Þjóðviljinn - 05.02.1974, Page 13
o
Þriðjudagur 5. febrúar 1974. ÞJÓDVILJINN — SÍDA 13
keppinautar M?„e,,,r
inn vill hann gjarnan ná taki á
mér, svo að enginn annar hrifsi
mig fyrir framan nefið á honum.
Hvað gerir herra Alvis Cart-
ridge? Hvað gerir hann?
— Megum við geta þrisvar?
sagði ég.
— Hann kemur hingað á morg-
un. Róbert var á svipinn eins og
það væri alversti glæpur
Cartridges. — Hann kom æðandi
hingað i morgun, er það ekki rétt,
Jói?
— Jú sagði ég.
— Jói sá það sjálfur, sagði Ró-
bert. — Jói getur sagt þér það allt
saman. Það var ekki nokkur
manneskja vöknuð i húsinu og
hann æddi bara inn og barði að
dyrum á vinnustofunni. Klukkan
niu. Þú getur sjálfur spurt Jóa.
— Spurðu mig, Ned, sagði ég.
— Og ég mun segja þér sannleik-
ann.
— Bara til að segja mér, hélt
Róbert áfram, — bara — til — að
— segja — mér, hann þagði við, —
alls konar þvætting og bull sem
hann hefði betur látið ósagt.
Ned hafði staðið upp við vegginn
og hlustað með krosslagða hand-
leggi, en nú rétti hann úr sér og
gekk nær, eins og timi væri kom-
inn til þess að hann tæki málin i
sinar hendur.
— Við verðum að fá einhverjar
staðreyndir, vinur minn, sagði
hann uppörvandi. — Hvað sagði
hann nákvæmlega —
— Staðreyndir, hvæsti Róbert.
Sjálft orðið fyllti hann meiri reiði
en nokkuð annað sem sagt hafði
verið. 1 margar minútur stóðum
við álút öll þrjú og biðum eins og
fólk sem hlustar á bæn I sam-
kunduhúsi, meðan hann ruddi úr
sér orðaflaumi.
— Og loks kom að þvi, sagði
hann loks, — að hann bauð mér að
sýna i einum af góðu sýningarsöl-
unum.
Hann stansaði til að gefa okkur
tima til að spyrja hvað væri at-
hugavert við það, en við vorum öll
svo vön framsetningu hans; viss-
um að framhaldið kæmi sjálf-
krafa.
— Prýðilegt. Ég teygði mig
sem sé eftir reipinu sem hann lét
hanga niður til min. Ég teygði
mig eftir þvi. Það virtist vera
fyrirtaks reipi. Ég greip um það
með fingrunum. Og hvað gerði
þessi svikahrappur þá? Hann dró
reipið upp aftur, út úr höndunum
á mér.
— Staðreyndirnar, Róbert,
haltu þér við staðreyndir, greip
Ned fram i. Nú var röddin oröin
dálitið hvöss og gaf til kynna að
hann væri að verða óþolinmóður.
Samt óskaði ég þess að hann
hefði þagað. Það var ég sem átti
að koma i veg fyrir að árekstrar
yrðu milli þeirra, og ef Ned kæmi
fram á þennan hátt, gæti það
reynst erfitt. Róbert stansaði og
starði á Ned.
— Það er einmitt það sem ég
geri, sagði hann. — Liggur þér
svona mikið á? Ef þú þarft að ná i
lest, þá flýttu þér. Það er enginn
sem heldur i þig. Við —
Nú tók Celia til sinna ráða. Ég
var fegin að hún var þarna. Þetta
var sigilt dæmi um hæfileika konu
til að sefa karlmann. Hún tók
báðum höndum um andlit hans —
sem ég hefði reyndar ekki kært
mig um sjálfur —og fór að hvisla
og mala og kurra i eyrun á hon-
um. Við Ned stóðum þarna fullir
af viðbjóði, en of miklar hetjur til
að hniga niður. Rétt eins og þrek-
menni sem neyðast til að vera
viðstödd uppskurð.
— Hann fer svo fljótt úr jafn-
vægi, sagði hún um öxl. — Hann
þarfnast einhvers sem getur
hjálpað honum. Lifið er miskunn-
arlaust við menn eins og hann.
