Þjóðviljinn - 05.02.1974, Side 11
Þriðjudagur 5. febrúar 1974. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 11
Gunnar og Viðar úr umferð
og FH-liðið komst í hann krappan gegn ÍR
Eftir glæsilegan fyrri
hálfleik/ þar sem FH réði
lögum og lofum og hafði
yfir i leikhléi 16:9, gerðu
iR-ingar það sem engu liði
hef ur enn dottið í hug í vet-
ur. Þeir tóku bæði Gunnar
Einarsson og Viðar
Simonarson úr umferð
með þeim árangri að FH-
liðið hrundi til grunna um
tíma og ekki stóð steinn
yfir steini. Liðið skoraði
ekki mark í 13 mínútur. IR
minnkaði muninn úr 20:13 í
20:17 og 21:18. Lokatölurn-
ar urðu að vísu öruggur
sigur FH 26:20, enda voru
iR-ingar þá orðnir von-
lausir um að ná að jafna,
og komu síðustu 4 mörk FH
á síðustu 2 minútunum
þegar IR-ingar höfðu
gefist upp. Eigi að síður
opinberuðu iR-ingar
ákveðinn veikleika hjá FH
— ef þeir Gunnar og Viðar
Ipswich á
skotskónum
Sigraöi Southampton 7:0
— Liverpool og Leeds lentu
bæði í kröppum dansi
Það verðurekki annað
sagt en Ipswich hafi
verið á skotskónum i
leik gegn Southampton á
laugardaginn. 7-0 sigur
liðsins var, þótt undar-
legt megi virðast, síst of
stór, að því er BBC
fréttastofan sagði, og er
þetta stærsti sigur liðs-
ins í fjölmörg ár.
Einn af stærri leikjum helg-
arinnar, eöa a.m.k. einn af
þeim mest spennandi, var
leikur Leeds gegn Chelsea, og
enn einu sinni máttu þeir fyrr-
nefndu þakka fyrir jafnteflið.
Leeds hefur ekki gengið alltof
vel undanfarið og jafnteflin
eru vissulega orðin nokkuð
mörg hjá liðinu, sem enn er þó
taplaust i 1. deild.
Þetta 1—1 jafntefli við Chel-
sea getur Leeds þakkað mark-
verði sinum eingöngu, David
Harwey. Hann varði eins og
landsliðsmarkverði sæmir all-
an leikinn og á siðustu sek-
úndu leiksins náði hann að ýta
bolta útfyrir markstöngina á
undraverðan hátt. Þrumuskot
eins Chelsea framherjans
stefndi þá rakleiðis i net-
möskvana og áhorfendur voru
byrjaðir að fagna þegar Har-
svey sýndi þessa undramark-
vörslu.
Enn er þvi Leeds taplaust og
i algjörum sérflokki með 7
stiga forystu á Livérpool, sem
marði sigur yfir botnliðinu
Norwich, 1-0.
Úrslit á laugardag:
1 .deild
Arsenal—Burnley l-l
Coventry—Manch.Utd. 1-0
Derby—Newcastle 1-0
Ipswich—Southampton 7-0
Leeds—Chelsea 1-1
Liverpool—Norwich 1-0
Manch.City—Tottenham 0-0
QPR—Leicester 0-0
Sheff.Utd—Everton l-i
West Ham—Birmingham 0-0
Wolves—Stoke 1-1
2. deild
Aston Villa—Luton 0-1
Blackpool—Oxford 2-0
Bristol City—Cardiff 3-2
Carlisle—Orient 3-0
C.Palace—Preston 2-0
Fulham—Sheff. Wed 4-1
Hull—Notts County 1-0
Nottm.For.— Middlesbro 5-1
Portsmouth—WBA 1-1
Sunderland—Millvall 4-0
Swindon—Bolton 2-2
Framhald á 14. siðu.
Svavar Carlsen, sigurvegari I þungavigt og opna flokknum á afmælis-
móti JS.
Afmælismót Júdósambands ísiands:
Svavar sigraði bæði
í þungavigt og opna
flokknum
Afmælismót Judósa m bands
islands var háð i iþróttahúsinu i
Ytri-Njarðvik iaugardaginn 2.
febrúar. Keppendur voru 48 frá 5
félögum, 22 i flokkum fullorðinna
og 26 i flokki unglinga 15-17 ára.
Úrslit i öllum flokkum urðu sem
hér scgir:
FULLORDNIR
Opinn flokkur
(án þyngdartakmarkana)
1. Svavar Carlsen
1. dan (JFR)
2. Sigurjón Kristjánsson
1. dan (JF'R)
3-4. Sigurður Kr. Jóhannsson
1. dan (JFR)
3. -4. össur Torfason
1. dan (Gerplu)
I þessum flokki var i fyrsta sinn
keppt um veglegan silfurbikar
sem gefinn var af skipasmtðastöð
Njarðvikur h.f.
Þungavigt
(yfir 93 kg)
1. Svavar Carlsen
1. dan (JFR)
2. Sigurður Ingólfsson
6. kyu (UMFK)
Léttþungavigt
(80-93 kg)
1. Sigurður Kr. Jóhannsson
1. dan (JFR)
2. Guðmundur Rögnvaldsson
3. kyu (JFR)
3. Halldór Guðnason
6. kyu (JFR)
Millivigt
(70-80 kg)
1. Sigurjón Kristjánsson
1. dan (JFR)
2. össur Torfason
1. dan (Gerplu)
3. -4. Jón Guðlaugsson
6kyu (UMFK)
3-4. Jóhann Héðinsson
6. kyu (Gerplu)
Léttmillivigt
(63-70 kg)
1. Halldór Guðbjörnsson
2. kyu (JFR)
Framhald á 14. siðu.
FH sigraði
einnig í
mfl. kvenna
Einn leikur fór fram i mfl.
kvenna i 1. deild um helgina. Þar
sigraði FH Viking með 13 mörk-
um gegn 10 eftir að hafa haft yfir i
leikhléi 9:4. FH sem kom uppúr 2.
deild i fyrra er nú sloppiö úr allri
fallhættu I ár.
Landsliðið sigraði
Pressuleikur fór fram i blaki sl. föstudagskvöld. Er þetta fyrsti
pressuleikurinn i þessari iþróttagrein og kom i stað bæjarkeppni
milli Reykjavikur og Akureyrar sem átti að fara fram þetta kvöld,
en Akureyringarnir treystu sér ekki til keppninnar að þessu sinni.
Svo fóru leikar, að landstiðið sigraði 3:1. Landsliðið vann fyrstu
hrinu 15:5 og aðra hrinu 15:1 (I,en þriðju hrinuna vann pressuiiðið
15:13,en þá fjórðu landsliðið 15:11.
Sem kunnugt er fer fram landsleikur i blaki milli tslendinga og
Norðmanna hér á landi i næsta mánuði. Erlendur þjálfari er
væntanlegur til blak-manna siðast i þessum mánuði,og mun hann
æfa landsliðið fyrir þennan fyrsta iandsleik.