Þjóðviljinn - 15.02.1974, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 15.02.1974, Blaðsíða 2
2 SJÐA — Þ.IÓDVILJXNN Föstudagur 15. febrúar 1974. Að eiga bágt Þeir eiga bágt i böndunum, bæöi i sái og höndunum, sem ætla aö bjarga öndunum undan söguvöndunum. Kútter Sigurfari Getið hefur verið um það i blöð- um, að hugmynd hefði skotið upp kollinum að fá hingað til landsins gamlan kútter frá Færeyjum, er var i eigu Islendinga á sinum tima, og varðveita til minningar um hið merkilega timabii i sögu okkar, skútuöldina. Hugmynd þessi fékk góðan byr, og fyrir ein- huga átak félaganna i Kiwanis- klúbbnum á Akranesi, sérstak- lega, hefur draumurinn orðið að veruleika. Gengið hefur verið frá kaupum á kútter Sigurfara, og er hans von með vorinu til sinnar heimahafnar á Akranesi. Sigurfari var um langt árabil i eigu Islendinga, smiðaður i Eng- landi árið 1885 og keyptur til landsins frá Hull 1897. Mörg fyrstu árin áttu Sigurfara og gerðu hann út Pétur Sigurðsson, útvegsbóndi á Hrólfsskála á Seltjarnarnesi, faðir Sigurðar, skipstjóra á Gullfossi (fyrsta) og afiPétufs Sigurðssonar, forstjóra Landhelgisgæslunnar, og Gunn- steinn Einarsson, skipstjóri i Skildinganesi. Atti Pétur hann að tveimur þriðju og Gunnsteinn að einum þriðja. Siðustu all-mörg árin hér heima var Sigurfari i eigu H.P.Duus-fyrirtækisins I Reykjavik og seldur Færeyingum i janúar árið 1920, annar siðustu kútteranna, sem Færeyingar keyptu af okkur, að ég ætla. Sigurfari var happaskip alla tið og skipstjórar á honum aflamenn I fremstu röð. Eigendur hans i Færeyjum hafa jafnan verið hinir sömu og gert hann út á handfæra- veiðar ár hvert, þar til fyrir tveimur árum eða svo. Sigurfari verður eign byggðasafnsins i Görðum á Akranesi og varðveitt- ur þar. Til eru myndir af mörgum, ef ekki öllum, gömlu kútterunum og skipshöfnum þeirra. Erindið með þessum linum er að leita til fólks um fyrir greiðslu varðandi þessar myndir. Þá, sem kynnu að eiga mynd af Sigurfara og mynd- ir af skipshöfnum hans, fyrr og siðar, svo og af skipstjórum hans, bið ég vinsamlegast að lána myndirnar til eftirtöku. Hugsað er, aö myndunum verði komið fyrir á sérstökum vegg i byggða- safninu og i nánum tengslum við skipið. Æskilegt er, að myndun- um fylgi skýringar, t.d.: af hverj- um þær eru (þar sem eru manna- myndir) og hvaðan og fl., frá hvaða ári o.s.frv. Einnig óskar safnið eftir mynd- um af öðrum kútterum og skips- höfnum þeirra, með það i huga meðfram, að Akurnesingar voru á sinum tima fleiri eða færri á öllum kútterunum, sem gerðir voru út sunnanlands. Munu þess- ar myndir varðveittar i byggða- safni Akurnesinga og nærsveita sem hinar. Ég treysti góðu fólki til hins besta i þessu efni. Og þvi lofa ég, að eigendur myndanna fái þær aftur hið bráðasta. Heimilisfang mitt er: Kirkju- hvoll, Akranesi. Simi: 1918. Með kveðju og góðum óskum til hinna mörgu. Jón M. Guðjónsson. „Vér morð mgjar a Norður- löndum Dagana 6.-8. febrúar var hald- inn i Reykjavik fundur leiklistar- deildar sjónvarpsstöðva á Norðurlöndum. Rædd voru ýmis mál varðandi samvinnu stöðv- anna á sviði leikritaflutnings og skoðu'ð þau leikrit, sem fram eru boðin til skipta á næstu mánuð- um. Af hálfu islenska sjónvarps- ins var boðið fram leikritið ,,Vér morðingjar” sem sýnt verður i danska, norska og sænska sjón- varpinu á næstunni. Leikritið var frumsýnt i islenska sjónvarpinu á sl. jólum. Aðalhlutverk léku Edda Þórarinsdóttir og Þorsteinn Gunnarsson. Leikstjóri var Erlingur Gislason, og upptöku stjórnaði Tage Ammendrup. A myndinni má sjá Eddu Þórarinsdúttur og Þorstein Gunnarsson i hiutverkum sfnum i „Vér morðingjar”. Á fjórða hundrað manns sótti 2. frœðslufundinn