Þjóðviljinn - 30.01.1973, Side 16
Almennar upplýsingar um
læknaþjónustu borgarinnar'
eru gefnar i simsvara
Læknafélags Reykjavlkur,
simi 18888.
Þriðjudagur 30. janúar 1973
Helgar- kvöld- og næturþjón-
usta lyfjabúðanna i Reykja-
vik vikuna 26. januar til 1.
febrúar er i Háaleitis
Apóteki og Apóteki Austur-
bæjar.
Slysavarðstofa
Borgarspitalans er opin all-
an sólarhringinn.
Kvöld-, nætur og helgidaga-
vakl a heilsuvernarstöðinni.
Simi 21230.
Lúðvík Jósepsson:
„Illt verk að koma slíkum
orðrómi af stað” *'*"ITIL
„Gróusögur99 kveðnar niður á alþingi
Bæöi ólafur Jóhannes-
son, forsætisráðherra og
Lúðvik Jósepsson/ sjávar-
útvegsráðherra minntust á
það við umræðurnar á al-
þingi i gær, að „gróusögur"
hafi verið á gangi um það
undanfarna daga, að ríkis-
stjórnin hafi neitað að
þiggja framboðna aðstoð
við björgun í Vestmanna-
eyjum og hafnað boðum
um stuöning frá aðilum er-
lendis.
Ráðherrarnir lýstu þessar
sögusagnir með öllu til-
hæfulausar.
Um það sagði Lúðvík
m.a.: Það er illt verk að
koma slíkum orðrómi af
stað Það hefur engum í
ríkisstjórninni dottið i hug,
að neita að þiggja aðstoð
hvers sem er við björgun í
Vestmannaeyjum, og það
er algerlega rangt, að ríkis-
stjórnin hafi hafnað ein-
hverri f járhagsaðstoð
Tillögu um
bann á
íslenzkan fisk
erlendis frá. Slík aðstoð
verður þegin.
En látum okkur ekki
detta í hug, að við getum
skotið okkur undan að bera
þárna þyngstan bagga
sjálfir.
Lúðvik hóf ræðu sina með þvi
að votta öllum Vestmanna-
eyingum samúö fyrir hönd
Alþýðubandalagsins, og sagði
siðan að rikisstjórnin hafi á öllum
fundum sinum, eða oft á dag
siðan gosið hófst, fjallaö um þann
mikla vanda sem Vestmannaey-
ingar og þjóðin öll ættu nú við að
glima.
Væri það vissulega að vonum,
að mest allt starf rikisstjórnar-
innar hafi undanfarið verið i sam-
bandi við þessi mál.
Rikisstjórnin fól i upphafi
Sýnishorn af „Gróusögum”:
Forsiða Alþýðublaðsins
laugardag.
almannavarnaráði yfirstjórn
allrar öryggisgæzlu og björg-
unarstarfs við hlið bæjarstjórnar
Vestmannaeyja. Þessir aðilar
hafa farið með alla stjórn á björg-
unar- og öryggismálum.
Lúðvik minntist siðan á störf
þeirra nefnda, sem rikisstjórnin
hefur skipað, annars vegar til að
gera sér grein fyrir hinum þjóð-
hagslega vanda, og hins vegar til
að starfa húsnæðismálum og
öðrum félagslegum vandamálum
i samráði við Rauða krossinn.
Siðan vék ráðherrann að þeim
vandamálum er sérstaklega
snúa, að sjávarútveginum sem
höfuðatvinnugrein Vestmannaey-
inga og þjóðarinnar allrar. Ráð-
herrann sagðist hafa átt itarlegar
Frh. á bls. 15
hafnað
LONDON 29/1. — Brezka
stjórnin hafnaði i dag tillögu frá
þingmanni einum um að hvetja
ráðherranefnd Efnahagsbanda-
lagsins til að lýsa islenzkan fisk i
bann vegna landhelgisdeilunnar.
Sir Alec Douglas-Home utan-
rikisráðherra sagði að stjórnin
óskaði ekki eftir þvi að stiga slikt
skref. Samt lét hann að þvi liggja
rétt einu sinni, að árekstrar varð-
skipa og togara gætu leitt til þess
að brezki flotinn yrði sendur á
vettvang.
Erfið byrjuri friðar í Víetnam:
Barizt af hörku þrátt
fyrir vopnahlé
SAIGON 29/1 — Barizt var
af mikilli hörku i Suður-
Vietnam i dag. Tilkynnt
var um að vopnahléð hafi
verið rofið ótal sinnum um
allt land og herstjórnin í
Saigon telur að tala fall-
inna sé um 1800 manns
síðan vopnahléð gekk i
gildi aðfaranótt sunnudags.
1 Kambodju kom einnig til
harðra bardaga enda þótt Lon
Nol, æösti maður herforingja-
arjóenarinnar i Pnomp Penh, hafi
gefið skipun um að stöðva
hernaðaraðgerðir þar á miðnætti
sl.
Talsmenn Saigonstjórnar halda
þvi fram, að Norður-Vietnamar
og Þjóðfrelsishreyfingin hafi
rofið vopnahléð 480 sinnum fyrstu
28 stundirnar eftir að það hófst.
Segja þeir að andstæðingarnir
hafi misst 1000 manns en Saigon-
herinn 800.
Fulltrúar landanna fjögurra
sem taka þátt i störfum alþjóð-
legu eftirlitsnefndarinnar með
vopnahlénu komu saman i Saigon
i dag i fyrsta sinn, en fulltrúar
herja fjögurra styrjaldaraðila
komu einnig á sinn fyrsta fund.
