Þjóðviljinn - 16.11.1973, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 16.11.1973, Qupperneq 4
4 SIÐA n— ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 16. nóvember 1973. Fiskveiðilagafrumvarpið til umrœðu á alþingi í gœr Sitt sýnist hverjum — en nú verður alþingi að taka af skarið Sjávarútvegsráöherra, Lúðvlk Jósepsson, mælti I gær fyrir frumvarpinu um heimildir til veiöa meö botnvörpu, flotvörpu og dragnót I fiskveiöilandhelg- inni. Frumvarp þetta er undirbú- ið af fiskveiöilaganefnd, sem er skipuð einum þingmanni frá hverjum þingflokki, og lagöi nefndin sllkt frumvarp fyrir sfö- asta alþingi. Þaö varö þá ekki út- rætt og óskaö var eftir þvl aö frumvarpið yröi nú flutt sem stjórnarfrumvarp. Ráöherra kvaö frumvarpið I öllum aðalatriðum samhljóöa frumvarpinu frá siöasta alþingi. Breytingarnar sem gerðar heföu verið væru minniháttar. Fyrir áramót Ráðherrann minnti á, að eldri ákvæði um þessi efni hefðu verið framlengd til þess að fiskveiði- laganefnd fengi tima til þess að vinna störf sin. Hefði hún lagt mjög mikla vinnu i málið og hald- ið fundi viðsvegar um landið i þvi skyni að heyra viöhorf sem flestra til fiskveiða i landhelginni. Þannig hefði frumvarp þetta ver- iö rækilega undirbúið. Þó hefði ekki tekist að ljúka þvi á siðasta þingi þar sem ýmsir þingmenn hefðu farið fram á að málinu yrði frestað og samþykktir hefðu og borist frá ýmsum aöilum þar sem fariö hefði verið fram á frestun til þess að skoða máliö betur. En þessari lagasetningu þarf að ljúka nú fyrir áramót og þess vegna er nauðsynlegt að koma málinu til nefndar strax, sagði ráðherrann, enda verður aö gera ráð fyrir að þingmenn og aðrir hafi nú kynnt sér málið svo, að unnt ætti að vera að afgreiða það. Meginstefna Ráðherra vék að meginstefnu frumvarpsins og sagöi efnislega eitthvað á þessa leið: Meginstefnan er sú að gert er ráð fyrir allmiklu minni togveiði- heimildum en verið hefur. Gert er ráö fyrir aö veiðiflotan- um sé skipt i þrjá flokka. t fyrsta lagi er um að ræða skip 105 rúml. og minni. Heimildum þessara skipa til togveiða væri breytt þannig nú, að þau mættu hvergi veiða innan 3ja milna, en áður hefði verið gert ráð fyrir möguleikum til veiða allt upp að landi sumsstaðar. Gert er ráð fyrir að heimildir skipa frá 106-350 rúmlestir verði á að erfitt væri að koma við full- nægjandi stjórn á þessum málum meöan við hefðum ekki útilokað útlendinga algerlega frá veiðum við landiö. Enn verður um mikla sókn útl. að ræða, sem mun tor- velda að gera ráöstafanir til frið- unar, enda gætu þær aöeins kom- ið útíendingunum til góða. Þýð- ingarmesta friðunin væri i þvl fólgin að losna viö erlend veiöi- skip, sem veiða fleiri fiska en Is- lendingar, þegar um er að ræða botnfiska. En viö verðum eigi að siður að reyna að skipa veiðunum á þann hátt sem viturlegastur er. Hafrannsóknarstofnunin lagöi til að landhelgi Kolbeinseyjar yrði stækkuð úr 3 milum i 9, en nefndin féllst á stækkun i 4 milur. Stofnunin lagði til að landhelgi Hvalbaks yrði stækkuð úr 3 mil- um I 12, en nefndin féllst á stækk- un i 6 sjómilur. Stofnunin lagði til að togveiðar yrðu bannaðar innan 6 milna frá fjörumarki Eldeyjar, en nefndin treysti sér ekki til að verða við þeirri breytingartillögu, meðal annars með hliðsjón af þeim á- kvæðum i gildandi lögum um að unnt sé að banna veiðar algerlega ef hættuástand er yfirvofandi. þingsjá þjóðviljans takmarkaðar talsvert nærri allt i kringum landið. Loks væri um aö ræða 350 tonn og stærri, en þar væri um að ræða verulega minnkaðar heimildir innan 12 milnanna, og má segja að aðalreglan sé sú að skip af þessum stærðarflokki séu útilok- uð innan 12 