Þjóðviljinn - 15.02.1974, Side 5
Föstudagur 15. febrúar 1974. ÞJÓDVILJIW — SÍDA 5
Frá fréttaritara Þjóðviljans á Þingeyri
Óveður í Dýrafirði
Guðmundur Friðgeir Magnús-
son, fréttaritari Þjóðviljans á
Þingeyri sagði i samtali við okkur
á miðvikudagskvöldið:
Siðan á föstudag hefur verið hér
norðaustan og norðan hrið.
Hvassviðri hefur þó ekki verið
mikið fyrr en á mánudagskvöldið,
en þá gekk meira til aust- norð-
austan áttar og herti veðrið. I
gær, þriðjudag, var enn mjög
hvasst lengi fram eftir degi.
Föstudaginn 8. febrúar kom
hingað litil flugvél, eign Flug-
félagsins Ernir á tsafirði. Hún
var á leið frá Heykjavik til Isa-
fjarðar, en komst ekki lengra, og
gat með naumindum lent hér á
flugvellinum. Þessi flugvél gjör-
eyðilagðist svo i hvassviðrinu að-
faranótt þriðjudags. Var hún
bundin niður á flugvellinum við
veghefil og fleiri festingar, en
ekkert dugði. Aðrar skemmdir
hafa ekki orðið miklar i óveðrinu
hér i þorpinu, en i nágrenni af
orðið mjög verulegar skemmdir á
sima-, og rafmagnslinum, eink-
um i önundarfirði. t dag, mið-
vikudag, fóru héðan menn til
önundarfjarðar með efni til við-
gerða á raflinum. Linan frá
Mjólkárvirkjun hingað til Þing-
eyrar mun hins vegar vera
óskemmd. Aðeins ein simalina
hefur verið nothæf á öllu Vest-
fjarðasvæðinu frá Patreksfirði til
tsafjarðar, en fjölsmininn óvirk-
ur.
Tveir bátar róa héðan land-
róðra með linu, en ekkert hefur
gefið á sjó i heila viku og það sem
af er febrúarmánuði hafa bátarn-
ir reyndar ekki farið nema annar
tvo og hinn þrjá róðra, og hrepptu
þeir þá vesta veður.
Mikið hefur verið um breska
togara hér inni á Dýrafirði og við
bryggju á Þingeyri siðan undan-
haldssamningurinn var gerður
við Breta i haust. Margir komu
hér að bryggju um helgina, en á
mánudagskvöldið héldust þeir
ekki lengur við vegna veðurs, og
láu þá úti á firðinum meðan
veðrið var verst. I dag voru 4
breskir togarar svo aftur komnir
hér að bryggju, en eru nú farnir
nema einn, sem er i viðgerð.
Póstsamgöngur hafa verið
mjög stopular við Þingeyri að
undaförnu. Eru nú t.d. liðnir 8
dagar siðan flogið var siðast frá
Reykjavik, en þá hafði liðið vika
frá næsta flugi á undan. Verka-
Fiskur í
þriðju
hverja
máltíð
OSLÓ 14/2 — Fiskur er
aðalrétturinn i 36% af
miðdegisverðum hjá
norskum heimilum, og
er þá átt við aðalmáltið
dagsins. Fjórði hluti
fisksins er keyptur beint
af sjómanni, veiddur af
heimilismanni eða feng-
inn að gjöf. Aftur á móti
er ket aðalrétturinn i
52% máltiðanna.
Þetta er niðurstaða af nýrri
opinberri rannsókn á fiskneyslu i
Noregi. 50% fisksins var keyptur i
almennum matvöruverslunum,
en við svipaða athugun árið 1967
var aðeins þriðji parturinn keypt-
ur i slikum búðum. Siðan þá hefur
hlutdeild fisksala minnkað um
helming, og einnig hefur bryggju-
og torgsala dregist saman. Aftur
á móti hefur það farið i vöxt að
fólk keypti fiskinn beint af sjó-
mönnum.
lýðsfélagið hér hefur boðað verk-
fall frá 19. þessa mánaðar. Um
önnur verkalýðsfélög hér á Vest-
fjörðum er það að segja, að
a.m.k. á Flateyri og tsafirði hefur
einnig verið boðað verkfall frá og
með 19. þ.m. og á sumum öðrum
stöðum hér litlu siðar.
