Þjóðviljinn - 15.02.1974, Blaðsíða 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 15. febrúar 1974.
Atvinna
Æskulýðsráð
Reykjavíkur
Staða forstöðumanns
i félagsmiöstöö Æskulýðsráðs Reykjavikur i Fellahverfi
(Breiöholti III) er laus til umsóknar. Laun skv. launakerfi
opinberra starfsmanna.
Umsóknarfrestur er til 25. febrúar.
Umsóknareyðublöð ásamt starfslýsingu liggja frammi á
skrifstofu ráðsins að Frikirkjuvegi 11, sem jafnframt veit-
ir nánari upplýsingar
Æskulýðsráð Reykjavikur.
|P Félagsráðgjafi
Staða félagsráðgjafa við Borgarspitalann
er laus til umsóknar.
Laun samkvæmt kjarasamningi borgar-
starfsmanna.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur, menntun og
fyrri störf sendist Borgarspitalanum fyrir 8. mars 1974.
Upplýsingar um stöðuna veitir framkvæmdastjóri Borg-
arspitalans.
Reykjavik, 12. febrúar 1974.
Heilbrigðismálaráð Reykjavikurborgar.
|[| Iðjuþjálfi
Staða iðjuþjálfara við Hjúkrunar- og end-
urhæfingadeildir Borgarspitalans er laus
til umsóknar og veitist eftir samkomulagi
Iðjuþjálfaramenntun áskilin.
Laun samkvæmt kjarasamningi borgarinnar.
Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri störf sendist
Heilbrigðismálaráði Reykjavikurborgar fyrir 12. mars
1974.
Upplýsingar um stöðuna veitir yfirlæknir.
Reykjavik, 13. febrúar 1974.
Heilbrigðismálaráð Reykjavikurborgar.
Sérfræðingur
Staða sérfræðings i orkulækningum við
Hjúkrunar- og endurhæfingadeildir Borg-
arspitalans er laus til umsóknar.
Staðan veitist frá 1. mai eða eftir samkomulagi. Laun
samkvæmt kjarasamningi Læknafélags Reykjavikur við
Reykjavikurborg.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf
sendist Heilbrigðismálaráði Reykjavikurborgar fyrir 26.
mars 1974.
Upplýsingar um stöðuna veitir yfirlæknir.
Reykjavik, 13. febrúar 1974.
Heilbrigðismálaráð Reykjavikurborgar.
Kona óskast
Kona óskast til starfa sem aðstoðarstúlka
ræstingastjóra.Upplýsingar um starfið
veitir ræstingastjóri.
Laun samkvæmt kjarasamningi Starfs-
mannafélags Reykjavikurborgar.
Umsóknir skulu sendast Borgarspitalan-
um fyrir 25. febrúar n.k.
Reykjavík, 13. febrúar 1974.
BORGARSPÍTALINN
ÍÍLAC \mim HLJÍLISWRMAIA
v - 1
. J
útvegar ybur hljóðfœraleikara I
. \. • *'**■•■ I
og hljómsvéitir við hverskonar takifœri
linsamlegast firingið í ZB2SS -* " „,7
sjónvarp nœstu viku
Sunnudagur Mánudagur
15.00 Endurtekið efni. Lygn
streymir Don.Sovésk fram-
haldsmynd. 2. þáttur. Þessi
þáttur var áður á dagskrá
siðastliðinn sunnudag, en
verður nú endursýndur
vegna þess, hve þá voru
viða bilanir i raflinum og
endurvarpsstöðvum.
17.00 Valdaránið I Chiie.
Sænsk heimildamynd um
valdatöku hersins i Chile og
fall stjórnar Allendes for-
seta. Þýðandi og þulur
Þrándur Thoroddsen. Áður
á dagskrá 9. janúar siðastl.
(Nordvision — Sænska sjón-
varpið)
17.40 i fjársjóðaleit. Sovésk
mynd um ævintýri þriggja
barna, sem hyggjast finna
fjársjóði i sokknu skipi.
Þýðandi Lena Bergmann.
Aður á dagskrá 26. desem-
ber 1973.
18.00 Stundin okkar. Meðal
efnis að þessu sinni er þátt-
ur með Súsi og Tuma og
mynd um Róbert bangsa.
Einnig koma þar börn úr
Barnamúsikskólanum og
syngja nokkur lög. Haldið
verður áfram með spurn-
ingaþáttinn og loks verður
byrjað á nýjum teikni-
myndaflokki. Umsjónar-
menn Sigriður Margrét
Guðmundsdóttir og Her-
mann Ragnar Stefánsson.
18.50 Gitarskólinn. Gitar-
kennsla fyrir byrjendur. 2.
