Þjóðviljinn - 20.12.1972, Page 5
ÞJÖDVILJINN — StÐA 5
í hjarlans lef/inttn
/
hjartans
leynum
eftir BARBÖRU CARTLAND,
einhvern vinsælasta skáldsagnahöfund
kvenþjóðarinnar í dag. Þetta er ástarsaga,
sem gerist meðal brezks hefðarfólks og
bandarískra auðkýfinga. Spyrjið einhvern
sem las „Ást er bannvara“ í fyrra, eftir
AUSTURLANDAHRAÐIISTIN
er eftir Agöthu Christie og hana er óþarft
að kynna. Þetta er flókin morðgáta, sem
leysist ekki fyrr en á síðustu blaðsíðunum,
og eins og venjulega kemur lausn gátunn-
ar lesandanum algerlega á óvart. Fyrir þá
sem vilja spennandi bók er þetta jólagjöfin
HÖRKUSPENNANK SAKAMÁIASAGA
HREYSIKÖTTURINN
eftir E. PHILIPS OPPENHEIM
Þetta er ekta karlmannasaga úr undir-
heimum Lundúna. — Ungur maður, sem
hefur verið í glæpaflokki er tekinn hönd-
um við gimsteinarán og er settur í fangelsi.
Honum þykir hann hafa verið svikinn, og
þegar hann er látinn laus, einsetur hann
sér að koma öllum fyrri félögum sínum
undir lás og slá.
Þrjár þýdd-
ar unglinga-
bækur frá
Snæfelli
Bókaútgáfan Snæfell i
Hafnarfirði hefur gefið út þrjár
jýddar unglingabækur.
Gullborgin á hafsbotni eftir
Victor Appleton er ein af átján
bókum i flokknum Ævintýri Tom
Swifts. Tom Swift er uppfinninga-
maður sem margt er til lista lagt
— i þessari sögu rannsakar hann
hina týndu borg á hafsbotni,
Atlantis. Þýðandi er Skúli Jens-
son.
Frænkurnar fjórar og amma i
Fagradal mun ætlað ungum
stúlkum eins og þar stendur.
Amma er norsk, rik og gömul — á
fjórar dætur i fjórum löndum —
og ákveður að bjóða þeim heim.
Höfundur er Dikken Zwilgneier,
Hörður Zóphoniasson skólastjóri
jýddi.
Ævintýri á Dalseyju heitir bók
eftir Erik Kullerud, sem Þórir S.
Guðbergsson hefur þýtt og endur-
sagt. Segir hún frá nokkrum ung-
um skátum, og óvæntum ævintýr-
um sem að þeim steðja i útilegu.
Reykingar
aukast aftur
í Bandaríkj-
unum
WASHINGTON. Nýlegar skýrsl-
ur herma, að reykingar fari aftur
i vöxt i Bandarikjunum og hafa
þær ekki verið meiri um fjögurra
ára skeið.
Bandarikjamenn, átján ára og
eldri, reykja að meðaltali 202,5
pakka á ári hver. Hér eru með
taldir allir þeir sem ekki reykja,
svo að reukingamenn eru afar
iðnir við puið i þvi landi.
Hámarki náðu sigarettureyk-
ingar i Bandarikjunum árið 1963,
þegar fyrsta var sýnt fram á
samhengi milli reykinga og
lungnakrabba.
Skildu 100
miljónir eftir
á tunglinu
HOUSTON. Bandaríkjamenn
hafa nú skilið eftir sig á tunglinu
andvirði 517 miljóna dala i ýmis-
konar útbúnaði og tækjum.
Apollo-17 skildi eftir sig tæki sem
kosta um það bil hundrað miljónir
dollara.
Alls hefur tunglferðaáætlun
Bandarikjanna kostað til þessa
2,500 miljónir dollara.
Verzlunar-
tíðindi
komin út
Verzlunartiðindi eru nýkomin út
og innihalda meðal annars
greinar eins og Gildi lif —
eyrissjóða i peningakerfinu, eftir
Guðmund H. Garöarsson, Hag-
ræðingaþátt um staðsetningu
söluvarnings i verzlunum. Þá er
sagt frá nýjum verzlunum eins og
verzíuninni Straumnes, Vestur-
bergi 76 og minningargrein er um
Sigurliða Kristjánsson. Skýrt er
frá aðalfundi Verzlunarráðs og
birt er skrá yfir ný fyrirtæki
innan Kaupmannasamtaka
STOKKHÓLMI 7/12 Atta manns
fórust og 15 slösuðust i járn-
brautarslysi um 40 km. frá
Stokkhólmi. Slysið varð um
hádegisbilið á föstudag meö þeim
hætti að hraðlestin frá
Stokkhólmi til Gautaborgar lenti i
árekstri yið lest, sem gengur milli
útborga Stokkhólms
BROSIÐ
SMMnmgu rfUr
KKISTMAXA
«r»Miix»ssox
BROSIÐ
eftir KRISTMANN GUÐMUNDSSON
Saga þessi gerist í sjávarþorpi um síðustu
aldamót. Hún greinir frá foreldralausum
systkinum, er bjuggu þar á jarðarskika.
Þessi saklausu börn verða svo tilefni til
ýfinga milli ákveðinna hópa fólks í þorp-
inu, svo af verður tvísýn barátta inn örlög
þeirra. Með þessari bók kynnumst við
nýrri hlið þessa kunna og fjölhæfa höf-
undar, sem enn mun auka vinsældir hans.
Arfleifð
frumskógarins
eftir SIGURÐ RÓBERTSSON
Þetta er sjöunda bók þessa reynda rithöf-
undar, og fjallar um nútímamanninn og
viðleitni hans til að fylgjast með ham-
skiptum tímans. Efni, sem hverjum hugs-
andi manni er ofarlega í sinni. — Þetta er
því bók fyrir hugsandi fólk.
Málsvari
myrkrahöfðingjans
eftir MORRIS L. WEST
Morris L. West hefur þegar öðlazt stóran
lesendahóp hér á landi, enda rithöfundur,
sem til greina hefur komið við úthlutun
Nóbelsverðlauna. — Áður hafa komið út
á íslenzku þessar bækur hans: Gull og
sandur, Babelsturninn, Sigurinn, og Fót-
spor fiskimannsins. Fleiri eru væntanlegar.