Þjóðviljinn - 27.03.1973, Page 3
Þriðjudagur 27. marz. 1973, ÞJÓÐVILJINN — StÐA 3
húsmœður til að
íslenzkar vörur
Sveitakonurnar undirrita álit það sem þser komu með austan úr Arnessýslu i gær.
25 sveitakonur mótmæla mótmœlum Reykjavíkurkvenna:
Hvetja
kaupa
Þegar tiðindamaður blaðs-
ins gekk sig niður i alþingishús
I gær um klukkan eitt að koma
sér vel fyrir á þingpöliunum til
að geta sagt útarlega frá mót-
mælum Reykviskra „hús-
mæðra” var þar fyrir hópur
kvenna, og ekki aldeilis
Reykjavikur-húsmæður, held-
ur 25 bóndakonur austan úr
Arnessýslu. Hverji ætli þær
hafi svo verið að mótmæla?
Nánar tiltekið voru konur
þessar úr þrem hreppum, Vill-
ingaholtshreppi, Hraungerðis-
hreppi og Skeiðahreppi.
Hverju mótmælið þið?
spurðum við konurnar.
Jú, þær voru að mótmæla
mótmælum reykviskra
kvenna vegna hækkunar land-
búnaðarafurða.
— Við komum hingað til að
leggja fram okkar sjónarmið,
sögðu konurnar. Við erum
ekki ánægðar með þann mál-
flutning reykviskra kvenna,
að mótmæla eingöngu hækkun
á landbúnaðarvörum, i stað
þess að mótmæla þá almenn-
um verðhækkunum. Við vilj-
um meina það, að land-
búnaðarvörur hafi hækkað
minna en margt annað.
Við erum bóndakonur, og
þar af leiðandi fá okkar heim-
ili ekki þær bætur sem felast i
þvi að landbúnaðarvörur séu
niðurgreiddar, en önnur
heimili en sveitaheimili njóta
þeirra niðurgreiðslna.
Okkur finnst mikið nær að
mótmæla kaupum á brezkum
og v-þýzkum vörum, og láta
vera að kaupa þær á meðan
ekki hefur náðst samkomulag
i landhelgisdeilunni.
Það er nærri okkur höggvið
að ræða eingöngu um, að land-
búnaðarvörur hafi hækkað, en
i auglýsingum Reykjavikur-
kvennanna i blöðum, útvarpi
og i sjónvarpi beinist allt gegn
framleiðslu okkar.
— Standa einhver félaga-
samtök að baki þessari hóp-
ferð hingað suður?
— Nei, við tókum okkur
saman nokkrar á sunnudag-
inn, sin úr hverri áttinni, og
fórum á nokkra bæi þvi okkur
gafst ekki timi til að fara viða.
Alls staðar sem við komum
tóku konur þvi vel að koma
suður, og konur eru hér af öll-
um þeim bæjum sem við
heimsóttum, nema þar sem
veikindi eða ungbarnagæzla
kom i veg fyrir að konurnar
gætu brugðið sér i burtu.
Þess vegna teljum við okkur
tala fyrir munn þeirra bónda-
kvenna sem heima sitja.
Það er rétt að minna á að við
leggjum áherzlu á það, að við
hvetjum allar konur til að
kaupa islenzkar vörur i stað
erlendra þegar innlendu vör-
urnar eru sambærilegar að
verði og gæðum. — úþ
Nær er að hætta að kaupa
brezkar og v-þýzkar vörur
segja sveitakonur, sem líka fjölmenntu á palla alþingis
•)•)
Þúsund
börnum úr
Eyjum
boðið
til Noregs
Eins og áður hefur komið fram i
fréttum, stóð til að bjóða börnum
úr Vestmannaeyjum til Noregs á
sumri komanda. Nú hefur endan-
lega verið gengið frá þessu máli
og á þann veg að öllum börnum úr
Vestmannaeyjum,frá 8 ára til 15
ára aldurs, hefur verið boðið
þangað i sumar. Þetta munu vera
um 1000 börn ef öll þiggja boðið.
3 aðilar i Noregi standa i sumar
fyrir boði til barna frá Vest-
mannaeyjum um ferð til Noregs
og dvöl þar i 1/2 mánuð, með
milligöngu Rauða kross íslands.
Þessir aðilar eru Norsk Islandsk
samband, Islendingafélagið og
Rauði kross Noregs. Börnin,sem
boðið er, eru öll þau börn frá
Vestmannaeyjum, sem fædd eru
á árunum 1958-1965 og eru engir á
þeim aldri undanskildir. Allar
ferðir og uppihald er fritt.i
Flutning barnanna til og frá
Noregi annast Flugfélag Islands
og Loftleiðir. Vel verður fyrir
börnunum séð meðan á dvöl
þeirra i Noregi stendur, en
dvalarstaðir þeirra eru þegar
ákveðnir 4 og standa þeir allir I
fallegu norsku umhverfi. Þessir
staðir eru hús íslendingafélagsins
við Norefjell, en það er alveg nýtt |
og verður notað i fyrsta sinn nú i i
sumar, Husebyvangen er fenginn
aðlánihjá norskum liknarfélögum
fyrir tilstilli Hans Höegh,
Hövringen er frá Den Norske
Fjellskole og svo hefur norska
kennarasambandið lánað sumar-
dvalarheimili sitt, sem heitir
Tranberg. Staðir þessir hafa allir
góða aðstöðu til fjölbreytilegs úti-
lifs. Verkefnin, sem eru á dags-
skránni i sumar, eru m.a. skóga-
og fjallaferðir, bátsferðir á nær-
liggjandi vötnum, heimsóknir á
sveitabæi, skoðunarferðir um
nágrennið og til Osló, útreiða-
trúrar, kvöldvökur og fleira. Með
hverjum hóp er þjálfað fólk frá
Noregi, sem hefur að baki
margra ára starf við slikar
sumarbúðir. Einnig verður einn
Islendingur með hverjum hóp,
sem túlkur og félagi og er ætlunin
að nýta islenska námsmenn i
Noregi til starfans. Börnunum
verður skipt i 3 aldurshópa, 8-11
ára, 11-13 ára og 13-15 ára. A öll-
um stöðunum er aðstaða til
heilsugæzlu og föst sambönd eru
við lækna og sjúkrahús.
