Þjóðviljinn - 03.06.1973, Page 17
Sunnudagur 3. júni 1973.! ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 17
JON CLEARY:
Sendi-
fulltrúinn
1. kafli
— Við viljum að þú farir til
London, sagði forsætisráð-
herrann, — og takir sendifulltrúa
stjórnarinnar fastan fyrir morð.
Hann hallaöi sér aftur á bak i
stólnum, strauk bognum fingri
um kónganefið, sköllóttur,
gamall gammur sem haft hafði
þessa skrifstofu að hreiðri siöast-
liðin tuttugu og fimm ár. Hann
renndi tungunni eftir þunnum,
þurrum vörunum eins og hann
væri að bragða á áfallinu sem
Scobie Malone varð fyrir rétt i
þessu. Hann var sjötugur að aldri
og fimmtiu ár af viðburðarrikri
ævi hafði hann fengizt við
stjórnmál. Hann kunni að meta
það að koma fólki á óvart.
— Lögreglustjórinn segir mér,
að þið leynilögreglumennirnir
séuð eins og nunnur, ykkur sé
aðeins hleypt út tveim saman.
Hann leit á Malone og siðan á
Leeds lögreglustjóra, og óræð
augu hans glóöu af illgirnislegri
kimni. — Er það vegna þess að
þiö treystið ekki hver öörum,
Jack?
John Leeds hafði verið i lög-
reglunni x fjörutiu ár, lögreglu-
stjóri i tiu, og hann kunni lagið
á stjórnmálamönnunum. — Er
þetta álit þitt á nunnum, forsætis-
ráðherra?
Hlátur Flannerys liktist meira
hósta. — Ertu að reyna að tina af
mér atkvæði kaþólikkanna,
Jack? Fjandinn hirði þessar
krákur. Ég er viss um að þú kýst
frjálslynda! Hann leit aftur á
Malone. — Hvað kýst þú, undir-
foringi?
Malone var enn að jafna sig á
fyrstu athugasemd forsætisráð-
herrans. Hann hafði reyndar
kynnzt óvæntum áföllum í tiu ára
þjónustu, en hann hafði aldrei
fengið annað eins og þetta framan
I sig. Þegar Flannery hafði sagt
þetta, hafði hann litið i skyndi á
gamla manninn til að athuga,
hvort hann væri að gera aö gamni
sinu, skælt brosið hafði sagt
honum, að fyndnin var að
minnsta kosti ekki ætluð honum.
Hann var enn dasaður þegar
Flannery ávarpaði hann aftur og
endurtók spurningu sina. — Hvað
kýst þú, undirforingi?
Hann reyndi að koma lagi á
hugsanir sinar, en spurningin
virtist alveg út i bláinn undir
þessum kringumstæðum. — Það
er undir ýmsu komið, herra minn.
— Undir ýmsu komið? Svo sem
hverju?
Salon Gahlin
— Heldurðu að hann hafi i raun
og veru unnið fyrir erlent stór-
veldi?
— Það er alveg útilokað. Það
vald er ekki til i heimi sem gæti
fengið hann til að vinna.
Malone sá aðvörunaraugnaráö
Leeds og dró i land. — Ég er ekki
pólitiskur. Ég læt vist duttlunga
ráða.
Flannery einblindi á hann,
augun dökk og gremjuleg.
Tvivegis hafði hann næstum fallið
á atkvæöum þeirra, sem létu
duttlunga ráða, hinna óákveðnu
og reikulu. En svo brosti hann allt
I einu, þessu furðulega hlýja brosi
sem hafði aflað honum atkvæða
hjá konum i öll þessi ár. Þegar
Malone virti hann fyrir sér, þá
varð honum ljóst að þrátt fyrir
fullyrðingar blaðanna, þá var það
ekki alltaf vangasvipur stjórn-
málamannsins eöa kynþokki hans
sem gekk i augun á konunumjfjöl-
margar þeirra, heill sægur, kaus
föðurlegu manngerðina. En ég
hefði ekki viljað eiga Flannery að
föður, hugsaði Malone; hann
heföi notað mig sem kosninga-
beitu, áöur en ég var kominn af
brjósti.
— Jæja, undirforingi, eiginlega
ertu að fara til London til að
styrkja verkamannaflokkinn.
Viltu leiða hann i allan sannleika,
Jack?
Leeds hikaöi, siðan hallaði
hann áfram i stólnum með hendur
á hnjánum. Þegar Malone hafði
verið i návist lögreglustjórans,.
hafði honum ávallt fundizt hann
með eindæmum róiegur; það var
eins og Leeds hefði sjálfur stjórn
á stund og stað, en ekki öfugt, eins
ÞEGAR DÝRIN™™*^
HÖFÐU MÁL EFFEL
— Eigum við ekki að koma í fallin spýtan?
