Þjóðviljinn - 03.06.1973, Qupperneq 16
16 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 3. júní 1973.
Sendum sjómönnum öllum og aðstand-
endum þeirra beztu kveðjur i tilefni sjó-
mannadagsins.
Fiskanes h.f.
Grindavík
Sendum sjómönnum öllum og fjölskyldum
þeirra beztu árnaðaróskir i tilefni dagsins.
Gjögur h.f.
Grindavík
Sendum sjómönnum öllum og fjölskyldum
þeirra beztu árnaðaróskir i tilefni sjó-
mannadagsins.
Hóp h.f.
Grindavik
np:mendasamband
MENNTASKÓLANS
í IIEYKJAVÍK.
STÚDENTAFAGNAÐUR
verður haldinn að Hótel Sögu mánudaginn
4. júni 1973. Hann hefst með borðhaldi kl.
19,30.
Aðgöngumiðar verða seldir að Hótel Sögu,
i anddyri Súlnasalar, laugardaginn 2. júni
kl. 13,30—17,00 og sunnudaginn 3. júni kl.
15,00—17,00.
AÐALFUNDUR Nemendasambandsins
verður haldinn að Hótel Sögu kl. 19,30.
Stjórnin.
Frá gagnfræðaskólum
Reykjavíkur
Innritun nemenda, sem ætla að stunda
nám i 3. og 4. bekk gagnfræðaskólanna i
Reykjavik næsta vetur, fer fram mánu-
daginn 4. júni og þriðjudaginn 5. júni n.k.
kl. 14.00 — 18.00 báða dagana. Umsækj-
endur hafi með sér prófskirteini.
Það er mjög áriðandi, að nemendur gangi
frá umsóknum sinum á réttum tima, þvi
ekki verður hægt að tryggja þeim skóla-
vist næsta vetur, sem síðar sækja um.
Um skiptingu skólahverfa er visað til orð-
sendingar, er nemendur fengu i skólunum.
Fræðslustjórinn i Reykjavik.
Aðalfundur
Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna
Nýjar
friðunar-
aðgerðir
bæti upp
útfærsluna
A aftalfundi Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna, sem haldinn
var 24;—25. mai var sérstaklega
lýst áhyggjum af minnkandi
þorskafla. Var lögð á það áherzla
i samþykktum fundarins, að um
leið og halda bæri fast á útfærslu
fiskveiðilögsögunnar verði að
skipuleggja scrstakar friðunar-
aðgerðir á helztu nytjafiskstofn-
um ef unnt á að verða að snúa við
óheillavænlegri þróun i afla-
brögðum.
Aðalfundurinn mótmælti ein-
dregið ofbeldisaðgerðum Breta i
Islenzkri landhelgi.
Framleiðslan.
t fyrra var framleiðsla sjávar-
afurða hjá frystihúsum SH 65,340
smál., sem var 10% minna en árið
áður. Munaði þar mestu um
minni frystingu þorskafla. Mest
var framleitt i Vestmannaeyjum
eða 12.360 smál. sem er 19,3%
heildarframleiðslunnar.
Fyrstu fjóra mánuði þessa árs
framleiddu hús i SH 30.550 smál.
og var það 10% meira en á sama
tima i fyrra. Það er þó aðeins
loðna sem þarna skiptir sköpum
— framleiðsla annarra frystra af-
urða en loðnu minnkaði um 22,7%
frá fyrri vetrarvertið, en loðnu-
frysting jókst hinsvegar úr 3.860
smál. i 12.080 smál. Tekið er fram
að eldgosið i Vestmannaeyjum
hafi af skiljanlegum ástæðum
haft mjög truglandi áhrif á fram-
leiðsluna.
Utflutningur.
Útflutningur i fyrra frá SH var
66.700 smái. að verðmæti 5.234
miljónir kr. og va.r verðmætiö
11,2% meira en á árinu áður. Til
Bandarikjanna var flutt út fyrir
3.580 milj. og til Sovétrikjanna
fyrir 795 milj. Mestar breytingar
á erlendum mörkuðum urðu þær
að um áramót var samið um sölu
fjórfalt meira magns af frystri
ioðnu til Japans en selt var i
fyrra.