Ég býst við að hún hafi lesið um
miskunnarleysi lifsins f skáld-
sögu eða heyrt um það i lélegu
leikriti. En þetta hafði áhrif á mig
og mér hefur oft dottið það i hug
seinna á ævinni, þegar ég hef séð
Róbert ana áfram i blindni og
rekast á öll hvössu hornin sem
urðu á vegi hans.
— Nú, jæja, sagði Róbert allt i
einu og hristi af sér hendur henn-
ar ein og þegar hnefaleikamaður
hristir þjálfárann af sér. — Við
urðum sammála um að ég ætti að
halda sérsýningu þar sem allir
gætu komið og horft á verkin min
og rætt um þau og gert mig fræg-
an og keypt þau, að þvi ógleymdu
að ég yrði rikur maður. Og þá
bætti hann allt I einu við smáatr-
iði sem skipti dálitlu máli.
Fimmtiu pund!
I þögninni sem á eftir kom
sagði ég: — 1 peningum?
— Nei, i hundaskit, hrópaði Ro-
bert ofsareiður og langa stund
ruddi hann úr sér nöfnum á ýmsu
hvimleiðu sem hann ætti að út-
vega i pundatali. Jafnvel Celiu
þótti nóg um.
— Vegna þess að sýningar-
nefndin vill aðeins taka á sig
hálfa áhættuna og vegna þess að
það kostar svo sem hundrað pund
að koma þessu öllu i kring, sagði
hann loks örþreyttur.
— Hanastélsboði? spurði Ned
fagmannslega.
— Hanastélsboði, já, og prenta
kort og senda þau út, auglýsa,
kaupa skeinisblöð — byrjaði Ró-
bert og taldi upp fleiri ósmekk-
lega hluti sem kaupa átti fyrir
peningana.
Þegar hann var loks þurrausinn
og það varð hljótt i eldhúsinu, tók
ég eftir þvi, að Ned haföi dregið
stól að borðinu og var sestur.
Hann ýtti til hliðar óhreinu leir-
taui og gömlum rúmdýnum til að
fá rúm til að skrifa. Ég teygði
fram álkuna til að sjá hvað hann
væri að skrifa, það var ávisun.
— Þegar blekið er þurrt er
þetta þin eign, Róbert, sagði hann
og reif hana úr heftinu.
Róbert kom og tók hana. Svo
lagöi hann hana á borðið og hristi
höfuðið einbeittur á svip.
— Þú verður að fyrirgefa, Ned,
sagði hann. — Og ég met þetta
mikils og allt það. En þetta eru
min vandræði og ég verð sjálfur
að ráða fram úr þeim. Ég vil
ekki byrja á neinni vitleysu.
Ned sat og vaggaði sér á eld-
hússtólnum. Svo teygði hann frá
sér fæturna og stakk höndum i
jakkavasana og horfði á Ró-
bert.
— Biddu nú hægur, sagði
hann. — Þú vilt ekki byrja á
neinni vitleysu, eins og þú tekur
til orða. Við skulum athuga þessa
staðhæfingu nánar.
— Athugaðu hana nánar sjálf-
ur, sagði Róbert óþolinmóðlega.
— Haltu henni upp að birtunni og
skoðaðu hana.
— Svona, svona Róbert, sagði
Ned.
— Þú getur skoðað rassgatið á
þér betur i kiki, hélt hann áfram
ótrauður. Það voru hans ær og
kýr að hengja sig fastan i eitthv.
ákveðið atriði og vikja ekki frá
þvi. — Þú getur athugað —
— Elskan, hlustaðu á hann,
sagði Celia og gekk til hans. Ég sá
á henni að hún hafði verið að
hugsa um allan þann vanda
sem ávisunin gæti leyst. — Leyfðu
honum að ljúka máli sinu.
Ég bjóst hálfpartinn við þvi að
Róbert ryki upp, en hann lokaði
augunum þreytulegur á svip. —
Celia, sagði hann lágri röddu. —
Viltu gera dálitið fyrir mig? Bara
dálitið smávegis?
Hann þagnaði svo að hún gæti
spurt: — Hvað á það að vera?,en
hún gerði það ekki. Hann tók það
sem samþykki. — Viltu gera svo
vel að fara upp og sækja ullar-
sloppinn minn?, sagði hann og
strauk á henni höndina.