milnanna, þó i vissum undantekningartilfellum fái þau heimild til veiöa að 9 milum. Þá er i frumvarpinu ýmsar al- mennar heimildir um friðun ef sérstök ástæða þykir til i samráði viö Hafrannsóknarstofnunina. Það má lengi um það deila hvort nóg er að gert eða hvort of langt er gengið, en alþingi verður nú að skera úr og taka endanlega ákvöröun sína. Veiðar útlendinga Ráðherrann lagði loks áherslu Tillögur fiskifræðinga Gils Guðmundsson tók næstur til máls, en hann er formaður fiskveiðilaganefndar. Það var með bréfi i sept. sl. að sjávarútvegsráðuneytið fór þess á leit við fiskveiðilaganefndina að hún ynni úr þeim breytingartil- lögum og athugasemdum sem fram höfðu komið frá ýmsum að- ilum varðandi frumvarpið. Nefndin vann þetta verk og tók inn i frumvarpið 12 breytingartil- lögur hinna ýmsu aðila. Kvað þingmaðurinn ýmsar tillagnanna sem gerðar væru byggjast á áliti Hafrannsóknarstofnunarinnar eða starfsmanna hennar. Fiski- fræðingarnir höfðu ýmsar aðrar tillögur sem nefndin taldi ekki fært að verða við og nefndi þing- maðurinn meðal annars eftirfar- andi: Reglugerð um forgangsrétt fiskvinnsluprófa umfram námskeið fiskmatsins Lúðvik Jósepsson, sjávarút- vegsráðherra, lýsti þvl yfir á alþingi I gær að hann myndi beita sér fyrir því aö nú yrði þessa dagana sett reglugerð sem tryggi aö þeir scm út- skrifast úr fiskvinnsluskólan- um hafi forgangsrétt til starfa i fiskmati frani yfir þá sem Ijúka fiskimatsnámskeiðum. Umræður urðu um þetta mál utan dagskrár á alþingi i gær. Kvaddi sér fyrstur hljóðs Gylfi Þ. Gislason, þá Magnús Torfi ólafsson, menntamála- ráðherra og Ingðlfur Jónsson. Sjávarútvegsráðherra endurtók þá fyrri yfirlýsingar sinar frá þvi á fundi alþingis á þriðjudag, sem greint var frá i Þjóðviljanum, en það mun vera aðalástæða þess að nem- endur fiskvinnsluskólans hafa hætt að sækja skólann að þeir telja að réttur þeirra sé ekki nægilega tryggður gagnvart þeim sem stunda námskeið Fiskmats rikisins. Rœtt um rekstrargrundvöll skuttogara á alþingi: lapio nam ytir 140 milj. sl . ar Lúðvík Jósepsson sjávarútvegsráðherra svaraði á þriðjudag fyrir- spurn um rekstrargrund- völl skuttogara. í ræðu sinni sagði ráðherra meðal annars um umræðuefnið: Spurt er um það, hve miklu nam tap togaraútgerðarinnar ár- iö 1972. Það hefur farið fram at- hugun á þvl i sj.útv.rn. og af hag- rannsóknadeild Framkvæmda- stofnunar rikisins, og það er talið, að tap togaraútgerðarinnar hafi numið á árinu 1972, þegar af- skriftir eru taldar með, 141 milj- kr. Þar af eru afskriftir 37,3 milj. kr. Til þess að jafna eða greiöa upp i þetta tap, heíur togaraút- gerðinni verið greitt vegna rekst- ursins á árinu 1972 samtals 101 milj. kr. eöa úr aflatrygginga- sjóði um 36 milj. kr. og rikissjóði um 45 milj. kr. og af gengishagn- aði um 25 milj. kr., svo að það má segja, að þessi útreiknuðu töp hafi verið greidd að mestu leyti af opinberum aðilum eða á þennan hátt, nema afskriftafjárhæðin. Þá er i öðru lagi spurt um það, hvaða ráðstafanir hyggst rikis- stjórnin gera til þess að tryggja rekstur hinna nýju skuttogara? Það hafa engar ákvarðanir verið teknar i þeim efnum enn. Máliö hefur verið til athugunar, enda er hér um reynslurekstur að ræða, og reksturinn hefur á flestum skipunum staðiö enn i stuttan tima og varla hægt að tala um, að fengist hafi fullnægjandi yfirlit um rekstursafkomuna enn sem komið er. Þá gat þingmaðurinn þess að Hafrannsóknarstofnunin hefði lagt til allviðtækar friðunarráð- stafanir vegna hrygningar sildar. Sagði Gils að nefndin hefði komist að þeirri niðurstöðu að hrygning- arsvæðin væru ekki nógu skýrt afmörkuð og því varla unnt að setja svo