Þjóðviljinn - 15.11.1972, Síða 7

Þjóðviljinn - 15.11.1972, Síða 7
Miðvikudagur 15. nóvember 1972 IÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7 Stórveldin deila um gerfihnattasjónvarp Að nokkrum árum liðn- um kemur að því, að á því verða tæknilegir mögu- leikar að menn geti upp til hópa sezt við sjónvarpstæki sitt og tekið við útsendingu sem byrjaði hinum megin á hnettinum. Stórveldin tvö, Bandarikin og Sovétríkin, hafa fyrir löngu komið auga á hugsanlegar plólitiskar afleiðingar slíkrar þróunar — og þau eru nú komin í hár saman út af máli þessu. Beint tilefni deilunnar er tillaga sem Sovétríkin hafa borið upp hjá Sameinuðu þjóðunum, um að setja vissar skorður við notkun gerfihnatta til sjónvarpsút- sendinga milli ríkja. Sovét- menn segjast þar með vilja vinna að bættri sambúð þjóða, en Bandaríkjamenn svara með þvi að hér sé á ferð viðleitni til að koma í veg fyrir að þegnar Sovét- ríkjanna fái aðrar upp- lýsingar en þær sem vald- hafar vilja. Hér fara á eftir greinargerðir um málið — önnur er f rá sovézku frétta- stofunni APN, hin frá bandarisku upplýsinga- þjónustunni í Kaupmanna- höfn. Hér skal farið nokkrum orðum um röksemdir aðilanna. Það er sjálfsagt að taka undir fögur orð Sovézkrá um að fjölmiðla megi ekki misnota i illum tilgangi o.s. frv. En óneitanlega er leiðinda ritskoðunarhreim- ur af þeirra tillögum. Þeir vilja ekki að geimsjónvarp breiði út ,,rangar upplýsingar", ,,ósiðsemi'' eða sé notað til ,,íhlutunar um innanríkispólitík". En hver ætti að skera úr um það, hvað sé leyfilegt og hvað ekki i slikum efnum? Mundi ekki niðurstaðan verða samkomulag stór- veldanna að sýna ekkert það í geimsjónvarpi, sem nokkru máli skipti? Bandaríkjamenn gerast málsvarar tjáningafrelsis. Gott og vel. En í því sam- bandi gleymist einfaldlega það sem efst var á baugi í kanasjónvarpsmálum okkar (slendinga. Málfrelsi fyrir hverja? Það er Ijóst, að aðeins örfáar stórþjóðir gætu haft sig að ráði í frammi í geimsjónvarpi, og þá fyrst og fremstgeim- ferðaþjóðirnar tvær — Bandarikin og Sovétríkin. l reynd munu þær breiða út sín viðhorf, sína menningu, sínartungur— málfrelsið í geimsjónvarpinu verður öðrum að mestu forms- atriði, sem þeir geta aldrei fært sér í nyt. Máske ,,þjóðir heims" ættu að taka sig saman um að hafa ekkert geimsjón- varp? Það er nefnilega svo komið að það er ekki lengur sjálfsagt mál að öll þau tækniævintýri, sem eru framkvæmanleg, verði að veruleika. Sovézka fréttastofan APN: Framfarir eiga sínar skuggahliðar Hraði og viðfeðmi tæknilegra framfara nú um stundir hafa fengið menn til að lita á hnött þann, sem við byggjum, sem einskonar geimskip, skapað af náttúrunni. Nauðsyn ber til þess að farþegar þessa geimfarkosts búi i sátt og samlyndi. Menn hafa ekki fyrr gert sér jafnvel grein fyrir stöðu mannkyns i alheimi. Menn skilja æ betur að eining verður að rikja, og framsæknustu menn finna æ meir til ábyrgðar af framhaldi mannlifs á jörðunni. Jarðarbúar standa við upphaf nýs áfanga i þróun fjölmiðla: sjónvarpstækni i geimnum opnar áður óþekkta möguleika á upplýsingamiðlun. t náinni fram- tið verður raunhæf bein móttaka sjónvarpsefnis frá gerfihnöttum. Þetta er ánægjuefni — menn fá i hendur nýtt og öflugt tæki til að styrkja frið og vináttu milli þjóða, framfarir á sviði menningar- og félagsmála. Sovétrikin hafa jafnan talið mikilvægt, að tryggja að geim- urinn og tæknilegar framfarir séu fyrst og fremst nýtt sem mest i þágu fólks, og hafa þau átt frum- kvæði um ýmsar þýðingarmiklar alþjóðareglur og samninga þar að lútandi. Nú hefur sovétstjórnin borið upp hjá SÞ drög að samþykkt um notkun gerfihnatta til beinna sjónvarpssendinga. Samkvæmt þeim munu aðilar nota slika gerfihnetti i þvi skyni að efla menntunarstig og sam- skipti milli þjóða. f þvi samhengi verður sérstakt tillit tekið til þeirra þróunarlanda, sem lýsa sig fús til að nota þessar sendingar til hvatningar þróun sinni. Geimsjónv. er samt afkvæmi nútimavisinda og tækni, sem hafa ekki aðeins haft blessun i för með sér. I Hiroshima deyr enn fólk sem varð fyrir sprengingu, þegar leystust úr læðingi kraftar sem eru nú orkugjafar i kjarnorkuraf- stöðvum. Af biturri renslu hefur mannfólkið !