Þjóðviljinn - 12.01.1975, Side 2

Þjóðviljinn - 12.01.1975, Side 2
- f.c,r<í U j * 2 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 12. janúar 1975. Umsjdn: Vilborg Harðardóttir Hver er rétt skipan mála um baráttuleiö kvennahreyfingarinnar? Höfundur eftirfarandi greinar, Ari Trausti, sem talsvert hefur skrifaö um þjóðfélagsmál undan- farin ár, og tilheyrir hinum rót- tækari armi vinstri hreyfingar á tslandi, segist hafa fylgst meö skrifum hér á jafnréttissíöunni frá þvi aö hún sást fyrst i Þjóö- viljanum. Af innihaldi hennar má ljóslega draga þá ályktun, skrifar hann, að islensk kvennahreyfing nú- timans, er enn á byrjunarstigi. Ennfremur aö umræöur um mál kvenna hafi veriö af skornum skammti, enda má segja aö vinstri hópar og fiokkar sneiöi nokkuö vendilega framhjá kvennabaráttunni. Baráttulinan sem fram kemur á jafnréttis- síðunni er sambland af óllkum skoöunum einstaklinga, allt frá þvi er kalla má kvenrembing (femfnisma) — borgaraleg stefna -tilréttrar baráttulinu — þeirrar er tekur miö af stéttabaráttunni og afstööu vinnandi alþýðu. Sjaldgæft er að karlar hefji máls á einhverju hér innansiðu, svo nú ætla ég að leggja nokkur orö I belginn. Stuttlega þó. Tvöföld kúgun. Konan hefur um langan aldur veriö kúguð. Ekki aðeins sem kvenvera, heldur einnig (með fáum undantekningum) sem hluti þeirrar stéttar, sem hún til- heyrir. Vinnandi alþýða landsins telur um 80% þjóðarinnar, þaraf konur liðlega helmingur, séu heimavinnur meðtaldar. Takmark framsækinna afla er að binda endi á þessa tvöföldu kúgun. Höfuðvandinn er að strika út þá leið sem barátta kvenna verður að fylgja svo árangur náist. Ein forsenda lausnar er aö skilja hvernig ólikir þættir kúgunarinnar eru tengdir inn- byröis og svo þjóðfélaginu. Litum á þrjú dæmi. X er gift forstjóra skipafélags og bankaráðsmanni (og meö- eigandi hans). Y er eigandi litillar bókabúðar. Z vinnur aðallega heimavið en gripur i fisk, þegar tarnir koma. Þetta eru fulltrúar borgara- stéttar, smáborgarastéttar, og verkalýðsins. Liti menn á kúgun konunnar aöeins kynbundna og að hún stafi af „ofriki karla” mætti Imynda sér að unnt væri að stilla X, Y og Z undir einn hatt og karlmönnum sem aðalandstæö- ingi. Þetta er borgaralega afstað- an. Liti menn hins vegar á þá staðreynd að X, Y og Z hafa alls- endis ólika stööu I þjóðskipulag- inu, I atvinnunni og menningar- lifi,er ekkj unnt að gera X, Y og Z upp sameiginlega hagsmuni i einu og öllu. Hver er þá hin fram- sækna afstaða? Til þess að geta svarað þvi verður aö athuga hvort kynbundin undirokun er þung- vægari stéttarlegri, og hvor er forsenda hvorrar — þvi auðvitað geta X, Y og Z allar búið við gamalt siðferðis- og lifsmynstur kynhlutaverkaskiptingar og afturhalds, þó X sé arðræningi en ^rðrænd Um efna- i og stéttarlega kúgun gegnir öðru máli. Söguþróun- in sýnir að kynbundin undir- okun er afleiöing stéttaskiptingar frá fornu fari, löngu fyrir daga auðvaldsins. Ólik framleiðslu- staöa karla og kvenna og ýmissa þjóöfélagshópa leiddi fyrst til eðlilegrar verkaskiptingar og fl jótlega til undirokunar almúgans og um leið kvenna. Auknum efnalegum völdum og lykilstörfum (t.d. veiðum) fylgdu þjóöfélagsvöld meiri en áður. Með öðrum orðum: Stéttarleg undirokun er forsenda kyn- bundinnar undirokunnar, og hvor um sig viðheldur hinni. Sú stéttarlega er lika þungvæg- ari, sem sést hvað best i auðvaldsþjóöfélaginu og þar með af dæminu um X og Z, þar sem verkakonan, sem sætir tvöfaldri kúgun, er meira okuð en X. Framsækin afstaða er þvi ekki fólgin i að krefjast „jafns réttar” til að ná stöðu X eða Y eða karla þeirra — heldur réttar til fullrar vinnu, sömu launa og karlar, dag- heimila, fullrar menntunarað- stöðu o. fl. og beina spjótum að undirrót meinsins, stéttaþjóð- félaginu. „Við viljum liggja ofaná” — er þvættingur. „Til baráttu fyrir jafnrétti kvenna á grundvelli vinnandi alþýðu” er dæmi um hið rétta kjörorð. Auðvaldið er höfuðandstæðingurinn 1 allri baráttu verður að leita að rótum meinsins. 