Þjóðviljinn - 07.10.1973, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 07.10.1973, Blaðsíða 16
DIQÐVIUINN Almennar upplýsingar um lækna- þjónustu borgarinnar eru gefnar i simsvara Læknafélags Reykja- vikur, simi 18888. f' . :T —< Kvöldsimi hlaðamanna er 17504 Sunnudagur 7. október 1973. eftir klukkan 20:00. V..., .... J Vikuna 5.-11. okt. verður kvöld-, nætur- og helgarþjónusta apóteka i Háaleitis- og Vesturbæjar- apóteki. Samyinnuskólinn fellur inn Sr. Guðmundur Sveinsson, skóla- stjóri Sainvinnuskólans. flytur ræðu sina við setningu frani- haldsdeildarinnar. AÞENU 4/10 — Alexandros Panagúlis, sem á sinum tima var dæmdur til dauða fyrir banatil- ræði við Papadópúlos núverandi forseta Grikklandi, en látinn laus i samræmi við hina almennu náðun þar i landi nýveriö, hefur ákært forseta herréttarins, sem dæmdi hann, fyrir fölsun. Eftir að dauðadómnum var breytt, hafði Panagúlis verið dæmdur til borgararéttindamissis i fimmtán ár, en dómsforsetinn falsaði réttargögnin þannig, aö sögn Panagúlis, að svo hét aö hann missti téð réttindi ævilangt. Karlakór í sigurför Austurriskir tón- listargagnrýnendur hrósa mjög söng Karla- kórs Reykjavikur, segir i fréttaskeyti frá Vinar- borg. Er kórnum ekki iikt við neitt minna en hinn nafntogaða Don- Kósakkakór eftir söng i útvarp og á söng- skemmtunum i Prag og Vinarborg. Kórinn er þessa dagana að syngja i Graz og i Salzburg. Sér- staklega er hrósað flutningi kórs- ins á rimnalögum i útsetningu Páls P. Pálssonar söngstjóra. Guömundur Jónsson óperusöngv- ari fær einnig mikið hrós fyrir söng sinn. A laugard. iýkur söng- ferð Karlakórs Reykjavikur i Austurriki, og hefur borgarstjór- inn i Graz þá boð fyrir kórmenn. Að svo búnu heldur kórinn til Júgóslaviu og heldur konserta i Zagreb, Belgrad og Dubrovnik. Mishermt hefur verið i fréttum að Karlakórinn hafi ekki sungið i Vin fyrr en nú. Arið 1937 söng kórinn þar einnig, undir stjórn Sigurðar Þórðarsonar. í fræðslulögin Framhaldsdeild skólans sett Framhaldsdeild Sam- vinnuskólans var sett eftir hádegi sl. föstudag í hús- næöi því, er deildin hefur fengið til umráða á Suður- landsbraut 32. Voru þar viðstaddir kennarar og nemendur deildarinnar, nokkrir forráðamenn Sam- bands íslenskra samvinnu- félaga og fleiri gestir. Sr. Guðmundur Sveinsson, skólastjóri Sam vinnuskólans, setti skólann með ræðu. Gat hann þess i upphafi máls sins að Sam- vinnuskólinn, sem samvinnusam- tökin hafa nú starfrækt i meira en hálfa öld, eða siöan 1918, væri nú á timamótum. Það var árið 1969, sem forráðamenn skólans ákváðu að efna til ráðstefnu um verslunarfræöslu i landinu i sam- vinnu við forráðamenn Verslunarskóla lslands. A þessari ráðstefnu, sem haldin var i sept- ember 1969, var gerð ýtarleg grein fyrir þróun verslunar- fræðslu i nágrannalöndunum, Noröurlöndum, Bretlandi, Þýskalandi og Bandarikjunum. Jafnframt voru lagðar fram tillögur að hugsanlegri æskilegri skipan þessarar fræðslu hér- þess að gera tillögur til ráðu- neytisins um framtiðarskipan verslunarmenntunar i landinu. t nefndina voru skipaöir Birgir Thorlacius, ráðuneytisstjóri, for- maður, deildarstjórarnir Andri tsaksson og Indriði Þ. Þorláksson, skólastjórarnir sr. Guðmundur Sveinsson og dr. Jón Gislason, Hjörtur Hjartarson, forstjóri, Gisli