Þjóðviljinn - 03.06.1973, Blaðsíða 20
UOBVIUINN
Almennar upplýfeingar ura
læknaþjónustu borgarinnar'
erú-gefnar í simsvara Lækna-
félags Reykjavikur, slmj,
18888. ,
Sunnudagur 3. júni 1973.
Nætur-, kvöld- og helgarþjón-
usta lyfjabúðanna vikuna 1.-7.
júni er i Vesturbæjarapóteki og i
Háaleitisapóteki.
Slysavarðstofa Borgarspital-
ans er opin allan sólarhring-
1nn.
'Kvöld-, nætur og helgidaga-
vakt á heilsuverudarstöðinni.
Simi 21230.
Feðgarnir tóku
sanian landspróf
Og ætla svo ef til vill
saman í menntaskóla
Þegar gagnfræðaskólanum í
Mosfellssveit var slitið sl. föstu-
dag, kom I ljós að feðgar höfðu
þreytt saman landspróf og
staðizt það báðir með sóma. Og
þar sem það er alls ekki
algengt, ef þetta er þá ekki bara
einsdæmi að feðgar taki lands-
próf samtimis, þá tókum við þá
feðga tali og spurðum þá og
einkum föðurinn Úlf
Ragnarsson starfsmann á
Reykjalundi, hvers vegna hann
hefði farið að taka landspróf
33ja ára gamall?
— Ja, ástæðan er fyrst og
fremst sú að fjölskyidan var að
skora á mig að gera þetta og svo
það að sonurinn var i landsprófi.
Það var ekki ákveðið að ég tæki
þetta próf fyrr en rúmum
mánuði áður en prófin hófust
þannig að timinn hjá mér var
ekki mikill. Þetta gekk þó, þvi
að ég fékk (i,4 I aðaleinkunn.
— Ætlarðu svo I mennta-
skóla?
— Mig langar mikiö til þess
og kannski reynir maður að lesa
utanskóla en auðvitaö get ég
ekki hætt að vinna. Annars hef
ég alltaf séð eftir þvi að Ijúka
ekki landsprófi á sinum tima en
þá nennti ég þvi ekki, þvi miður.
Kn það er ósköp gaman að þetta
skyldi takast.
— Og sonurinn, Karl Úlfsson,
ætlar þú I menntaskóla?
— Já, ég hef hugsað mér það.
— Hvernig var svo aö hafa
föður sinn með sér I prófunum?
— Það var ekkert að þvl,
þetta var anzi gaman.
Það yrði þá saga til næsta
bæjar, ef þessir námfúsu feögar
ættu eftir að taka stúdentspróf á
sama tima eftir 4 til 5 ár.
Þess má svo að lokum geta að
140 nemendur stunduðu nám við
gagnfræðaskólann I Mosfells-
sveit og þar af luku 25 gagn-
fræðaprófi, 11 landsprðfi og
tveir tóku landspróf utan skóla
og einn gagnfræðapróf. Hæstu
einkum yfir skólann hlaut Kol-
brún Haraldsdóttir, 9,19,en hún
varf2. bekk. —S.dór.
~m-----------------------►
Feðgarnir Úlfur Ragnarsson og
Karl úlfsson.
Gefum blaðinu andvirði
1000 hálfsársáskrifta!
Fjársöfnun í formi gjafaáskriftameð
tvennt í huga: nútíð og framtíð!
Þvi er ekki að leyna, að einmitt
um þessar mundir er Þjóðviljinn i
miklum fjárhagsvanda staddur:
vanskilaskuldir, sem nema um 2
milj. kr. hafa safnazt fyrir i
vetur, og verður nú ekki undan
þvi vikizt að ná saman þessu fé á
næstu vikum, ef blaðið á ekki að
stöðvast.
Nú er i gangi almenn áskrif-
endasöfnun og er að þvi stefnt að
fá a.m.k. 1000 nýja áskrifendur á
árinu 1973, en það myndi verulega
bæta fjárhagsstöðu blaðsins. Með
2000 nýjum áskrifendum væru
fjármál blaðsins hins vegar
komin á allt annan og heilbrigðari
grundvöll, og að þvi marki verður
stefnt á árinu 1974.
Til þess að ná þessu takmarki —
að bæta við 2000 áskrifendum á
tveimur árum — er nú að hefjast
auk hinnar almennu áskrifenda-
söfnunar sérstök söfnun 1000
gjafaáskrifta til hálfs árs, sem
miðar að þvi að útvega blaðinu
þær 2 milj. króna, sem það verður
að fá I peningum eða vUlum á
næstu vikum, ef það á ekki að
stöðvast, jafnframt þvi sem með
þessum hætti er jarðvegarinn
undirbúinn að stórfelldri fjölgun
áskrifenda á næsta ári'að loknu 3-
6 mánaða kynningartimabili.