— Já, en þú áttengan ullarslopp.
— Erfiðleikar eru til að sigrast
á, elskan, sagði Róbert og brosti
þolinmóðlega. -r Þú ræður ein-
hvernveginn fram úr þvi. Þú ferð
bara út og kaupir dálitið af ullar-
garni og bandprjóna og byrjar að
prjóna hann handa mér.
— Prjóna?
— Og þegar þú ert búin, þá
verðum við lika búnir að ráða
fram úr þessum viðskiptum okk-
ar og þú hefur haft eitthvað að
dunda við á meðan.
An þess að mæla orð gekk Celia
þvert yfir gólfið og útum dyrnar.
Ég sá ekki framani hana, þvi ég
stób i horninu andspænis þeim, en
á bakið var hún sýnilega
Desdemona eftir að Othello er bú-
inn að gefa henni sitt undir hvorn
i návist Feneyjasendimannsins
Lodovico.
Þegar hún var farin, sagði Ró-
bert: Agætt, Ned, ég tek við pen-
ingunum og segi kærar þakkir.
Við komum ekki upp orði og ég
sá á Ned, að hann átti erfitt með
að skilja þessi snöggu umskipti.
Róbert hafði verið þrjóskur og
verið að búa i haginn fyrir að af-
þakka og nú stóðum við þarna
hvumsa eins og maður sem hopp- ,
ar i myrkri útum glugga i tuttugu
feta hæð og kemst að raun um að
hæðin var reyndar ekki nema
þrjú fet.
— Það gleður mig að þú skulir
taka við þeim, sagði Ned loks.
— Það gleður mig lika, sagði
Róbert og stakk tékkanum i vesk-
ið, þar sem fyrir voru tveir
strætisvagnamiðar og ein hárnál.
— En ég er dálitið undrandi,
hélt Ned áfram.
— Undrandi?
— Mér fannst þú hreyfa svö
miklum andmælum áðan, en þú
hefur bersýnilega skipt um skoð-
un.
Róbert brosti. — Það er gott að
vita hvenær maður á að skipta
um skoðun, sagði hann.
Við Ned störðum á hann. Það
þýddi vist ekki að vænta frekari
sicýringa. Við gátum velt vöngum
yfr þessu það sem við áttum eftir
ólifað, en við fengjum aldrei að
vita hvort hann hefði vitað allan
timann að hann ætlaði að þiggja
peningana og beið aðeins eftir að
losna við Celiu, eða hvort hann
hefði i rauninni skipt um skoðun á
tiu sekúndum. Ég lit nú þannig á
málib nú eins og þá, að hann hafi
Brúðkaup
Þann 24.11. voru gefin saman i
hjónaband i Bústaðakirkju af
séra Ólafi Skúlasyni Kristin
Gisladóttir og Orn Baldursson.
Heimili þeirra er að Sörlaskjóli
56. (Nýja myndastofan)
Þann 27.10. voru gefin saman i
hjónaband i Kópavogskirkju af
séra Árna Pálssyni Linda
Róbertsdóttir og Ólafur Gunnars-
son. Heimili þeirra er að Æsufelli
4. (Nýja myndastofan)
Þriðjudagur 5. febrúar
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.20.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for-
ustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna ki.
8.45: Vilborg Dagbjarts-
dóttir byrjar að lesa söguna
„Börn eru bezta fólk” eftir
Stefán Jónsson. Morgun-
leikfimikl. 9.45. Tilkynning-
ar kl. 9.30. Þingfréttir kl.
9.45. Létt lög milli atriða.
Ég man þá tíð kl. 10.25:
Tryggvi Tryggvason sér um
þátt með frásögnum og tón-
list frá liðnum árum. Tón-
leikar kl. 11.25: Sinfóníu-
hljómsveit Lundúna leikur
„Marche Slave” op. 31 eftir
Tsjaikovský og „Eldfugl-
inn”, svitu eftir Stravinský.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Eftir hádegið. Jón B.
Gunnlaugsson leikur létt lög
og spjallar við hlustendur.
14.30 Siðdegissagan: „Dyr
standa opnar” eftir Jökul
JakobssonJíöfundur les (4).
