Þjóðviljinn - 08.04.1973, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 08.04.1973, Blaðsíða 4
4 SlÐA — þJAÐVILJINN Sunnudagur 8. aprll 1973. Seyöfiröingar tóku Seyðf irðingar tóku aldeilis við sér á sunnu- daginn var og fengum við Halldór margar upp- hringingar bæði héðan úr bænum frá gömlum Seyðfirðingum og að austan. Bæði mynd nr. 4 og nr. 5 reyndust vera þaðan. Eins og þeir muna, sem fylgjast meö þessum mynda- þætti, kom engin skýring fram á mynd nr. 4 i fyrra skiptið sem hún birtist, en margir, sem hringdu nú, sögðu eitt- hvaðá þessa leið: — Ég þekkti þetta strax. En það var bara svo augljóst, að mér datt ekki i hug að hringja! Og svo gaf enginn sig fram. En þegar hún birtist aftur rann blóðið til skyldunnar og kom fram, að húsin með skritnu útbyggingunni voru kölluð Liverpool og bryggjan fyrir framan, sem seglskipið liggur við, Liverpoolbryggja. Á myndinni sésl innyfir Old- una — fyrir snjóflóð, nefndu sumir, — og innað Botnum og Dagmálalæk. A mynd nr. 5, þar sem konan er við fiskþvottinn, sjást Botn- arnir einmitt mjög vel og Dag- málalækur i brekkunni hægra megin. Rétt er að taka fram, sem gleymdist siðast, að sneitt er af myndinni efst i horninu til hægri, og þetta er ekki fjallsbrún, eins og kann að virðast. Þetta þvældist fyrir sumum, sem áttu ekki von á brún þarna. Konan er ekki að vaska fiskinn við sjó, heldur á, Fjarðará, og bærinn hinum megin heitir Hólmi og stendur enn og mun Sveinn Ben. eiga þetta hús. Hólmi var byggður 1895. Einhverjir gizk- uðu á, áð myndin væri tekin frá húsi, sem heitir Elverhöj, nú Vesturvegur 3, en einn nú- verandi Seyðfirðinganna sagði. að hún væri fremur tek- in rétt hjá, frá Vesturvegi 11 og mætti þar við ána enn sjá smávik, sem hefur verið hlað- in upp. Vindlagerðina á mynd 6 hefur enn ekki tekizt að stað- setja. en enn er gizkað á Thomsens Magasin, þar sem vitað er að var rekin vindla- gerð. Einhverjir þeirra, sem þar unnu, h'.jóta enn að vera á lifi og geta skorið úr um þetta. 1 sambandi við verzlunar- myndina nr. 3, benti einn les- enda okkur á, að i gömlum Óðni væri að finna ýmsar myndir úr Thomsens Maga- sini og fleiri verzlunum og mikið rétt! Þar var þessi mynd einnig og reyndist vera úr svonefndri basardeild Thomsens Magasins. Ljós- myndari er Pétur Brynjólfs- son. Þvi miður var þar ekki mynd úr vindlagerð Thomsens lika. Myndirnar, sem við leitum eftir skýringum á i dag eru hvor sins eðlis, önnur af vinnuflokki, greinilega i nánd við Reykjavik, hin einhvers- staðar utan af landi. Hvaða vinnuflokkur er þetta á mynd nr. 7? Hvað var verið að gera þarna. Hvenær? og Þekkist nokkur af mönnun- um? Hver tók myndina? Ekk- ert er um hana vitað i safninu. Hvaða kirkjustaður er þetta á mynd nr. 8? Getur nokkur gizkað á, hvenær myndin muni tekin? Liklega hefur Magnús Gislason tekið mynd- ina, þó er það ekki vist. Eins og fyrr biðjum við les- endur að hafa samband við annað hvort Halldór Jónsson safnvörð i Þjóðminjasafninu, þaðan sem