Þessa dagana er verið að senda
út umsóknareyðublöð með nánari
upplýsingum. Dreifing þeirra fer
fram gegnum skólana og með
pósti. Þau Vestmannaeyjabörn,
sem ekki verða búin að fá eyðu-
Frh. á bls. 15
falþór enn
á strandstað
Valþór GK 25 liggur enn á
strandstað við Stekkjarhamra, en
þar strandaði hann aðfaranótt sl.
laugardags. 1 gær átti að reyna að
ná skipinu út á flóðinu siðdegis,
en Valþór mun algerlega
óskemmdur.
Skipið fékk netadræsu i
skrúfuna og rak stjórnlaust upp i
klappirnar en skipshöfnin gat
stokkið i land án aðstoðar.
Hækkanir
A fundi verðlagsnefndar
hinn 19. þ.m. voru heimilaðar
eftirfarandi hækkanir á verð-
lagi:
Taxti sérleyfishafa 25%,
taxti rakara 10%, 20% hjá
þvottahúsum og efnalaugum,
20% taxti hjá bilaleigum,4-5%
hækkun á fiskbúðingi og fisk-
bollum, 16% hækkun á taxta
hárgreiðslukvenna.
Það var óvenjuleg sjón,
sem gaf að líta á pöllum
alþingis i gær. Hvert sæti
var skipað af konum, og
var þarna um að ræða 2
hópa, annan frá félagsskap
sem kallar sig Húsmæðra-
Jónas Arnason
félag Reykjavíkur og var
kominn til að mótmæla
verðhækkunum á land-
búnaðarvörum, en hitt voru
bændakonur, sem komu
austan úr Árnessýslu til að
láta í Ijós það álit sitt, að
skynsamlegra væri að
hætta að kaupa vörur frá
þeim þjóðum, sem fara
með ránum í landhelgi
okkar,en að hætta kaupum
á íslenzkum landbúnaðar-
vörum.
Við upphaf fundar i neðri deild
alþingis kvaddi Jónas Arnason
sér hljóðs og kvaðst hafa verið
beðinn að koma á framfæri
ályktun þeirri, sem bænda-
konurnar höfðu meðferðis til
Reykjavikur. Jónas fylgdi
ályktun kvennanna úr hlaði með
nokkrum orðum, en siðan urðu
miklar umræður utan dagskrár
um verðlagsmálin almennt og
stóðu þær allan reglulegan
fundartima alþingis.
Ályktun kvenna úr
Árnessýslu
„Við undirritaðar konur úr
Árnessýslu viljum með nærveru
okkar hér kynna sjónarmið
okkar. Það er staðreynd að land-
búnaðarvörur hafa ekki hækkað i
verði meira en aðrar vörur. 1
mörgum tilfellum hafa þær
hækkað minna en erlendar vörur.
Fiskur hefur hækkað örar en kjöt
og heildarhækkun hans er meiri
en á kjöti. Mjólk er ennþá ódýr
neyzluvara, ef miðað er við
næringargildi og verð hennar og
annarra drykkja. Vegna mikilla
niðurgreiðslna á mjólk, hafa
mjólkurframleiðendur fengið
hærra verð fyrir mjólk sina en
söluverð hennar út úr búð.
Neyzlumjólk bænda er þvi dýrari
en annarra landsmanna. Þetta
eru staðreyndir, sem öllum ættu
að vera ljósar. Samt sem áður
gerist það undarlega, að nokkrar
húsmæður i Reykjavik skora á
fólk að hætta að borða land-
búnaðarvörur, en neyta i staðinn
„dýrari og óhollari fæðu” (orða-
lag þeirra sjálfra). Við sveita-
konur, sem vinnum að fram-
leiðslustörfum jafnframt hús-
móðurstörfum, litum svo á, að
þarna sé verið að ráðast á okkar
stétt af þeim sem sizt skyldi.
Þessar konur eru að visu sjálf-
Frh. á bls. 15
Ákvörðun um bœtur til
Eyjamanna vœntanleg
Vestmannaeyingar á Suður-
iandi boðuðu til fundar i Sel-
fossbiói á laugardag. Mikið
fjölmenni var á fundinum, og
þurftu sumir að sitja á gólfinu,
þvi sæti hússins dugðu ekki til.
A fundinum voru rædd hin
margvislegu vandamál
Eyjamanna. Til máls tóku
meðal annarra Guðlaugur
Gislason, Gisli Gislason,
Garðar Sigurðsson og Jón
. Hjaltason. A fundinum kom
fram, að reglugerð um Við-
lagasjóð, og þá bætur til Vest-
mannaeyinga,er væntanleg á
næstunni.
Fundurinn gerði samþykkt
um bætur til Eyjamanna
vegna eignataps. Einnig var
samþykkt tillaga, þar sem
skorað er á ráðamenn að hefj-
ast nú þegar handa við að láta
gera raunhæfar kannanir á
staðsetningu nýrrar hafnar
við Suðurströndina. — úþ