Þjóðviljinn - 16.11.1973, Síða 13
Eileen Forbes sem drottningu
Woodchurc Avenue númer
tuttugu og tvö... Enn á ný var
glasinu lyft og það sett fyrir
framan veslings stúlkuna, sem
gat nú ekki leiígur leynt örvilnun
sinni. Rósamunda tók næstum
andköf. Nú hafði Eileen aftur
verið sett i gapastokkinn sem
dragbitur samkvæmisins og auð-
mýkt á allan hátt, þvi að engin
efaðist um að hún stóðst á engan
hátt samjöfnuð við systur sina,
hvað fyndni og greind snerti.
Rósamunda gaut augunum til
Geoffreys til að athuga, hvort
hann hefði lika tekið eftir þessu
tillitsleysi Lindýar. En — ænei —
hann leit bara vingjarnlega á
systurnar tvær og þegar Lindy
lauk tölu sinni meö þvi að klappa
saman lófum, klappaði hann lika.
Varþetta gert i góðum tilgangi,
haföi hún bara verið að gera þetta
að gamni sinu? Rósamunda gat
ekki áttað sig á þvi. Eileenar
vegna reyndi hún aftur að beina
samræðunum að bókadeildinni.
— Það hlýtur að vera áhuga-
vert að hjálpa fólki að velja
bækur, byrjaði hún og sneri sér að
stúlkutetrinu, en Lindy varð fyrri
til.
— Það er alveg við hæfi
Eileenar, sagði hún. — Góð og
örugg atvinna með von um eftir-
laun — Eileen er draumur starfs-
ráðgjafans. Það er ég þvi miður
ekki, ég er miklu fremur martröö
hans. Einhverra hluta vegna hef
ég aldrei kunnað að meta öryggi
og aðeins tilhugsunin um eftir-
laun...
Geoffrey hló að skelfingar-
hreimnum i rödd hennar.
— Hvað gerirðu þá? spurði
hann. — Þegar þú sækir um starf,
tryggirðu þér þá alltaf fyrir fram
að engin eftirlaun séu i vændum
og að tilvonandi húsbóndi þinn
geti örugglega sagt þér upp fyrir-
varalaust þegar honum sýnist?
— Svona allt að þvi. 0, hvað þú
skilur mig vel, Geoff! Lindy var i
sjöunda himni. — En i rauninni er
ég að gera dálitið sem er enn vit-
lausara þessa stundina — ég er að
reyna að bjarga mér sem tau-
þrykkjari á frjálsum markaði. Og
annað eins öryggisleysi er ekki
til. Og4)að er eins og hvert annað
lán að önnur okkar skuli þó að
minnsta kosti hafa fasta og
örugga vinnu, er það ekki?
Hún leit viöurkenningaraugum
á Eileen og þótt Rósamunda legði
sig alla fram, gat hún með engu
móti greint hvort augnaráðið
byggi lika yfir fyrirlitningu og
meðaumkun. Dæmdi hún Lindy
rangt þrátt fyrir allt.
Sömu efasemdirnar gerðu vart
við sig siðar, þegar Lindy fann
fram gitar úr kraðakinu og settist
við opnu frönsku gluggana og
byrjaði hljóðlega að hræra
strengina. Stundarkorn leitaði
hún i huga sinum og ákvað loks að
syngja ,,Ó, ástin blið” og lék
hljóðlega undir á gitarinn.
— Syngið nú öll með, sagði hún
eftir fyrsta erindið og Geoffrey
varð fyrstur til að taka undir og
rétt á eftir gerði Rósamunda hið
sama. En Eileen þagði. Var húr\
móðguð eða fannst henni þetta
bjánalegt, eða var skýringin ein-
faldlega sú að hún gat ekki
CELIA FREMLIN
KÖLD
ERU
KVENNA-
RÁÐ
©
sungið? Ef það var skýringin, þá
hlaut Lindy að vita það — og þá
var þetta enn ein tilraunin til að
gera litið úr henni.
