Þjóðviljinn - 13.06.1974, Side 11
Fimmtudagur 13. júní 1974 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 11
Boltinn byrjar að
i/mm74 rúlla á HM í dag
Þá er komið að þeirri
stóru stund að lokakeppni
HM í knattspyrnu hefjist.
Fyrsti leikurinn fer fram í
kvöld. Heimsmeistararnir
frá Brasilíu og Júgóslavar,
sem leika í 2. riðli, opna
keppnina. Leikurinn fer
fram í Frankfurt. Svo á
morgun fer keppnin í
fullan gang og verða þá
leiknir 7 leikir. Síðan
verður haldið áfram þar til
7. júli að úrslitaleikurinn
fer fram á ólympíuleik-
vanginum í Munchen.
Riðlar keppninnar eru 4 og
þannig skipaðir:
'.V»'
1. riðill:
V-Þýskaland, A-Þýskaland, Chile
og Astralia.
Leikir i 1. riðli eru sem hér segir.
Föstudag 14. júni:
V-Þýskaland — Chile
A-Þýskaland — Ástralia
Þriðjudag 18. júni:
Chile — A-Þýskaland
Astralia — V-Þýskaland
Laugardagur 22. júni:
Ástralia — Chile
A-Þýskaland — V-Þyskal.-
2. riðill
Brasilia, Júgúslavia, Zaire og
Skotland.
Leikir i 2. riðli eru sem hér segir:
Fimmtudagur 13. júni:
Brasilia — Júgóslavia
Föstudagur 14. júni:
Zaire — Skotland
Þriðjudag 18. júni:
Júgóslavia — Zaire
Skotland — Brasilia
Laugardag 22. júni:
Zaire — Brasilia
Júgóslavia — Skotland
3. riðill
Sviþjóð , Búlgaría, Uruguay og
Ilolland.
Leikir i 3. riðli eru sem hér segir:
Laugardag 15. júni:
Sviþjóð — Búlgaria
Uruguay — Holland
Miðvikudag 19. iúni:
Holland — Sviþjóð
Búlgaria — Uruguay
Sunnudag 23. júni:
Búlgaria — Holland
Sviþjóð — Uruguay
4. riðill
ttalia, Haiti, Pólland og
Argéntina.
Leikir i 4. riðli verða sem hér
segir:
Laugardaginn 15. júni:
Italia —Haiti
Pólland — Argentina
Miðvikudag 19. júni:
Haiti — Pólland
Argentina — ttalia
Sunnudagur 23. júni:
Argentina — Haiti
Pólland — Italia
Tvö efstu liðin i hverjum riðli
komast áfram i 8 liða keppnina og
leika þar i tveimur riðlum sem
verða þannig skipaðir:
1. riðill: Sigurvegarar úr 1. og 3.
riðli og lið númer 2 i 2. og 4. riðli.
2. riðill: Sigurvegarar úr 2. og 4.
riðli og lið númer 2 úr 2. og 3. riðli.
8-liða keppnin hefst svo 26. júni
nk.
Júgóslavneska landsliðið sem leikur I kvöld gegn Brasillumönnum. Aftari röð f.v.: Maric, Buljan,
Bogicevic, Katalinski, Hadziabdic. Fremri röð frá v.: Oblak, Karasi, Acimovic, Petkovic, Surjak og
Dazajic.
Meiri varúðarráðstafanir
en dæmi eru til um áður
V-Þjóðverjar óttast að atburðirnir frá OL
í Múnchen endurtaki sig á HM í knattspyrnu
V-þýska lögreglan gerir nú
meiri varúðarráðstafanir
vegna hugsanlegra aðgerða
ýmissa öfgahópa en dæmi eru
til um áður, og þótti inönnum
þó nóg um þegar ÓL i
Munchen stóðu yfir, en þær
varúðarráðstafanir dugðu þó
ekki til, eins og menn cflaust
muna, og nú óttast V-Þjóð-
verjar meira en nokkuð
unnað, að eitthvað i likingu við
það sem gerðist á ÓL
endurteki sig í HM.