Samningaviðræður um sió-
mannakjörin hér á Vestfjörðum
fóru fram á tsafirði i janúar-
mánuði og komust samninga-
nefndir að samkomulagi, en það
samkomulag var fellt i öllum við-
komandi verkalýðsfélögum,
nema i Bolungavik, og er þvi yfir-
leitt ósamið enn um sjómanna-
kjörin hér á Vestfjörðum.
TÍÐINDALAUST AF PENINGAMUSTERI
Viðræður Seðlabankans við
borgaryfirvöld um byggingarmál
hans standa enn og ekkert hægt
að segja um hvenær þeim lýkur,
tjáði Jóhannes Nordal banka-
stjóri blaðinu i gær.
Menn gerast nú langeygir eftir
þvi hver verður niðurstaða þessa
mikla hitamáls. Viðræðurnar
hai'a nú staðiö mánuðum saman
og aðilar verjast allra frétta af
gangi þeirra.
En þegar hugurinn beinist að
Seðlabankanum kemur upp
annað eilifðarmál sem er skipu-
lag gamia miðbæjarins. Þar eiga
samkvæmt aðalskipulaginu að
risa miklar hallir umkringdar
glæsilegum hraðbrautum. Enn
standur til dæmis óhögguð
ákvörðun borgarstjórnar um að
fylla upp hluta Tjarnarinnar og
reisa þar musteri yfir borgar-
stjórn og fylgilið hennar, öðru
nafni ráðhús.
Skipulagið er nú til endur-
skoðunar og hefur verið i mörg
ár. Og eins og af byggingamálum
Seðalbankans fréttist ekkert af
þeirri endurskoðun. Er það eftir
öðru hjá borgarstjórnarihaldinu
að endurskoðunin sú fer fram hjá
sérfræðingum og öll umræða um
hana þögguð niður. Virðist það
vera álit ihaldsins að skipulag
borgarinnar komi almenningi
ekki við, hvað þá að hann fái að
hafa áhrif á það. En fyrir hvern
er verið að skipuleggja ef ekki al-
menning?
Það er krafa blaðsins að endur-
skoðun skipulagsins fari fram
fyrir opnum tjöldum svo ai-
menningur eigi kost á að ræða
málið og taka afstöðu til allra til-
lagna sem fram koma.
ÞH
öllum islenskum rikisborgur-
um og er þannig ekki bundin
við félagsmenn ofangreindra
félaga. Þær tillögur sem ber-
ast verða dæmdar af fimm
manna dómnefnd. Til viður-
kenningar verður varið sam-
tals kr. 300.000.00, sem skipt-
ast þannig:
1. verðlaun kr. 150.000.00
2. verðlaun kr. 90.000.00
3. verðlaun kr. 60.000.00.
Skila skal tillögum þannig:
Teikningar i mælikvarða 1:5
er gefi sem gleggsta hugmynd
um gerð hlutar, jafnframt
skal skila mótdeli útfærðu i
mælikvarða 1:1. Samkeppnis-
gögn fást afhent á skrifstofu
Landsambands iðnaðar-
manna, en skilafrestur er til 5.
april n.k.
öllum fyrirspurnum i sam-
bandi við samkeppnina skal
beint til trúnaðarmanns dóm-
nefndar Þórleifs Jónssonar,
framkvæmdastjóra Lands-
sambands iðnaðarnema.
Danskir lista-
menn i Nor
rœna húsinu
17-18 febrúar
Dagana 17. og 18. febrúar
koma danski visnasöngvarinn
Povl Dissing og landi hans.
rithöfundurinn Banny Ander-
son, þrisvar fram i Norræna
húsinu. Þeir eru hér i boði
Norræna hússins, Det danske
Selskab og dansk-islenska fé-
lagsins. Sunnudaginn 17.
febrúar verður barna- og fjöl-
skylduskemmtun. Banny les
upp úr hinum vinsælu barna-
bókum sinum. Povl Dissing
syngur dönsk barnalög.
Sunnudagskvöld 17. feb. kl.
20.30. verða „Svantes viser” á
dagskrá. Povl Dissing syngur
og Banny Anderson leikur
undir á pianó og harmoniku.
Þetta er sorgarsaga, en i túlk-
un Povl Dissings munu áheyr-
endur gráta af hlátri. Mánu-
daginn 18. feb. kl. 20.30 koma
þeir Banny og Povl fram hvor
undir sinu nafni. Banny And-
erson mun lesa upp úr kvæð-
um sinum, en Povl Dissing
syngur dönsk alþýðulög.