þáttur endurtekinn.
19.20 Hlé
20.00 Fréttir
20.20 Veður og auglýsingar
20.25 Vilma Reading og
„stórhljóms veit” FÍH.
Sjónvarpsupptaka, sem
gerð var i Háskólabíói i
nóvember mánuði siðastlið-
inum, þegar breska söng-
konan Wilma Reading kom
þar fram á tónleikum.
Undirleik annast tuttugu
manna hljómsveit Félags
islenskra hljóðfæraleikara.
Hljómsveitarstjóri er John
Hawkins. Upptökunni
stjórnaði Egill Eðvarðsson.
21.00 Lífsraunir. Þáttur úr
sænskum myndaflokki um
mannleg vandamál. I þess-
um þætti er rætt við fólk,
sem misst hefur atvinnu
sina einhverra orsaka
vegna, og fjallað um áhrif
slikra áfalia á þá, sem fyrir
verða. Þýðandi og þulur
Dóra Hafsteinsdóttir.
(Nordvision — Sænska sjón-
varpið)
21.40 Lygn streymír Don.
Sovésk framhaldsmynd. 3.
þáttur, sögulok. Þýðandi
Lena Bergmann. Efni 2.
þáttar: Nokkurrar striðs-
þreytu er tekið að gæta
meðal Kósakkanna. Haustið
1917 snúa þeir til sins heima
og um svipað leyti hefst
byltingin i Pétursborg.
Grfgori er i fyrstu fylgis-
maður Bolsévikka, en faðir
hans og bróðir hans, Pjotr.
eru á öndverðum meiði.
Hópur rauðliða er tekinn
höndum og Kósakkar frá
þorpinu Tatarsk eru kallað-
ir til að annast aftöku
þeirra. Þeir Kósakkar, sem
hlynntir eru málstað bylt-
ingarmanna, reyna margir
að flýja þorpið, en Grigori
telur það of áhættusamt.
Hann hlýðir kalli yfirvald-
anna og fylgir aftökusveit-
inni. Skömmu siðar er Pjotr
umkringdur af rauðliðum
og drepinn ásamt liði sinu.
Eftir það gengur Grigori i
lið með hvitliðum og gengur
fram i bardögum af miklum
ákafa. Þar kemur þó, að
honum ofbýður grimmd sin
og annarra, og hann snýr
heim dapur i huga.
23.30 Að kvöldi dags. Séra
Þórir Stephensen flytur
hugvekju.
23.40 Dagskrárlok
20.00 Fréttir
20.25 Veður og auglýsingar
20.30 Birkitréð. Sovésk mynd
með þjóðdönsum og þjóð-
legri tónlist.
21.05 Illur grunur. Breskt
sjónvarpsleikrit. Leikstjóri
C. Owens. Aðalhlutverk
Jack Headley, Lisa Daniely
og Gillian Hills. Þýðandi
Jón Thor Haraldsson.
21.55 Ceausescu Rúmeníufor-
seti. Frönsk heimildamynd
um Rúmeniu og forseta
landsins,, Nicholas Ceaus-
escu. I myndinni er rakin
þróun stjórnmála og ann-
arra þjóðfélagsmála siðustu
þrjá áratugi. Þýðandi og
þulur Dóra Hafsteinsdóttir.
22.30 íþróttir. M.a. mynd frá
heimsmeistaramótinu á
skiðum. Umsjónarmaður
Ómar Ragnarsson.
23.00 Dagskrárlok
Þriðjudagur
20.00 Fréttir
20.25 Veður og auglýsingar
20.30 Skák. Stuttur, banda-
rfskur skákþáttur. Þýðandi
og þulur Jón Thor Haralds-
son.
20.40 Valdatafl. Bresk fram-
haldsmynd. 2. þáttur. Þýð-
andi Jón O. Edwald. Efni 1.
þáttar: Sir John Wilder snýr
aftur heim frá Belgiu, þar
sem hann hefur um skeið
unnið á vegum Efnahags-
bandalagsins. Hann hefur
nýjar hugmyndir um fram-
kvæmdir Bligh-fyrirtækis-
ins, en Bligh er þeim mót-
fallinn. Wilder tekst þó að
lofa að standa ekki i vegi
fyrir honum, þegar valinn
verður forseti útflutnings-
ráðsins á næstunni.
21.30 Heimshorn. Fréttaskýr-
ingaþáttur um erlend mál-
efni. Umsjónarmaður Jón
Hákon Magnússon.
Að loknu októberstriði.
Dönsk fréttamynd um
stjórnmála- og þjóðfélagsá-
stand i Austurlöndum nær.