Lögreglan í Frankfurt, þar
sem fyrsti leikur HM fer fram
i kvöld, hefur mikinn viðbúnað
bæði fyrir leikinn og meðan á
honum stendur og eins á eftir.
Lögreglustjórinn i Frankfurt,
Horst Vogel, sagði, að enda
þótt hvorki lögreglan né nokk-
ur annar hefði fengið hótanir
um hefndaraðgerðir, væri hún
við öllu búin og byggist allt
eins við einhverjum tilraunum
til hefndaraðgerða.
Ekki færri en 100(1 lögreglu-
þjónar og 850 öryggi’sverðir
munu gæta leikvangsins i
kvöld, en hann rúmar 62.000
áhorfendur. Verða þessir
verðir dreifðir á 9 km svæði
umhverfis leikvanginn.
Þá verður ekkert flug leyft
yfir svæðið i margar klukku-
stundir fyrir leikinn, meðan á
honuni stendur eða eftir hann,
nema hvað lögregluþyrlur
munu verða á sveimi i ná-
grenni vallarins allan þennan
tima.
Allt skóglendi i nágrenni
vallarins verður grand-
skoðað, raunar finkembt
fyrir leikinn,til að koma i veg
fyrir að öfgahópar sem hugs-
anlega vildu gera árás á völl-
inn fái ekki leynst þar.
Þá mun sérþjálfaður hópur
öryggisvarða gæta stjórn-
málamanna og forráðamanna
FIFA mcðan á leiknum
stendur og hafa verðirnir sér
til aðstoðar sjónvarp, sem
sýnir allt umhverfið.
Þannig mun þetta svo verða
á öllum leikjum keppninnar og
er grcinilegt að V-Þjóðverjar
ætla sér ekki að láta atburðina
frá ÓL I Munchen endurtaka
síg.
HSÍ
fréttir
Arlegt þing Handknatt-
leikssambands íslands verður
haldið i Félagsheimilinu á
Seltjarnarnesi dagana 21. og
22. júni n.k. Hefst þingið föstu-
daginn 21. júni kl. 21.00 og
verður fram haldið laugar-
daginn 22. júni kl. 13.30.
íslandsmeistaramót
utanhúss
Stjdrn Handknattleikssam-
bands tslands hefur ákveðið
að Islandsmeistaramót i
handknattleik utanhúss fari
fram sem hér segir:
t meistarafl. karla á
timabilinu 15. til 30. júli n.k.
t meistara og 2. fl. kvenna i
ágústmánuði.
Umsóknir um framkvæmd
mótanna óskast sendar stjórn
H.S.l. fyrir 20. júni n.k.
Hollendingarnir fá
rúmlega miljón hver
vinni þeir
Það er ekki til neins
smáræðis að vinna fyrir hol-
lensku landsliðsmennina I
knattspyrnu i þeirri loka-
keppni HM sem byrjar I dag.
Komist þeir i úrslit fær hver
leikmaður um 400.000 kr., en
vinniliðið HM titilinn fær hver
leikmaður upphæð sem nemur
um 1.200.000 kr. islenskum. Sú
upphæð er um 70% af þvi sem
hollenska knattspyrnusam-
bandið fær fyrir þátttökuna i
keppninni.
Ekki gekk það þrautarlaust
fyrir knattspyrnumennina að
titilinn
fá sainbandið til að sam-
þykkja þessa upphæð. Þeir
hótuðu þvi aö taka ekki sæti i
liðinu ef sambandið féllist ekki
á að greiða þeim þessa upp-
hæð.
Og það sem meira er i þessu
sambandi. Margir telja Hol-
lendingana mjög liklega til að
komast i úrslit, jafnvel að
vinna keppnina með snilling-
inn Cruyff i broddi fylkingar,
manninn, sem sagt er að geti
gert hvaða lið sem er að
meistara.
Einn af stjörnum brasilfska landsliðsins' sem mætir Júgóslövum I
kvöld, Paulo Cesar.
UMSJÓN SIGURDÓR SIGURDÓRSSON