V. Einarsson, viðskiptafræðingur, Eysteinn Jónsson, varaformaður Sam- bandsins og ölvir Karlsson, odd- viti. Hætta á blindgötu Sr. Guðmundur sagði að veru- legur skriður heföi komist á störf nefndarinnar sl. vor, og gatan hefði hvergi nærri verið eins greið og æskilegt hefði verið i þá átt að opna brautskráöum nemendum Samvinnuskólans leið til fram- haldsmenntunar á vegum sam- vinnusamtakanna. Að sjálfsögðu hefði ekki komiö til greina að bjóða nemendum framhald, sem á einn eða annan hátt endaði i blindgötu. Varla hefði verið um annað að ræða en framhalds- námsbraut er opnaði leiðir til háskólastigs eða gerði mögulegt að þræða framhaldsskólastigö á enda. háskólanum norska i Agder. — Þá ber þess enn að geta að þeir skólar i Danmörku sem starfa á likum grundvelli og Samvinnu- skólinn og gera i verulegum atriðum hliðstæðar námskröfur — svokallaðir æðri verslunar- skólar, hafa tryggt nemendum sinum takmarkaðan aðgang að háskólanámi, það er að segja brautskráðir nemendur eiga rétt á að innritast i hagfræði- og laga- deildir dönsku háskólanna.” Framtíðarrekstur skólans tryggður Nefnd menntamálaráðu- neytisins hefur nú skilað tillögum sinum i formi frumvarps. Skóla- stjóri kvaðst ekki vilja greina frá einstökum atriðum frum- varpsins, þar eð það hefði ekki enn veriö lagt fyrir Alþingi. Þó mætti taka fram, að i frum- varpinu fælist að framtiðar- rekstur Samvinnuskólans að Bifröst sýndist tryggður og skólinn felldur eðlilega inn i annað námsstig fræðslulaganna, framhaldsskólastigið með eðli- legum áföngum að stúdentsprófi þeirra nemenda sem þess óska, en skemmri námsbrautum til handa þeim er ekki kjósa að eyða svo mörgum árum til undir- búnings lifsstarfi i fyrsta áfanga. Akvörðunin um stofnun fram- haldsdeildarinnar var kynnt i júlimánuði siðastliðnum og öllum þeim er lokið höföu burtfarar- prófi úr Samvinnusk. gefinn Kyrstu nemendur framhaldsdeildarinnar ásamt skólastjóra. lendis. Sú varö niðurstaöa ráð- stefnunnar að skipuð skyldi nefnd fulltrúa frá Verslunarráði tslands, Verslunarskóla tslands og skólanefnd Verslunarskóla tslands. Nefndin safnaði gögnum viða að og markaði stefnu sem eining var um i meginatr. Var siðan leitaö til menntamálaráöu- neytisins, sem frá 1. janúar 1970 hefur fariö meö málefni verslunarskólanna, og þess óskað að þáverandi menntamálaráð- herra Gylfi Þ. Gislason skipaði nefnd, sem tæki viö störfum og verkefnum hinnar sjálfskipuðu nefndar verslunaraðilanna. Þáverandi menntamálaráöherra varð við þeim tilmælum, og 29. april 1971 var nefnd skipuö til „Þaö hlýtur að koma fram hér sem satt er,” sagði skólastjóri, ,,að einmitt sú hætta sem við blasti að framhaldsnám á vegum Samvinnuskólans yröi án nokkurra tengsla við hið almenna skólakerfi og kæmi ekki til álita sem leið til háskólanáms, tor- veldaði og tafði. — Svo hlaut aö vera þegar á hitt er litið að Sam- vinnuskólinn hefur þegar fengið, með takmörkunum þó, viður- kenningu Verslunarháskólans i Kaupmannahöfn, en þar geta tveir-þrir nemendur brautskráöir frá skólanum hlotið inngöngu ár hvert. Hliðstæð viöurkenning hefur og fengist hjá héraðs- kostur á að láta innritast i deildina. Hafa tiu nemendur látið innritast til fulls náms, auk tveggja sem stunda munu þar nám sem óreglulegir nemendur. Kennarar verða jafnmargir hinum