Þjóðviljinn - 15.02.1974, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 15.02.1974, Blaðsíða 15
Föstudagur 15. febrúar 1974. ÞJÖÐVILJINN — SIÐA 15 Nýjar reglur í bridge? Mótspilarar fái ekki að sjá hvor annan meðan sagt er Að undanförnu hefur mikið verið rætt um það meðal fremstu bridge- spilara heims að breyta reglum við spilaborðið þannig að erfiðara sé að hafa rangt við, eða gefa mótspilara eitthvað til kynna með breytilegum raddstyrk, hiki í sögnum, söngli eða spurningum um hvernig sagnir hafi gengið. / Heimssamband bridgespilara hefur lagt fram áætlanir um breytingar i heimsmeistara- keppni, þannig að mótspilarar sjái ekki hvor annan meðan ver- ið er að segja, eða þá að menn tali ekkert þegar sagnir ganga, heldur sýni prentuð kort. Nú vill enginn kannast við að bridgespilarar i keppnum hafi rangt við, en talið er rétt að reyna að forðast grunsemdir um að annar hvor aðilinn kynni að hafa rangt við, t.d. með fingrahreyfingum, breytilegum raddstyrk o.s.frv. Við og við hafa menn verið kærðir fyrir einhverskonar aðvörunar- kerfi, en hingað til hafa þær kærur ekki leitt til brottrekstrar frá bridgekeppnum. Þessi maður heitir Baltzar von Platen og er heimsfrægur upp- finningamaður. Hann var fyrst- ur tii að gera nothæfa kæli- skápa, og nú undanfarið hefur hann unnið að þvi að gera raf- hreyfla i bila og báta. Hann starfar fyrir Volvo-verksmiöj- urnar, og telja fréttamenn, aö hann hafi i fjórðu tilraun komiö með hrcyfil, sem uppfyllti björt- ustu vonir. Forráðaménn Volvo- verksmiöjanna hafa ekkert vilj- að segja um málið, en sérfróðir fréttamenn telja að Volvo geti hafið framleiðslu á rafknúnum bilum eftir eitt ár. — fcg skal ekki minnast á launa- hækkun framar, forstjóri minn góður... í úkraínu er hafin framleiðsla á vestum, undir vöruheitinu ,,Mörgæsin", sem hægt er að hita upp í 34 gráður. Þetta er einkar þægilegur klæðnaður fyrir verkamenn sem starfa úti við í miklum forsthörkum. Vestið er um 21 kg. á þyngd. Þegar er búið að fram- leiða um 3000 slík vesti og senda þau til verkamanna sem eru við störf í nyrstu héruðum Sovétríkjanna. Hitinn er leiddur eftir þráðum úr sérstöku ef ni, sem dreif ir honum jafnt. Hitaelementið er 60 wött og tekur 12 volta straum. (APN) 15 SÍÐAN UMSJÓN: SJ — Ætlarðu aldrei að fyrirgefa þetta eina víxlspor? Auglýsing um leyfi til rekstrar sumardvalarheimila fyrir börn. Menntamálaráðuneytið vekur athygli á þvi að sækja þarf um leyfi til ráðuneytisins til þess að reka sumardvalar- heimili, sumarbúðir og önnur barnaheimili. Sérstök um- sóknareyðublöð i þessu skyni fást i ráðuneytinu og hjá Barnaverndarráði Islands og barnaverndarnefndum. Umsóknum fylgi umsögn héraðslæknis og barnaverndar- nefndar, heilbrigðisvottorð heimilisfólks, svo og sakar- vottorðumsækjanda, ef sótt er um i fyrsta sinn. Þeir aðilar, sem fengu slik leyfi siðastliðið sumar eða fyrr, þurfa að sækja um leyfi á ný til ráðuneytisins. Menntamálaráðuneytið, 12. febrúar 1974. j|| ÚTBOÐ Tilboð óskast um sölu á 48 dreifispennum fyrir Rafmagnsveitu Reykjavikur. Útboðsskilmálar eru afhentir á skrifstofu vorri. Tilboð verða opnuð á sama stað, þriðju- daginn 19. mars 1974, kl. 11.00 f.h. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Frfkirkjuvcgi 3 — Sfmi 25800 LEIKFANGALAND Leikfangaland Veltusundi l.Simi 18722. Fjölbreytt úrval leik- fanga fyrir börn á öllum aldri. — Póstsendum. Framleiði SÖLó-eldavélar af mörgum stærðum og gerð-. uin, —cinkum hagkvæmar fyrir sveitabæi, suinarbústaöij og báta. — Varahlutaþjónusta — Viljum sérstaklega benda á nýja gerö einhólfa eldavéla fyrir smærri báta og litla sumarbústaði. ELDAVÉLAVERKSTÆÐI JÓHANNS FR. KRISTJÁNSSONAR H.F. KLEPPSVEGI 62. — SIMI 33069. iR jiíámi x>hl Nýkomin indversk gOTTi bómullarefni og mussur i miklu úrvali. Jasmin Laugavegi 133 latI áSÚ

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.