— Þeir hitta okkur ekki þessir veiðimenn. Ég er nýbúinn
að éta fjögurra laufa smára.
Lögtök
Að kröfu gjaldheimtustjórans f.h. Gjald-
heimtunnar i Reykjavik og samkvæmt fó-
getaúrskurði, uppkveðnum 1. þ.m. verða
lögtök látin fara fram fyrir ógoldnum
fyrirframgreiðslum opinberra gjalda,
sem féllu i gjalddaga 1. febrúar, 1. marz,
1. april, 1. mai og 1. júni 1973.
Lögtök til tryggingar fyrirframgreiðslum
framangreindra gjalda, ásamt dráttar-
vöxtum og kostnaði, verða hafin að 8 dög-
um liðnum frá birtingu þessarar auglýs-
ingar, verði tilskyldar greiðslur ekki innt-
ar af hendi innan þess tima.
Reykjavik, 2. júni 1973.
Borgarfógetaembættið.
Dagskrá
36. Sjómannadagsins,
sunnudaginn 3. júni 1973
Kl.:
08.00 Fánar dregnir að hún á skipum i höfninni.
09.00 Sala á merkjum Sjdmannadagsins og Sjó-
mannad^ígsbíaðsins hefst.
09.30 Lúðrasvþit Reykjavikur leikur létt lög við
Hrafnistu.
11.00 Sjómannamessa i Dómkirkjunni.
Séra Grimur Grimsson minnist drukknaðra
sjómanna.
Kirkjukór Asprestakalls syngur, einsöngvari
Guðmundur Jónsson, organieikari Kristján
Sigtryggsson.
Blómsveigur lagður á leiði óþekkta sjó-
mannsins.
Hátiðahöldin i Nauthólsvik:
Lúðrasveit Reykjavikur leikur.
Fánaborg mynduð með Sjómannafélagsfán-
um og islenzkum fánum.
i4.oo Ávörp:
a) Fulltrúi rikisstjórnarinnar Lúðvik Jósefs-
son, sjávarútvegsráðherra.
b) Fulltrúi útgerðarmanna Björn
Guðmundsson.
c) Fulltrúi sjómanna Guðjón Armann
Eyjólfsson.
d) Pétur Sigurðsson, formaöur Sjómanna-
dagsráðs afhendir heiðursmerki Sjómanna-
dagsins.
Kl.:
13.30
13.45
Kappróður o. fl.
1. Kappsigling.
2. Kappróður.
3. Björgunar- og stakkasund.
4. Koddaslagur.
5. Þyrla Landhelgisgæzlunnar kemur.
Merki Sjómannadagsins og Sjómanna-
dagsblaðið ásamt veitingum verða til sölu
á hátiðarsvæðinu.
Ath. Strætisvagnaferðir verða frá
Lækjartorgi og Hlemmi frá kl. 13.00 og
verða a.m.k. á 30. min. fresti.
Sjómannahóf verður að Hótel Sögu og
hefst með borðhaldi kl. 19.30. Skemmti-
atriði.
Merkja- og blaðasala Sjómannadagsins:
Sölubörn. Afgreiðsla á merkjum Sjómannadagsins og
Sjómannadagsblaðsins verður á eftirtöldum stöðum kl.
09.30 á Sjómannadaginn: Austurbæjarskóli, Alftamýrar-
skólii Árbæjarskóli, Breiðagerðisskóli, Breiðholtsskóli,
Fellaskóli, Hliðarskóli, Kársnesskóli, Kópavogsskóli,
Langholtsskóli, Laugarnesskóli, Laugarásbió, Melaskóli,
Mýrarhúsaskóli, Vogaskóli, og hjá Vélstjórafélagi Is-
lands, Bárugötu 11 Há sölulaun. Þau börn, sem selja fyrir
500.00 kr. eða meira, fá auk sölulauna aðgöngumiða að
kvikmyndasýningu i Laugarásbiói.
Sumarnámskeið
10 — 12 ára barna
Hið fyrra sumarnámskeið fyrir 10—12 ára
börn hefst mánudaginn 4. júni og lýkur 29.
júni.
Námskeiðsefni: föndur, iþróttir og leikir
og kynnisferðir um borgina, heimsótt
söfn, fyrirtæki og stofnanir.
Daglegur námskeiðstimi er 3 klst. frá kl.
9—12 eða 13—16.
Kennslustaðir: Austurbæjarskóli, Breið-
holtsskóli og Breiðagerðisskóli.
Námskeiðsgjald er kr. 900,00.
Innritun á kennslustöðunum kl. 9—10 og
13—14 mánudaginn 4. júni.
Fræðsluskrifstofa Reykjavikur.