Þjóðviljinn - 15.02.1974, Síða 11
Föstudagur 15. febrúar 1974. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
Skólamót KSÍ
að hefjast
Knattspyrnumót skólanna —
hið sjötta i röðinni — hefst um
helgina með eftirtöldum leikjum :
Laugardagur 16. fcbr. 1974.
Kópavogsvöllur kl. 14.00
Þingholtsskóli-H.l.
Kópavogsvöllur kl. 15.30
V.t.-Vélskóli tslands.
Sunnudagur 17. febr. 1974.
Kópavogsvöllur kl. 14.00
Menntask. Kóp, tþróttakenn.sk.
Kópavogsvöllur kl. 15.30
Vighólaskóli-Kennarahásk.
Alls taka 24 skólar þátt i keppn-
inni, og var dregið i fyrstu umferð
11. febr. Eftirtalin lið drógust
saman, auk þeirra framan-
skráðu:
Menntask./Hamrahl.-
Gagnfr.sk. Austurbæjar
Menntask. Rvik.-Gagnfr.sk.
Garðahr.
Vogaskóli Rvik-Stýrimannask.
Lindargötuskóli-Menntask.
Laugarvatni
Héraðssk. Laugarvatni-
Tækniskóli tslands
Menntask. Akureyri-Menntask.
v/Tjörnina
Laugalækjaskóli-Menntask.
tsafirði
Iðnskóli Akureyrar-Hliðar-
dalsskóli, ölf.
Ráðgert er að ljúka fyrstu um-
ferð helgina 23,—24. febrúar.
Reglur mótsins: Það lið, sem tap-
ar i fyrstu umferð, er úr keppn-
inni. Þau lið, er eftir standa,
þurfa hins vegar að tapa tveimur
leikjum til að falla út. Leiktimi er
2x40 min. framlenging 2x10 min,
siðan vitaspyrnukeppni, þar til
úrslit fást. Þetta á þó ekki við um
úrslitaleik keppninnar. Ef þar er
jafnt að venjulegum leiktima
loknum, skai annar leikur háður.
Verði enn jafnt, skal framlengja
og siðan gert út um leikinn með
vitaspvrnukeppni.
Sundmót KR
Enn er Guðmundur
einn þeirra bestu
Sundmót KR fór fram i Sund-
höll Reykjavikur sl. þriðjudags-
kvöld, hálfgert felumót, i það
minnsta sá iþróttafréttamaður
Þjóðviijans mótið ekki auglýst og
honum barst engin tilkynning um
að þetta mót ætti að fara fram.
Kannski er þess ekki óskað að
sagt sé frá mótinu i ákveðnum
fjölmiðlum, en samt ætlum við að
gerast svo biræfnir að segja frá
úrslitum mótsins.
Guðmundur Gislason, sá mikli
sundkappi, vann besta afrek
mótsins er hann synti 200 m fjór-
sund á 2:27,2 min. og hlaut að
Iaunum afreksbikar SSt. En litum
þá á helstu úrslit mótsins.
400 metra skriðsund karla
íslandsmet: Friðrik Guðmunds-
son, KR, 4:20.4. í þessu sundi er
keppt um bikar þann, sem SSÍ gaf
sunddeild KR i tilefni 50 ára
afmælis deildarinnar 1973.
1. Axel Alfreðsson, Æ, 4:40.0
2. Daði Kristjánsson, UBK, 4:51.5
3. Halldór Ragnarsson, KR, 4:55.8
100 m skriðsund kvenna
íslandsmet: Hrafnhildur Guð-
mundsdóttir, Á 1:03.9. í þessu
sundi er keppt um Flugfreyjubik-
arinn, en hann gaf Rögnvaldur
Gunnlaugsson til minningar um
systur sina, Sigríði Báru, fyrstu
flugfreyju islendinga, en hún
fórst í flugslysinu í Héðinsfirði
árið 1947.
1. Vilborg Sverrisdóttir, SH,
1:07.8
2. Þörunn Alfreðsdóttir, Æ, 1:08.2
3. Hallbera Jóhannesdóttir, lA,
1:11.5
100 m bringusund karla
Islandsmet: Guðjón Guðmunds
son, iA, 1:10.9
Framhald á 14. siðu.