Húsgagnasýn ing
Húsgagnameistarafélag
Reykjavikur og Meistarafélag
húsgagnabólstrara efna til
sýningar i sýningarhöllinni i
Laugardal dagana 18.-28. april
n.k. Þetta er þriðja sýningin
sem ofangreind félög gangast
fyrir undir heitinu ,,Hús-
gagnavika”. Allir framleið-
endur húsgagna og innrétt-
inga geta tekið þátt i sýning-
unni eftir þvi sem húsrúm
leyfir. Allar frekari upplýs-
ingar um tilhögun sýningar-
innar eru gefnar i sima 30250.
Tœknifrœð-
ingafélag Is-
lands fagnar...
A almennum félagsfundi i
Tæknifræðingafélagi tslands
var samþykkt eftirfarandi
ályktun:
„Almennur fundur i Tækni-
fræðingafélagi Islands haldinn
að Hótel Sögu þ. 24. janúar
1974 samþykkir að lýsa á-
nægju sinni með þá grein i
fjárlögum yfirstandandi árs,
sem fjallar um húsnæðismál
Tækniskóla Islands, og leggur
fundurinn áherslu á, að staðið
verði við þau loforð um úrbæt-
ur, sem þar koma fram, þann-
ig að hægt verði, ekki siðar en
á hausti komandi. að hefja
kennslu i nýju. fullnægjandi
húsnæði”.
(Fréttatilky nning frá
Tæknifræðingafélagi Islands.)
Tjón af
völdum elds
I dag fimmtudag var
slökkviliðið i Reykjavik kallað
út að Brekkustig 17 i Reykja-
vik. Talið er að kviknað hafi i
út frá rafmangseldavél. Litill
eldur var, en talsverðar
skemmdir urðu af vöidum
reyks. Slökkviliðinu tókst
fljótt að ráða niðurlögum
eldsins.
Harður
árekstur i
Grimsnesi
Harður árekstur varð i
Grimsne'si á svokallaðri
B i skupstungnabraut á
fimmtudag. Areksturinn var á
milli tveggja fólksbifreiða, og
eru báðar bifreiðarnar óöku-
færar eftir. Annar ökumaður-
inn var fluttur á Borgar-
sjúkrahúsið i Reykjavik með
litinn áverka.
Stúdentaráð
Háskóla íslands
fordœmir............
Þjóðviljanum hefur borist
bréf frá stjórn SHI, þar sem
hún fordæmir harðlega hand-
töku sovéska rithöfundarins
Solsénitsin og ákvörðun
sovéskra stjórnvalda að gera
hann landrækan. Þar stendur
ennfremur að með þessu ör-
þrifaráði sinu hafa sovéskir
ráðamenn loks viðurkennt að
staðhæfingar Solsenitsins um
skort á almennum mannrétt-
indum og tjáningafrelsi i
Sovétrikjunum hafi við rök að
styðjast.
Þótt skemmt sé liðið á vertið, er samt byrjað að
liengja skreið á trönur.
Kennslumet MR:
43 tímar á viku
Blaðinu hefur borist skýrsla
Menntaskólans i Reykjavik
fyrir skólaárið 1972 — 1973.
Skýrslan er liðlega 160 siður
og þar er að finna margvisleg-
an fróðleik um starfsemi skól-
ans á umræddu skólaári.
Fyrst er birtur listi yfir
nemendur skólans i einstökum
bekkjardeildum, þá er birt
yfirlit um skiptingu kennslu
milli kennara skólana. Alls
voru 39 fastráðnir kennarar
við skólann, en stundakennar-
ar voru 34 talsins. Fastráðnir
kennarar kenna að þvi er virð-
ist frá 6 stundum á viku upp i
43 stundir á viku hverri.
Fjölmörg fleiri atriði koma
fram i skýrslunni.
INNLEND
SYRPA
Húsgagnasam-
keppni
Félag húsgagnaarkitekta,
Húsgagnameistarafélag
Reykjavikur og Meistarafélag
húsgangabólstrara efna til
samkeppni um nýjar hús-
gagnagerðir. Áhersla verður
lögð á húsgögn sem henta i
fjöldaframleiðslu. Þátttaka i
samkeppni þessari er heimil