Lindy hafði fallega rödd. Hún
hófst og hneig i rökkri sumar-
næturinnar, skær og hrein eins og
i næturgala — eða var það
kannski ránfugl sem var að
syngja?
4
Þetta kvöld varð upphafið og á
þvi stigi var Rósamunda ekki
ennþá orðin afbrýöisöm. Ekkert
hefði getað komið þeirri hugmynd
inn hjá henni að lita á Lindy sem
tilvonandi keppinaut, og sú tóm-
leika- og vonbrigðakennd sem
gagntók hana þegar þau héldu
heimleiðis löngu eftir miðnættið,
stóð ekki i neinu sambandi við
afbrýði. Hún stafaði af þvi að hún
fór á mis við rabbið sem hún og
Geoffrey höfðu hingað til alltaf
átt saman á leið heim úr sam-
kvæmi — þegar þau lágu i
rúminu og hlógu að einhverri
persónu eða atviki og skiptust á
skoðunum um atburði kvöldsins,
hvort heldur þeim hafði þótt
gaman eða þeim hafði leiðst.
En þetta kvöld komst Rósa-
SATT BEST AÐ SEGJA
Kjaftshögg
Þar fékk Evrópa á kjaftinn.
Hið viðfræga og áhrifamikla
dagblað „Visir” frá íslandi
greiddi Evrópu allri þvilikt rot-
högg um daginn, með einum
leiðara, að óhugsandi er að hún
beri sitt barr eftir þetta. Hér var
engum vettlingatökum beitt,
heldur kaldri rökhyggju af
fáheyrðri pólitiskri yfirsýn.
„Evrópa er aumingi”, segir
Visir. „Evrópa hefur nú
samcinast i mestu niðurlægingu
sinni á siöustu öldum”. „Evrópa
aJdarinnar
og Efnahagsbandalagið hafa
opinberaö ræfildóm sinn”, með
þvi að lýsa yfir stuðningi við
Araba.
Allir vita auðvitað, að það sem
nú á sér stað i Evrópu heitir oliu-
pólitik og á rætur að rekja til þess
hve Evrópa er geysilega háð
Arabalöndunum vegna oliunnar.
Visir gengur hinsvegar fyrir
rússneskri oliu, áhyggjulaus
næstu árin einsog aðrir á tslandi.
En nú hefur Evrópa semsagt
fengiöVisiupp á móti sér. Það vil
ég kalla kjaftshögg aldarinnar.
munda að raun um að það er ekki
gaman að skiptast á skoðunum
nema skoðanirnar séu nokkurn
veginn eins. t raun og veru kom
enginn samanburður þarna viö
sögu, það var aðeins sameiginleg
gleði yfir þvi að lita svipuðum
augum á allt. Mikið hefðu þau
getað skemmt sér vel i kvöld yfir
tilgerð Lindyar, ágengni hennar,
duldri illgirninni i garö systur-
innar, ef Geoffrey hefði séð hana i
sama ljósi. En saklaus gleði hans
yfir hinu skemmtilega kvöldi var
eins og múr — þar var ekki
nokkur sprunga sem hægt var að
ræðast við i gegnum. Þannig
fannst Rósamundu það að
minnsta kosti. Það var ekkert
samtal að skiptast á athuga-
semdum á borð viö þetta: — Já,
var þetta ekki skemmtilegt? eða
— Já, hún hlýtur að hafa geysilegt
lifsfjör, og: — Já, það veröur
sannarlega kærkomin tilbreyting
að fá svona manneskju i
nágrennið i staðinn fyrir gömlu
Sowerbyshjónin.
I rauninni hafði verið miklu
skemmtilgra að hafa Sowerbys-
hjónin fyrir nágranna, hugsaði
Rósamunda þrjósk. Sowerbys-
hjónin, hvimleið og geðill, með
eilfifar kvartanir, rex og pex og
snyrtilegar raðir af veiklulegum
blómum, sem herra Sowerby
gróðursetti á hverju vori gegn
vilja konu sinnar. Næstum á
hverju einasta kvöldi höfðu þau
getað upphafið skemmtilegtsam-
tal: — Veistu hvað Sowerbys-
hjónin voru núna að rifast um? —
og glaðst yfir þvi með sjálfum sér
að þau voru sjálf i svo ánægju-
legu hjónabandi, gagnstætt
hinum ömurlegu nágrönnum.
