að greidd skuli verðlagsuppbót samkvæmt visitölu og er þá slikt ákvæði ógilt og hlut- aðeigandi vinnuveitendum er óheimilt að fylgja þvi”. Sem sagt, sérhver atvinnurekandi, sem greiða vildi verkafólkinu visitölubætur var bannfærður með fyrstu lagasetningu viðreisnarinnar. Til þess settist dr. Gylfi i ráðherrastól. í umræðu á alþingi 15. febrúar 1960 sagði þáverandi viðskiptaráðherra, dr. Gylfi Þ. Gislason: ,,Það er pauðsynlegt að afnema visitölukerfið, af þvi að það færir launþegum engar varanlegar kjarabætur, engar varanlegar hagsbætur heldur stuðl- ar að hækkunum kaupgjalds og verðlags á vixl, færir launþegum fleiri krónur, en ekki bætt kjör”. Handauppréttingin á alþingi 1960 kost- aði verkafólk verulega kjaraskerðingu, og kaupmáttinn, sem gilt hafði fyrir visitölu- ránið tókst ekki að vinna upp aftur fyrr en 1965, þrátt fyrir fjöldamörg harðvitug verkföil og vaxandi þjóðartekjur. Rikis- stjórn Alþýðuflokksins og Sjálfstæðis- flokksins skammtaði launþegum kjörin. Viðreisnarstjórnin var með júni-sam- komulaginu 1964 neydd til að afturkalla lögin um bann við visitölugreiðslum á kaup, en að loknum siðustu kosningum, sem hún slapp frá með meirihluta, árið 1967 varð það enn hennar fyrsta verk að rjúfa júni-samkomulagið og afnema á ný verðtryggingu launa. Fullar visitölugreiðslur á kaup fengust svo loks aftur viðurkenndar að loknu stóru verkfalli 1970, en ekki voru liðnir nema nokkrir mánuðir, þegar viðreisnarstjórn- in réðist enn til atlögu við verkalýðshreyf- inguna og svipti launþega 4 visitölustigum við setningu verðstöðvunarlaganna haust- ið 1970. En þá var lika stutt i endalokin á ráðherradómi Gylfa Þ. Gislasonar, Jó- hanns Hafsteins og félaga þeirra, sem svo lengi höfðu beitt rikisvaldinu til að ræna verkafólk umsömdum kjarabótum. Árið 1970, siðasta valdár viðreisnar- innar, var kaupmáttur timakaups verka- manna aðeins 7% hærri en hann var árið 1959, siðasta árið fyrir viðreisn. Kaupið hafði hækkað 7% meira, en framfærslukostnaðurinn eins og fram- færsluvisitalan, sem sett var á viðreisnar- timanum mælir þann kostnað. 7% á ellefu árum og kostaði sfendur- tekin verkföll. Á þvi tæplega eina og hálfa ári, sem núverandi rikisstjórn hefur verið við völd hefur þessi sami kaupmáttur vax- ið, ekki um 7%, heldur um 25—30%, án verkfalla. Flogið hefur fyrir, að á Alþýðusam- bandsþingi i næstu viku verði borin upp tillaga um að senda þeim dr. Gylfa og Jó- hanni Hafstein sérstakt þakkarávarp fyrir samskipti liðinna ára og um að fela þeim meðferð visitölunnar til frambúðar. Áróður dr. Gylfa og Morgunblaðsins þessa dagana mun miða að þvi að tryggja slikri tillögu meirihluta. Baráttan við lömun Lœknisfrœðin í bandalagi við st jórnunarfrœði Það er engin nýjung lengur, að menn hafi stjórn á taugaboðum, þeir ná æ meira valdi á þeim orku- sveiflum, sem myndast i likamanum. Smiðuð hefur verið gervihönd, sem bygg- ist algjörlega á slíkum sveiflum. i Sovétríkjunum eru stundaðar umfangs- miklar rannsóknir varð- andi taugaboð. Hér á eftir fer frásögn af starfsemi ungs læknis í Kiev. Frá örófi alda hefur læknis- fræðin glimt við