1 kvenna- baráttunni þýðir það samt ekki að einungis skuli herjað á aðra teg- und undirokunarinnar en ekki hina. Heldur er átt við að höfuöþunganum verður að beina að grundva 11 arat r i ðum tvöfaldrar kúgunar. Flestar konur hafa a.m.k. þriþætt áþjánarhlutverk i is- lensku þjóðfélagi: 1. Sem húsmæður og uppalend- ur barna — þ.e. aðilar er hlúa að og endurnýja vinnuafl, sem borgararnir kaupa. 2. Sem sá hluti vinnuaflsins, sem auðvaldið getur ýmist lokkað að atvinnutækjunum eða sent heim til pottanna, eftir þvi hvað þjónar hámarksgróðasókn þess og breytilegum hag. Stór hluti er neytendur og óframleiðinn þjóð- félagshópur, um leið. 3. Sem láglaunahópur við tilgreind „kvenmannsstörf”. Augljóslega stafar ekkert af þessu af „ofriki karla” — heldur einkaeign pipuhattalýös á at- vinnutækjum, þjóðfélagsvöldum þeirra og gróðasókn. Auk þess mætti vera ljóst að ef auðvaldið — atvinnurekendur og rikisvald þeirra — afnæmi þessi hlutverk kvenna stæði það ekki deginum lengur. Grundvöllur kúgunarinnar, margumrædd forsenda þjáningarinnar er auövaldiö. Þar er höfuðandstæðinginn að finna, hvort sem handhafinn er Gissur Gullrass eða frú Gullrass — höfuðandstæðingurinn er ekki Jón Jónsson alþýðumaður. Sósialisk kvenna- hreyfing eða ekki sósialisk? Nú er svo að vinnandi alþýða og sérlega þá verkalýðurinn (karlar og konur) eiga i stöðugri efna- legri og pólitiskri baráttu við sama vald og treystir og lifir á tvöfaldri undirokun konunnar. Baráttulinan i kvennahreyfing- unni getur ekki annað en tekiö mið af stéttabaráttunni, úr þvi andstæðingur hennar er öörum sameiginlegur. Verkefni hreyfingarinnar felst þvi I: Margir telja eina af ástæðunum fyrir vaxandi sjálfsvitund kvenna og þarmeð kvennabaráttu vera siaukna þátttöku þeirra á vinnumarkaön um, þar sem þær lenda I verst launuöu, einhæfustu og oft erfiðustu störfunum. — Myndin er af málverki Diego Rivera : Vélvæöing. ■ að fylkja saman öllum konum sem unnt er að ná saman til baráttu fyrir brýnum hags- munamálum og framsækinni fræðslu — gegn nefndum áþjánarhlutverkum. ■ að fylkja til baráttu með vinnandi alþýðu I stétta- baráttunni. Mestu máli skiptir að baráttan beinist hlutlægt að auðvaldinu, þótt huglægar for- sendur séu ólikar. I þessu skyni þarf kvenna- hreyfingu og verkalýðshreyfingu (verkalýðsflokk + stéttarfélög) Nú spyrja eflaust margir: — Úr þvi að auðvaldið er aðaland- stæðingurinn, hvert er markmið baráttunnar og grunnur? í svari við þessu er fólgin einna mesta hættan á rangri afstöðu. Suinir benda nefnilega á ákveðna staðreynd, sem sé að fullkomin frelsun konunnar undan öllu oki er aðeins möguleg með rústun auðvaldsþjóðfélagsins og uppbyggingu sósialisks og kommúnisks þjóðfélags, og svo’ er skjótlega dregin sú ályktun að þess vegna sé öll „sérstök kvennabarátta óþörf” eða enn verra, að hana „megi aðeins heyja á grundvelli sósialismans.” Rétt er vissulega að markmið baráttunnar er að reisa alræði alþýðunnar, það er rétt að sósialistar og kommúnistar eru fremstir i kvennafylkingunni — en ályktunin er röng og sneiðir fram hjá aðalvandanum, nefni- lega þeirri staðreynd að konur eru ekki sósialistar að meiri- hluta. Og þær verða alls ekki sósialistar fyrst og svo liðsmenn kvennahreyfingarinnar! Nú geta konur verið félagar i samtökum eða flokkum réttrar gerðar, enda er það þeirra að reka sósialiskan og kommúniskan áróður á þeirra vegum — en sem einangraðir hópar frá fjöldanum komast þær konurnar ekki hænu- fet nær takmarkinu. Leið