Fluttu tvær vélar frá bandariska
hernum foringja úr her Norður-
Vietnams og Þjóðfrelsishreyf-
ingarinnar frá Hanoi. Þegar
vélarnar voru lentar neituöu for-
ingjarnir að rita undir innflytj-
endapappira Saigonstjórnarinnar
sem fyrir þá voru lagðir og voru
þeir enn um borð i vélunum
mánudagskvöld, átta stundum
eftir að þær lentu. Telja þeir að
með þvi að undirrita pappirana
væru þeir að viðurkenna stjórn-
ina i Saigon.
Bandariskar flugvélar halda
áfram lofárásum á Laos, að þvi
er talsmaður Bandarikjahers
sagði i dag. Hann sagði og, að
nolckrir tundurduflaslæðarar
væru á leiö til stranda Noröur-
Vietnams að hreins upp þau
tundurdufl, sem þar hefur verið
lagt.
ALÞYÐUBANDALAGIÐ
Umræöufundur Alþýðubandalags-
ins um Þjóðviljann
Fjórði umræðufundur Alþýðubandalagsins i
Reykjavik verður haldinn næsta fimmtudags-
kvöld að Grettisgötu 3.
Umræðuefnið er Þjóðviljinn og er Svavar
Gestsson ritstjóri málshefjandi.
Fyrri fundir hafa verið mjög fjölsóttir.
Frá Alþýðubandalaginu:
Viðtalstimi borgarfulltrúa Alþýðubandalagsins er á morgun, mið-
vikudagjkl. 5-7 siðdegis að Grettisgötu 3.
Miðstjórnarfundur Alþýðubandalagsins annað kvöld, miðvikudag kl.
20:30 að Grettisgötu 3. Rætt verður um aðgerðir rikisstjórnarinnar
vegna eldgossins i Vestmannaeyjum og önnur mál, sem nú liggja fyrir
alþingi.
Árshótíð AB í Kópavogi
Arshátið Alþýðubandalagsins i Kópavogi verður haldin laugardaginn
3. febrúar og hefst kl. 19.30.
Þorraniatur á boðstólum. — Góð skemmtiatriði. — Hljómsveitin
„Trió 72” leikur fyrir dansi.
Upplýsingar og miðapantanir i sima 40853, 41279 og 41794.
AB Kópavogi.
SAFNANIR I GANGI
Á NORÐURLÖNDUM
Samband sveitarfélaga i
Danmörku hefur sett á
laggirnar nefnd til að
gangast fyrir fjársöfnun
fyrir Vestmannaeyinga.
Nefndin er skipuð fjórum
bæjarstjórum og mun hún
hafa samráð við islenzku
ríkisstjórnina og fulltrúa
frá Vestmannaeyjum.
Færeyingar hafa þegar
efnt til fjársöfnunar og
Utanríkis-
ráðherra
kominn frá
Bandaríkjunum
Einar Agústsson utanrikisráð-
herra kom heim frá Bandarikjun-
um um helgina, frá viðræðum
sinum við stjórnvöld þar um það,
á hvern veg háttað skuli viðræð-
unum um brottflutning varnar-
liðsins.
standa að henni 23 atvinnu-
fyrirtæki og félög. Lög-
þingið í Færeyjum hefur
einnig samþykkt að veita
fjárhagsaðstoð.
Leitað að
leynisjúkra-
húsi IRA
BELFAST 29/1. — Brezkar
sveitir byrjuðu i dag mikla leit að
leynilegu sjúkrahúsi Irska lýð-
veldishersins. Talið er að þangað
hafi verið fluttar átta leyni-
skyttur sem særðust i skotbar-
daga við brezka hermenn i Bel-
fast i gærkvöld.
Leyniskytturnar skutu um 1000
skotum á brezka hermenn á ýms-
um stöðum i Belfast meðan
kaþólskir menn fóru þúsundum
saman um götur Londonderry til
að minnast þess að ár er liðið
siðan brezkir hermenn skutu þar
13 manns til bana.
Rikisstjórnir Noregs, Dan-
merkur og Sviþjóðar munu biða
átekta.
A laugardag hélt Norsk-
islenzka félagið i Osló fund og var
þar ákveðið að efna til Vest-
mannaeyjasöfnunar um allan
Noreg. Sænsk-islenzka félagið i
Sviþjóð og Dansk-islenzka félagið
i Danmörku munu einnig efna til
fjársöfnunar með svipuðu sniði.
Samband samvinnufélaga i
Noregi hefur ákveðið að gefa 100
þúsund krónur nocskar, eða um
eina og hálfa miljón isl. króna.
NORÐURLÖND AÐ-
STOÐI EYJAMENN
STOKKHÖLMI 29/1. — Olof Lagercrantz skáld og ritstjóri sænska
stórblaðsins Dagens Nyheter skrifar forsiðugrein og leiðara i blað sitt i
dag, þar sem hvatt er til þess að Norðurlönd öll komi Islandi til aðstoð-
ar vegna náttúruhamfaranna i Eyjum. Segir Lagercrantz á þá leið, að
Norðurlandamönnum beri pólitisk og siðferðileg skylda til að liðsinna
Islendingum.
Afmœlishóf
vegna Skúla
í kvöld
Það er i kvöld, þann 30.
janúar, sem hann Skúli á Ljót-
unnarstöðum verður sjötugur.
Nokkrir vinir hans munu
gangast fyrir samsæti honum
til heiðurs I Atthagasal Hótel
Sögu i kvöld, og hefst samsæt-
ið klukkan hálf niu.
Þeir sem vilja taka þátt i
hófi þessu, eru vinsamlega
beðnir að hafa samband við
einhvern eftirfarandi aðila:
Blindrafélagið, Hamrahlið
17, simi 38180,
Pétur Sumarliðason, simi
41522.
Rósu Þorsteinsdóttur, simi
36433.
Torfa Jónsson, simi 36363Ú
Þórunni Magnúsdóttur, simi
17952.