Mánudaginn 4. febrúar s.l. var haldinn fyrsti almenni fræðslufundur á vegum sam- taka psoriasis- og exemsjúkl- inga. Geysilegt fjölmenni var á fundinum, á fjórða hundrað manns. Eirikur Ásgeirsson flutti er- indi um ferð sina til Sviþjóðar i september s.l., þar sem hald- ið var hátiðlegt 10 ára afmæli sænsku psoriasissamtakanna. Á þessum sama afmælisfundi voru stofnuð alþjóðasamtök psoriasissjúklinga, IFPA, og eru islensku samtökin þvi að- ilar að þeirri stofnun. Þunga- miðja markmiða alþjóðasam- takanna varð söfnun fjár vegna rannsókna og aftur rannsókna á psoriasis, sem er með öllu ólæknandi enn þann dag f dag, þó sjúk- dómunnn eigi sér minnst 4000 ára sögu. Fleiri félagar tóku einnig til máls og skýrðu frá reynslu sinni af psoriasis og þeirri læknisaðferð, sem hentar þeim best. Þá flutti varaformaður, Ás- geir Gunnarsson, skýrslu stjórnarinnar, og bar i henni hæst sá árangur, sem náðst hefur með ókeypis lyfjum til handa sjúklingum með lang- varandi psoriasis og exem. Einnig þann árangur, sem er að nást um að koma á fót heimangöngudeildum, þar sem til staðar verða böð, gufu- böð, ljósböð, hjúkrunarað- staða og i framtiðinni sund- laug. Deildir sem þessar eru mjög aðkallandi. Sú eina að- hlynning, sem hægt hefur ver- ið að fá undanfarin ár er sjúkralega á húðsjúkdóma- deild Landspitalans, sem er þröngt húsnæði miðað við eft- irspurn. Má það teljast kraftaverk, hvað starfsfólki þeirrar deild- ar hefur tekist með dugnaði, samviskusemi og ósérhlifni að veita þá aðhlynningu, sem raun ber vitni, og ber samtök- unum að bera fram þakkir sinar til þess. Samtökin þakka einnig þá velvild og skilning, sem þau hafa mætt frá hendi heilbrigð- isráðherra og starfsfólki hans, einnig Tryggingastofnun Rikisins og tryggingaráði fyr- ir skjóta og skilningsrika af- greiðslu á málum samtak- anna. Einnig þakka samtökin framboðinn stuðning borgar- stjóra Reykjavikur við þau. Að sjálfsögðu byggist allt framtiðarstarf samtakanna á að sjúklingar sem bera þessa sjúkdóma og velunnarar þeirra fylli þann hóp, sem nú þegar mynda samtökin. Mynd: Francisco Goya y Lucientes KENJAR Mál: Guðbergur Bergsson 4. Ömmudrengurinn Höfuðmunurinn á frumteikn- ingunni og koparstungunni af dek- urbarninu af heldri manna stétt, pilsfaldabarninu, sem heldur áfram að sleikja allt frá öðrum, og puttana sina lika, klætt skirn- arkjól úr satini, fram að fávisri elli, er sá, að fjórhjóla vagn drátt- armannsins hefur breyst i pott eða körfu á koparstungunni. Allt er óákveðnara. Á teikningunni er maður að fara fyrir horn, og þar rikir visst andrúmsloft morguns i stórborg, árla, þegar vöruflutn- ingar fara fram i skimunni af ris- andi degi og fólkið likist skugg- um. A koparstungunni er hins vegar komin nótt, og hið einkennilega sambland af gamalmenni, fávita og barni, er rétt að hefja potta sleikis-iðju sina i skjóli myrkurs- ins. Það er eins og glampi ljós- myndara skelli á skripið og standi það að verki. Við það gónir það á áhorfandann þeim augum, sem allir þekkja, en enginn þorir að kannast við. Pottasleikir hallast fram yfir sig sökum hinnar listrænu þarfar Goya að gera kross i miðju mynda sinna, en ekki vegna ástar á veruleikanum eða aðdáunar á jafnvægislist snikjudýra. 1 Ayala-handritinu stendur skrifað: „Afkvæmi aðalsættanna troða sig út af mat, sleikja á sér puttana, og eru ævilangt stór börn, þótt þeim hafi vaxið skegg; og þess vegna þuifa þjónarnir að dratta þeim á eftir sér i beisli.” Samkvæmt þeim skilningi er af- styrmiö ekki að vega salt, heldur að streitast á móti þvi.aö þjónn- inn dragi það frá pottinum, sem glampar svo girnilega á i myrkr- inu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.