Þjóðviljinn - 07.10.1973, Síða 15
Sunnudagur 7. október 1973. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15
Sprengt í Firðinum
Fðlki í Kópavogi varð heldur ðnotalega við sprengigný
er barst þeim að eyrum í gærmorgun. Lögreglan í Kópa-
vogi kunni ekki skil á hávaðanum í fyrstunni, en síðar
kom í ljós að drunur þessar bárust frá Hafnarfirði.
Að sögn lögreglunnar í. Hafnarfirði var verið að eyða
sprengiefni, sem vatn hafði komist í. Sprengiefnið
var í eigu innflytjenda í Reykjavík. Sprengingarnar fóru
fram undir eftirliti lögreglunnar, og bjuggust lögreglu-
menn í Firðinum við að verða við þessa iðju eitthvað fram
eftir dagi.
Borgarstjórn þiggur
dýraspítala Watsons
Borgarstjórn staðfcsti I fyrra-
kvöld ákvörðun borgarráðs um að
þiggja dýraspitala að gjöf frá
■ Mark Watson, en eins og fram
hefur komið i fréttum bauð
Watson Islendingum fyrst spital-
ann að gjöf, en er ríkið afþakkaði,
var hann boðinn Reykjavfkur-
borg.
Þr ö kom fram við umræður i
borgarstjórn i fyrrakvöld, að
spltaíi sem þessi mun fyrst og
fremst ætlaður gæludýrum, og
þótti minnhluta I borgarráöi
hæpiö, aö Reykjavikurborg, sem
takmarkað hefur dýrahald um-
fram önnur byggðarlög, ma. með
hundabandinu, tæki við slikri gjöf
með þeim skuldbindinum, sem
henni hljóta að fylgja, þe. um að
sjá til þess að spitalinn veröi rek-
inn á sómasamlegan hátt.
En meirihlutinn samþykkti
tillögu Alberts Guðmufssonar um
að þiggja spitalann, staðsetja
hann á höfuðborgarsvæöinu,
veita lóö undir hann og óska siöan
eftir viðræöum um rekstrarform
við Samtök sveitarfélaga i
Reykjaneskjördæmi og félög á-
hugamanna um dýravernd og
dýrahald.
A borgarstjórnarfundinum var
þessi tillaga enn samþykkt af
meirihlutanum, en felld tillaga
minnihlutans, sem miðaði að þvi
að útiloka þátttöku borgarinnar i
rekstri spitalans. —vh
Aldraðir
Framhald af bls. 6.
þeim likt við hróp úr eyðimörk-
inni, sem ekki megi daufheyrast
viö. Efnislega er tillagan um aö
árlega skuli varið 7 1/2-10% af
heildarútsvörum álögðum I
Reykjavik hverju sinni til bygg-
inga nýrra elli- og hjúkrunar-
heimila á höfuðborgarsvæðinu
eða til endurgreiðslu á stórlánum,
er tekin yrðu til aö hraða fram-
kvæmdum, og skipuð verði
þriggja manna nefnd til aö annast
undirbúning og sjá um bygginga-
framkvæmdir i samráði við
borgarstjóra. Veröi nefndin skip-
uð fólki með starfsreynslu i mál-
efnum aldraðra.
Adda sagði, aö heimilishættir
okkar tima væru þannig, að kyn-
slóðir tengdust ekki á stórum
heimilum og staðreyndin sem viö
blasti, að þvi færi fjarri, að gam-
alt fólk I borginni ætti yfirleitt
góðra kosta völ og margt þeirra
væri i vanda statt. — Þetta vitum
við öll, sagði hún, og viö sem er-
um á vinnufærum aldri eigum að
veita þeim þannig heimili og
iverustaði, sem við gætum sjálf
hugsað okkur að búa við.
I tillögum minnihlutans væru
talin þau úrræði, sem helst kæmu
til greina og fariö fram á aðgerð-
ir, sagði Adda Bára, en i tillögu
Alberts Guðmundssonar er farið
fram á fjármagn til að standa
straum að þvi sem brýnast væri,
þe. byggingu dvalar- og
hjúkrunarheimila fyrir aldraða.
Einsýnt væri að fjalla um til-
lögurnar sameiginlega og væru
þau Albert augsýnilega sammála
um að stórfellt átak þyrfti i mál-
inu.
Undir þetta tók Albert Guð-
mundsson og lýsti fyrirfram sam-
þykki við allar tillögur til úrbóta
fyrir aldraða. Tveir aörir Ihalds-
fulltrúar lýstu yfir góöum vilja,
en töldu annmarka á fram-
kvæmdum, en tillögu Alberts var
að lokum visað til félagsmálaráös
og kemur væntanlega þaðan aftur
samtimis tillögum minnihlutans.
—vh
FELAGSLÍF
Kirkja óháða safnað-
arins.
Messa klukkan 2 I dag.
Séra Emil Björnsson.
