Þjóðviljinn - 15.02.1974, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 15.02.1974, Blaðsíða 3
Föstudagur 15. febrúar 1974. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3 34 kennarar MT: Ákvörðun um herlaust land strax þetta árið Kennarar Menntaskólans við Tjörnina hafa undirritað áskorun þar sem skorað er á alþingi að stuðla að því, að endanleg ákvörðun um brottför erlends hers af islenskri grund verði tekin á þessu ári. Askorunin er send forsætisráðherra og formönnum allra þingflokkanna, og hana undirrita 34 kennarar skólans. Askorunin er á þessa leið: „Undirritaðir kennarar við Menntaskólann við Tjörnina styðja eindregið þá stefnu rikis- stjórnarinnar I herstöðvamálinu og skora á alþingismenn að stuðla að þvi, að endanleg ákvörðun um brottför erlends hers af islenskri jörð verði tekin á 1100 ára afmæli búsetu i landinu.” Undir áskorunina rita: Sverrir Hólmarsson, Skaftahlið 22 Hákon óskarsson, Bræðraborgarstig 5 Kristinn Sigmundsson, Háteigsvegi 17, R. Þorvaldur ólafsson, Reynimel 92, R. Páll Bjarnason, Eyjabakka 23 R. Ómar Arnason, Móabarði 20, Hf. Þorbjörn Friðriksson, Digranesvegi 25, Kóp. Geir Viðar Vilhjálmsson, Laufásvegi 6, R. Aðalsteinn Daviðsson, Löngubrekku 11, Kóp. Framhald á 14. siðu. Hvar er fréttin Styrmir? Spurning til Styrmis Mogga- ritstjóra: Af hverju birti Morgunblaðið ekki i gær frétt frá NTB um svonefnda „orð- sendingu norsku stjórnarinn- ar”? Státar Morgunblaðið sig ekki af þvi að vera heiðarlegt fréttablað? Blaðið hefur kraf- ist þess æ ofan i æ undanfarn- ar vikur að fá að vita innihald orðsendingarinnar. Af hverju birtist það ekki þegar það loksins fæst? Birtir Mogginn eingöngu „hagstæðar frétt- ir”? —ÞH Vanræksla póst- þ j ónustunnar ónýtti verk- fallsboðunina Vitaverð afgreiðsla segir formaður Sóknar Vanræksla póstþjónust- unnar í Reykjavík hefur orðið til þess að Sóknar- konur verða að fresta boð- uðu verkfalli sinu við sjúkrahús borgarinnar nokkra daga. Hefur Birgir 1. Gunarsson borgarstjóri lýst yfir, að verk- fallsboðun Starfsstúlknafélagsins sé ólögleg, þar eö hann hafi ekki fengið hana i hendur fyrr en kl. tiu minútur yfir niu á þriðjudags- morguninn 12. febrúar. Verkfall átti að hefjast þriðjudaginn 19. febrúar, en lögboðinn er viku- frestur. Þegar Þjóðviljinn hafði sam- band við Guðmundu Helgadóttur, formann Sóknar, i gær, var hún mjög sár yfir vanrækslu póstsins og taldi hana vitaverða. Kvaðst Guðmunda hafa lagt bréfið með verkfallsboðuninni i póst á póst- húsinu á Hlemmi kl. 12,15 á mánudag og að sjálfsögðu sett það bæði i ábyrgð og hraðpóst. Að sögn starfsfólksins þar lá bréfið á pósthúsinu á Hlemmi til kl. 14.30, að farið var með það á aðalpóst- húsið viö Austurstræti beint á móti skrifstofu borgarstjóra, sem lokað er kl. 16.15. Hafði pósthúsið þannig rúman hálfan annan tima til að koma express bréfinu yfir götuna, en það var ekki gert. Sem kunnugt er ber að bera hraðbréf út strax og þau berast viðkomandi pósthúsi, en Guð- munda sagði, að póstþjónustan hefði svarað umkvörtunum sin- um þvi einu, að þar væri svo fálið- að. i gærmorgun sendi Sókn siðan nýja verkfallsboðun til borgar- innar, sem miðast við laugardag- Kók í nýtt hús Vifilfell hf. sem framleiðir Kóka kóla tók nýlega nýtt hús- næði i notkun. Er það i Árbæjar- hverfinu, rétt við lögreglustöð hverfisins. Um leið var tekin i notkun ný vélasamstæða sem framleiðir rúmlega þrefalt meira magn af kóki en gömlu vélarnar. Vélasamstæðan sem er belgisk getur við hámarksafköst afgreitt 24 þúsund flöskur oni kassa á klukkutíma, en gömlu vélarnar náðu hámarki við 7200 flöskur. 1- viö fleira fólk þarf við þessa nýju vél, en á móti kemur að einungis er unnið á einni vakt i stað þriggja áður. —ÞH Aðalfundur D.S.