viðtæk ákvæði um bann á togveiðum sem stofnunin fór fram á að giltu i júlimánuði. Vis- aði Gils i þessu sambandi til 5. og 6. greinar frumvarpsins sem gerðu ráð fyrir sérstökum skyndiráðstöfunum ef veiðisvæði væru talin i sérstakri hættu og jafnframt um möguleika til setn- ingar nýrra friðunarsvæða. Skýrði ræðumaður frá þvi, að fiskifræðingar teldu að i frum- varpinu i núverandi gerð væri sist of langt gengið i friðunarátt, en nefndin taldi óhjákvæmilegt að taka einnig tillit til þess að við- tækari friðun en gert væri ráð fyr- ir i frv. gæti haft i för með sér al- varlega röskun i heilu byggðar- lögunum, ef friðunarráðstafanir væru gerðar of skyndilega. Gæti það kippt grundvellinum undan veiðum smærri báta og skipa. En með þvi að gera ákvæði 5. og 6. greina sem virkust má ná árangri. Þá lagði Gils Guðmundsson á- herslu á að eftirlitsaðilum yrði að tryggja nægan skipakost og næg- an mannafla til þess að fylgjast með þvi að reglur væru haldnar. Þar sem talað er um að Haf- rannsóknarstofnunin hafi eftirlit i frv. þessu er að sjálfsögðu aðeins átt við hið visindalega eftirlit, en það er ekki ætlunin að þessi stofn- un taki að sér raunverulega lög- gæslu, sagði Gils til þess að koma I veg fyrir misskilning, en hans hefði nokkuð gætt. Fiskifélagið Gils Guðmundsson vék þessu næst að þeirri afstöðu Fiski- félagsins og ýmissa deilda þess að í frumvarpinu ættu aðeins að vera heimildarákvæði, en ekki boð og bönn. t staðinn vill Fiskifé- lagið að skipuð verði nefnd félagsins og sjávarútvegsráðu- neytisins sem hafi vald til að setja reglur um lokun veiðisvæða, notkun veiðarfæra, skiptingu veiðarfæra o.s.frv. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að hætta væri á að þessi mál yrðu fulllaus i reipunum ef farið yrði að tillögum Fiskifélagsins. Eftir- litið yrði a.m.k. að bæta fyrst, þá gæti komið til mála að gera breytingar i þessa veru. En þær raddir heyrast ekki ein- asta að of skammt sé gengið i friðun — aðrar raddir heyrast lika sem telja að hér sé fulllangt gengið. Kvaðst Gils ekki fjalla nú um einstakar athugasemdir af þvi taginu, en sagðist vilja nú við 1. umræðu ræða sérstaklega þá hugmynd sem komið hefði frá eigendum stórra togara að óeðli- legt væri að skipta veiðiskipunum I 3 stærðarflokka. Gils Guðmundsson Lúðvik Jósepsson Minni skipin En ef við ættum að hætta að flokka skipin er ljóst að hagnýting fiskimiðanna yrði með allt öðrum hætti — og raunar lakari — en ella. Ef öll togskip hefðu sama rétt, væri alveg kippt stoðunum undan útgerð hinna minni skipa. Með þeim breytingum sem nú eru að verða á skipakosti lands- manna hafa komið fram vaxandi vandamál fyrir útgerðarmenn hinna smærri báta að fá mann- afla á skipin auk rekstarvanda- mála. En ef jafnframt þessu væri þrengt að forgangsrétti þessara smærri skipa til togveiða væru dagar þeirra þegar taldir, sagði ræðumaður. Umræðunum lauk þar með, og var málinu visað til sjávarút- vegsnefndar og 2. umræðu. F yrirspurn - um um heimili drykkju- sjúkra svarað t fyrirspurnatima á þriðjudag var um það spurt hversu stórt væri heimili drykkjusjúkra, sem nú er verið að reisa á Vifilsstöð- um og hver væri áætlaður kostn- aður á rúmmetra. Magnús Kjartansson, heil- brigðisráðherra, svaraði og sagði: Rúmmetrafjöldinn er 3.216 rúmmetrar, sjúklingarnir 23 og kostnaður á rúmmetra áætlaður 10.138 kr. samkvæmt samþykktu tilboði verktakans. Rœtt um 200 mílur Tillaga Sjálfstæðisflokksins um útfærslu landhelginnar i 200 sjó- milur kom til umræðu i Samein- uðu þingi i gær. Til máls tóku Gunnar Thoroddsen, Guðlaugur Gislason og Friðjón Þórðarson.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.