föstu nemendum, eða tiu talsins. Skólastjóri lauk miklu lofsorði á Sigurð Markússon, fram- kvæmdastjóra skipulagsdeildar SIS og fræðsludeilda þess. Kvað hann Sigurð hafa átt hugmyndina að framhaldsdeildinni og tryggt samþykki stjórnar og fram- kvæmdastjórnar Sambandsins •fyrir áframhaldandi eflingu Sam- vinnuskólans. Ráðstefna ungra sósíalista hófst í gær t gær hófst á Akurcyri ráð- stefna ungra sósialista. Ráð- stefnuna setti Tryggvi Þór Aðalsteinsson fyrir hönd Æsku- lýðsnefndar Alþúðubandalagsins. Sfðan voru fluttar framsöguræöur um þrjá helstu málaflokka þingsins. Óttar Proppe ræddi um starfshætti flokksins, Ilelgi Guö- mundsson um sósiallskan flokk og verkalýðahreyfinguna og Þröstur ólafsson fjallaðium þát*- töku Alþýðubandalagsins I vinstri stjórninni. Siðdegis starfaði ráðstefnan i þrem starfshópum um fyrrnefnda málaflokka, en kl. 5 hófst fundur með Alþýðubandalaginu á Akur- eyri. Þar flutti Einar Kristjáns- son baráttaræðu um herstöðva- málið, en Ragnar Arnalds for- maður Alþýðubandalagsins svaraði fyrirspurnum um stjórn- málaástandið. t dag fjallar ráðstefnan um drög að ályktun og álit starfs- hópa. Gert er ráð fyrir að ráö- stefnunni ljúki siðdegis. Ráðstefnuna sækja um 70 manns. ALÞYÐU B AN DALAGIÐ H-lista fundur í Kópavogi. H-listinn heldur bæjarmálafund i Þinghóli á mánudagskvöld klukkan 20:30. Fjölmennið. Alþýðubandalagiö i Hafnarfirði Alþýðubandalagið i Hafnarfirði heldur félagsfund i Góðtemplarahús- inu uppi næstkomandi mánudagskvöld klukkan 20:30. Gils Guðmundsson, alþingismaður, ræðir um viðhorfin i herstöðvar- málinu. Kosning fulltrúa á flokksráðsfund. Félagar, fjölmennið! Stjórnin. Vesturlandskjördæmi Kjördæmisfundur verður i Snorrabúð, Borgarnesi, laugardaginn 13. október, kl. 2e.h. Jónas Arnason alþingismaður kemur á fundinn. Slysavarðstofa Borgarspitalans er opin allan sólarhringinn. Kvöld-, nætur- og helgidagavakt á Heilsuverndarstöðinni. Simi 21230. Sigurmundur Jónsson. Heldur áfram námi í Samvinnu- skólanum eftir meira en þrjátíu ára hlé Flestir þeirra nemenda, sem innritast hafa I fram- haldsdeildir Samvinnuskól- ans, hafa fremur nýlega lokið burtfararprófi úr öðrum bekk skólans, að einum undantekn- um, Sigurmundi Jónssyni, sem útskrifaðist árið 1940 og er sá eini af nemendum fram- haldsdeildarinnar, sem stund- aði nám i skólanum meöan hann var i Reykjavik. Viö náðum sem snöggvast tali af Sigurmundi, sem frá þvi aö hann lauk námi hefur aðallega starfaö viö bókhald og endurskoðun, einkum hjá rlkisfyrirtækjum, sem svo Flugmálastjórn og Skattstof- unni. Hann er fæddur I Hafn- arfiröi 1922, en hefur lengst af átt heima i Reykjavik. — Astæðan til þess að ég réöist i þetta er fyrst og fremst sú, að mig langaði til þess að endurnýja kunnáttu mina, sagði Sigurmundur — t öðru lagi er alltaf eitthvað nýtt að koma til sögunnar, þegar tölv- an er komin er maður kominn langt aftur úr áður en varir, ef maður gætir þess ekki að fylgjast með. Þetta verður sem sagt hvort tveggja i senn hjá mér upprifjun og fram- hald og ég held aö það fari ágætlega saman Mér segir prýðilega hugur um námið i vetur, en hinsvegar er ég alveg óráðinn i þvi hve lengi ég held áfram á námsbraut- inni að þessu sinni. Eg sé til með það.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.