allar þessar gömlu myndir koma, i sima 13264, eða Vilborgu Harðardóttir, blaðamann Þjóðviljans, i sima 17500. Bréf eru lika vel þeg- in. —vh 111 Hvorki kommar né brún- stakkar Blaðinu hefur borizt fundar- samþykkt samtaka sem nefnast Þjóðernishreyfing Islendinga en þau samtök stóðu fyrir göngu að brezka og vestur-þýzka sendiráð- inu fyrir nokkrum vikum. ,,,Á fundi Þjóðernishreyfingar ts- lendinga 17/3 s.l. var eftirfarandi samþykkt: ,,Vegna orðróms sem upp hefur komizt um að Þjóð- ernishreyfing Islendinga aðhyll- ist stefnu kommúnista eða jafnvel nazista vill Þjóðernishreyfing ts- lendinga taka fram að þetta er al- gjörlegaúr lausu lofti gripið, og á ekki við nein rök að styðjast. Þ.h.t, harmar, að þessi orðróm- ur skyldu komast á kreik og von- ar að þetta leiðréttist hér með. Þ.h.t. eru friðsamleg samtök unglinga á aldrinum 15-20 ára, sem bera hag fósturjarðarinnar, fremur öðru fyrir brjósti. Til staðfestingar á þvi, má benda á 9. gr. stefnuskrár Þ.h.t. þar sem segir: „Þ.h.I. stefnir að þvi að innræta tslendingum virðingu fyrir landi sinu, fána og þjóð.” ” Virðingarfyllst Þjóðernishreyfing tslendinga. Tveir fyrir- lestrar um Ameríku- ferðir Prófessor dr. phil. Ingrid Semmingsen frá Sagnfræðistofn- un Oslóarháskóla mun flytja tvo opinbera fyrirlestra i boði Heim- spekideildar Háskóla íslands. Fjalla þeir báðir um útflutninga fólks frá Norðurlöndum til Ame- riku. Fyrri fyrirlesturinn nefnir prófessor Semmingsen: Utvand- ringen fra Norge i nordisk per- spektiv, en hinn siðari: Utvand- ring fra Norden — et emne for sosialhistorisk forskning? Fyrirlestrarnir verða fluttir i I kennslustofu Háskólans mánu- daginn 9. og þriðjudaginn 10. april n.k., og hefjast þeir báðir kl. 17.15. öllum er heimill aðgangur að fyrirlestrum þessum. 4940 til landsins í marz Blaðinu hefur nýlega borizt skýrsla frá útlendingaeftirlitinu um komu farþega til landsins i marzmánuði. Þar kemur fram að samtals hafa komið til landsins með skip- um og flugvélum 4940 manns. Skipaferðir hafa nú að þvi er virð- ist algerlega gefizt upp i sam- keppninni við flugvélarnar þvi aðeins 26 komu sjóleiöina til landsins, afgangurinn kom með flugvélum. t mánuðinum voru flestir að- komumennirnir frá Bandarikjun- um eða réttir 1800 talsins og slógu þeir landann út, þvi tslendingar voru 1702. Af öðrum þjóðum ber hæst Vestur-Þjóðverja sem voru 227 og Breta en þeir voru 223. Þeir virðast ófeimnir að koma hingað þó þeir eigi i striði við oss mör- landa. Næstir komu Norður- landabúar: 192 Danir, 148 Norð- menn og 116 Sviar. Aðrar þjóðir áttu færri en 100 fulltrúa hérlend- is i næstliðnum mánuði. Af fjarlægum þjóðum sem sendu hingað þegna sina má nefna Yemen. Trinidad, Chile, Costa Riea, Guatemala, Venezu- ela, tran og Indland. Þá rak hér á fjörur fimm Kinverja, 6 Norður- Kórverja og þrjá sem hvergi eiga rikisfanga. En alls komu til landsins 3238 útlendingar frá 46 þjóðlöndum. — ÞH

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.