I
WÐVIim
3
Blaðberar
óskast
nú þegar i eftir talin
hverfi:
Blönduhlíð
Þórsgötu
Laugavegur 11
Seltjarnarnes
ILaugarnes
Sigtún
Alfheima
Skipasund
Sœviðarsund
Grunna
Hjarðarhaga
Hringbraut
Hverfisgötu
Rauðalœk
Hafið samband við af-
greiðslu Þjóðviljans i
simum
17500 eða 17512.
DWDVIUINN
Sovéskir Gyðingar
streyma enn til Austurríkis
VIN OG TEL AVÍV 5/10 — So-
véskir Gyðingar halda áfram að
streyma inn i Austurriki þrátt
fyrir þá ákvörðun austurrisku
stjórnarinnar að loka áfangastöð-
inni i Schönau, sem starfrækt hef-
ur verið fyrir innflytjendur frá
Sovétrikjunum til ísraels. Golda
Meir, forstætisráðherra Israels,
Greiddi atkvæði
Framhald af bls 5.
unnt verði að koma á staö-
greiöslukerfi.
A meðan hið gamla innheimtu-
kerfi skatta er i gildi telur
borgarstjórn æskilegt, að unnt
væri að setja nýjar reglur um inn-
heimtufyrirkomulag skatta, er
kæmu i veg fyrir, að launþegar
fengju á stundum engin laun
greidd vegna skattfrádráttar:'
Tillaga Alberts var um aö
borgarhagfræðingur og borgar-
endurskoðandi gerðu tillögur um
réttlátari skattheimtu og taldi
Sigurlaug réttilega. að hin gengi
lengra — vh
SeNDIBÍLASTÖDIN Hf
Duglegir bílstjórar
viðurkennndi þó i gærkvöldi, að
viðleitni hennar til þess að fá
Kreisky rikiskanslara Austurrik-
is til að hætta við að loka stöðinni
hefði mistekist.
Hinsvegar sagði formælandi
Jewish Agency, hálfopinberrar
israelskrar stofnunar sem rekur
áfangastöðina i Schönau, nýverið
að stofnunin hefði enn ekki fengið
neina opinbera tilkynningu um;
lokun stöðvarinnar.
Gagnrýni
Framhald af bis, 3.
anna og béinir þeim eindregnu
tilmælum til menntamálaráðu-
neytisins (byggingardeildar) að.
unnið verði þegar I stað að heild-
aráætlun um uppbyggingu skóla-
húsnæðis i Reykjaneskjördæmi.
Fundurinn bendir enn einu sinni
á, að alltaf sjái dagsins ljós nýjar
áætlanir um f jölmörg mál en ekki
bóli á áætlunum um lausn á hús-
næðismálum skólanna og engar
markvissar tillögur um úrbætur i
húsnæðismálum þeirra liggi nú
fyrir.
Auglýsingasíminn
er17500
HELGI GUÐMUNDSSON
pipulagningameistari,
Eskihlið 9, Reykjavik
verður jarðsettur frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 9.
október kl. 10,30.
Marta Jónsdóttir
Sigrún Ilclgadóttir Ilallbeck
Sigurður St. Heigason
Margrét Helgadóttir
og barnabarn.
Eric Hallbeck
Guðrún Matthiasdóttir
Hafþór Sigurðsson
TILKYNNING
til eigenda fasteigna, sem brunatryggðar eru
hjá Brunabótafélagi íslands,
um lækkun á iðngjaldatöxum
Siðastliðin tvö ár og það, sem af er
þessu ári, hafa orðið hlutfallslega
minni brunatjón, en verið hafa um
langt árabil. Þegar farið var að
undirbúa innheimtugögn fyrir
næsta vátryggingarár, sem hefst
15. október n.k., var á fundi stjórn-
ar félagsins rætt um möguleika á
að breyta gildandi iðgjaldatöxtum
til lækkunar. Brunabótafélag ís-
lands er gagnkvæmt tryggingarfé-
lag og þvi eðlilegt að viðskipta-
menn félagsins njóti þess, þegar
vel gengur — samanber arð-
greiðslur til þeirra á undanförnum
árum, en þær nema nú samtals yfir
70 miljónum króna.
Um þetta var gerð eftirfarandi
bókun:
„Undanfarin ár hafa brunatjón
minnkað verulega, sem væntan-
lega má þakka auknum bruna-
vörnum, en Brunabótafélagið hef-
ur i góðu samstarfi við sveitarfé-
lögin og Brunamálastofnun rikis-
ins átt verulegan þátt i að efla slik-
ar varnir, m.a. með hagstæðum
lánveitingum til vatns- og hita-
veituframkvæmda, kaupa á
slökkvibifreiðum og öðrum bruna-
varnarbúnaði. Með hliðsjón af
þessari þróun, samþykkir stjórnin
að breyta frá og með 15. október
n.k. iðgjaldatöxtum af brunatrygg-
ingu fasteigna með tilliti til tjóna-
reynslu þannig, að sériðgjalda-
taxtar lækki um 15%, en iðgjalda-
taxtar af ibúðarhúsum um 25%”.
jOss er ánægja að tilkynna við-
tekiptamönnum félagsins um þessa
ákvörðun.
Reykjavik, 5. október 1973
BRUNABÓTAFÉLAG ÍSLANDS