ært, að mannsandinn getur bæði þjónað guði og djöfli. Spurt er, hvort menn hafi vit og styrk til að koma i veg fyrir seinni möguleikann. Þvi verða lönd, sem gerast aðilar að samþykktinni, að skuld- binda sig til að útiloka frá gerfi- hnattasjónvarpi dagskrár, sem reka áróður fyrir striði, hernaðarstefnu, fasima, þjóða- og kynþáttahatri. I geimsjónvarpi verður ekki rúm fyrir ósiðlegt efni eða efni sem miðar að ihlutun i innanlandsmál annarra rikja eða utanrikispólitik þeirrá. Geimsjónvarpið verður að vera sannmannlegt, halda uppi vörn- um fyrir grundvallarrétti manna og virðugleika einstaklingsins. Aróður fyrir valdbeitingu, hrollverkjum.klámi og eiturlyfj- um verður að útiloka. Geimsjón- varp má ekki nota til að grafa undan þjóðmenningum og þjóð- tungum, eða til að breiða út rangar upplýsingar. Til að ekki sé unnt að reka áróður af þessu tagi nafnlaust eða af óábyrgum aðilum er lagt til að sendingar um gerfihnetti annist aðeins stofnanir sem eru undir rikiseftirlit i. Hvert land, sem undirritar samþykktina, verður að setja reglur til að koma i veg fyrir að sendar séu út dagskrár sem brjóta i bága við hana — hvort sem er frá eigin landi eða frá stöðvum úti i geimnum. Sovétrikin hafa lagt drög sin fyrir 27. Allsherjarþing S.Þ. Þau telja að gerð sliks samnings muni stuðla að jákvæðri Jiróun réttar- reglna um hagnýtingu geimsins,- gagnkvæmum skilningi milli þjóða og að framförum á sviði efnahags- og félagsmála. Boris Bannof. Bandariska upplýsingaþjónustan: Höfum tjáningarfrelsið í heiðri Bandarikin hafa látið i ljós al- varlegaráhyggjur i sambandi við tillögu sein Sovétrikin hafa borið fram hjá Sameinuðu þjóðunum, um að teknar 'verði upp tak- markanir á notkun svokallaðs gerfihnattasjónvarps — þ.e.a.s. sjónvarpssendinga beint frá gerfihnöttum til sjónvarps- notenda. Sendih. Bandarikjanna hjá SÞ., George Bush, lýsti þvi yfir i hinni pólitisku nefnd S.Þ. að hið sovézka samningsuppkast gengi gegn grundvallaratriði, sem Bandarikin og önnur iýðræðisriki legðu mikla áherzlu á/ frjáls skipti á upplýsingum og hug- myndum, þar eð tjáningarfrelsi er forsenda lýðræðislegra stofnana. Bush minnti um leið á það, að gerfihnattasjónvarp væri enn ekki veruleiki. Allar þær aðferðir sem nú eru notaðar við sjónvarp byggja á þvi, að viðtækin fái sendingar frá öflugum stöðvum á jörðu niðri. Sendiherrann taldi, að það mundi liða langur timi — að likindum mörg ár — þar til gerfihnattasjónvarp verður tekið i notkun, þvi að þróun þessa forms sjónvarps er takmörkuð bæði af tæknilegum og fjárhags- legum ástæðum. Þegar samningsdrögin voru lögð fyrir SÞ sagði Malik, fulltrúi Sovétrikjanna, að öll lönd ættu að hafa möguleika á að vernda þegna sina fyrir sjónvarps- sendingum sem tengdar eru glæpum og kynæsingum. Sjálft samningsuppkastið stefnir þó að miklu viðtækara eftirliti með gerfihnattasjón- varpi, þar eð þaö gerir ráð fyrir þvi, að allar beinar sjónvarps- sendingar til annars lands séu bannaðar nema að þær hafi bein- linis verið leyfðar af viðtöku- landinu. Ef leyfi þetta fæst ekki er bannað að senda um gerfihnött, hver sem ástæðan fyrir banninu kann að vera. Samkvæmt sovézka samnings- uppkastinu á að vera bannað að senda nokkuð það um gerfihnetti sem er „ósiðlegs eða ögrandi eðlis” einsog þarstendur. Rússar hafa ekki enn gefið neina nánari skýringu á þvi hvað þeir eiga við með þessari formúlu. Bandarikin hafa svarað þessari tillögu með þvi að hvetja aðrar þjóðir til að ihuga „grundvallar- vandamál” sem upp kunna að koma i sambandi við gerfihnatta- sjónvarp. Meðal þeirra vanda- mála er það, sagði Bush, hvort takmarkanirá tjáningarfrelsi eru yfir höfuð samræmanlegar meginatriðum i mannréttinda- yfirlýsingu SÞ.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.