samfylk- ingarinnar Hvers kyns framsækin barátta fyrir afmörkuðum baráttumálum notar leið samfylkingarinnar. Hún verður að taka mið af vitundarstiginu almennt (og sér- tækt) og þekkingu fjöldans — og þvi hvar óvininum er skeinuhætt- ast við núverandi aðstæður — nefnilega að hróflað verði við Framhald á 22. siðu. ORÐ jr i BELG Faðerni og móðerni ekki jafnt metið? Inga.sem búsett er erlendis, segist hafa verið að athuga á- kvæðin um islenskan rikis- borgararétt. — Ég var að fletta honum Fjöivis minum, skrifar hún, og rakst ma. á þessa setningu: „Barn fái islenskan rikis- borgararétt við fæðingu 1) ef það er skilgetið barn islensks föður, 2) ef það er fætt hér á landi og er skilgetið barn móður sem hefur isl. rikis- fang, enda eigi faðir þess hvergi rikisborgararétt, eða barnið fær ekki rikisfang hans við fæðingu, 3) ef það er óskil- getiðog móðir þess er islensk- ur rikisborgari.” Og við sem höfum verið að telja okkur trú um, að amk. i lagabókstafnum sé nokkurn- veginn rikjandi jafnrétti kynj- anna þótt framkvæmdin sé svo önnur! Forréttindi karla í sundlaugunum Margar konur, sem stunda sundlaugina i Laugardal — og gufubaðið þar, hafa látið i ljós óánægju sina með hve körlum og konum er mismunaö varð- andi aðgang að gufubaðinu. Það virðist semsé varla til þess ætlast, að þær konur, sem bæði stunda vinnu úti og eru húsmæður, geti nokkurntima komistþangaðmeð góöu móti. Um helgar, þegar fólk á fri, er það aðeins opið körlum, bæði laugardaginn og sunnudaginn. Mánudaga og miðvikudaga eiga hinsvegar konur allan daginn svo og föstudags- morgna. — En hvaða útivinnandi húsmæður komast i miðri viku? spyrja þær. — Eftir vinnutima á kvöldin, er venju- lega svarið, en þá gleymist að einmitt á þeim tima eru þess- ar sömu konur á harðahlaup- um við að kaupa i matinn og elda hann fyrir fjölskylduna auk annarra heimilisstarfa. Upphaflega var gert ráð fyrir, að gufubað yrði fyrir bæði karla og konur við Laugardalslaugina. En það hefur aldrei komist i verk að byggja nema annað þeirra. Ef það væri ekki svo þröngt sem raun er á væri i sjálfu sér ekk- ert á móti þvi að karlar og konur fengju aðgang að gufunni samtimis. En meðan aðstaðan er aðeins einn litill gufuklefi verður að gera þá kröfu að bæði kyn fái jafnan aðgang og skipt verði á milli þeirra helgardögunum, karl- menn fái td. laugardaginn og konur sunnudaginn aðra vik- una og svo öfugt þá næstu. Ekki nóg að rausa og röfla Kona, sem vinnur á fjöl- mennum vinnustað, sem er nokkuð úr alfaraleið og þar sem meirihluti starfsfólks er konur sagði leiðindasögu: Vinnutimi hefst kl. niu á morgnana, matartimi er klukkustund og vinnutima lýkursiðankl.5.30Fæstir utan yfirmannanna fara heim i mat, þarsem strætisvagna- ferðir eru ógreiðar og langt að fara. Þessvegna var almennur áhugi á að stytta matartimann i hálftima og fá siðan að fara hálftima fyrr heim siðdegis. Ekki sist konurnar (flestar billausar) höfðu hug á slikri breytingu og um þetta var tal- að fram og aftur i matar og • kaffihléum þartil ein tók á sig rögg og talaði um þetta við yfirboðarana. Ekki þóttust þeir geta staðið að sliku nema að vel athuguðu máli, en sögðust gera það ef meirihluti starfsfólksins færi framá það. En viti menn! Sama fólk og áður var búið að ræða máliö af áhuga treysti sér nú ekki til að standa að álitsgerö, beiðni eða einhverju viðlika. Og matar- timinn er enn óbreyttur. Þetta mál, sem ekki er stór- vægilegt i sjálfu sér, er gott dæmi um til hve litils er fyrir samstarfsfólk að rausa og röfla og lýsa óánægju sinni hvert við annað, eins og svo algengt er á vinnustöðum, ef það hefur svo ekki þá stéttar- vitund sem með þarf til að standa saman um málið þegar á reynir. — vh

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.