Þjóðviljinn - 03.06.1973, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 03.06.1973, Blaðsíða 15
Sunnudagur 3. júnl 1973. ÞJóÐVILJINN — StÐA 15 Ungir Sjálfstœðis«. menn í Kópavogi: Endurskoð- um afstöðuna til NATO Fundur i Tý, félagi ungra Sjálf- stæðismanna i Kópavogi haldinn 23. maí 1973, fordæmir harðlega fólskulega árás brezka hersins á islenzkt yfirráðasvæði. Fundur- inn telur að rétt sé að gripa til eft- irtaldra aðgerða. 1. Þar sem hér er um brot á At- lantshafssáttmálanum að ræða, verði Bretar kærðir fyrir banda- laginu og látið reyna á hvort bandalagið stendur við skuld- bindingar sinar við Islendinga. Til greina kemur að veita bandalaginu tiltekinn frest til þess að sjá svo um að brezki flot- inn hverfi tafarlaust ella endur- skoði ísland afstöðu sina til Nato. 2. Athugað verði hvort ekki sé rétt að kæra Breta fyrir öryggis- ráði Sameinuðu þjóðanna. 3. Islenzk stjórnvöld krefjist þess að varnarliðið á Keflavikur- flugvelli hreki brezka.r her- og njósnaflugvélar frá landinu og láta þannig reyna á það, hvort herstöðin er hér okkar vegna eða einungis vegna annarra banda- lagsþjóða. 4. Boðað verði til ráðstefnu allra þeirra rikja, sem fært hafa landhelgi sina út fyrir 12 milur, til að samræma aðgerðir og afstöðu fyrir hafréttarráðstefnu Samein- uðu þjóðanna, þar sem endanleg- um sigri verði náð. 5. Utanrikisráðherra og starfs- menn utanrikisþjónustunnar kynni málstað okkar erlendis með viðræðum við erlenda stjórn- málamenn. 6. Sendiherra tslands i Lundún- um fari ekki aftur út að svo stöddu. Þó telur fundurinn rangt að slitið verði stjórnmálasambandi við Breta, þar sem slikt kæmi einungis niður á Islendingum i Bretlandi. 7. 011 fyrri samningstilboð íslendinga verði dregin til baka og ekkert samið við Breta meðan herskipin eru innan 50 milnanna. Þá telur fundurinn, að sé rétt spilað úr þeim trompum sem við nú höfum á hendi, sé fullnaðar- sigur skammt undan. Hann vinnst þó ekki með aðgerðarleysi, heldur stórsókn á hendur Bretum á alþjóðavettvangi, jafnframt sem áreitni við landhelgisbrjóta verði haldið áfram. Kæri Pálmi Svona hefjast liklega bréfin til Olof Palme i bók sem bráðlega er von á i Sviþjóð. Það stendur nefnilega til að gefa út bók með sendibréfum til Pálma, en að visu einnig bréf frá Pálma. Hinir iðnu bréfaritarar hafa það allir sameiginlegt að vera sósialdemókratar og hafa komizt i stjórnaraðstöðu i löndum sinum. Þetta eru þeir Willy Brandt, Bruno Kreisky kanslari Austur- rikis og Olli litli i Stokkhólmi. Vestur-þýzki rithöfundur Gunter Grass er hvatamaður að útgáfu þessarar bókar sem eflaust rúmar fleiri kratiskar hugsanir en flestar aðrar bækur. Sem sagt lærdómsrik bók! Is AÐ KAUPA VERÐTRYGGÐ SPARISKÍRTEINI RÍKISSJÓÐS JAFNGILDIR FJÁRFESTINGU í FASTEIGN EINFALDASTA OG HAGKVÆMASTA FJÁRFESTINGIN SKATT- OG FRAMTALSFRJÁLS TIL SÖLU I ÖLLUM BÖNKUM — ÚTIBÚUM SPARISJÖÐUM OG HJÁ NOKKRUM VERÐBRÉFASÖLUM SEÐLABANKI ÍSLANDS íslenzkum sjómönnum og fjölskyldum þeirra árnum við allra heilla i tilefni dags- ms. BÁITALON Simi 50520 Sendum islenzkum sjómönnum og fjöl- skyldum þeirra beztu kveðjur i tilefni dagsins. HAFSKIP H.f.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.