15.00 Miðdegistónleikar:
Sinfóniuhljómsveitin i Chi-
cago leikur Sinfónisk til-
brigði eftir Paul Hindemith
um stef eftir Weber,- Rafael
Kubelik stj. Hljómsveitin
Philharmonia leikur
Sinfóniu nr. 5 I B-dúr op. 100
eftir Sergej Prokofjeff; Paul
Kletzki stj.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.25 Popphornið.
17.10 Tónlistartimi barnanna.
Ólafur Þórðarson sér um
þáttinn.
17.30 Framburðarkennsla i
frönsku.
17.40 Tónleikar. Tilkynningar.
18.30 Fréttir. 18.45 Veður-
fregnir. 18.55 Tilkynningar.
19.00 Veðurspá Fréttaspegill.
19.20 Á vettvangi dómsmál-
anna.Björn Helgason hæsta-
réttarritari talar.
19T40 Tónleikakynning.Gunnar
Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri segir frá tón-
leikum Sinfóniuhljómsveit-
ar Islands i vikunni.
19.50 Finnsk kvæði. Elin
Guðjónsdóttir les kvæði eft-
ir Runeberg og Topelius,
svo og upphafsljóö Kale-
valadrápu.
20.00 Lög unga fólksins. Ragn-
heiður Drifa Steinþórsdóttir
kynnir.
21.00 Hæfilegur skammtur,
GIsli Rúnar Jónsson og
Július Brjánsson sjá um
þátt með léttblönduðu efni.
21.30 A hvitum reitum og
svörtum. Guðmundur Arn-
laugsson flytur þáttinn.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Morðbréf
Margeirs K. Laxdals, —
fjórði hluttSaga eftir Hrafn
Gunnlaugsson i útvarpsgerð
höfundar. Flytjendur með
honum: Rúrik Haraldsson
leikari, Orn Þorláksson og
Lárus Óskarsson.
23.00 Á hljóðbergi, „Pyg-
malion” leikrit eftir Bern-
ard Shaw, — siðari hluti.
Helstu hlutverk og leikarar:
Eliza Dolittle/Lynn' Red-
grave, Henry Higgins
prófesor/Michael Red-
grave, Pickering liðs-
foringi/Michael Horden, Al-
fred Dolittle/Donald Pleas-
ence. Leikstjóri: Peter
Wood.
23.55 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
20.00 Fréttir.
20.25 Veður og auglýsingar,
20.30 Skák. Stuttur, banda-
riskur skákþáttur. Þýðandi
og þulur Jón Thor Haralds-
son.
20.40 Bræðurnir. Bresk fram-
haldsmynd. 10. þáttur.
Hringurinn lokast. Þýðandi
Jón O. Edwald. Efni 9. þátt-
ar: Hafnarverkfallið lamar
alla starfsemi Hammond-
fyrirtækisins. Sir John
Borret itrekar tilboð sitt um
fjárhagsaðstoð, gegn þvi að
fyrirtækin sameinist. Ed-
ward kallar saman stjórn-
arfund og eftir nokkrar um-
ræður er ákvörðun um til-
boð Borrets slegið á frest til
morguns. Ann, kona Brians,
flytur að heiman með börn-
in. Ekki virðist vera ann-
arra kosta völ, en ganga að
tilboði Barrets. Loks berast
þó fréttir um, að verkfallinu
sé lokið, og flutningarnir
hefjast að nýju.
21.25 Heimshorn. Fréttaskýr-
ingaþáttur um erlend mál-
efni. Umsjónarmaður Jón
Hákon Magnússon.
Durban. Bresk frétta-
mynd um kjör svertingja i
Durban i Suður-Afriku. 1
myndinni er lýst bágborn-
un kjörum þessa fólks og
! ugmyndum til úrbóta.
Jóga til heilsubótar.
Myndaflokkar meö kennslu
I jógaæfingum. 9. þáttur.
Þýðandi og þulur Jón O. Ed-
wald.
Dagskrárlok.
LEIKFANGALAND
Leikfangaland
Veltusundi l.Sfmi 18722.
Fjölbreytt úrval leik-
fanga fyrir börn á öllum
aldri. — Póstsendum.