Með þvi að leggja til blaðsins
20.000 kr. i vixlum eða reiðufé
greiða menn andvirði 10 gjafa-
áskrifta I hálft ár.
10.000 kr. jafng. 5 gjafaáskriftúm
6.000 kr. jafng. 3 áskriftum
2.000 kr. jafng. 1 gjafaáskrift
Gjafaáskrií tum getur fylgt
persönuleg kveðja frá gefanda,
en menn geta lika látið nægja að
tilkynna blaðinu nöfn þeirra, sem
blaðið eiga að fá.
Blaðinu er mikill greiði gerður
með þvi að menn bendi þvi á til-
tekin nöfn, en að sjálfsögðu geta
menn gefið blaðinu andvirði svo
og svo margra gjafaáskrifta án
þesg að gefa upp nokkur nöfn, og
munu þá starfsmenn söfnunar-
innar ákveða, hvernig þeim
eintökum verði ráðstafað.
Björgum Þjóðviljanum úr
þeirri kreppu, sem hann er nú
kominn I, og tryggjum blaðinu
um leið nýjan og heilbrigðari
f járhagsgrundvöll!
Miðstöð þessarar Þjóðviljaher-
ferðar er á skrifstofu Alþýðu-
bandalagsins, Grettisgötu 3, simi
18081 og 19835, og jafnframt má að
sjálfsögöu koma gjafaáskriftum
á framfæri á Þjóðviljanum,
Skólavörðustig.
Stjórn Útgáfufélags
Þjóðviljans
Þessir krakkar úr Melaskól-
anúm i Reykjavik hal'a tekið sig
saman og ætla að halda hluta-
veltu i dag i Melaskólanum og á
ágóðinn að renna til styrktar
Hilmari Sigurbjartssyni, en hann
slasaðist mikið fyrir nokkru. Þau
sögðu okkur að á hlutaveltunni
yrði margt góðra muna, þar á
meðal verður einn vinningurinn
flugfar til Kaupmannahafnar.
Hlutaveltan hefst kl. 10 f.h. i dag.
A myndinni hér fyrir utan eru
börnin sem fyrir hlutaveltunni
standa, en þau heita, talið f.v.:
Ásúis II. Einardóttir, Kristjana
M. Sigurðardóttir, V’ifill Sigurðs-
son og Aðalsteinn Guðmundsson.
30. maí
Margt var okkur sagt fréttnæmt þennan dag
er óku þeir úr Keflavik i brynvörðum bilum
inn i islenzka blómann.
Margt var okkur sagt:
Pompidú treflaður um hálsinn
enda illa fyrir kallaður.
Læknir með i för og franska rúmið.
Kvefbakteriur geta svo sem verið nógu
slæmar,
þótt á þær hafi að visu aldrei sannazt
geislavirkni
— þá er aldrei að vita.
Margt var okkur sagt fréttnæmt þennan dag.
Tricky Dick með sólarbros á vör
enda vel fyrir kallaður
Kissinger er með og mörg er hönd á gikknum
Kommúnistar geta svo sem verið nógu slæmir,
þótt ekki hafi sannazt á þá kosningasvik
— þá er aldrei að vita.
Margt sögðu þeir félagar við okkur i dag:
Sorry mister Ölijó, pardon,
— og nú eins fyrir kallaðir —
Við skiptum okkur aldrei af styrjöld milli vina.
En ef að okkur sjálfum beinist byssukjafturinn
— ja, þá er aldrei að vita!
Svava Jakobsdóttir.
ALÞÝÐU BAN DALAGIÐ
Akureyri
Áskrifendasöfnun Þjóðviljans er halin á Akureyri.
Tekið er á móti nýjum áskrifendum á skrifstofu Alþýðubandalagsins
að Geislagötu 10 alla virka daga kl. 9 til 11 fyrir hádegi.
Þeir sem ekki fá blaðið með góðum skilum eru vinsamlega beðnir um
að hafa samband við skrifstofuna á fyrrgréindum tima i sima 21875.
Norðurland eystra
Aðalfundur kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins i Norðurlandskjör-
dæmi eystra verður haldinn laugardaginn 9. júni i félagsheimilinu á
Raufarhöfn.
Farið verður með hópferðabil frá Akureyri föstudaginn 8. júni og eru
fulltrúar beðnir að tilkynna þátttöku á skrifstofu Alþýðubandalagsins
simi 21875 kl. 9 til 11 f.h.
Dagskrá fundarins verður nánar auglýst siðar.
Stjón kjördæmisráðsins.