lömun, sjúkdóm. sem lýsir sér i þvi, að vöðvar missa starfshæfni sina. Áður fyrr tókst aðeins örsjaldan að gera lamaða vöðva starfshæfa á ný. Nú er hér breyting á orðin. T.d. f Borgarsjúkrahúsini i Kiev er lömun læknuð með aðstoö stjórn- unarfræðinnar, með „kyberne- tisku” tæki. , A hverju byggir þessi aðferð? Minnumst tilraunar Galvanis, sem allir þekkja úr eðlisfræði- kennslubókum: hann bar raf- skaut að vöðvavef frosks, og i hvert skipti dróst vöðvinn saman. Svipað er þessu farið með starf- semi vöðva yfirleitt, þeir dragast saman fyrir áhrif frá ákveðnum straumum, taugaboðum. Starf- semi þessi er geysiflókin, og vandinn var i þvi fólginn aö aö- greina hinu ýmsu þætti hennar og finna þá, sem gætu, ef þeir væru margefldir, haft sömu áhrif á lamaðan vöðva i mannslikam- anum og rafskaut Galvanis haföi á frosklöppina. 1 Stjórnunarfræðistofnun VIs- indaakademiu Úkraínu hófust læknirinn A. Aléjef og verkfræð- ingurinn S. Búnimovitsj handa um rannsóknir í þessa átt. Við marga erfiðleika var aö etja, og það helzt, að einfaldasta hand- hreyfing — krepping og rétting — útheimtir a.m.k. starfsemí tveggja vöðvatvennda, sem verka hvor á móti annarri. Með venjulegum straumi, var aðeins unnt að verka á einn vöðva. Aléjef og Búnimovitsj skráðu þá strauma, sem mynduðust i hverjum vöðva, við ákveðið strangt afmarkað átak. Hina skráðu örvunarskammta sendu þeir svo i gegn um sérstakan magnara og létu þá verka á lam - aðan likamshluta. Hinir „utanaðkomandi” straumar fengu vöðvann til að starfa sem væru þetta hans eigin taugaboð. Tilraunin var margendurtekin. Vöðvinn þjálfaðist smátt og smátt i eðlilegum viðbrögðum og fór loks að taka við eigin tauga- boðum og hlýða þeim. Eftir þennan árangur kom fram sú hugmynd að smiða tæki, ser gerði það kleift að velja að vild mismunandi „likams- strauma” og skammta þá i mis- munandi magni. 1 tilraunaverk- Dr. Leonid Aléjef og Sergei Majboroda, læknar, athuga skýrslur um árangur lækninganna. smiðju nokkurri var svo búiö til tæki, er hlaut nafnið „Mioton 1”. Aléjev og Búmimovitsj gerðu fyrst fjölda tilrauna á dýrum og sjálfum sér og tóku siðan að reyna tækið við sjúklinga. Fyrstu tilraunirnar sýndu, að þeir félagar voru á réttri leið. Hér kemur frásögn eins af sjúk- lingunum: „Eftir fall ofan úr sjöttu hæð á húsi lamaðist ég á hægri hendi og vinstra fæti. Ýmsar lækninga- stofnanir reyndu árangurslaust að hjálpa mér. Það fór að bera á vöðvaryrnun, og ég varð ógang- fær að kalla. En eftir að ég hafði fengið „Miotonmeðferð” i Kiev, varð mikil breyting til hins betra. Hreyfingasviðið Ijókst að miklum mun og mér varð léttara um gang...” Þetta er frásögn manns, sem virtist dæmdur til að geta ekki hreyft sig og sem fyrir lækningu gat ekki tekið upp blýant. Þannig hófst sigurganga Miot- ons. Tækið var endurbætt, gert fjölþættara og meðfærilegra. Eftir fjögra ára starf er hægt að státa af góðum árangri. Tii dæmis læknuðust 90 af hundraði þeirra, sem höfðu lamaða and- litstaug og hlotið höfðu alla hugs- anlega meðferð aðra, þ.á.m. nál- stungu. Frh. á bls. 15

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.