Þjóðviljinn - 03.06.1973, Side 14
14 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 3. júni 1973.
Viðlagasjóður auglýsir
Auglýsing nr. 4 frá Viðlagasjóði um
bráðabirgðalán til fyrirtækja.
í 29. grein reglugerðar nr. 62, 27. marz
1973 um Viðlagasjóð segir:
,,Nú skortir atvinnufyrirtæki, sem starf-
rækt var i Vestmannaeyjum 22. janúar
1973, en hefur orðið að hætta starfsemi
sinni þar, fé til að standa við greiðsluskuld-
bindingar sinar eða skortir fé til að hefja
starfsemi sina aftur i landi, og er sjóðnum
þá heimilt að veita þvi bráðabirgðalán
vegna þessa, enda séu rök að þvi leidd,
sem stjórn sjóðsins metur gild, að fjár-
skorturinn sé afleiðing náttúruham-
faranna i Vestmannaeyjum.
Umsóknir um lán þessi skulu vera i þvi
formi og studd þeim gögnum, sem stjórn
sjóðsins ákveður. Auglýst skal i blöðum
um lán þessi.”
Lán þessi verða veitt til allt að eins árs,
enda gert ráð fyrir að þau verði gerð upp
með bótum sem lántaki kann að fá úr
sjóðnum, en ella verður samið um þau sið-
ar.
Hér með er auglýst eftir umsóknum um
lán skv. framan greindu. 1 umsókninni
skal gerð grein fyrir þeim ástæðum sem
til fjárskortsins liggja og taldar upp þær
greiðslur, sem verja skal lánsfénu til.
Umsókninni skal fylgja afrit af skattfram-
tölum 1972 og 1973 (tekjuárin 1971 og 1972)
og greiðsluáætlun fyrir árið 1973.
Umsóknum skal skilað til skrifstofu
Viðlagasjóðs, Tollstöðinni við Tryggva-
götu i Reykjavik.
Stjórn Viðlagasjóðs.
V-------------:----------------------
Viðlagasjóður auglýsir
Auglýsing nr. 3 frá Viðlagasjóði um bætur
fyrir tekjumissi.
1 26. grein reglugerðar nr. 62, 27. marz
1973 um Viðlagasjóð segir:
,,Nú verða tekjur manns, sem búsettur
var i Vestmannaeyjum 22. janúar 1973,
lægri á árinu 1973 en þær voru á árinu 1972
af ástæðum, sem ekki verða raktar til
annars en náttúruhamfaranna. Skal
sjóðnum þá heimilt að greiða honum bæt-
ur allt að þvi sem þessum mun nemur.
Með tekjum er hér átt við launatekjur,
hreinar tekjur af eigin atvinnustarfsemi
eða eignum og allar tekjuskattskyldar
bætur almannatrygginga, svo og greiðslu
frá lifeyrissjóðum og atvinnuleysis-
tryggingum. Sjóðnum er heimilt að
greiða bætur þessar með þeim hætti, að
veita bótaþega leiguivilnun búi hann i hús-
næði á vegum sjóðsins. Þegar bótaþörf
manns er metin, skal við það miðað, að
hann hafi neytt þeirra atvinnutækifæra,
sem sanngjarnt getur talizt að ætlast til af
honum við þessar aðstæður.”
Skv. 27. gr. skal sá, sem vill fá bætur skv.
26. gr. senda umsókn til sjóðsins i þvi
formi sem sjóðsstjórn ákveður og með
þeim gögnum sem hún krefst. Hér með er
auglýst eftir slikum umsóknum frá
einstaklingum. Skulu þær sendar
skrifstofu Viðlagasjóðs, Tollstöðinni við
Tryggvagötu i Reykjavik ov skal fylgja
þeim afrit af skattframtali 1973 (tekjuárið
1972), lýsing á þvi hvaða tekjur um-
sækjandi hefur nú hvaða atvinnu hann
stundar og atvinnuhorfum og tekjuáætlun
fyrir árið 1973.
Stjórn Viðlagasjóðs
Kristjáni nokkrum
Albertssyni
Kristján einhver Albertsson
hefur birzt meö ábúðarfulla
ásjónu i öðru hverju eintaki
Moggans undanfarnar vikur.
Þessum dulda exhibisjónisma
fylgja svo einlægt hástemmdar
prédikanir um nauðsyn þess að
island hýsi erlendan her um aldur
og ævi.
En þrátt fyrir mikið málskrúð
og virðingarverðan orðaforða
hefur Kristjáni aldrei tekizt að
nálgast kjarna málsins, sem er
einfaldlega sá, að Bandarikja-
menn eru hér ekki okkur til
varnar heldur af hreinni her-
fræðilegri nauðsyn þeirra sjálfra.
1 annan stað hefur Kristján
þessi auðsýnilega ekkert lært af
sögulegum staðreyndum. Þær
sýna, svo ekki verður um villzt,
að þangað er árásinni beint sem
eitthvað er fyrir.
Ef til þriðju heim-
styrjaldarinnar kæmi yrði Island
áreiðanlega eitt alfyrsta skot-
mark Sovétmanna, einmitt og
eingöngu vegna þess, að Banda-
rikjamenn sitja þar i hásæti
Atlanzhafsins. Þarf þá að igrunda
frekar örlög þjóðarinnar?
Grétar Oddsson
Sendum íslenzkum sjómönnum og
fjölskyldum þeirra beztu kveðjur
í tilefni dagsins
Hraðfrystistöð Þórshafnar
Sendum öllum islenzkum sjómönnum og
fjölskyldum þeirra beztu árnaðaróskir i
tilefni sjómannadagsins
Hraðfrystihús Stöðvarfjarðar h.f.
Sendum sjómannastéttinni beztu
árnaðaróskir í tilefni dagsins
Fiskiðjusamlag Húsavíkur
tr
• *