Þjóðviljinn - 15.02.1974, Síða 1
Kjarasamningarnir:
Léttskýað í gcer
Samkomulag náðist um nokkur
veigamikil atriði i fyrrinótt
Hvort hið bjarta og fagra
vorveður í gær hefur átt
einhvern þátt í því eða
ekki, þá er það víst að svo
léttskýjað hefur ekki verið
yf ir þeim sem sitja í kjara-
Solzjenítsin
kýs Noreg
sem búsetuland
fyrir sig og
fjölskylduna
samningunum, bæði
verkalýðsleiðtogunum og
vinnuveitendum og var
síðdegis i gær. Og ástæðan
fyrir þessu er sú, að
kvöldið og nóttina áður
náðust samningar um eina
veigamestu kröfuna,
niðurf ellingu ákveðinna
taxta og færslur á milli
þeirra.
Það var samdóma álit manna á
samningafundinum i gær að þetta
samkomulag gæfi bjartar vonir
um að ekki þurfi að koma til verk-
falls, og þótt það yrði þá yrði það
stutt, svo mikið væri nú af.
Sat á samningafundi
á sextugsafmælinu
Félagar Þórunnar Valdemarsdóttur i samninganefnd
ASÍ fœrðu henni blóm og gjafir á fundinum i gœr
14/2. — Tilkynnt hefur verið að
Tatalja, kona Solzjenitsins, muni
ásamt börnum sinum fá farar-
leyfi úr landi á næstunni og fylgt
þannig heim ilisföðurnum i
útlegðina.
Solzjenitsin óskar eftir þvi að
setjast að i Noregi svo fljótt sem
verða má, sögðu vinir vestur-
þýska rithöfundarins Heinrich
Böll við fréttamann norsku
fréttastofunnar NTB i dag.
Solzjenitsin dvelst enn hjá Böll.
Nataija, kona Solzjenitsins,
ræddi stundarkorn við hann i
sima, eftir að hann komst til Böli.
Er búist við þvi að fjölskyldan
geti sameinast þegar i byrjun
næstu viku.
Böll á að hafa verið látinn vita af
þvi árdegis i gær að Solzjenitsin
yrði fluttur nauðugur úr landi.
Var það vestur-þýska utanrikis-
ráðuneytið sem kom þeirri
vitneskju til hans.
En einmitt árdegis þann sama
dag var Solzjnitsin sagt það i
Moskvu að hann yrði fluttur til
Vestur-Þýskalands. Mótmælti
hann þvi harðlega og veitti
mótspyrnu.
Ýmsir kommúnistaflokkar
Vestur-Evrópu hafa mótmælt
meðferð sovéskra yfirvalda á
Solzjenitsin. Kommúnista-
flokkarnir á ttaiiu og i Bretlandi
hafa látið i ljósi andúð sina og
Vinstriflokkurinn, kommúnistar,
i Sviþjóð licfur lýst þvi yfir, að
þessi meðferð á rithöfundinum
væri andstæð lýðræðishugsjónum
flokksins.
Eldur í
fóður
blöndu
i gær kl. 17 kom upp eldur i
Fóðurblöndunni h/f á Granda-
vegi 42 i Reykjavik. Nokkur
eldur var laus þegar slökkvi-
liðið kom á staðinn og hafði
hann þá þcgar komist i þak
hússins. Greiðlega gekk að
slökkva eldinn og var slökkvi-
starfi lokið um kl. I8.:t0.
Þórunn Valdcmarsdóttir, vara-
formaður og framkvæmdastjóri
Verkakvennafélagsins
Framsóknar i Reykjavik, átti
sextugsafmæli i gær. Ilún lét það
samt ekki aftra sér frá þvi að
mæta á samningafundi ASÍ og
vinnuveitenda, en hún á sæti i
samninganefnd ASt.
t tilefni þessara timamóta
I gær var helst rætt um
kauptryggingu verkafólks i
frystihúsum og kauphækkunar-
prósentuna. Var búist við löngum
fundi um þessi mál.