Gleymdi
að skrúfa
fyrir
kranann
7. janúar 1971, var FOL-
STJÖRNUNNI lagt á leguna við
Hafnarhólm. Að morgni þess 8.
janúar var báturinn sokkinn. Með
aðstoð tveggja báta, tókst að
koma PÓLSTJÖRNUNNI upp i
fjöru og dæla þar úr bátnum.
Kom þá i ljós að botnkrani var
ekki full lokaður. Hafði þar runn-
ið sjór inn i bátinn.
(úr skýrslu rannsóknarnefndar
sjóslysa)
Israel gefur
V estmannaeyjum
Sendiherra Israel hr. Moshe
Leshem hefur afhent utanrikis-
ráðherra framlag til Vestmanna-
eyjasöfnunarinnar sem nemur
1.380.000 isienzkum krónum.
Við þetta tækifæri lét sendi-
herrann i ljós virðingu sina fyrir
þeim baráttuvilja og dugnaði sem
Islenzka þjóðin hefði sýnt gagn-
vart náttúruhamförunum i Vest-
mannaeyjum.
UMFERÐARFRÆÐSLA
5 og 6 ára barna í
Reykjavík. Brúðuleikhús
og kvikmyndasýning
Lögreglan og Umferðarnefnd Reykjavik-
ur i samvinnu við Fræðsluskrifstofu
Reykjavikurborgar efna til umferðar-
fræðslu fyrir 5 og 6 ára börn i Reykjavik.
Hvert barn á þess kost að mæta tvisvar,
klukkustund i hvort skipti. Sýnt verður
brúðuleikhús og kvikmynd, auk þess sem
börnin fá verkefnaspjöld. Börnin hafi með
sér liti.
Fræðslan fer fram sem hér greinir:
4.-5. júni 6 ára börn 5 ára börn
Fellaskóli 09.30 11.00
Vogaskóli 14.00 16.00
6.-7. júni Melaskóli 09.30 11.00
Austurbæjarskóli 14.00 16.00
8.-12. júni Hliðarskóli 09.30 11.00
Langholtsskóli 14.00 16.00
13.-14. júni Breiðagerðisskóli 09.30 11.00
Árbæjarskóli 14.00 16.00
15.-18. júni Álftamýrarskóli 09.30 11.00
Laugarnesskóli 14.00 16.00
19.-20. júni Fossvogsskóli 09.30 11.00
ÆfingadeildK.í. 14.00 16.00
21.-22. júni Hvassaleitisskóli 09.30 11.00
Breiðholtsskóli 14.00 16.00
Lögreglan Umferðarnefnd Reykjavikur
Iðnskóiinn
í Hafnarfirði
Iðnskólinn:
Innritun i allar bekkjardeildir næsta
skólaárs fer fram i skrifstofu skólans
Reykjavikurvegi 74 þriðjudag 5., miðviku-
dag 6. og fimmtudaginn 7. júni næst-kom-
andi kl. 8.30 til 18.00
Ath: Nýir nemendur sýni skirteini um
fyrri skólagöngu og nafnnúmer.
Verkskólinn:
Innritun i verkdeild málmiðna, sem á-
formað er að taki til starfa á skólaárinu
1973—74, verður auglýst siðar.
Námskeið:
Vegna óska fer nú fram könnun á þátttöku
i námskeiði fyrir þá húsasmiði og múrara
sem æskja heimildar til að hafa umsjón
með og bera ábyrgð á byggingafram-
kvæmdum. Þeir sem hug hafa á þátttöku
láti skrá nöfn sin á ofannefndum stað og
tima. Skólastjóri.
Reglusamur maður
óskar eftir föstu fæði.
Upplýsingar daglega i sima 14036.