Þjóðviljinn - 03.06.1973, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 03.06.1973, Blaðsíða 5
Sunnudagur 3. juni 1973. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5 Viö vonumst eftir skjótum og góöum svörum sem fyrr og biðj- um þá, sem upplýsingar geta gef- iö að hafa samband við annað- hvort Halldór Jónsson safnvörð á Þjóðminjasafninu i sima 13264 eöa við Vilborgu Harðardóttur, blaðamann á Þjóðviljanum, i I þessari viku hefur held- ur betur hlaupið á snærið hjá okkur Halldóri safn- verði, því það hafa borizt skýringar á nær öllum myndunum, sem ekkert hafði upplýstst um áður. Vil ég nota tækifærið og þakka lesendum frábærar undirtektir við þennan þátt og aðstoðina við að f inna út af hverju og hverjum þess- ar gömlu, óþekktu myndir Þjóðminjasafnsins eru. Tökum fyrst myndirnar, sem birtust á sunnudaginn var, nr. 21 og 22. Mynd nr. 21 af konunum fyrir utan húsið var frá Seyðis- firði, eins og við héldum og nafn ljósmyndarans benti til, nánar tiltekið frá Vestdalseyrinni og húsið svokallað Rósuhús. Upplýsingar um þessa mynd fengum við frá Guðrúnu Filippus- dóttur, Guðnýju Vigfúsdóttur frá Fjarðarseli og siðast en ekki sizt Baldvini B. Skaftfell, sem er dótt- ursonur Rósu Vigfúsdóttur saumakonu, sem húsið heitir eft- Rósu, og telpan gizkar hann á að sé Guðbjörg, dóttir Magnúsar á Fossi Magnússonar. Magnús var föðurbróðir Baldvins. Faðir hans, eiginmaður Þorgerðar, var Bjarni gullsmiður Magnússon. Guðrún timasetur myndina 1907-8 og ræður það af þvi, að hús- ið var lengt um 1907, en 1908 flutti i Breiðablik við Austurveg i Seyðisfjarðarkaupstað. Hún segir lika, að stignar saumavélar af þeirrigerð, sem sést á myndinni, muni hafa verið sárafáar til á þessum tima. Brynjólfur Sigurðs- son tók myndina, en safninu var hún gefin af Jonnu.en ekki Jóninu Jacobsen, eins og misritaðist i þættinum siðast. Gei rsey ra rbrygg ja Bolli Ólafsson frá Patreksfirði þekkti mynd nr. 22 (stór i blaðinu 27. mai) og segir hana vera frá Geirseyrarbryggju, þ.e. báta- bryggjunni, við Patreksfjörö. Sér yfir fjörðinn til fjallanna þar og i átt til Sauðlauksdals og Vatns- dals. Bryggjan er ekki lengur til, enda myndin liklega tekin um SKÝRING FÉKKST Á ÖLLU ir. Gáfu þau öll mjög nákvæmar útskýringar á myndinni, en bæði Guðrún og Guðný lærðu að sauma hjá Rósu. Það er Rósa sjálf, sem situr við saumavélina til hægri, en yngri konan, sem er að sauma út i dúk- inn til vinstri er dóttir hennar, Þorgerður Baldvinsdóttir, móöir Baldvins. Rósa Vigfúsdóttir átti sér ó- venjulega sögu og hefur greini- lega verið með eindæmum dugleg og viljasterk. Hún var fötluð, bækluð á fótum, og var send til Kaupmannahafnar til lækninga, þegar hún var 19 ára. Ekki gátu þó læknarnir gert meira fyrir hana en að láta gera henni spelk- ur á fæturna og gekk hún með þær alla ævi siðan. En þar sem hún var nú komin til Kaupmanna- hafnar dreif hún sig i að fara að læra karlmannafatasaum og setti upp saumaverkstæði þegar heim kom, auk þess sem hún kenndi saumaskap, og voru hjá henni alltað tiu stúlkur i einu. Auk þessa hafði Rósa matar- og kaffisölu i húsi sinu. Rósa giftist Baldvini Stefáns- syni, ættuðum úr Svarfaðardal, og er ein af myndunum i gluggan- um af honum, en hinar m.a. af Stefáni Baldvinssyni, syni Rósu og Helgu, konu hans. Stúlkuna lengst til hægri á myndinni kannast enginn við, en Baldvin telur, að hún kunni að vera ein þeirra, sem lærði hjá 1910 og telur Bolli ekki ósennilegt, að afi sinn, Pétur Á. Ólafsson, hafi tekið hana, þvi að hann fékkst talsvert við ljósmyndun. Þó hefur hann heimildir fyrir þvi, að Magnús Gislason hafi tekið myndir á þessum slóðum um svipað leyti. Verkstæði Jóhannesar Johnsonar Þá höfum við loks fengið skýr- ingar á smiðaverkstæðinu á mynd nr. 19 (20. mai i blaðinu), og var það Una Einarsdóttir, sem gat upplýst, að myndin væri tekin vorið 1908 á verkstæði Jóhannes- ar Johnsonar beykis að Berg- staðastræti 11, en það hús er enn til. Una var mágkona Jóhannes- ar, gift Magnúsi trésmiðameist- ara, bróður hans. Það eru tveir fullnuma lærling- ar, sem þarna standa við sveins- stykki sin: Lengst t.v. Astráður, bróður- eða systursonur Matthiasar skálds Jochumsson- ar, d. 1918 i spönsku veikinni. Fyrir miðju er Július Sveinsson trésmiður i Reykjavik, sem dó fyrir nokkrum árum og til hægri verkstæðiseigandinn sjálfur, Jó- hannes Johnson beykir, sem var sonur Jóns beykis á Klapparstig 26, norskur að móðerni og fæddur og uppaldinn i Noregi, en kom um tvitugt til Islands. Hann fór siðar til Ameriku og dó þar. ' Sandgerði Mynd nr. 20, sem var svo dökk og prentaðist fyrst svo illa, að við uröum að tvibirta hana (20. og 23. mai), er frá Sandgerði upplýsir Hjörtur Helgason, sem þar býr. Sést á myndinni fiskihús og bryggja, sem Matthias Þórðarson byggði 1905, og telur myndina tekna 1914-15. Lúðrasveit og heimili Og enn koma hér tvær myndir úr Þjóðminjasafninu, sem við vonumst eftir að lesendur hjálpi okkur að finna út af hverjum eru. Hjörtur Fyrri myndina, nr. 23, hefur Pétur Brynjólfsson tekið.og sýnir hún þrjár konur i stofu á fallegu heimili. Einsog á myndinni frá Rósuhúsi hafa fjölskyldumynd- irnar lika átt að vera með þarna og hefur verið stillt upp á mitt borðið og snúið að ljósmyndavél- inni. Takið lika eftir gitarnum á veggnum, fánanum á skápnum og fleiri munum. Hvaða heimili er þetta? Hverjar eru konurnar og hvenær er myndin tekin? Sem sjá má er það sem situr fyrir á mynd nr. 24, sem Magnús Ólafsson hefur tekið. Hverjir eru hljómlistarmennirn- ir? Og hvenær og af hvaða tilefni er myndin tekin.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.