Þegar Rósamunda lá andvaka
fyrstu nóttina og horfði út um
gluggann á minnkandi sumar-
tunglið, stóð hún sig að þvi að
sakna þess tima þegar Sowerby-
hjónin bjuggu i nágreinninu.
Sakna hávaðans i stigvélum
Sowerbys gamla, sem hann
gleymdi alltaf að þurrka af á
mottunni, þegar hann kom inn úr
garðinum, sakna fjolskyldu frú
Sowerbys sem hann var alltaf
ókurteis viö... En hvað það hafði
verið skemmtilegt! Eins og löng,
spennandi og viðburðarrik fram-
haldssaga, sem hætti allt i einu og
vék fyrir einni af þessum leiðin-
legu hamingjusögum, þar sem
hvergi vottaði fyrir sorgum né
áhyggjum og pekinghundur með
rauða slaufu var jafnvel ein af
aðalpersónunum... Rósamunda
gat séð kvikindið fyrir sér sem
mikilvægt atriði i heilsiðu mynd-
skreytingu i fanginu á leiðinlegri,
tilgerðarlegri kvensu....
— Systirin er viðkunnanleg
lika, sagði Geoffrey allt i einu —
hún hafði haldið að hann væri
löngu sofnaður. — En auðvitað er
hún miklu kyrrlátari en Lindy. Og
fáskiptari. En reglulega • indæl.
— Já, þær eru báðar indælar,
samsinnti Rósamunda eins og
páfagaukur og var fégin þvi að
Geoffrey sá ekki framani hana.
Ég hata indælt fólk, hugsaði hún
gremjulega. Ég er hrifnari af
ónotalegu fólki. Ahugaverðu,
ónotalegu, andstyggilegu fólki,
sem hægt er að tala um — og
hlæja að. Fólki, sem veitir mér
aukið sjálfsálit, hefði hún getað
bætt viö, en það hefði verið til-
gangslaust að halda þessum ugg-
vænlegu hugsunum áfram um
miðja nótt, og þess vegna lokaði
Rósamunda augunum til að þurfa
ekki lengur að horfa út i bjarta
nóttina, og sofnaði.
Hún sá ekki Lindy aftur fyrr en
á mánudagsmorgun. Það var
lygn og sólbjartur morgunn, titr-
andi af hitamistri, kjörinn til að
þvo þvutt, skrifa bréf éða stoppa
og staga úti i garði, eða einfald-
lega leggjast út i góða veðrið og
horfa upp i hlýjan, kyrran
himininn á milli grænna grein-
anna. Og það var einmitt það sem
Lindy var að gera. Um leið og hún
kom auga á Rósamundu hinum
megin við grindverkið, þar sem
hún var að festa upp þvottasnúr-
urnar sinar, kallaði hún: — Rósie,
þú ferð þó ekki að gera handarvik
i svona veðri. Það gerir enginn.
Það ætti að minnsta kosti að vera
bannað. Komdu hingað undir eins
og fáöu þér iskaffi.
Rödd hennar var vingjarnleg
og gestrisnin ósvikin. Henni fellur
i rauninni vel við mig, hugsaði
Rósamunda dálitið hissa — ein-
hverra hluta vegna hafði hún
haldið að fjandsamlegu tilfinn-
ingarnar sem höfðu vaknað i
henni á laugardagskvöldið, hefðu
Föstudagur 16. nóvember 1973. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 13
Föstudagur 16. nóvember
7.00 Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15
og 10.10. Morgunleikfimi kl.
7.20. Fréttir kl. 7,30,8.15 (og
forustugr. dagbl.) 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Olga Guðrún Árna-
dóttir 'heldur áfram lestri
sögunnar: „Börnin taka til
sinna ráða” eftir dr.
