Þjóðviljinn - 03.06.1973, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 03.06.1973, Blaðsíða 1
Fjölmiðlastríð í landhelginni Hvað kom fyrir Þór í fyrrakvöld? [ frétt frá norsku frétta- stof unni NTB frá því í gær- morgun segir að tvær brezkar freigátur hafi hrakið varðskipið Þór á brott frá nokkrum hópi brezkra togara, sem verið hefðu á veiðum á svipuðum slóðum og ráðizt var á Ár- vakur í gær. Er fréttin höfð eftir „islenzka fréttamanninum ölafi Geirsson” sem hafi flogiö yfir viðkomandi svæði i nótt. En Hafsteinn Hafsteinsson hjá landhelgisgæzlunni hafði þau svör uppi i gærmorgun, að frétt ! þessi væri uppspuni einn. 1 áðurnefndri frétt var þvi hald- ið fram, að Þór hefði nálgazt Hull- togarann Lucida og bersýnilega ætlaö að skera á togvira hans. Hafi önnur brezk freigátan þá þröngvað sér á milli Þórs og tog-1 arans. Um leiö hefði þyrla hafizt á loft frá hinni freigátunni og hafi hún — að þvi er bezt veröur séö af nokkuö svo brenglaðri ffett — farið að fitla við fallbyssurnar. Hafi þá Þór snúið undan. Sem fyrr segir taldi Hafsteinn Hafsteinsson þessa frétt hina hæpnustu, þótt vera kunni aö það hafi mátt sjá úr lofti aö Þór væri á siglingu og ,,aö tvær freigátur fylgdust með honum”. Árvakur, sem siglt var á I gær- morgun, kom til Seyöisfjarðar i gærkvöldi og hélt þaöan siðan. Brezkir fjölmiölar hafa i morgun skrifað i þá veru, að tslendingar hafi sett á svið þann árekstur vegna þess að þeir hafi viljað nota tækifærið til að negla athygli er- lendra blaðamanna við málið meðan þeir biðu eftir fundarslit- um hjá þeim Nixon og Pompidou. Auk þess segja brezku blöðin, aö islenzk stjórnvöld hafi matað blöðin á mjög ýktum upplýsing- um um skemmdir þær sem urðu á Árvakri. Ráðstefna haldin um öryggismál Evrópu Hinn 4. til 6. þ.m. verður haldin, á hótel Loftleiðum i Keykjavik, ráöstefna um öryggismál Evrópu. Ráðstefnan er haldin að frumkvæði um 40 alþjóðlegra félagasamtaka sem ákváðu á sameiginlegum fundi um miðjan maí sl. að ræða evrópsk öryggis- mál i Reykjavik. Meðal samtaka sem feaðuðu til ráðstefnunnar má nefna heims- friðarráðið, alþjóöanefnd um öryggismál, alþjóðasamband sameinuðu þjóða félaga og fleiri. A ráðstefnunni verða um 50 erlendir gestir frá flestum löndum Evrópu, þar á meðal Hvað sagði pólski ráð- herrann um landhelgina? Vegna frétta, sem birzt hafa nýlega, þar sem vitnað er til um- mæla hr. Szopa, siglingamála- ráðherra Póllands, um afstööu ara Reuters verða kynnt yður af hr. Godek, sendifulltrúa, sem er á leið til Reykjavíkur.” Hr. Godek hefur nú greint utan- rikisráðherra frá málsatvikum. (Frá utanrikisráðuneytinu) Grænlandi, Færeyjum og Norður- löndum. Islenzkir fulltrúar á ráð- stefnunni verða 13. Meðal gest- anna af Noröurlöndum verða Finn Gustavsson, formaður sósíallska þjóðarflokksins i Noregi, Sigmund Kvalhöj, lektor i vistfræði við dýrafræöideild háskólans i Osló, og Paul Dann, þingmaður sósialiska þjóðar- flokksins i Danmörku. A ráðstefnunni verður m .a. rætt um undirbúning öryggisráðstefnu Evrópu i Helsinki, um möguleika á breyttu öryggiskerfi Eyrópu, um skilyrði fyrir takmörkunum vigbúnaðar og um afvopnun i Evrópu Þá verður fjallað um friðlýsingu Norður Atlanzhafsins. Framhald á bls. 19 Heimsmarkaðsverð á hráolíu hækkar pólsku rikisstjórnarinnar til út- færslu islenzku fiskveiðiiögsög- unnar hefur utanrikisráðuneytið haft samband við hr. Nowa- kowski, ráðuneytisstjóra i pólska utanrikisráðuneytinu, og fengið frá honum svofelldar upplýsing- ar: „Staðfestum móttöku á sim- skeyti yðar. Afstaða okkar hálfu i viðtölum við Einar Agústsson, utanrikisráðherra, er óbreytt. Svör, sem höfð eru eftir Szopa, ráðherra á blaðamannafundi hafa af ásettu ráði verið rang- túlkuð. Einstök atriði hinna brengluðu upplýsinga fréttarit- GENF 2/6 — Fulltrúar helztu oliuframleiðslulanda og fulltrúar vestrænna oliufélaga undirrituðu i dag snemma samning um verð- hækkun á hráoliu sem nemur 11,9%. Tekur verðhækkun þessi þegar gildi. Var þetta tilkynnt i Genf i dag. Verðhækkunin er fóðruð sem upp- bót fyrir þau skakkaföll sem doll- arinn hefur orðið fyrir að undan- förnu. Er hækkunin reiknuð frá þvi hráoliuverði sem i gildi var þann fyrsta janúar s.l. Viðmælendur höfðu setið á ströngum viðræðufundum vikum saman áður en þeir náðu sam- komuiagi. Aðalfulltrúar oliulanda eru löndin við Persaflóa og svo Lýbia, en Venezuela, Alsir og Indónesia höfðu áheyrnarfulltrúa á fundinum. Ekki er vitað enn hve mikil bein áhrif á oliu- og bensin- verð i Evrópu þessi hækkun hef- ur. Samkomulagið gildir til 2 1/2 árs. Austin Laing fékk orðu LONDON 2/6 — Elisabet Bretadrottning hefur útnefnt forstjóra sambands brezkra togaraeigenda, Austin Laing, „kommandör hins brezka heimsveldis” (CBE). Liggur beinast við að ætla að Laing hljóti þessa upphefð fyrir frammistöðu sína i þorska- striðinu. Ásamt honum fékk hópur frægðarmanna úr ýms- um greinum orðuna, ,en nafn hennar er reyndar eitt af fáum dæmum um, að hugtakið „Brezka heimsveldiö" (British Empire) sé notað enn opinberlega. r Asiglingu mótmælt Einar Ágústsson, utanrikis- ráðherra kallaði i morgun á sinn fund John McKenzie, sendiherra Bretlands og bar fram við hann harðorð mót- mæli islenzku rikisstjórnar- innar vegna ásiglinga dráttar- bátsins Irishman og brezkra togara á varðskipið Árvakur. (Utanrikisráðuneytið) Þjóðviljinn fjörutíu síður í dag Þjóöviljinn er fjörutiu siður að stærð i dag, tuttugu siðna aöalblaö og tuttugu síðna aukablað. Aukablaöiö er gefið út I tilefni sjómannadagsins og fjallar uin málefni sjómanna og sjávarútvegs. Mestan heið- ur af aukablaðinu á úþ og brá hann sér n i. í túr á rækjubát til cfnisöflunar. Einnig er að finna I þvi vertiðaryfirlit og greinar frá ýmsuin sjávar- plássum úti um land. Norsk-íslenzkur fundur i dag kl. 14.30: Fundur með Finn Gustavsen Lúðvík og Sigmund Kvalöj .1 dag kl. 14,30 efnir Al- þýöubandalagið til almenns fundar i Þjóðleikhúskjallaran- um um norsk og islenzk stjórnmál. Kinn Gustavsen. formaður Sósialiska alþýðuflokksins, SF i Noregi, ræðir um útfærslu landhelginnar á Islandi og i Noregi, um Efnahagsbanda- iagið og útlitið i norskum stjórnmálum, en þar verða kosningar i haust og kosninga- slagurinn að komast i al- gleyming. Sigmund Kvalöy loktor i ökofilosofi (vistheimsp.) við Dýrafræðideild óslóarhá- skóla, ræðir um vistkreppuna og hlutverk smáþjóða, en hann hefur verið væði i orði og verki einn helzti forystumaður Norðmanna i náttruverndar- málum, og er itarleg og mjög athyglisverð grein eftir hann i seinasta hefti Samvinnunnar. J>úðvik Jósepsson, sjávarút- vegsráðherra, verður á fund- inum og svarar fyrirspurnum um seinustu atburði i land- helgismálinu. Fundarstjóri verður Ragnat Arnalds. Að framsöguræðum loknum verður orðið gefið frjálst og Norðmennirnir svara fyrir- spurnum ásamt Lúðvik, eftir þvi sem tilefni gefast til. Fundurinn er öllum opinn og kaffiveitingar á staðnum. Finn Gustavsen Lúðvík Jósepsson

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.