í sambandi við kauptrygg-
ínguna i frystihúsum kemur i ljós,
að atvinnurekendur virðast þar
mjög þverir fyrir. Virðist sem
þeir vilji spila þar á atvinnu-
leysistryggingasjóðinn, sem sagt
að verkafólkið sjálft, sem
auðvitað á þennan sjóð, sjái sér
sjálft fyrir kauptryggingu. Þó er
þetta mál alls ekki útrætt og þess
má geta að fulltrúar verkakvenna
eru mjög harðir i þessu máli sem
eðlilegt er, þar sem kauptrygg-
ingarleysi i frystihúsum bitnar
mest á þeirra skjólstæðingum,
verkakonunum, sem að 80 til 90%
hluta eru starfsfólk frystihúsanna
i landinu.
—S.dói
færðu félagar hennar i néfndinni
henni blóm og gjafir i gær.
Afhenti Snorri Jónsson forseti
ASÍ Þórunni þessar gjafir. Hann
notaði tækifærið og þakkaði
Þórunni hin miklu og góðu störf
hennar i þágu verkalýðs-
hreyfingarinnar og sagði m.a. að
það niætti hafa til marks um
dugnað og ósérhlifni Þórunnar að
hún skyldi mæta á samningafundi
á sjálfan sextugs-afmælisdaginn.
Menn hefðu verið fjarverandi af
minna tilefni.
Að lokum þakkaði Þórunn
félögum sinum gjafirnar og hlý
orð og sagðist vonast til að gcta
unnið verkalýðshreylingunni allt
sem hún mætti seni lcngst.
S.dór
r
„Ahyggjur Norðmanna”
Skera niður útgjöld
til varnarmála
Stytta herskyldu og fœkka i hernum
— Eigum við svo að verja þá?
Mikið hefur verið býsnast yfir
þeirri ósvinnu islenskra her-
stöðvaandstæðinga að vilja svikja
frændur vora Norðmenn og aðrar
Norðurlandaþjóðir með þvi að
vilja herinn úr landi. Skilst
manni að eina ráðið fyrir þá sé að
efla varnir sinar um allan
helming vilji þeir ekki lenda i gini
hins illviga rússneska bjarnar.
Herstöðvaandstæðingar benda
oft á málstað sinum til stuðnings
að nú standa yfir miklar viðræður
á hinum ýmsu vigstöðvum um
samdrátt herja i Evrópu. Fylgja
þær i kjölfar þiðunnar i sam-
skiptum risaveldanna tveggja,
Sovétrikjanna og Bandarikjanna.
Þessum rökum svara hernáms-
sinnar gjarnan með þvi að dverg-
riki eins og Island megi ekki
trufla þessa viðleitni með
„ótimabærum” aðgerðum i
„varnarmálum”.
Nú skyldi maður ætla að her-
námssinnar styðji mál sitt þeim
rökum að aðrar smáþjóðir i
Evrópu haldi að sér höndum og
forðist allar aðgerðir sem raskað
gætu ró þeirra samningamanna
sem nú puða við að berja saman
samkomulag um breytingar á
öryggismálum Evrópu, i Vin,
Genf og Viðar.
En litið hefur farið fyrir þeirri
röksemdafærslu. Herstöðvaand-
stæðingar hafa hins vegar kynnt
sér hegðan granna vorra á
Norðurlöndum hvað snertir
varnarmál. Hefur komið i ljós að
þeir hafa alls ekki eflt varnir
sinar hcldur þvert á móti dregið
úr þeim!
Fjarveitingar Norðmanna til
varnarmála hafa i krónutölu
aukist úr 2.02 miljörðum norskra
króna i 3.48 á árunum 1967-73. A
sama tima hafa fjárlög hækkað
úr 11.7 miljörðum i 26,9 miljarða.
Á þessu árabili hefur hlutdeild
fjárveitinga til varnarmála i
heildarf járlögunum lækkað úr
17,3% i 12,9%.
Að auki hafa Norðmenn stytt
herskyldu i landhernum úr 18
mánuðum i 12 á um tiu árum.
Styttingin hefur i för með sér
beina fækkun i norska hernum
þar sem hann er einungis
byggður upp á þeim sem gegna
herskyldu,en engir atvinnumenn
eru i honum.