Í. Aðalfundur Danskennarafélags íslands var haldinn 3. janúar sl. í skýrslu stjórnar fyrir sl. ár kom fram að 3 stúlkur höfðu lokið danskennaraprófi, þær Hulda Björsndóttir, Klara Sigurgeirs- dóttir og Emelia ólafsdóttir. Um þessar mundir er Danskennara- samband Islands tiu ára, og var ákveðið að halda danssýningu i Háskólabiói þann 23. mars nk. ís- lenski dansflokkurinn sem stofn- aður var sl. ár hefur gerst aðili að D.S.Í. Stjórn fyrir næsta kjör- timabil var kosin, og hana skipa : Unnur Arngrimsdóttir formaður, örn Guðmundsson ritari, Iben Sonne gjaldkeri og Guðbjörg Pálsdóttir og Edda Pálsdóttir meðstjórnendur. inn 23. febrúar. Rikið hefur hins- vegar ekki séð ástæðu til að gera athugasemd við verkfallsboöun- ina og er verkfall Sóknarkvenna á rikisspitölunum þvi boðað frá og með 19. febrúar. Verður raunar að telja það óþarfa hártogun hjá borginni að binda sig á þennan hátt við smá- atriðin þegar greinilegt er að hér er um vanrækslu póstþjónustunn- ar að ræða. Það skyldi þó aldrei vera, að einhverjir embættis- menn þar séu enn i fýlu útaf þvi að Sókn skyldi koma i gegn launa- jafnréttisleiðréttingu sinni sl. haust, en einsog þá kom fram i fréttum var borgin mjög treg til lagfæringar, þótt rikið að sinu leyti viðurkenndki strax málstað Sóknarkvenna. Guðmunda Helgadóttir var i gær bjartsýn á að Sókn mundi ná fram sérkröfum sinum, sem samningar eru nú að hefjast um, en meðal þeirra er sú krafa, að Sóknarkonur hafi aðgang að barnaheimilunum, sem sjúkra- húsin reka, og hingað. til hafa ein- ungis verið ætluð börnum hjúkr- unarliðs. —vh Þorlákshafnarbúar undrandi á loðnu- löndunarbanninu Frá fréttaritara Þjóðviljans i Þorlákshöfn: Hér eru menn undrandi yfir þvi að Meitillinn h/f skuli setja lönd- unarbann á loðnubáta, sem veiða i bræðslu, þar sem undanfarin ár virðist hafa verið brædd loðna mörgum vikum eftir að loðnuver- tið hætti. Og þótt yrði verkfall i nokkra daga, sem enginn trúir á undir vinstri stjórn, þá mun loðn- an vera jafn nothæf til bræðslu þótt hún væri nokkrum dögum eldri af þeim sökum. Aðstaða hafnarstjóra hér i Þor- lákshöfn, vigtarmanna og ann- arra starfsmanna hafnarinnar er að batna til muna, þar sem nýtt hús undir þessa starfsemi er nú að verða fullbyggt. Hafnarstjóri er þegar fluttur i húsið og búið er að ganga frá uppsetningu sima og verið er að ganga frá talstöðinni og öðrum tækjum. Aðeins er eftir að ganga frá dúkum á gólf og öðru smávegis. Hér má heita stanslaus loðnu- löndun allan sólarhringinn og er loðnan flutt til frystingar I allar áttir. Bolfiskveiði er mjög litil i net og troll. Virðist enginn fiskur enn kominn með loðnunni, hvað sem verður. —Þ.S. Loðna til Siglufjarðar 58 bátar með 8.920 tonn sl. sólarhring Loðnuaflinn frá þvl á miðnætti aðfaranótt fimmtudagsins fram til klukkan 17.30 I gærdag var samtals 8.920 tonn af 58 bátum. Aflahæstir voru Héðinn ÞH 420, Óskar Magnússon 420, Ásgeir 340, Sigurður 700 og Harpa RE 330 tonn. Margir bátar voru með smáslatta, undir 100 tonnum, sem fór i frystingu hér á suðvestur- horninu. Loðnan veiddist á svæðinu frá Ingólfshöfða vestur fyrir Eyjar. Astandið i löndunarmálum erHtiö breytt, eina plássið er á Aust- fjörðum. Þó voru fjórir bátar i gær á leið til Siglufjarðar með loðnu. Enginn bátur hafði enn til- kynnt sig á leið til Raufarhafnar, en nokkrir bátar voru á leið til Austfjarðahafna og ekki útilokað að einhverjir þeirra færu norður fyrir. —ÞH Umboðsmenn fyrir Skoda fólksbifreiðir og Tatra vörubifreiðir óskast Umsóknareyðublöð fóst á skrifstofu okkar Auðbrekku 44-46, Kópavogi, sími 42-600 TEKKNESKA BIFREIDAUMBOÐIÐ Á ÍSLANDI H.F. Umboðsmenn óskast ó eftirtöldum stöðum: Akranesi Borgarnesi Stykkishólmi Patreksfirði Blönduósi Sauðárkróki Húsavík Egilsstöðum Neskaupstað Höfn Vestmannaeyjum

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.