Gormander (2).
Morgunleikfimikl. kl. 9.20.
Tilkynningar kl. 9.30. Þing-
fréttir kl. 9.45. Spjallað við
bændur kl. 10.05. Létt lög á
milli liða. Morgunpopp kl.
10.25: Close to you,
Carpenters syngja og leika.
Morguntónleikar kl. 11.00:
Filharminiusveitin i Vin
leikur Sinfóniu nr. 9 i d-moll
eftir Anton Bruckner: Carl
Schuricht stj.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.30 Með sinu lagi.Svavar
Gests kynnir lög af hljóm-
plötum.
14.30 Siðdegissagan: „Saga
Eldeyjar-Hjalta’’ ef tir
Guðmund G. Hagalin.
Höfundur les (8).
15.00 Miðdegistónleikar:
Kammcrtónlist.Triest-trióið
leikur Pianótrió i Es-dúr op.
100 eftir Franz Schubert.
15.45 Lesin dagskrá næstu
viku,
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popphornið.
17.10 (Jtvarpssaga barnanna:
„Mamma skilur allt” eftir
Stefán Jónsson. Gisli
Halldórsson les (9).
17.30 Framburðarkennsla I
dönsku.
17.40 Tónleikar. Til-
kynningar.
18.30 Fréttir. 18.45. Veður-
fregnir. 18.55. Tilkynningar.
19.00 Veðurspá Fréttaspegill.
19.20 Þingsjá Davið Oddsson
sér um þáttin.
19.45 Heilnæmir lifshættir.
Björn L. Jónsson læknir
talar um nýstárlegar mann-
eldisaðferðir.
20.00 Tónleikar Sinfóniu-
hljómsveitar tslands i
Háskólabiói kvöldið áður.
Hljómsveitarstjóri:
Karsten Andersen
Einsöngvari: Jcnnifer
Vyvyan frá Bretlandia. Les
llluminations, tónverk fyrir
sópran og strengjasveit
eftir Benjamin Britten. b.
Sinfónia nr. 4 i G-dúr eftir
Gustav Mahler — Jón Múli
Arnason kynnir tónleikana
21.30 Útvarpssagan:
,,I) vcrgurinn” eftir PSr
l.agcrkvist i þýðingu Mál-
friðar Einarsdóttur. Hjörtur
Pálsson les (9).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir.
Eyjapistill,
22.40 Draumvisur. Sveinn
Magnússon og Sveinn Arna-
son sjá um þáttinn.
23.40 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
Föstudagur 16. nóvember
20.00 Frcttir.
20.25 Veður og auglýsingar.
20.30 Oscar Petcrson.Upptaka
frá tónleikum i Björgvin.
Jazz-pianistinn Oscar Pet-
erson leikur. (Nordvision —
Norska sjónvarpið)
21.05 Landshorn. Fréttaskýr-
ingaþáttur um innlend mál-
efni. U msjónarmaður
Gunnar Eyþórsson.
21.40 Mannaveiðar. Bresk
framhaldsmynd. 16. þáttur.
Peð i hróksvaldi II. Þýð-
andi Kristmann Eiðsson.
Efni 15. þáttar: Gratz tekur
breskan njósnara til fanga,
en gengur erfiðlega að
koma honum til að segja frá
leyndarmálum sinum.
Gratz dettur þá i hug að not-
færa sér hrifningu fangans
af Ninu. Hann leyfir Bret-
anum að sleppa, gegn þvi,
að hann fari til fundar við
Ninu og segi henni allt, sem
hann veit. Sjálfur liggur
hann i leyni og fylgist með
fundi þeirra.
22.35 Iiagskrárlok.
ttltima
FYRIR
HEIMIUÐ:
Gluggafjöld
Gólfteppi
Húsgagnaáklæði
Veljið íslenzka gæðavöru
KJÖRGARÐI
Auglýsingasíminn er 17500