Guðmundur Gislason
Gunnar Finnbjörnsson einn besti borðtennisleikari landsins, en keppir samt enn i unglingaflokki, og
kannski verður keppnin þar skemmtilegust.
Reykjavíkurmótið
í borðtennis fer
fram um helgina
Reykjavíkurmeistara-
mótið í borðtennis fer
fram í Laugardalshöllinni
á laugardag og sunnudag
nk. Keppt verður í einliða-
leik karla, kvenna og ung-
linga, tvíliðaleik karla,
kvenna og unglinga og
tvenndarkeppni. Allir
bestu borðtennisleikarar
borgarinnar
keppenda.
verða meðal
Islandsmeistarar FH gegn
landsliðinu
verður hápunkturinn á fjáröflunar
kvöldi fyrir landsliðið 20. febrúar
Næstkomandi mið-
vikudaqskvöld verð-
ur haldið fjáröflunar-
kvöld fyrir landslið okk-
ar í handknattleik sem
er nú í miðjum undir-
búningi fyrir lokakeppni
HM sem hefst i A,-
Þýskalandi 28. febrúar
nk. Þarna verður mjög
margt til skemmtunar,
þ.á m. 3 leikir, allt stór-
leikir auðvitað, en samt
mun nú sennilega leikur
nýbakaðra Islands-
meistara FH gegn
landsliðinu okkar rísa
þar hæst.
1 þeim leik mun FH fá að
halda landsliðsmönnum sin-
um, þeim Hjalta, Viðari,
Gunnari og Auðunni öskars-
syni, en hinsvegar mun Geir
Ilallsteinsson leika með lands-
iiðinu. Þetta verður sannar-
lega einn af stórleikjum vetr-
arins i handknattleik, og
stóra spurningin er: Tapar FH
loks leik á þessu ári, eða held-
ur sigurgangan áfram?
Þá fer fram merkilegur
leikur milli landsliðsins frá
1964 og 2. deildar úrvals. Þetta
lOára gamla landslið gerði sér
litið fyrir og hreinlega ,,bust-
aði” unglingalandsliðið fyrir
nokkrum vikum.og það verður
sannarlega gaman að sjá
„karlana” gegn bestu mönn-
um 2. deildar. Sennilega verð-
ur róðurinn þyngri en gegn u-
landsliðinu, en lengi lifir i
gömlum glæðum, þannig að
það verður ekki auðvelt fyrir
úrvalið að sigra.
Þá mun landsliðið okkar i
dag.sem söng nýverið inná
hljómplötu, koma fram og
syngja þetta lag undir stjórn
Ómars Ragnarssonar.
Loks er það svo rúsinan i
pylsuendanum, en það er leik-
ur iþróttafréttamanna gegn
handknattleiksdómurum.
Þetta frábæra lið fréttamanna
hefur marga hildi háð, en unn-
ið alla sina leiki hvort heldur
er i handknattleik eða knatt-
spyrnu. Þvi miður er hætt við
að leikurinn verði svo ójafn að
hann verði ekki skemmtilegur
á að horfa, en kannski má
leysa þann vanda með að gefa
dómurum „mann” i forgjöf.
En alla vega verður þarna
um stórkostlegt skemmti-
kvöld að ræða fyrir þá sem
unna handknattleik, glensi og
gamni.
Ekki er nokkur leið að spá
neinu um úrslit, til að mynda i
mfl. karla, einliðaleik. Á Arnar-
mótinu sem fram fór i janúar
gerðust ýmis óvænt atvik, og svo
jafnir eru keppendur nú, að það
er út i hött að reyna að spá fyrir
um úrslit.
Framhald á 14. siðu.
26
í stað
25
Við sögðum frá þvi.að hinn
frábæri handknattleiksniaður
Birgir Björnsson fyrirliði og
þjálfari FH hefði náð 25 is-
landsmeistartitlum i hand-
knattleik. Þetta er ekki rétt,
Birgir hefur gert betur, hann
liefur náð 26 titluni. 16 sinnum
hefur hann orðið meistari með
FII utanhúss og 10 sinnum inn-
anhúss. Við biðjum Birgi vel-
virðingar á inistökunum; það
var ekki meiningiu að rýra
þetta einstaka afrek hans. —
Sdór.