Sé litið til Danmerkur blasir
sama þróun við nema hvað þeir
hafa gengið ivið lengra. Þar voru
útgjöld rikisins til varnarmála
fjárhagsárið 1967/8 2.06 miljarðar
danskra króna, en voru komin
upp i 3.20 á fjárlagafrumvarpi
fyrir fjárhagsárið 1973/4. Á sama
tima hækkuðu fjárlögin i heild úr
18.2 miljörðum i heild úr 18,2
miljörðum i 49,7. Hlutdeild út-
gjalda til varnarmála i heildarút-
gjöldum rikisins minnkaði á
þessum sex árum úr 11.3% i
6.44%.
Þá hafa Danir einnig stytt
herskylduna hjá sér úr 18
mánuðum niður i 8 sem eins og i
Noregi þýðir bein fækkun i
Framhald á 14. siðu.
39 Árnesingar
skora á for -
sœtisráðherra:
Herinn
burt
39 Árnesingar nafa undir-
ritað „áskorun til forsætisráð-
herra um varnarmál", en það
er einskonar andsvar við
áskorun 39 Hangæinga. Meðal
þeirra Arnesinga sem undir-
rita áskorunina eru flestir
forustumenn Framsóknar-
flokksins á Suðurlandi. 4 mið-
stjórnarmenn i sama flokki,
auk fjölda annarra forustu-
manna Árnesinga.
Þeir Páll Lýðsson. oddviti
Sandvikurhrepps, og Garðar
Hannesson, simstöðvarstjóri
Aratungu, afhentu forsætis-
ráðherra áskorunina i gær.
Hér fer á eftir áskorun
Árnesinga til forsætisráðherra
ásamt u n d i r s k r i f t u m
Árnesinganna.
I tilefni af áskorun 39
borgara i Rangárþingi til yðar
varðandi brottför varnarliös-
ins, viljum við, 39 borgarar i
Arnesþingi, skora á vður. að
þér beitið yður fyrir þvi, að
ekki verði hvikað frá þeirri
stefnu, að bandariska varnar-
liðið hverfi frá Islandi á kjör-
timabili núverandi rikis-
stjórnar.
Við tökum undir áskorun 39
kennara við heimspekideild
Háskólans og starfsmanna
Stofnunar Arna Magnússonar
á Islandi og allra annarra
þjóðhollra Islendinga um, að
endanleg ákvörðun um brott-
för erlénds hers af islenskri
grund verði tekin á 1100 ára
afmæli búsetu i landinu.
Við teljum, að stefna beri að
þvi, að islenskt gæslulið taki
við þvi eftirliti, sem nauð-
synlegt er talið vegna öryggis
landsins.
Virðingarfyllst,
Páll Lýðsson, oddviti, Litlu-
Sandvik,
Margrét Björnsdóttir,
húsfreyja, Neistastöðum,
Halldór Hafsteinsson, bila-
málari Selfossi,
Gunnar Halldórsson, bóndi,
Skeggjastöðum,
Garðar Hannesson, sim-
stöðvarstjóri, Aratungu,
Ölafur Th. Ólafsson, málara-
meistari, Selfossi
Arnór Karlsson, bóndi. Bóli,
Heimir Steinsson, rektor.
Skálholti,
Ólafur Briem, menntaskóla-
kennarí, Laugarvatni,
Sigurveig Sigurðardóttir,
hjúkrunarkona, Laugarvatni.
Guðmundur Hafnar
Valtýsson, skólastjóri, Barna-
skólans Laugarvatni,
Þórir Þorgeirsson, oddviti.
Laugarvatni,
Sighvatur Arnórsson. bóndi,
Miðhúsum,
Þórarinn Þorfinnsson, oddviti.
Spóastöðum,
Sigurður Þorsteinsson. bóndi,
Heiði,
Grimur Bjarndal, skólastjóri,
Reykholti, Bisk.,
Guðmundur B. Jóhannsson.
héraðslæknir, Laugarási.
Jóhannes Helgason. bóndi.
Hvammi,
Helga Þorsteinsdóttir,
kennari, Flúðum,
Birgir Sigurðsson, skólastjóri.
Heiði, Gnúp.,
Helga Pálsdóttir, Birkilundi,
Biskupsstungum
Framhald á 14. siöu.