Þýðandi og þulur óskar
Ingimarsson. (Nordvision
— Danska sjónvarpið)
Jóga til heilsubótar.
Bandariskur myndaflokkur
með kennslu í jógaæfingum.
Þýðandiog þulur Jón O. Ed-
wald.
Dagskrárlok
Miðvikudagur
18.00 Chaplin. Stutt kvikmynd
með gamanleikaranum
heimskunna, Charles
Chaplin.
18.10 Skippi. Ástralskur
myndaflokkur fyrir börn og
unglinga. Þýðandi Jóhanna
Jóhannsdóttir.
18.30 Matthildur i Madrid.
Danskur þáttur um daglegt
lff litillar stúlku á Spáni.
Þýðandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir. (Nordvision —
Danska sjónvarpið)
18.50 Gitarskólinn. Gitar-
kennsla fyrir byrjendur. 3.
þáttur. Kennari Eyþór Þor-
láksson.
19.20 Hlé
20.00 Fréttir
20.25 Veður og auglýsingar
20.30 Lif og fjör i læknadeild.
Breskur gamanmynda-
flokkur. Lokaprófið. Sögu-
lok. Þýðandi Jón Thor Har-
aldsson.
20.55 Krunkað á skjáinn.
Þáttur með blönduðu efni
varðandi fjölskyldu og
heimili. Umsjónarmaður
Magnús Bjarnfreðsson.
21.45 Njósnarinn Philby.
Bresk heimildamynd um
feril breska njósnarans Kim
Philby. Philby fæddist á
Indlandi árið 1912 og var
faðir hans kunnur, breskur
landkönnuður. Rúmlega
tvftugur að aldri gekk hann i
þjónustu rússnesku leyni-
þjónustunnar og var falið
það starf að komast til á-
hrifa innan leyniþjónustu
Breta. Þetta tókst honum
svo fullkomlega, að eftir
nokkur ár var hann orðinn
yfirmaður bresku gagn-
njósnastofnunarinnar. En
upp komust þó svik um siðir
og nú er njósnarinn Philby
búsettur i Moskvu.
23.10 Dagskrárlok
20.00 Fréttir
20.25 Veður og auglýsingar
20.30 Að Heiðargarði. Banda-
rfskur kúrekamyndaflokk-
ur. Vandanum vaxinn.Þýð-
andi Kristmann Eiðsson.
21.25 Landshorn. Fréttaskýr-
ingaþáttur um innlend mál-
efni. Umsjónarmaður Svala
Thorlacius.
22.05 Everiste Galois. Leikin,
frönsk mynd um ævilok
franska stærðfræðingsins
Galois (1811—1832), sem
talinn hefur verið einn af
snjöllustu stærðfræðingum
sögunnar og gerði meðal
annars merkar uppgötvanir
á sviði algebru og mengja-
fræði. Þýðandi Dóra Haf-
steinsdóttir.
22.35 Dagskrárlok
Laugardagur
17.00 Iþróttir. Meðal efnis I
þættinum er mynd frá
heimsmeistaramótinu i
skiðum og mynd úr ensku
knattspyrnunni. Umsjónar-
maður Ömar Ragnarsson.
19.15 Þingvikan. Þáttur um
störf Alþingis. Umsjónar-
menn Björn Teitsson og
Björn Þorsteinsson.
19.45 Hlé
20.00 Fréttir
20.20 Veður og auglýsingar
20.25 Söngelska fjölskyidan.
Bandariskur söngva- og
gamanmyndaflokkur. Þýð-
andi Heba Júliusdóttir.
20.50 Vaka. Dagskrá um bók-
menntir og listir.
21.30 Eftirsótt ibúð. (The
Apartment). Bandarisk bió-
mynd frá árinu 1960. Leik-
stjóri Billy Wilder. Aðal-
hlutverk Jack Lemmon,
Shirley McLaine og Fred
MacMurray. Þýðandi Óskar
Ingimarsson. Aðalpersóna
myndarinnar er pipar-
sveinn nokkur, Baxter að
nafni. Hann vinnur hjá stóru
og mannmörgu fyrirtæki og
kemur sér þar vel við yfir-
menn sina, enda gerir hann
þeim gjarnan smágreiða,
þegar svo ber undir. Hjá
fyrirtækinu vinnur einnig
bráðfalleg lyftustúlka, sem
Baxter verður ástfanginn
af. En svo illa vill tilað for-
stjóranum er ágæti stúlk-
unnar ljóst, ekki siður en
honum. Þess má geta, að
myndin fékk óskarsverð-;
laun sem besta mynd ársins
1960.
23.30 Dagskrárlok